Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2001, Síða 4
4
MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2001
Fréttir I>V
Ríkissaksóknari fyrirskipar rannsókn:
Meint árás kennara
- lögreglan lét málið niður falla vegna skorts á sönnunargögnum
Ríkissaksóknari hefur nú til athug-
unar meinta árás kennara á nemanda
í 10. bekk í grunnskóla í mars síðast-
liðnum.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu kom málið til hennar fyrir tæpu
ári, í mars 2000. Það var í rannsókn
þar fram í október þegar ákvörðun
var tekin um að láta málið niður falla
vegna skorts á sönnunum.
Aðstandendur piltsins kærðu
ákvörðunina til ríkissaksóknara sem
er enn með málið til athugunar.
Að sögn piltsins sat hann í tíma
hjá kennaranum þegar annar nem-
andi henti kennaratyggjói í kennar-
ann. Kennarinn er sagður hafa
brugðist illur viö, kennt piltinum
um og fleygt honum út úr tíma. Pilt-
urinn barði þá á dyr stofunnar og
vildi fá skólatöskuna sína. Þá segir
pilturinn að kennarinn hafi komið
fram á gang, lokað á eftir sér og
tuskað sig til.
Engin vitni voru að atburðinum.
Drengurinn fór þá á kennarastof-
una og fór fram á að kallað yrði á lög-
reglu og sjúkrabíl. Hann var mjög
æstur og var beiðni hans synjað.
Hann rauk þá á dyr og gekk upp á
slysavarðstofu þar sem hann kastaði
upp í viðurvist hjúkrunarfólks.
Drengurinn var greindur með snert af
heilahristingi og hafði tognað á hálsi,
brjósti og baki. Seinna kom fram að
drengurinn er hugsanlega með skadd-
aða taug og á í erfiðleikum með að
beita hægri handlegg á eðlOegan
máta. Samkvæmt skýrslum lækna
þykir ljóst að drengurinn hafi orðið
fyrir líkamsárás þennan dag og ekki
er talið að hann hafi getað veitt sér
áverkana sjálfur.
Málið var kært til lögreglu daginn
eftir þar sem það var látið niður faUa
rúmu hálfu ári síðar. Kennarinn er
enn við kennslu í skólanum.
-SMK
Skammtímavistun fatlaöra í rýmra húsnæði:
Dvalarþörfin hefur tvöfaldast
búsetu. Verulegar breytingar voru
gerðar á húsnæðinu og hófust þær
24. október sl. og tóku því skamm-
an tíma. Að sögn Grétu Sjafnar
var mjög hart gengið aö iðnaðar-
mönnum á þessum tíma og skil-
uðu þeir sínu verki með sóma. Að-
alverktaki var Trésmiðjan Eik,
Magnús Ingvarsson byggingar-
meistari, hönnuðir Gláma-Kím í
Reykjavík og Verkfræðistofan
Stoð á Sauðárkróki annaðist eftir-
lit með framkvæmdum fyrir hönd
verkkaupa. Eyjólfur Þór Þórarins-
son, verkfræðingur hjá Stoð, flutti
mjög yfirgripsmikið yfirlit um
byggingarframkvæmdina sem
sýndi að mikill fjöldi iðnaöar-
manna kom að verkinu.
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra vék að uppbyggingu þjón-
ustu fyrir fatlaða og gat þess m.a.
að nú stæðu yfir framkvæmdir við
sambýli á Siglufirði og í undirbún-
ingi einnig að ráðast í breytingar
á sambýlinu á Hvammstanga. Páll
kvað málaflokk um málefni fatl-
aðra vel komið hjá sveitarfélögun-
um, sagði að vel hefði tekist til þar
sem það heföi verið reynt, s.s. í
Norðurlandi vestra, og kvaðst von-
ast til að sveitarfélögin myndu al-
farið yfirtaka málaflokkinn en
ráðuneytið hefði fullan vOja til að
gera vel og styðja við þessa starf-
semi eins og frekast er kostur. Páll
vék einnig að nýjum lögum um fé-
lagsþjónustu sveitarfélaga en þau
gera m.a. ráð fyrir auknum rétti
langveikra barna til félagsþjón-
ustu. Forstöðuþroskaþjálfi í
skammtímavistuninni á Viði-
grund 22 er Dóra Heiða HaOdórs-
dóttir og deUdarstjóri Margrét Sig-
urðardóttir. -ÞÁ
MYND ARNARFELL EHF.
