Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2001, Blaðsíða 12
12
______________________FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2001
Skoðun I>V
Spurníng dagsins
Eiga íslendingar að
hefja hvalveiðar?
Freyr Guömundsson nemi:
Já, ég er ekki Greenpeace-sinnaöur.
Ingvi Örn Ingvason nemi:
Nei, ég er á móti hvalveiðum. Ég er
reyndar á móti öllum ónauösynlegum
dýraveiöum.
Daníel Tryggvi Daníelsson nemi:
Já, af hverju ekki? Hvalkjöt er gott.
Þorvaldur Gunnarsson nemi:
Já, hvalkjöt er gott.
Guölaugur Aöalsteinsson nemi:
Já, þeir éta fiskinn okkar.
Höröur Logi Hafsteinsson nemi:
Já, vegna þess aö hvalirnir éta upp
fiskistofninn okkar.
I Kapelluhrauni, sunnan Straumsvíkur
Nægilegt rými, og sparar akstur á Reykjanesbraut.
Flugvöllur í miðborginni
Guöjón Jónsson
skrifar:
Þegar skoðuð er staðsetning
Reykjavíkurflugvallar, fer ekki á
milli mála, að þarna er tima-
sprengja, sem líkur eru á, að í fyll-
ingu tímans geti valdið stórslysi í
miðbænum með miklum mann-
skaða.
Hugmynd um flugvöll í Skerja-
firði, eins og Hrafn Gunnlaugsson
skýrir í mynd sinni, er ágætur kost-
ur, en besti kosturinn er að færa
völlinn suður fyrir Straumsvík, þar
sem nægilegt rými er til staðar. Og
með hraðbraut er einungis 5 til 20
mínútna akstur til og frá vellinum.
- Þetta mál varðar ekki eingöngu
Reykvíkinga, einnig Kópavogsbúa
og íbúa á Áltanesi.
Þetta mál kemur hins vegar Aust-
firðingum, Vestflrðingum og Norð-
lendingum ekkert við, og eiga því
engan rétt til þátttöku í atkvæða-
greiðslu, ef til hennar kemur, eins
og ráðamaður á Seyðisfirði lét um-
mælt í Sjónvarpinu fyrir skömmu,
Þá væri á sama hátt réttur Reykvík-
„Þá væri á sama hátt réttur
Reykvíkinga og Kópavogs-
búa til þátttöku i atkvœða-
greiðslu um hvort bora ætti
göt á fjöll vítt og breitt um
landið, með ærnum kostn-
aði, sem ekki síst Reykvik-
ingar eru að borga. “
inga og Kópavógsbúa til þátttöku í
atkvæðagreiðslu um hvort bora ætti
göt á fjöll vítt og breitt um landið,
með ærnum kostnaði, sem ekki síst
Reykvíkingar eru að borga.
Landsbyggðin er ekki eingöngu
utan Reykjavíkur, Reykjavíkur-
svæðið er hluti af byggð landsins,
og hlýtur því að verða að eiga sama
rétt til þónustu í vega- og samgöngu-
málum, og einnig rétt á að ákveða
sjálfir hvaða starfsemi er á því
svæði.
Hversu margar flugvélar hafa
farist við brautarendann og á
Reykjavíkurflugvelli til þessa? Þær
eru orðnar nokkuð margar. - Tillög-
ur um framhald á flugi frá þessum
gamla herflugvelli er sannarlega tif-
andi timasprengja, sem enginn veit
hvenær springur. Það væri þá afar
líklegt að einhverjir hinna svo-
nefndu landsbyggðamenn yrðu þar
þolendur.
Hugmyndir Hrafns Gunnlaugson-
ar og hans félaga, eru stórkostlegar
í heild sinni, og ber að fylgja í meg-
in atriðum. En ef flugvöllurinn yrði
fluttur í hraunið sunnan Hafnar-
fjarðar, og millilandaflug til og frá
landinu fært þangað þá myndi um-
ferð um Reykjanesbraut minnka
það mikið, að ekki yrði þörf á að
breikka hana suðurfyrir þennan
völl. Þarna myndu skapast mögu-
leiki á að svokallaðir „transit" far-
þegar gætu skroppið í bæinn og eytt
einhverju af ferðagjaldeyri sínum í
stað þess að láta sér leiðast i nokkra
klukkutíma í flugstöðinni, þar sem
ekkert er við að vera. - Margfeldis-
áhrif af þessu eru mjög mikil, þótt
svo að ekki fylgi með þessari grein
útreikningar þar að lútandi.
