Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2001, Síða 25
29
FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2001
DV Tilvera
Möguleikar á námi erlendis kynntir:
Alþjóðlegt andrúmsloft
- allra þjóða kvikindi í Odda á alþjóðadegi Háskólans
það hafi leitt
til þess að hún
ákvað að koma
hingað til
lands. „Ég hef
verið að
stunda mið-
aldafræði í
Þýskalandi og
einbeitt mér að
miðaldabók-
menntum, sér-
staklega hetju-
skáldskap.
Hann tengist
mikið íslandi
vegna þess að
hér er mjög
sterk hefð fyrir
skáldskap og
miðaldabók-
menntum.
Þetta er því
rétti staðurinn
fyrir mig,“ seg-
ir Kendra og
bætir við að í
sínum eigin
háskóla hafi
hún ekki haft neina möguleika til
að nema norræn fræði.
Kendra kom hingað í september
og hefur ekki enn lært mikið í mál-
inu. Það kemur þó ekki að sök þvi
að flest námskeið sem hún tekur
eru kennd á ensku. „í ár verð ég þó
að taka eitt námskeið á íslensku og
er það nokkuð erfltt. Það er þó
námsefnislisti fyrir hvern tíma sem
hjálpar manni að búa sig undir
hann þannig að ég get skilið það
sem á sér stað í kennslustofunni,"
segir Kendra.
Kendra segir að hún hafi haft
Fulltrui þyskrar menningar
Kendra Stokkamp stóö vaktina í bás Þýskalands og upplýsti fólk um þýska menningu, skólakerfi
og annaö sem þaö fýsti aö vita.
áhuga á íslandi lengi og því hafi i
raun ekki margt komið sér á óvart
þegar hún kom hingað. „Ég hef
þekkt til íslands í meira en 20 ár, al-
veg frá því að ég var lítil stelpa og
var vitlaus í hesta, sérstaklega ís-
lenska hesta. Fýrst hafði ég áhuga á
hestunum, þá var það tónlistin og
síðan hókmenntirnar. Það er alltaf
eitthvað sem vekur áhuga minn á
íslandi þannig að ég hef verið að
kynnast landinu smátt og smátt án
þess að hafa beinlínis sest niður og
lært um það,“ segir Kendra Stok-
kamp að lokum.
DV-MYNDIR EINAR J.
Karítas Kvaran, forstöðumaður Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins
Aö sögn Karítasar fer tækifærum íslendinga til aö stunda nám erlendis fjötg-
andi meö hverju ári.
Starfsþjálfun á erlendri
grund
Auk stúdentaskiptaáætlana er ís-
lenskum námsmönnum einnig boð-
ið upp á starfsþjálfun á erlendri
gi’und í gegnum Leonardo-áætlun-
ina. Hlíf Böðvarsdóttir viðskipta-
fræðinemi er einn þeirra sem hefur
nýtt sér það tækifæri en hún dvaldi
síðastliðið sumar 1 Amsterdam þar
sem hún vann á sænskri ferðaskrif-
stofu sem hefur starfsemi um allan
heim. „Ég var að vinna á fjármála-
deildinni þar og byrjaði í eins kon-
ar nemastarfi en svo tóku menn eft-
ir því að íslendingurinn var svolítið
duglegri en meðaljóninn þannig að
ég fór að taka við fleiri störfum og
meiri ábyrgð.“ Hlíf segir að það hafi
að mörgu leyti reynst erfitt að þurfa
að laga sig að nýjum aðstæðum í
framandi landi. „Mér var hent út í
djúpu laugina með vinnuna. Aftur á
móti tala ég sænsku þannig að mér
var tekið mjög vel inni i fyrirtæk-
inu og ég komst mjög fljótt inn í
þetta og leið strax mjög vel i
Amsterdam," segir Hlíf.
Hlif segir að þessi reynsla hafi
haft mjög mikið gildi fyrir sig og
mælir hiklaust með að aðrir há-
skólastúdentar prófi eitthvað þessu
líkt. „Þetta er alveg ótrúlegt upp á
sjálfsöryggið. Ég finn það að ég get
miklu meira en ég hélt. Áður vissi
ég ekki alveg hvar ég stæði í þessu,“
segir Hlíf og bætir við að hún hafi
fengið ýmis frekari atvinnutilboð
hjá fyrirtækinu og er hún ekki frá
því að hún muni taka einhverju
þeirra. -EÖJ
Það myndaðist óneitanlega al-
þjóðleg stemning í Odda, húsi Fé-
lagsvísindastofnunar Háskóla fs-
lands, í gær enda var þar haldinn
alþjóðadagur stúdenta. Þar gafst is-
lenskum stúdentum, sem hafa hug á
að stunda nám eða starf erlendis,
færi á að kynna sér helstu mögu-
leika sem í boði eru. Erlendir stúd-
entar, sem eru við nám hér á landi,
voru með kynningarbása þar sem
hægt var að leita upplýsinga. Einnig
voru á staðnum fulltrúar frá Lána-
sjóði íslenskra námsmanna, Sam-
bandi íslenskra námsmanna erlend-
is, Alþjóðaskrif-
stofu háskóla-
stigsins og fleiri
stofnunum sem
koma að þessum
málum með ein-
um eða öðrum
hætti.
