Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2001, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2001, Blaðsíða 8
8 Viðskipti Umsjón: Viðskiptablaöid Net-Album stofnar dóttur- fyrirtæki í Bandaríkjunum íslenska hugbúnaðarfyrirtækiö Net-Album.net hefur stofnað dóttur- fyrirtæki í Bandaríkjunum, Net-Al- bum USA. Innan þess starfa mark- aðsskrifstofa fyrirtækisins í Los Angeles í Kaliforníu og nýstofnuð eining í Washington D.C. á austur- ströndinni. Fyrirtækið hefur fengið til liðs við sig Bandaríkjamanninn George Keegan til að stýra starfsemi Net-Al- bum.net á austurströndinni. Keegan kom til Net-Album frá Digital Now Inc., sem er leiðandi fyrirtæki á heimsmarkaði í framköllun staf- rænna mynda, en þar stýrði hann þróunardeild netviðskiptalausna. Þar áður stýrði Keegan þróun net- viðskiptalausna hjá risafyrirtækinu Unisys Corp. Net-Album.net hefur þróað og framleitt hugbúnaðinn Net-Alb- um.net sem er þróaður og fjölhæfur gagnagrunnur fyrir stafræn mynda- og skráasöfn. Að sögn Þorvalds Inga Jónssonar, framkvæmdastjóra Net- Album.net, er nýjasta útgáfa hug- búnaðarins Net-Album 3.0 tilbúin á markað en sala hefst þó ekki fyrr en að lokinni afgreiðslu umsóknar um einkaleyfi á vissum hlutum hugbún- aðarins. Einkaleyfl þetta nær til G-7 landanna en Þorvaldur Ingi segir einkaleyfl á hugbúnaði geta verið mikils virði og skapað sterka mark- aðsstöðu. Keegan kominn tii starfa í framhaldi af opnun tveggja starfsstöðva í Bandaríkjunum er í undirbúningi að hefja markaössetn- ingu Net-Album forritsins af krafti í Japan, Kóreu og síðan í öðrum Asíulöndum. Að sögn Þorvalds Inga skiptir miklu máli fyrir Net-Alb- um.net að njóta liðsinnis reyndra aðila á borð við Keegan þegar kem- ur að markaðssetningu Net-Alb- um.net. „Hann þekkir samningaferla og annað sem tengist markaðssetn- ingu hugbúnaðar mjög vel. Gagnvart okkur og viðskiptavinum okkur setur það hlutina í breiðara og traustara samhengi að maður á borð við Keeg- an skuli vera í forsvari fyrir okkur,“ segir Þorvaldur Ingi. Samþætt við stýrikerfi „Mitt hlutverk hjá Net-Album verður að aðstoða við þróun við- skiptaáætlunar fyrirtækisins og leita nýrra markaðs- og þróunar- tækifæra," sagði Keegan í samtali við Viðskiptablaðið. Hann segir þrjú svið sérstaklega vera til skoð- unar þar sem hann telur Net-Album eiga góð tækifæri: menntakerfið, viðskiptalífið og almennan neyt- endamarkað. Net-Album hefur þeg- ar hafið markaðs- og kynningarstarf innan menntakerflsins og á neyt- endamarkaði en Keegan segir sina sérþekkingu vonandi koma að góð- um notum í markaðssetningu á fyr- irtækjamarkaði. „Gangi sú mark- aðssetning að óskum sjáum við fyr- ir okkur að Net-Album vaxi mjög ört og tekjur fyrirtækisins stórauk- ist að sama skapi.“ Keegan segir væntingar um markaðsárangur Net- Album m.a. byggjast á því að fyrir- tækið hafi þróað lausnir sem fram- leiðendur stýrikerfa hafi hingað til ekki gefið gaum. Hann sér fyrir sér að Net-Album verði samþætt við stýrikerfi og fyrsta skrefið á þeirri leið verði að efna til samstarfs við stóran tölvuframleiðanda. „Þannig sé ég fyrir mér að Net-Album verði aðgengilegt almenningi og síðar fyr- irtækjum um heim allan,“ segir Ge- orge Keegan Hlutafé Lyfjaverslun- ar allt að tvöfaldað Hluthafar í Lyfjaverslun íslands hf. j samþykktu á fundi 23.