Össur og miskunnsami Samverjinn
Hvar sem tveir
eða fleiri koma sam-
an núna þessa dag-
ana er varla talað
um annað meira en
„hlutleysi" Össurar
Skarphéðinssonar
þegar heilbrigðis-
ráðherra fékk aðsvif
í beinni sjónvarps-
útsendingu um dag-
inn. Fréttakonan Jóhanna Vigdís
Hjaltadóttir er ekki mikil á velli, en
því sterkari og fljót að átta sig. Hún
lét sig ekki muna um að taka ráð-
herrann í fangið og hjálpa henni á
stól á meðan Össur stóð sem mynda-
„En er ekki lágmark að al-
þingismenn, almennt,
kunni helstu þætti í hjálp í
viðlögum (þ. á m. að bregð-
ast við uppákomum af
þessu tagi?).“
stytta og hreyfði hvorki legg né lið. -
En er ekki lágmark að alþingismenn,
almennt, kunni helstu þætti í hjálp í
viðlögum (þ. á m. að bregðast við
uppákomum af þessu tagi?). Nokkuð
sem allir skólakrakkar eru látnir
læra í fyrsta bekk menntaskóla?
Össur lét hafa eftir sér, að honum
hefði brugðið. Gott og vel, það er svo
sem mannlegt, en það er einmitt þá
sem fólk þarf samt að geta brugðist
rétt við. Össur er rumur stór, og
hefði því ekki munað um að grípa
ráðherrann ef heilinn hefði verið
nógu fljótur að taka við sér, og ekki
stendur á þvi í þingsölum að bregða
við ótt og títt gegn málflutningi
stjórnarliða. - Nei, hann stóð bara og
horfði tO beggja átta eins og honum
kæmi þetta ekkert við. Ég er viss um
að nær flestum hefði það verið ósjálf-
ráð hreyfmg að grípa til handanna.
En Össur er Össur, formaður Sam-
fylkingarinnar.
Karl Ormsson
skrifar:
Dagfari
Strákarnir okkar standa sig
Enn einu sinni eru strákamir okkar að gera
það gott á stórmóti erlendis og íslenska þjóðin
er að verða vitlaus eins og venjulega þegar vel
gengur.
íslenska landsliðið í handknattleik er eina
íslenska liðið sem hefur náð þeim árangri að
fá alla þjóðina með sér. Setja allt skerið á ann-
an endann og nú stefnir í slíkt brjálæði ef
landsliðið heldur áfram að vinna glæsta sigra í
Frakklandi.
Einstaka íþróttamenn i einstaklingsgreinum
hafa náð að fanga athygli þjóðarinnar í heilu
lagi. Þar má nefna Völu Flosadóttur og Jón
Amar Magnússon. Aðrir koma þar varla við
sögu nema ef vera skyldi Öm Arnarson sundmaður.
Athyglisvert er að landslið okkar í knattspymu
hefúr aldrei náð viðlíka vinsældum og landslið okk-
ar í handknattleik. Þetta hefur ávalit farið mjög í
skapið á forkólfum knattspymunnar enda hand-
knattleikur með réttu þjóðaríþrótt okkar íslendinga.
Knattspymulandslið okkar hefur afar sjaldan ef
nokkum tíman komist í lokakeppni á meðal þeirra
bestu í heiminum eða Evrópu. Þar er landsliðið í
handknattleik nánast alltaf og einnig á Ólympíuleik-
um.
Ólíkt hafast landsliðin að um þessar mundir.
Skömmu eftir að varalið íslands var á ferð í Ind-
Ólíkt hafast landsliðin að um þessar
mundir. Skömmu eftir að varalið ís-
lands var á ferð í Indlandi af öllum
löndum fór handknattleikslandsliðið
enn einu sinni í lokakeppni þeirra
bestu í heiminum, sjálfa heimsmeist-
arakeppnina. Og enn fylgist þjóðin
spennt með framvindu mála. Áhuginn
vex með hverjum leik.
landi af öllum löndum fór handknattleiks-
landsliðið enn einu sinni í lokakeppni þeirra
bestu í heiminum, sjáifa heimsmeistarakeppn-
ina. Og enn fylgist þjóðin spennt með fram-
vindu mála. Áhuginn vex með hverjum leik.
Því hefur oft verið snýtt framan i handknatt-
leikshreyfmguna að þetta sé varla íþrótt og
handbolta stundi ekki nema nokkrar þjóðir í
heiminum.
Staðreyndin er hins vegar sú að um 200
þjóðir stunda handknattleik í heiminum í dag.
íslenskir íþróttaáhugamenn spyrja ekki mn
iðkendafjölda þegar íslenska landsliðið í hand-
bolta er annars vegar. Þeir spyrja um árangur.
Og þar kemst knattspymulandsliðið ekki með tæm-
ar þar sem handboltalandsliðið hefúr hælana.
