Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2001, Síða 10
10
Útlönd
MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2001
r>v
Wen Ho Lee
Grunadur um aö hafa framselt
hernaöarleyndarmál.
íhuga frekari
yfirheyrslur
Alríkisstjórn Bandaríkjanna
íhugar nú að leita réttarsamþykkis
fyrir frekari yfirheyrslum yfir
kjamorkuvísindamanninum Wen
Ho Lee. Þetta kom fram í Wash-
ington Post í gær.
Blaðið vitnar í heimildamenn
sem segja að svörin sem Lee gaf í
vitnaleiðslunum í nóvember og des-
ember hafi vakið frekari spurningar
varðandi samskipti hans og kjarn-
orkuvísindamanna frá Taívan og
Kína. Lee samþykkti að taka þátt í
vitnaleiðslunum í september á síð-
asta ári gegn þvi að Bandaríkja-
stjórn félli frá ákæru um að hann
hefði reynt að komast yfir teikning-
ar af kjamavopnum á rannsóknar-
stofu í Los Alamos.
Abu Sayyaf ítrek-
ar hótanir sínar
Uppreisnarmenn múslíma á Jolo-
eyju á Filippseyjum hafa itrekað
hótanir sínar um að myrða banda-
rískan ríkisborgara sem þeir hafa
haft í haldi undanfama 5 mánuði.
Hótunin kemur í kjölfar fullyrðinga
yfirvalda um að gíslinn Jeffrey
Schilling sé frjáls ferða sinna í her-
búðum uppreisnarmanna.
Talsmaður uppreisnarmanna,
sem tilheyra samtökum Abu Sayyaf,
hringdi í útvarpsstöð í Manila og ít-
rekaði hótanir þeirra. Hann sagði
þó ekki hvenær þeir myndu láta
verða af hótunum sínum.
Sergeij ívanov um smíði bandaríska eldflaugavarnakerfisins:
Vígbúnaðarkapp-
hlaup í vændum
Háttsettur rússneskur embættis-
maður segir að láti bandarísk yfir-
völd verða af því að koma sér upp
eldflaugavarnakerfi muni það hafa
ófyrirséðar afleiðingar og geti leitt
til nýs vígbúnaðarkapphlaups.
Sergeij ívanov, yflrmaður rúss-
neska Öryggisráðsins, lét þessi um-
mæli falla á ráðstefnu um varnar-
mál sem fram fór í Múnchen í
Þýskalandi um helgina. Sagði
ívanov Rússa vera tilbúna til við-
ræðna um verulega fækkun lang-
drægra kjarnavopna hyrfl George
W. Bush og ríkisstjóm hans frá fyr-
irætlunum um að koma sér upp
slíku varnarkerfi.
í ræðu ívanovs kom fram að settu
Bandaríkjamenn kerfið upp bryti
það í bága við ABM-sáttmálann frá
1972 sem undirritaður var milli
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna
um fækkun langdrægra kjarna-
vopna. í sáttmálanum er skýrt tekið
fram að bannað sé að þróa og smiða
Sergeij Ivanov
ítrekar viöhorf Rússa til smíöi
eldflaugavarnakerfis.
eldflaugavarnakerfi.
Sagði ívanov að færi sem horfði
og Bandaríkjamenn byggðu kerfið
sköpuðust nýjar forsendur fyrir vig-
búnaðarkapphlaupi í geimnum.
ívanov gaf lítið út á fullyrðingar
Bandaríkjamanna um að kerflð yrði
einkum smíðað til að verjast hugs-
anlegum árásum frá svoköflum
„skálkaríkjum", einkum írökum og
Norður-Kóreumönnum.
Ræða ívanovs kemur í kjölfar
ræðu Donalds H. Rumsfeld, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna.
Rumsfeld flutti mál sitt fyrir ráð-
stefnunni á laugardag og ítrekaði
þar fyrirætlanir Bandaríkjastjómar
um að smíða eldflaugavamakerfi.
Bill Clinton, fyrrum Bandarikjafor-
seti, undirritaði lög því til staðfest-
ingar árið 1999. Fjölmörg ríki hafa
mótmælt afstöðu Bandaríkjanna og
segja að eldflaugavarnakerfið komi
ójafnvægi á fælingarmátt kjarn-
orkuveldanna.
Mercedes Benz
190
£
2,0
L
Árgerð 1990 * ekinn 93 þkm.
Sjálfskiptur, topplúga, ABS,
4 höfuðpúðar, samlæsingar,
álfelgur, litaðgler ofl,
720.000,-
Oryggis- og varnarmálin rædd
Varnarmálaráöherrar fjölmargra ríkja hittust á tveggja daga þingi um öryggis- og varnarmál í Munchen um helgina. Á
myndinni eru varnarmálaráöherrar Bandaríkjanna (I. t.h.) og Þýskalands ásamt yfirmanni NATO aö hlýöa á mál
franska varnarmálaráöherrans.
ísraelskir arabar ætla að
sniðganga kosningarnar
hbimport.
be smart ehí. sími 699 5009
Ehud Barak, forsætisráðherra
ísraels, gerði í gær úrslitatilraun
til að saxa á forskot Ariels Shar-
on, leiðtoga Likud-bandalagsins,
Féiágsþjónustan Sjúkraliðar/ aðhlynning
SELJAHLÍÐ, heimili aldraðra við Hjallasel, vantar strax sjúkraliða
eða starfsmann vanan aðhlynningarstörfum á naeturvaktir. Um 57%
starf er að ræða!