-24. janúar að j auka hlutafé fé- lagsins um allt að 300 milljónir króna. Það jafngildir því að hlutafé Lyfiaverslunar verði ailt að tvöfaldað. Hluta nýútgefms hlutafjár verður ! varið til þess að ganga frá sameiningu A. Karlssonar við Lyfjaverslun ís- lands. Samkvæmt samþykkt hluthafa- : fúndarins er stjóm Lyfjaverslunar heimilt að gefa út nýju hlutina í tengsl- um við samruna, í skiptum fyrir hluta- fé í öðrum félögum eða sem greiðslu vegna kaupa á eignum og rekstri. Hluthafar skulu ekki hcifa forgangs- rétt til áskriftar að nýju hlutafé nema ; stjómin ákveði að bjóða þeim for- gangsrétt. Forgangsrétturinn skal þá standa í tvær vikur frá því að eldri hluthöfum verður send tilkynning þar um. Forgangsrétturinn skal vera hlut- fallslegur miðað við eignarhluta. Stjóm félagsins skal ákveða áskriftar- j frest, greiðslufrest og gengi hinna nýju j hluta. Stjómin ákveður hvemig skipta skuli hlutum ef áskrift er meiri en það | hlutafé sem í boði er. Hinir nýju hlut- I ir veita réttindi í félaginu þegar hækk- ! unin hefúr verið tilkynnt til hlutafe- ! lagaskrár. Veldu þér tölur og vertu í áskrift! Bankagjaldþrot setja fjármálakerfið í hættu Gjaldþrot banka ems og urðu í Japan gætu aukið áhættuna í fjármálkerfi heimsins ásamt þeim fjöl- mörgu sameiningum fjár- málafyrirtækja upp á síökastið. Þetta segir í nýrri skýrslu sem GlO hópurinn var að senda frá sér. Skýrslan segir að samrun- ar fjármálafyrirtækja sýndu aðeins litla framleiðniaukn- ingu í geiranum og að herða þyrfti eftirlit samkeppnisyflrvalda vegna hættu á minni samkeppni. Niður- stöðurnar ganga i sömu átt og þær vaxandi áhyggjur sem sérfræð- ingar hafa af bankakerfi heimsins. Skýrslan mælti fyrir meiri samvinnu í laga- gerð milli landa er varð- ar fjármálakerfið. Er þó tekið fram að þegar væri farið að huga að þessum málum til að koma í veg fyrir að fjármálakreppur breiddust út á milli landa. Ný þjónustueining hjá Íslandsbanka-FBA Stofnuð hefur verið ný þjónustu- eining innan Íslandsbanka-FBA með sameiningu FBA Ráðgjafar og um- breytingar og Verðbréfaútgáfu FBA. Nýja þjónustueiningin hefur hlotið nafnið Fyrirtækjaþróun og er Jó- hann Magnússon framkvæmdastjóri hennar. Fyrirtækjaþróun þjónustar fyrir- tæki á sviði umbreytinga og eignar- haldstengdra breytinga, s.s.við kaup og sölu fyrirtækja, samruna og yfir- tökur, eignalosun, skuldsett kaup, hlutafjársölu, hlutafjárútboð, skrán- ingu á markað, einkavæðingu o.fl., að því er fram kemur í frétt frá ís- landsbanka-FBA. Mikill vöxtur hefur verið i verk- efnum bankans á ofangreindu sviði þar sem örar breytingar í rekstrar- umhverfi fyrirtækja hér á landi hafa leitt til aukinnar eftirspumar eftir faglegri þjónustu. Áframhaldandi vöxtur verkefna er fyrirsjáanlegur og eru skipulagsbreytingamar nú gerðar með það að markmiði að styrkja þessa þjónustu bankans enn frekar. Fyrirtækjaþróun verður þriðja tekjusviðið innan FBA. Framkvæmdastjóri Fyrirtækja- þróunar er Jóhann Magnússon og staðgengill framkvæmdastjóra er ívar Guðjónsson. Aðalfundur Skinnaiðnaðar hf.: Jákvæð teikn á lofti DV. AKUREYRI:_____________________ A aðalfundi Skinnaiðnaðar hf. á Ak- ureyri kom fram að félagið var rekið með tæplega tveggja milljóna króna hagnaði á liðnu rekstrarári en því lauk þann 31. ágúst sl. Rekstrartekjur, að meðtöldum söluhagnaði, voru 629 milljónir króná en rekstrargjöld námu 596,9 milljónum króna. Eigið fé Skinnaiðnaðar þann 31. ágúst sl. nam 120,6 milljónum króna og eiginfjár- hlutfallið var 15,0%. Gunnar Birgisson stjórnarformaður minnti á að framboð af hrágærum á Is- landi væri bundið við haustmánuði og að það krefðist verulegrar fjárbinding- ar að kaupa allar hrágærurnar í einu. „Framboð af hrágærum til vinnslu hér á landi er talið að muni fara minnkandi á komandi árum. Þó ger- um við okkur vonir um að gærufram- boðið muni verða yfir 400 þúsund gær- um á ári, alla vega næsta áratuginn. í ljósi innflutningshafta er það mjög alvarleg þróun og jafnframt ógnun við íslenskan skinnaiðnað þegar slátur- leyfishafar selja saltaðar hrágærur til útlanda. Undanfarin ár hefur orðið mjög mikil samþjöppun