Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2001, Side 12
12
MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2001
Skoðun DV
Spurning dagsins
Hvaða íþróttir finnst þér
skemmtilegast að horfa á?
Karl Örvarsson hönnuöur:
Fótbolta og leöjuslag.
Berglind Rós Karlsdóttir, starfsm.
Eymundsson:
Fótbolta.
Stefán J. Hafstein, ritstjóri flugur.is:
Fluguveiöar.
Stefán Aðalsteinsson sölumaöur:
Fótbolta.
Ingvar Valgeirsson tónlistarmaöur:
Ég er mjög harður anti-sportisti.
Jón Kjartan Ingólfsson hljóöfærasali:
Mér finnast íþróttir ekki mjög
áhugavert sjónvarpsefni.
Vísitala ...........
Grunnvísitala ........
* vísitala $. gjalddaga .
Vaxtatafla ...........
»Vextir nö ............
JVaxtatímabil .........
, Maðalvextir tímabils .
, Pjóldi gjalddaga eftir
Vísitala neysluverðs
183.10
198.40
Afbórgun |
Vextir ..............
Verðbætur á afborgun
Verðbatur S vexti ...
Greiöslugjald .......
85CöTóTtlö'
16.799,00
7.102,67
1.403,33
180,00
Til greiðslu á gjalddaga:
110.485,00
Lánsfjárhæö .........................
LSnsfjárhæð S verðlagi á gjalddaga ..
EftirBt. Sn verðbðta eftir greiðalu .
Eftirst. með verðbðtum eftir greiðalu
850.000,00
921.026,70
510.000,00
552.616,02
Eindagi er m| Sé greitt síðar reiknast dráttarvextir kr. 68,00 fyrir
hvern daa sem greiðsla dregat frS GJALEDAGA. Falli eindaqi S helqidac), barf að
greiða fyrir eindaga til að komast hjá dráttarvöxtuni.
Taflan sýnir annað lán en í dæmi bréfritara.
Verðbætur á afborgun og verðbætur á vexti stinga í strax í augu.
Eftirstöðvar með verðbótum
Kristjana
skrifar:
Ég hef lengi spurt: Er þetta hægt? -
Er hægt að auðgast svona á kostnað
þeirra sem lítið sem ekkert eiga? Þeg-
ar ég segi „auðgast svona“ á ég við
lánastofnanir hér á landi sem auðgast
á kostnað þeirra sem hafa þurft að
fleyta sér áfram í lífinu á lánum, og
oft lánum einum saman. Og skiptir
þá engu á hvaða forsendum.
Neyðist þú til aö bjarga þínum
málum með því að taka skuldabréf í
sparisjóðum landsins þá ertu illa
settur. Ég á nú ekki viö sparisjóðs-
stjórana sérstaklega. í þeim spari-
sjóði sem ég skipti við er frábær
„stjóri", jafnvel leitun á öðrum eins
- finnist hann þá nokkurs staðar.
Ég tek dæmi af láni, 660.000 kr.
uppreiknað kr. 712.152,-, útgáfud. 11.
6. 1999. Vextir samkv. ákvörðun
sparisjóðsins og lán verðtryggt með
vísitölu neysluverðs á höfuðstóli.
Grunnvísitala 187,5 stig.
„Mér finnst endilega að
þegar ég er búin með
þetta skuldabréf þá sé
ég búin að gjalda vel
fyrir greiðann.“
sem ég fékk að láni, en á eftir að
borga kr. 524.222,30. - Er sem sé
búin að greiða af mínu upphaflega
láni, sem var kr. 660.000,- kr.
137.777,70.
Það sem ég er búin að borga í
vexti og verðbætur er kr. 151.480,20
og er bara hluti þess sem á eftir að
greiða af hinu upphaflega skulda-
bréfi.
Ég er enginn
sérfræðingur, en
mér finnst endi-
lega að þegar ég
er búin með þetta
skuldabréf þá sé
ég búin að gjalda
vel fyrir greiðann
hjá sparisjóðnum
(hugsanlega kann
að vera einhver
lítils háttar
skekkja í saman-
tektinni og bið ég þá sérfræðing(a)
að leiðrétta.