Karítas Kvar-
an, forstöðumað-
ur Alþjóðaskrif-
stofu háskóla-
stigsins, er einn
þeirra sem stóð
að skipulagningu
dagsins. „Til-
gangurinn er
fyrst og fremst að
kynna nemend-
um og kennurum
Háskólans þau
námstilboð sem
þeim standa til
boða erlendis og
þá sérstaklega á
vegum stúdenta-
skiptaáætlana
sem íslendingar
eiga aðild að,“
segir Karítas. Að
sögn Karítasar
fer tækifærum ís-
lendinga til að
stunda nám er-
lendis fjölgandi
og á hverju ári
eru gerðir nýir
samningar við
háskóla á ýmsum stöðum í heimin-
um. „Fyrir utan Nordplus-áætlun-
ina og Erasmus sem er fyrir Evr-
ópulönd erum við í bandarískum
stúdentaskiptasamtökum sem kall-
ast ISEP og í þeim eru um 100 amer-
ískir háskólar sem stúdentar við há-
skóla íslands hafa aðgang að. Eins
höfum við verið að gera tvíhliða
samninga við fjölmarga háskóla í
Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu,
Nýja-Sjálandi og Japan. Það hefur
að vísu enginn farið enn til Japans.
Það er svo nýr samningur en það er
mjög mikill áhugi á að fara til Ástr-
alíu og eins til Kanada.“
Karítas segir að stúdentaskiptaá-
ætlanir henti sérstaklega vel stúd-
entum í framhaldsnámi. „Þetta eyk-
ur náttúrlega mjög mikið náms-
framboð. Á framhaldsstigi er til
dæmis ekki hægt að vera með jafn-
mikið framboð á námskeiðum og í
stórum erlendum háskólum en þá
er hægt að auka fjölbreytnina og
valið með því að taka kannski eitt
misseri annars staöar," segir Karít-
as og bætir við að í sumu fram-
haldsnámi eins og til dæmis við-
skiptafræði og umhverfisfræði sé
beinlínis gert ráð fyrir því að nem-
endur taki hluta námsins erlendis.
Rétti staðurinn
Stúdentaskiptaáætlanir fela ekki
eingöngu í sér að íslendingum gefst
tækifæri til að fara í nám erlendis
heldur koma einnig fjölmargir út-
lendingar hingað til lands í þessum
sama tilgangi. í raun hefur þróunin
verið sú á allra síðustu árum að nú
koma fleiri stúdentar til íslands en
fara þaðan. Kendra Stokkamp frá
Þýskalandi er einn þeirra erlendu
skiptinema sem rekið hefur á fjörur
okkar en hún kom hingað á vegum
Erasmus-áætlunarinnar. Kendra
stundar nám í sagnfræði og segir að
Hiit Hoovarsaottir
Hlíf segir þaö hafa mikiö gildi fyrir sjálfsöryggið aö fá
starfsreynsiu erlendis.
Hátíð brottfluttra ísfirðingar á þorra:
Halda Sólarkaffi með
r j ómapönnukökum
- aðrir belgja sig út af hrútspungum og hákarli
í kvöld, fóstudagskvöldið 26. janúar,
heldur ísflrðingafélagið í Reykjavik sitt
56. Sólarkaffl og er það nú haldið á veit-
ingastaðnum Broadway. Er þetta gert á
sama tima og aðrir landsmenn halda sín
þorrablót með hrútspungum og hákarli.
Sólarkafflð hefur verið fastur liður í
samkomuhaldi brottfluttra ísfirðinga í
höfuðborginni í meira en hálfa öld. Er
þetta í raun arfur frá heimabyggðinni,
en þar hefur þessi siður verið tíðkaður
lengur en elstu menn muna. Sólarkafflð
er haldið í tilefni þess að seint í janúar
nær sólin á ný að senda.geisla sína nið-
ur á eyrina á milli fjallanna í Skutuls-
firði eftir nær tveggja mánaða fjarveru.
Skammdegið er því skýrt afmarkað í
hugum Isfirðinga og fógnuðurinn mikill
þegar sólin nær að skína yfir fjallatopp-
ana á ný eftir langa fiarveru.
Skemmtunin hefst kl. 20.30, en eftir
fordrykk eru bomar fram pönnukökur
með ijúkandi heitu kaffi. Veislustjóri
er Ólafur Sigurðsson. Þórarinn Gísla-
son leikur Ijúfa dinnermúsík meðan á
borðhaldi stendur.
Dagskráin að öðru leyti er á þá leið
að ræðumaður kvöldsins er Haukur
Ingason úr Keflavík. Um söng og grín
og gaman sjá Geir Ólafsson og þjóð-
lagahljómsveitin Tamara. Listamenn-
imir Öm Ámason leikari og Karl
Ágúst Úlfsson skemmta. Að lokum
leikur hljómsveit Stefáns P. fyrir
dansi.
Auk Sólarkaffis heldur ísfirðingafé-
lagið fiölsótta Kirkjuhátíð að vori og
Sólkveðjuhátíð i Eden, Hveragerði, á
haustin. Núverandi formaður félagsins
er Ólafúr Hannibalsson.
f§ | gKMg
Seljum úr gámi:
Glæsileg húsgögn frá Spáni.
• verðið.
Upplýsinqar í síma
867 8720.