Undanfarin ár hefur átt sér stað endurnýjun í
íslenska landsliðinu. Eins og eðlilegt er hefur ár-
angurinn verið heldur lakari á meðan slíkt geng-
ur yfir en nú er liðið að rétta úr kútnum á ný.
Fyrirtæki eru farin að sjá að það borgar sig að
styðja við bakið á handknattleikssambandinu
sem hefur sýnt undraverðan árangur í baráttu
við miklar skuldir frá því ævintýramenn skildu
við fyrir nokkrum árum.
DAgfWi
Garðar á framboöslista
Helgi Sigurðsson skrifar:
Garöar Sverris-
son form. Öryrkja-
bandalagsins.
Til forystu í
stjórnmálunum?
Eftir það sem á
undan er gengið í
málum öryrkja eft-
ir að hæstaréttar-
dómur var kveð-
inn upp um þeirra
mál, hefur Garðar
Sverrisson forystu-
maður Öryrkja-
bandalagsins verið
fremstur í baráttu
fyrir hönd sinna
umbjóðenda. Eng-
inn stjórnmála-
maður hefur talað
jafn ötullega og
með jafn öruggum hætti fyrir þeirra
hönd. Mér fmnst það liggja í hlutarins
eðli að nefndur Garðar verði á fram-
boðslista fyrir næstu kosningar í
þeim stjórnmálasamtökum sem hon-
um þykja standa sér næst. Kannski í
Samfylkingunni, sem hefur ekki hlot-
ið nógu góðan byr með sinni forystu.
Garðari myndi örugglega takast að
gera þann stjómmálaflokk gildari og
eftirsóknarverðari þar sem hann væri
í fararbroddi.
Á hvaða ári er RÚV?
G.G. skrifar:
í síðasta áramótaskaupi ríkissjón-
varpsins þurfti þjóðin að horfa á 20
ára gamla brandara, þar sem hæðst
var að þjóðlagatríóum, sem ekki eru
lengur til. Síðan bætir RÚV um betur
nýlega með „sjónvarpsleikritinu"
Bilasalan Bjallan. Fólk á miðjum aldri
minnist þess með hryUingi þegar ís-
lensk „sjónvarpsleikrit" og frá Norð-
urlöndunum fyUtu sjónvarpsdag-
skrána. Norræn sjónvavarpsleikrit
eru nú jafn áberandi og þjóðlagatríóin
og ástæðan er einfóld: þau eru löngu
útdauð úr dagskrárgerð. Eða var Bíla-
salan BjaUan e.t.v. hugsuð á sama
hátt og atriðið í skaupinu, þ.e. sem
háð um sjónvarpsleikrit fyrir 20
árum? - Skyldi einhver brandarann?
Forsetasetrið á Bessastööum
Húsbóndasætiö ætíö í húfi.
Álag á forseta íslands
Páll Halldórsson skrifar:
Mér finnst afar ósmekklegt af þeim
sem kusu Ólaf Ragnar Grímsson fyrir
forseta á sínum tíma að hafa stiUt hon-
um upp við vegg og krafist þess að
hann neitaði að skrUa undir nýsam-
þykkt lög um öryrkjamálin. Eru þessir
fyrrum stuðningsmenn Ólafs Ragnars
að reyna að koma honum frá, gjör-
breyta embættinu eða eyðUeggja það?
En það var svo sem engin von tU þess
að forsetinn neitaði aö skrifa undir lög-
in, gerði bara „grein fyrir atkvæði
sínu“ eins og þeir segja í þinginu þegar
þeim þykir þurfa. Svo mUcUs metur
Ólafur Ragnar að halda í prjálið og hús-
bóndasætið á Bessastöðum með öUum
þeim hlunnindum sem því fylgja.
Svindlurum úthýst
Jón Jóhannsson skrifar:
Eins og mörgum er kunnugt var
Davíð Oddsson valinn stjómmálamað-
ur ársins 2000 af lesendum vinstri-
vefritsins Kreml.is. Á vefnum er þess
getið að töluvert var um svindlat-
kvæöi við kosninguna. Hátt í fimm
hundruð svindlatkvæði vom dregin
frá Össuri Skarphéðinssyni og Stein-
grími J. Sigfússyni við útreikninga á
niðurstöðum. Þeir voru þó aðeins
hálfdrættingar í samanburði við Ólaf
Ragnar Grímsson, sem hlaut eitt þús-
und atkvæði. Það var þó tU lítils, því
forseti íslands endaði í neðsta sæti í
þessari kosningu.
ípv Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangiö:
gra@ff.is
Eða sent bréf til: Lesendasíða DV,
Þverholti 11, 105 ReyRjavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.