Eftirstöðvar nafnverös fyrir greiðslu kr: 499.999,00
Áfallnar verðbætur fyrir greiðslu kr. 39.113,00
Hækkun/lækkun verðbóta kr. 00,00
Afborgun kr. 9.891,00
Eftirst. m/verðbótum kr. 524.222,00
Eftirst. nafnverðs eftir greiðslu kr. 485.832,00
ÁfaUnar verðbætur eftir greiðslu kr. 38.389,00
Greiðsla: gjalddagi 10/1 2001, 19 af 72
Afborgun af nafnverði kr. 9.166,70
Afborgun verðbóta kr. 724,30
Vextir kr. 5.163,10
TUk. og greiðslugj. kr. 170,00
Nú hef ég greitt í 19 afborgunum
kr. 289.257,90 af þessum 660 þús. kr.
Ekkert kjöt af Gallowaykyninu
„Er Gállowaykynið horfið að
fullu eða búið að dreifa því
innan um íslenska stofninn?
Og hver var þá tilgangur-
inn? Og hefur þá nautakjöt-
ið hér batnað við þetta?“
Tómas Guðmundsson
skrifar:
Ég er orðinn dauðleiður á umræð-
unni um kúariöu og sýkt eða ekki
sýkt nautakjöt á markaðnum hér á
landi. Auðvitað á ekki að sleppa inn í
landið neinu kjöti - hvaða tegundar
sem er - og búið mál. Hins vegar ætt-
um við íslendingar sjálfir að kynna
okkur hvaða nautgripakjöts viö erum
að neyta hér. Er t.d. allt kjöt merkt
„nautakjöt" í raun og veru nautakjöt?
Er ekki mikið af kýrkjöti í kjötborð-
um verslananna? Þekkja neytendur
þetta nokkuð?
Ég borðaði aldeilis fint nautakjöt á
veitingahúsi í Hrísey fyrir nokkrum
árum. Það var sagt vera af þvi eðla
Gallowaykyni sem var í einangrun í
eynni á þeim tíma. Nú er ekki lengur
Galloway í einangrun hér heldur
búið að dreifa Gallowaykyninu um
landið. Eða svo var sagt i fréttum. Ég
hef spurt kjötkaupmenn hér hvort ég
geti fengið keypt kjöt af Gallowaykyn-
inu. En þaö er bara hlegið að mér eða
brosað út í annað eins og ég sé Fær-
eyingur á hvolfi! Þeir segja að búið sé
að „blanda“ stofninum saman við
innfædda nautgripi. - Ég segi nú
bara; hvaða loddaraleik er nú verið
að leika í þessum kjötmálum?
Er Gallowaykynið horfið að fullu
eða búið að dreifa því innan um ís-
lenska stofninn? Og hver var þá til-
gangurinn? Og hefur nautakjötið þá
batnað hér við þetta? Er mikið af kýr-
kjöti á markaðnum? - Getur einhver
vís maður, t.d. úr dýralæknabransan-
um, svarað einhverju, eða einhver
annar, sem til þekkir. Það er ekki
hægt að rífast endalaust út af inn-
flutningi á nautakjöti og hafa engar
haidbærar upplýsingar um eigið
nautakjöt.
Dagfari
Yndislegir og sannir fagmenn
Eru stjórnmálamennirnir okkar ekki yndis-
legir og sannir fagmenn? Hvar annars staðar í
veröldinni gætu pólitíkusar komist upp með að
blaðra tóma vitleysu án þess að þurfa nokkru
sinni að standa við orð sín, hvað þá að bera
ábyrgð á þeim? Hér á landi eru afar fá dæmi
þess að stjórnmálamenn hafi sagt af sér vegna
eigin klúðurs. Það bendir ótvírætt tU að ís-
lenskir stjórnmálamenn séu stjórnmálamönn-
um annarra landa miklu fremri í að klóra sig
út úr málum. Þannig leika okkar menn sér að
því að snúa fuUyrðingum og eru aUan tímann
með óhaggaðan pókersvip á andlitinu. Þaö sem
meira er, þeim tekst aUtaf að fá borgarana til
að trúa sér þegar þeir komast að þeirri niður-
stöðu að svart sé í raun og veru hvítt.
Það er erfitt að gera upp á milli íslenskra
stjórnmálamanna í þessu tUliti, þá virðist Dag-
fara sem forsætisráðherra vorum sé farið að
daprast flugiö. Þetta hefur að undanfórnu helst
lýst sér í ólundarköstum sem kannski eiga sér
eðlUegar skýringar. Hann er orðinn svo vanur því
að fólk trúi öUu sem rennur úr munni stjórnmála-
manna, að hann verður hvumsa við þegar ein-
hverjum verður á að svelgjast á hinum mikla
sannleika. Hann er orðinn svo pirraður á þessu að
hann er farinn að gripa æ oftar tU þess máls að
Innflutningur fósturvísa er nú allur á ábyrgð
bœnda. Ráðherra er með hvítþvegnar hendur,
en ef innflutningi á fósturvísum frá Noregi
verður haldið til streitu þá er það bara vondum
leyfishöfum í bœndastétt að kenna en alls ekki
ráðherranum sem ákvörðunina tók.
hundskamma stofnanir og aðra sem að málum
koma. Skiptir þá engu hvort um Hæstarétt eða
aðra er að ræða.
