Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2001, Síða 7
FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2001
DV
7
Fréttir
DV-MYND ÞGK
Nýr leikskóli
Allir vildu auövita prófa leiktækin í nýja leikskólanum.
Leikskóli vígður
DV, GRINDAVÍK:
Nýr leikskóli í Grindavík var
vígöur á dögunum og var það sr.
Hjörtur Hjartarson sem það gerði að
viðstöddum eigendum, bæjarstjóm,
rekstraraðilum og fleiri ráðamönn-
um. Eins og fram hefur komið í DV
er þetta einkaframkvæmd og eru
eigendumir Nýsir.
Leigir Grindavíkurbær leikskól-
ann af þeim til 29 ára og hafa þeir
einnig boðið reksturinn út en það
var Ráðgjöf verktaka sem átti
lægsta tilboðið.
Hulda Jóhannsdóttir leikskóla-
stjóri sagðist vera mjög bjartsýn á
framhaldið, vel hefði gengið að ráða
leikskólakennara og leikskólinn
væri frábær í alla staði. Hún hlakk-
ar mikið til fyrsta starfsdags leik-
skólans sem verður 29. janúar sem
er örlítil seinkun en i fyrstu var
ráðgert að leikskólinn opnaði 15.
janúar.
Að vígslunni lokinni var leikskól-
inn bæjarbúum til sýnis og dáðust
margir að glæsilegri hönnun og
handbragði. -ÞGK
'r- oJfc
DV-MYND INGÓ
Hinn rétti bíll ársins
Eins og lesendur DV vita væntanlega er Mercedes Benz C200K bíll ársins
2001 á íslandi og var hann af því tilefni kynntur hjá Ræsi um helgina. Meö
fréttinni birtist mynd af annarri tegund af Benz og er því hér meö birt rétt
mynd af bíl ársins.
Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi R-listans
Leiðir SVR ekki boðnar út
Árni Þór Sigurðsson, borg-
arfulltrúi R-listans, segir að
það standi ekki til að bjóða
út eða einkavæða leiðir sem
eru á vegum Stætisvagna
Reykjavíkur eins og Ög-
mundur Jónasson, formaður
BSRB, heldur fram í DV.
„Meginatriðið í þessu máli
er það markmið okkar að
efla almenningssamgöngur í
Reykjavík og öllu höfuðborg-
fyrir því að bæta samgöng-
urnar og það er kjarni
málsins. Við höfum sagt
að það standi ekki til að
einkavæða eða bjóða út
leiðir sem við erum með í
okkar rekstri hjá SVR. Á
hinn bóginn hafa Almenn-
ingsvagnar boðið út leiðir
hjá sér og ég reikna að svo
verði áfram þrátt fyrir
samstarf fyrirtækjanna
Arni Þór
Sigurösson.
arsvæðinu. Reykjavíkurlistinn og um rekstur almenningsvagnakerfis
aðrir sem starfa á vinstri væng ís- á höfuðborgarsvæðinu. Það sem
lenskra stjórnmála hafa lengi barist skiptir mestu er að efla og bæta
samgöngurnar og auka hlut þeirra í
umferðinni.
Það er ekki búið að stofna fyrir-
tækið enn þannig að of snemmt að
segja til um hvernig rekstrinum
verður háttað en ég reikna með að
það verði í sameignar- og byggðar-
samlagsformi. Það verður svo hlut-
verk þess að ákveða með hvaða
hætti rekstri leiðanna verður hátt-
að. Við hjá Reykjavíkurlistanum
leggjum áherslu á að þær leiðir sem
við erum með hjá SVR verði ekki
boðnar út og reknar með sambæri-
legum hætti og verið hefur.“ Kip
Hluthafafundur
Hluthafafundur í Kaupþingi hf. verður haldinn á Grand
Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, þann 5. febrúar nk. kl. 17.00.
Dagskrá:
1) Tillaga um að heimila stjórn að hækka hlutafé félagsins
um allt að kr. 300.000.000, með áskrift nýrra hluta.
2) Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem
löglega eru upp borin.
Við hækkun hlutafjár munu hluthafar eiga rétt til að skrá
sig fyrir nýjum hlutum í réttu hlutfalli við hlutaeign sína,
sbr. 1. mgr. 34. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Mun
þeim sem eiga áskriftarrétt veittur kostur á að notfæra
sér áskriftarréttinn, með sérstakri tilkynningu þar um.
Stjórn Kaupþings hf.
KAUPÞING
Ármúli 13A • 108 Reykjavík
Sími 5151500 • Fax 5151509
www.kaupthing.is
Viltu komast á toppleiki?
Liverpool - Roma &
Man.Utd- Arsenal
Tippaðu á enska boltann og þú gætir
komist i fótboltaferð til Englands
22.-25. febrúar að siá tvo toppleiki.
Bregið verður á laugardögum til
10. febrúar í hálfleik á
enska boltanum á Stöð 2.
Nýttu þér tölvuvalið
- aðeins 10 kr. röðín
\hi tipf>“*