sláturleyfis- hafa á íslandi. Ef við fáum ekki hrá- gærur frá t.d. þremur stærstu slátur- leyfishöfunum er tilvistargrunnur okkar brostinn. Vöm okkar hefur ver- ið að greiða heimsmarkaðsverð fyrir gærurnar og treysta því að sláturleyf- ishafarnir sýni þá víðsýni að taka virðisaukandi iðnað á íslandi fram yfir útflutning á hráefni. Það er nefni- lega sameiginlegt með kjöt- og gæru- iðnaði að við störfum við innflutnings- höft,“ sagði Gunnar. Bjami Jónasson framkvæmdastjóri sagði í ræðu sinni að nýliðið rekstrar- ár hefði reynst félaginu erfitt og niður- staðan ylli miklum vonbrigðum, enda verulega lakari en áætlanir gerðu ráð fyrir. En þrátt fyrir áfoll og vonbrigði undanfarinna missera væru jákvæð teikn á lofti á helstu mörkuðum félags- ins. „Rekstrarskilyrði hafa batnað við lækkun gengis krónunnar og fari verðbólga ekki vaxandi og haldi kjara- samningar þá styður það áætlanir okkar. Á síðustu mánuðum hefur eft- irspum eftir mokkaskinnum, sem er meginframleiðsluvara Skinnaiðnaðar, farið vaxandi. Jafnframt hefur verð þeirra farið hækkandi og bendir margt til að þessi þróun muni halda áfram. Pantanir til afgreiðslu strax á fyrstu mánuðum ársins 2001 em þegar farnar að berast sem er ólíkt ástandi síðustu þriggja ára. Því standa vonir til að salan á yfirstandandi rekstrarári verði meiri en í fyrra og að framlegð- in aukist á milli ára.“ -gk FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2001 r>v HEILDARVIÐSKIPTI 982 m.kr. - Hlutabréf 652 m.kr. - Húsbréf 248 m.kr. MEST VIÐSKIPTI Islenskir aðalverktakar 403 m.kr. 0 Íslandsbanki-FBA 53 m.kr. © Össur 46 m.kr. MESTA HÆKKUN j ©Össur 1,7% ©Landsbankinn 1,5% : © Kaupþing 1,3% MESTA LÆKKUN © Búnaðarbankinn 2,4% ; © Sjóvá-Almennar 1% Q ÚRVALSVÍSITALAN 1226 stig - Breyting O 0,16% Krónan endaði í 122,37 stigum Gengisvísitala krónunnar endaði í 122,37 í gær sem er sama gildið og í upphafi dags. Seðla- bankinn greip inn í á markaðnum með eins milljarðs króna við- skiptum og fór þá krónan niður í 122,05 en veiktist siðan aftur, fór hæst í 122,45 en lækkaði síðan fyrir lokun og endaði eins og áður sagði í 122,37. Letsbuyit.com bjargað fyrir horn Internetfyrirtækinu Letsbuy- it.com hefur tekist að afla nýs fjár- magns frá fjárfestum að fjárhæð 50 milljónir evra, eöa um 4 milljarða króna, og lítur því út fyrir að tekist hafi að koma í veg fyrir gjaldþrot fé- lagsins. Stjórnendur Letsbuyit.com eru bjartsýnir á að með viðbótarfjár- mögnuninni muni takast að rétta rekstur félagsins af en á fjórða árs- fjórðimgi nýliðins árs tvöfolduðust tekjur félagsins á milli ára. Miðlun og eignastýring til Kaupþings Starfsemi Frjálsa fjárfestinga- bankans hf., sem lýtur að verðbréfa- miðlun, sjóðastýringu og eignastýr- ingu, verður sameinuð Kaupþingi hf. Þetta kom fram á fundi nýrra eigenda með starfsfólki Frjálsa fjár- festingabankans í gær. í frétt sem send var Verðbréfaþingi segir að áform nýrra eigenda séu að reka Frjálsa fjárfestingabankann hf. áfram sem sjálfstæðan öflugan banka sem sérhæfir sig í útlánum, m.a. bílalánum, fasteignalánum og framkvæmdalánum. KAUP SALA BBpollar 85,960 86,400 Gsjpund 126,010 126,650 h*lkan. dollar 57,090 57,450 Í Upönsk kr. 10,6860 10,7450 tÖNorsk kr 9,7070 9,7600 ESsænsk kr. 8,9580 9,0070 SBn. mark 13,4136 13,4942 B 1 iFra. frankl 12,1583 12,2314 dBolg. franki 1,9770 1,9889 !~~1 Sviss. frankl 52,2600 52,5500 LJhoII. gylllni 36,1905 36,4080 P^lÞvskt mark 40,7772 41,0223 1 3ít Ilra 0,04119 0,04144 LÍfjAust. sch. 5,7959 5,8307 ILJport. escudo 0,3978 0,4002 lA. jjsná. peseti 0,4793 0,4822 I * lJap. yen 0,73530 0,73970 li lírskt pund 101,265 101,874 SDR 111,3100 111,9800 SÍECU 79,7533 80,2326

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.