Einnig vantar starfsfólk í aðhlynningu og ( eldhús. Vaktavinna, þ.e.
unnar eru dagvaktirog kvöldvaktir og önnur hver helgi.
Laun skv. kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Eflingar.
Nánari upplýsinpar veitir Margrét Ósvaldsdóttir hjúkrunarfræðingur
á staðnum eða í síma 540-2400 " ” "
virka daga milli kl. 10 og 14.
Fólagsþjónustan er fjölmennur vinnustaður sem veitir
borgarbúum á öllum aldri fjölbreytta þjónustu. Stofnunln leggur
mlkla óherslu ó freeöslu og slmenntun fyrir starfsfólk sitt, að
upplýsa það um stefnu stofnunarinnar og Reykjavíkurborgar i
málefnum starfsmanna og að kynna markmið þeirrar þjónustu
sem veitt er. Alllr nýir starfsmenn fá sérstaka fræðslu og
kynnlngu um Fólagsþjónustuna og borgarkerfið og fróttabróf
reglulega um 6tarfsemi stofnunarlnnar.
fyrir forsætisráðherrakosningarn-
ar sem fram fara í ísrael á þriðju-
dag. Sharon hefur aukið forskot
sitt á Barak jafnt og þétt undan-
famar vikur og munar tuttugu
prósentum á fram-bjóðendunum.
Barak, sem er einkum óvinsæli
meðal ísraelskra araba fyrir fram-
göngu sína í friðarviðræðunum,
notaði tækifærið og ávarpaði þá
sérstaklega.
„Fyrir mína hönd og hönd ríkis-
stjórnarinnar harma ég dauða
arabanna," sagði hann og vísaði í
mótmæli i október á síðasta ári
þegar 13 ísraelskir arabar voru
myrtir er þeir lýstu stuðningi sín-
um við aðgerðir Palestínumanna í
fjöldamótmælum. ísraelskir
arabar eru 12,3% kjósenda. Marg-
ir þeirra hafa ákveðið að snið-
ganga kosningarnar á þriðjudag.
Ariel Sharon
Er meö öruggt forskot á Ehud
Barak, forsætisráöherra.
Ekki forsætisráðherra
Friðarverðlauna-
hafi Nóbels og fyrr-
um forsætisráð-
herra Israels,
Shimon Peres,
sagði í viðtali við
Sky-sjónvarpsstöð-
ina að hann myndi
ekki vilja taka að
sér stöðu forsætisráðherra á nýjan
leik. Sagðist hann feginn að Ehud
Barak skyldi ekki hætta kosninga-
baráttunni og víkja fyrir sér eins og
lagt hefur verið að Barak að gera.
Hertari aögeröir
Bresk og ítölsk stjórnvöld hafa
ákveðið að taka höndum saman og
herða eftirlit með ólöglegum inn-
flytjendum frá Balkanskaganum til
Vestur-Evrópu.
Mótmæli í Bangladesh
Lögreglan í Dhaka í Bangladesh
hefur handtekið leiðtoga samtaka
múslímskra bókstafstrúarmanna
vegna mótmæla í borginni á sunnu-
dag. Hundrað manns slösuðust í
átökum sem brutust út.
Reuters yfirgefur Teheran
Fréttastofa Reuters hefur kallað
heim yfirmann fréttaskrifstofu sinn-
ar í Teheran í íran vegna ásakana
íranskra stjórnvalda í garð yfir-
mannsins og fréttastofunnar. Ásak-
anirnar komu í kjölfar viðtals sem
Reuters átti við pólitískan útlaga í
janúar sl.
Ræddi viö forseta Rúanda
Joseph Kabila,
sonur og arftaki
Laurents Kabila,
fyrrum forseta lýð-
veldisins Kongó,
sneri aftur til
Kongó í gær eftir
fyrstu utanför sína
síðan hann tók við
embætti forseta. Kabila ræddi m.a.
við forseta Rúanda, Paul Kagame,
en stefnt er að því að að taka upp
viðræður milli ríkjanna sem gætu
bundið enda á tæplega þriggja ára
borgarastyrjöld í Kongó.
Snjóflóð í Ölpunum
Þrír létust í snjóflóðum í sviss-
nesku Ölpunum í gær. Mikil hætta
er á frekari snjóflóðum í Sviss og
Austurríki.
íhuga málshöfðun
Ahmed Jibril, leiðtogi samtaka
um frelsun Palest-
ínu, segir samtökin
vera að íhuga máls-
höfðun á hendur
Bandaríkjastjóm.
Leiðtoginn var á
sínum tíma grunað-
ur um að hafa verið
valdur að Locker-
varð 270 manns að
Nei í maí
Færeyski Sósíaldemókrataflokk-
urinn hvetur kjósendur til að hafna
sjálfstjóm eyjanna undir kjörorðinu
Nei í maí í kosningum 26. maí nk.
Flytja vegna netbarna
Bresku Kilshaw-hjónin, sem hafa
barist fyrir forræði yfir tviburum
sem ættleiddir voru á Netinu, íhuga
að flytjast til Ameríku vegna
málaferlanna.