Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2001, Side 11
11
FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2001____________________________________________________________________________________________
E>V Útlönd
Stuttar fréttir
Vonandi ekki heimskur
Fidel Castro
Kúbuforseti, sem
forðaðist persónu-
legar árásir á Bill
Clinton, fyrrver-
andi Bandaríkjafor-
seta, sagði í ræðu
eftir embættistöku
George Bush að
hann ekki jafn
heimskur og jafn mikill mafiósi eins
og hann liti út fyrir að vera.
Yfir 20 létust í flugslysi
Flugvél af gerðinni DC-3, með yf-
ir 20 manns um borð, þar af 20 Evr-
ópumenn, fórst í Venesúela í gær.
Atkvæðisréttur til Rússa
Evrópuráðið samþykkti í gær að
veita Rússum atkvæðisrétt á ný í
gær. Þeir voru sviptir atkvæðisrétti
í fyrra vegna Tsjetsjeníustríðsins.
Mótmæli vegna lífeyris
Tugir þúsunda Frakka mótmæltu
í gær kröfu samtaka atvinnurek-
enda um að ellilífeyrisaldur yrði
hækkaður úr 60 árum í 65 ár.
Óttast konungdæmi
Áætlað er að Joseph Kabila sverji
í dag embættiseið sem forseti
Kongó. Spenna ríkir í landinu yfir
því að sonur Laurents Kabila, sem
var myrtur í síðustu viku, skuli
taka við völdum. Óttast margir
myndun einhvers konar konung-
dæmis.
vonandi væri
Ekki andvígur framsali
George Rivas,
leiðtogi strokufang-
anna sjö frá Texas,
sem voru gripnir í
Colorado, gaf í skyn
í gær að hann hygð-
ist ekki berjast
gegn framsali til
Texas. Rivas hefur
játað að hafa myrt lögreglumann
eftir flóttann úr fangelsinu í desem-
ber síðastliðnum.
Nautgripir í sóttkví
Matvæla- og lyfjaeftirlit Banda-
ríkjanna hefur látið setja nokkra
nautgripi í Texas í sóttkví á meðan
rannsakað er hvort fóðurstöð hafi
brotið reglur um sem koma eiga í
veg fyrir kúariðu.
Aukin aðsókn í skóla Villa
Aðsókn að St.
Andrews háskólan-
um í Skotlandi, þar
sem Vilhjálmur
prins hyggst hefja
nám í haust, hefur
aukist um 44,4 pró-
sent. í október var
greint frá því að
bandarískar táningsstúlkur hefðu
hug á að vera í sama háskóla og
prinsinn laglegi. Prinsinn á aðdá-
endur viða um heim og nýtur hann
jafn mikillar athygli og
poppstjömur og Hollywoodleikarar.
Vilhjálmur ætlar að nema listasögu
í háskólanum i Skotlandi.
Lögregla giröir af Davos
Hundruð lögreglumanna og
hermanna gæta nú Davos í Sviss
þar sem Alþjóðaefnahagsráðstefnan
hefst á morgun. Lögreglan og
herinn eiga að koma í veg fyrir að
mótmælendur trufli fundi
viðskiptajöfra og sérfræðinga.
VÖRUHÚSIÐ
Seðlabankastjóri BNA styður skattalækkanir:
Al Gore
Námsmenn viö fjóra bandaríska
skóla verða meöal þeirra sem fá að
njóta reynslu fyrrum forseta.
Al Gore ætlar að
kenna og skrifa
A1 Gore, fyrrum varaforseti
Bandaríkjanna sem tapaði naum-
lega í forsetakosningunum í nóvem-
ber, tilkynnti i gær að hann ætlaði
að kenna í fjórum háskólum og
skrifa að auki bók um bandarískar
fjölskyldur með eiginkonu sinni,
Tipper. Gore hyggst meðal annars
kenna við Fisk-háskóla í Nashville
þar sem blökkumenn eru alla jafna
í meirihluta.
Þá sagði Gore í viðtali við New
York Times að hann hefði ekki úti-
lokað neitt þegar stjórnmál væru
annars vegar.
„Ég er ekki með neitt í huga nú en
ég hef ekki útlokað að ég leiði hug-
ann að stjórnmálum sfðar meir,“
sagði Gore í viðtali við blaðið.
Sumir leiðtogar demókrata hafa
sagt að Gore myndi eiga góða mögu-
leika á að verða forsetaefni flokks-
ins árið 2004.
Breskt kjötmjöl
flutt út til Asíu
Vísindamaðurinn Iain McGill,
sem starfaði hjá breska landbúnað-
arráðuneytinu þegar kúariða
breiddist út á tíunda áratugnum,
segir hættu á að næsta kúariðufár
breiðist út í Asíu. Mest hætta sé í
Indónesíu, Taílandi, Sri Lanka og
Taívan en Bretar fluttu mikið magn
kjötmjöls til þessara landa. Allra
mest var flutt út til Indónesfu. Árið
1993 voru til dæmis 20 þúsund tonn
flutt út þangað.