Framkvæmdir á Möðrudalsöræfum
Þótt komiö sé fram í febrúar standa enn yfir vegaframkvæmdir á Norðausturvegi viö Brunnahvammsháls. Einmunatíö
hefur veriö á hálendinu og segja verkamenn veöriö vera líkara hausti en vetri. Til stendur aö vinna fram í miðjan febr-
úar viö vegfyllingu, en taka svo hlé fram á sumar þegar ís er farinn úr jöröu. Þessi vegur mun stytta leiðina á milli
Vopnafjarðar og Egilsstaöa um 30 kílómetra.
DV, SAUÐÁRKRÓKI:
A mánudaginn var formlega tek-
in í notkun ný aðstaða skamm-
tímavistunar fyrir fatlaða á Sauð-
árkróki en þjónustuþörfin hefur
verið aö aukast mjög frá því starf-
semin byrjaöi í húsnæði tengdu
sambýlinu í Fellstúni á árinu 1994.
Fyrsta heila árið voru dvalar-
stundirnar 196 en á siðasta ári 500
og er útlit fyrir aukningu á þessu
ári. Nýja húsnæðið er um 170 fer-
metar og mun rýmra en í FeUstún-
inu sem var 60 fermetrar. Þessi
bætta aöstaða veitir möguleika á
að þróa og endurbæta þjónustuna,
segir Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir,
yfirmaður búsetumála hjá byggða-
samlagi málefna fatlaðra í Noröur-
landi vestra.
Skammtímavistunin er nú kom-
in á Grundarstíg 22 þar sem áöur
var sambýli en íbúar sem þar voru
eru nú allir komnir í sjálfstæða
Vígsluathöfn
Gréta Sjöfn Guömundsdóttir talar viö vígslu skammtímavistunarinnar, Elín R.
Líndal, stjórnarformaöur SSNV, til vinstri, og Páll Pétursson
félagsmálaráöherra.
Holan mæld
Þórólfur Hafstaö og Peter Danielsen
viö tækjabíl Orkustofnunar hjá bor-
holunni viö Laugardæli.
Selfoss:
Gjöful hola
„Holan hérna virðist gefa töluvert
mikið vatn, við erum að fá það upp
rúmlega 77 gráðu heitt og vatns-
borðslækkunin við dælinguna er
ekki neitt sérstaklega mikil, það
lækkar um 20-30 metra í henni þeg-
ar við dælum 20 lítrum á sekúndu,"
sagði Þórólfur Hafstað, jarðfræðing-
ur hjá Orkustofnun, sem var við
mælingar á borholunni hjá Laugar-
dælum við Selfoss á dögunum
ásamt Peter Danielsen, dönskum
jarðfræðingi. Þórólfur sagði að hol-
an virtist vera mjög gjöful en eftir
eigi að koma í ljós hvort hún hitni
enn frekar, botnhitinn í holunni sé
um 80 gráður en miklar og gjöfular
vatnsæðar séu ofar í henni. -NH
Akureyri:
Hass í heita
pottinum
Lögreglunni á Akureyri var til-
kynnt um torkennilega lykt sem
barst frá tveimur mönnum sem sátu
í heita potti í sundlauginni á Akur-
eyri á fimmtudagskvöldið. Þegar
lögregluna bar að garði kom í ljós
að tvímenningamir sátu að hass-
reykingum í pottinum. Mennirnir
voru handteknir og við leit í foggum
þeirra í búningsklefa laugarinnar
fannst meira hass. Mennimir fengu
að gista fangageymslur lögreglunn-
ar. -SMK
Ungur stútur undir stýri:
16 ára ökumaö-
ur tekinn fullur
Ölvaður, 16 ára ökumaður var
stöðvaður við reglubundið umferð-
areftirlit lögreglu í Súðavík aðfara-
nótt sunnudagsins. Blóðsýni var
tekið úr piltinum, sem er ekki kom-
inn með aldur til ökuréttinda vegna
ungs aldurs. Að sögn lögreglunnar á
ísafirði má pilturinn búast við því
að þurfa að bíða lengur eftir öku-
réttindum en jafnaldrar hans vegna
atviksins. -SMK
Veöríö i kvold
■ SoLirg.tiigur <
Frostiö harönar
Eftir milda tíð þennan vetur er útlit fyrir
að vel byrji að frysta á næstu dögum,
enda ekki seinna vænna. Skíðafólk sem
horfir til himins og biöur um snjó getur
huggað sig við þær spár Veðurstofunnar
að á næstu dögum eru él væntanleg. I
vetrarfrostinu eiga bifreiöaeigendur þaö
þráláta verk fyrir höndum aö skafa rúður.
Þá er betra að hafa hanska, og ekki
sakar að þeir séu úr leöri.
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag i kvöld 17.30 17.03
Sólarupprás á morgun 09.52 09.51
Síödegisflóö 16.16 22.49
Ardegisflóö á morgun 04.45 09.18
Skýringar á veöurtáknum
\ *^VINDÁTT — HITI -10° OviNDSTYRKUR VFrost 1 metrum i sekúmlu x 1 HEIOSKÍRT
o O
LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKVJAÐ
© w Q
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA
. & +■
ÉUAGANGUR ÞRUMU- SKAF- ÞOKA
VEOUR RENNINGUR
im . rf:
y-„
Vaxandi noröaustanátt
í kvöld verður austlæg átt, 5-10 m/s, og
yfirleitt léttskýjað en dálítil él viö
austurströndina. Vaxandi norðaustanátt í nótt
og víða 8-13 m/s. Frost veröur allt niður í 10
stig, kaldast til landsins.
Él nyrðra og eystra Vindur verður að norðan, víðast hvar 8-13 m/s
en 13-18 viö austurströndina. Él veröa noröan- og austanlands en
léttskýjað suövestan til. Frost veröur 0-5 stig.
Vindur:
13-18
ilpiíilj'
I ímittlitálsi
fátg>mna
Upf-
Frost til -
Vindur:
13-18
Frost -o° til «5®
Vindur:
8-13 m/s
Norftan 8-13 m/s en
13-18 vlö
austurströndlna. Él noröan-
og austanlands en
léttskýjaö suövestan tll.
Frost 0 tll 5 stlg.
Noröan 8-13 m/s en
13-18 vlö austurströndlna.
Læglr heldur í dag. Él
noröan- og austanlands en
léttskýjaö suövestan tll.
Frost 0 tll 5 stig.
Noröaustlæg eöa breytlleg
átt. Víöa él vlö ströndlna
og fremur kalt.
AKUREYRI léttskýjaö -2
BERGSSTAÐIR léttskýjaö -1
B0LUNGARVÍK léttskýjaö 0
EGILSSTAÐIR -3
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö -1
KEFLAVÍK léttskýjaö 1
RAUFARHÖFN léttskýjaö 0
REYKJAVÍK léttskýjaö -1
STÓRHÖFÐI úrkoma í grennd 1
BERGEN léttskýjaö -9
HELSINKI snjókoma -21
KAUPMANNAHÖFN skafrenningur -4
ÓSLÓ léttskýjaö -15
STOKKHÓLMUR úöi og rigning -14
ÞÓRSHÖFN snjóél -2
ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö -18
ALGARVE skýjaö 15
AMSTERDAM frostrigning 0
BARCELONA þokumóða 14
BERLÍN snjókoma -4
CHICAGO alskýjaö 0
DUBLIN súld 6
HALIFAX léttskýjaö -12
FRANKFURT rigning 5
HAMBORG alskýjaö -3
JAN MAYEN léttskýjaö -2
LONDON rigning 11
LÚXEMBORG súld 9
MALL0RCA þokumóöa 14
MONTREAL heiöskírt -21
NARSSARSSUAQ skýjað -9
NEW YORK alskýjaö -3
ORLANDO alskýjaö 13
PARÍS rigning 11
VÍN rigning 5
WASHINGTON léttskýjaö -8
WINNIPEG heiöskírt -13