Sakaruppgjöf
fjárglæframanns
undir smásjánni
Bandaríski þingmaðurinn Dan
Burton tilkynnti í gær að hann
hefði hafið rannsókn á umdeildri
sakaruppgjöf sem Bill Clinton veitti
fjárglæframanninum Marc Rich á
lokadegi sínum í embætti. Rich
þessi flúði til Sviss fyrir sautján ár-
um og hefur aldrei svarað til saka
fyrir afbrot sín.
Burton þingmaður hefur lengi
verið hatrammur andstæðingur
Clintons og stjórnaði meðal annars
þriggja ára rannsókn á meintu fjár-
málasukki í tengslum við fjármögn-
un kosningabaráttu Clintons 1996.
Andstæðingar Clintons hafa
gagnrýnt ákvörðun hans um sakar-
uppgjöf til handa Rich. Fyrrum eig-
inkona Rich fór fram á sakarupp-
gjöf en hún hefur stutt demókrata
með háum fjárframlögum.
Forsetahjónin í skólaheimsókn
George og Laura Bush forsetahjðn heimsóttu barnaskóla í Washington D.C. í
gær og ræddu viö börnin. Umbætur í menntamálum eru ofarlega á blaöi hjá
forsetanum þessa dagana og hefur hann lagt fram tillögur í þeim efnum.
Enn meiri
verðlækkun
Bush ánægður
með Greenspan
Skipstjórinn
lýsir yfir ábyrgð
VERÐDÆMI;
barnaúlpa ZAW'- 990.-
húfa og trefill AMU7- 799.-
299.-
:aska ^999fT- 499.-
star waars 499.-
barbee úr 499.-
Opnunartími:
Mán.-fim. og lau. kl. 10-18
Fös. kl.10-19. Sun.kl.12-17
Embættismenn stjórnar Bush
hafa sagt að þeir íhugi hvort flýta
eigi skattalækkunum eða gera þær
afturvirkar til að örva efnahagslífið.
Greenspan sagði í þinginu í gær
að um þessar mundir væri hagvöxt-
ur í Bandaríkjunum svo til enginn.
Þau orð kyntu undir vangaveltum
manna um að vextir yrðu lækkaðir
á næstunni. Greenspan gaf einnig
grænt ljós á að nota gríðarlegan
tekjuafgang af fjárlögum til að
lækka skatta.
„Ef efnahagslífið á eftir að veikj-
ast frekar en nú virðist líklegt gætu
skattalækkanir komið að umtals-
verðu gagni,“ sagði seðlabankastjór-
inn. Greenspan neitaði að ræða um
skattalækkunaráform forsetans,
sagði það ekki við hæfi.
Hlutabréfavísitala Dow Jones
hækkaði lítillega við orð Green-
spans en Nasdaq-vísitala tæknifyr-
irtækja lækkaði aðeins.
Skipstjóri olíuflutningaskipsins
Jessicu frá Ekvador, sem strandaði
við Galapagoseyjar í síðustu viku,
kvaðst í gær bera ábyrgð á olíulek-
anum sem ógnar einstöku vistkerfi
eyjanna.
Skipstjórinn, Tarquino Arevalo,
sem svaf um borð í skipi sínu í
fjórar nætur eftir slysið, hefur ekki
verið handtekinn, að sögn hafnar-
stjóra. Hann má þó ekki yfírgefa
svæðið þar sem hann þarf að mæta
til yfirheyrslu. Verði skipstjórinn
ákærður og fundinn sekur á hann
yfir höfði sér 4 til 5 ára fangelsi.
Skipstjórinn segir sökina sína en
ekki skipverjanna.
Ekki er hægt að dæla þeim 10
þúsundum tonna af olíu sem eftir
eru i skipinu fyrr en það hefur ver-
ið rétt við. Alls runnu yfír 700 þús-
und tonn af olíu 1 sjóinn.
Selur á Galapagos
Dýralífi viö Galapagoseyjar er ógnaö
vegna olíulekans.
George W. Bush Bandarikjafor-
seti lýsti í gærkvöld ánægju sinni
með þau orð Alans Greenspans
seðlabankastjóra um að svigrún
væri fyrir skattalækkanir. Green-
span sagði þetta í vitnaleiðslum í
Bandaríkjaþingi.
„Ég var ánægður að heyra orð
Greenspans. Mér fannst þau vera yf-
irveguð og rétt,“ sagði Bush við
fréttamenn í Hvita húsinu. „Það
sem Alan Greenspan sagði þjóðinni
var að stefnan í gjaldeyris- og fjár-
málum þyrfti að vera í lagi ef við
ætluðum að tryggja hagvöxt. Það
felur í sér skynsamlega stefnu í út-
gjöldum ríkisins og skattalækkan-
ir.“
Bush gerði- skattalækkanir að
einu helsta stefnumáli sínu í barátt-
unni fyrir forsetakosningarnar á
síðasta ári og hann er nú að undir-
búa tiu ára áætlun um umfangs-
miklar skattalækkanir.
Alan Greenspan
Bandaríski seölabankastjórínn segir
skattalækkanir geta gert sittgagn.