Dagfari hefur því tekið ástfóstri við annan póli-
tíkus íslenskan. Sá hefur alveg frá því hann settist
í sæti landbúnaðarráðherra verið uppáhaldsbangsi
Dagfara í stjómarfjölskyldunni. Hann er svo mik-
ið rassgat og skemmtUega sveitalegur og forn í
háttum. Ráðhería þessi hefur verið hreinn sniU-
ingur í að snúa sig út úr vandræðum og standa
keikur eftir með fagurgljáandi geislabaug eins og
saklaust barn. í öUu fárinu í sambandi við fóstur-
vísainnflutninginn, sem hann heimilaði þegar
hann skreiddist undan feldinum góða á haustdög-
um, hefur hann aldrei taliö sig þurfa að bera
ábyrgð á nokkrum hlut. Þegar efasemdir vökn-
uðu um vísindaleg rök og fyrrverandi yfirdýra-
læknir ásamt smitsjúkdómasérfræðingi og dýra-
lækni á Keldum töldu innflutningin vafasamt
mál, þá var ráðherra fljótur tU. Hann vísaði mál-
inu alfarið tU vísindamanna og dró upp mótspil
sitt sem var sjálfur yfirdýralæknirinn. Þegar svo
yfirdýralæknir varð ómerkingur í augum almenn-
ings vegna leyfa sem hann gaf um innflutning á
kjöti frá kúariðulandi fann ráðherra annað tromp
í erminni. Innflutningur fósturvísa er nú allur á
ábyrgð bænda. Ráðherra er með hvitþvegnar
hendur, en ef innflutningi á fósturvísum frá Noregi
verður haldiö til streitu þá er það bara vondum
leyflshöfum í bændastétt að kenna en aUs ekki ráð-
herranum sem ákvörðunina tók. Ef þetta er ekki
snUld, þá er snUld ekki tU.
Fyrirhuguð verslunarmiðstöð
í Kópavogi
Hve lengi getur stört stækkaö?
Verslun minnkar
Sveinbjörn skrifar:
Samkvæmt fréttum virðist smá-
söluverslun og velta hennar vera
komin á það stig að hún er hætt að
aukast, og hefur ekkert aukist um-
fram verðlagshækkanir eða vísitölu
neysluverös. Þetta þýðir aðeins eitt:
það er loks að koma að því að það
hægir á neyslu almennings. Og það er
góðs viti fyrir þjóðarbúið. Ég veit ekki
hvað menn ætla sér með byggingu
enn stærri stórmarkaða á höfuðborg-
arsvæðinu, nema þeir ætli sér að
tæma þá sem fyrir eru, eins og t.d.
Kringluna, Skeifusvæðið o.s.frv.
o.s.frv. Það eru því athyglisverðir tim-
ar fram undan en óvissir.
Greiðum skuldirnar
Árni Jónasson skrifar:
Er ekki öUum hoUt að greiða sínar
skuldir - svo framarlega sem þeir geta
eða hafa burði til? Þetta á nú ekki að
vefjast fyrir neinum. En eitthvað vefst
þetta fyrir íslenska ríkinu þvi i stað
þess að nota eitthvað af hinum
óhemjumikla afgangi sem sagður er
vera á ríkisreikningi þá var ákveðið að
greiða ekki að ráði niður erlendar
skuldir heldur geyma enn um sinn.
Fjármálaráðherrar Norðurlanda er
voru hér á fundi á dögunum töldu það
mikUvægast að greiða erlendar skuldir
og hafa hemU á kostnaðarþróuninni og
fylgja aðhaldssamri stefnu í efnahags-
málum. Og þar er yfirleitt afgangur á
fjárlögum líkt og hér er nú. En við ætl-
um að fylgja gamla laginu, geyma að
greiða þar tU aUt er komið í óefni.
Valhöll á Þingvöllum.
Sa/a væri þjóöarskömm.
Hekla og Gullfoss
til sölu?
Kristinn Sigurðsson skrifar:
Þetta var umræðuefni í frábærri
grein sem Árni Gunnarsson, fyrrv. al-
þingismaður, skrifaði nýlega. Þar seg-
ir Ámi m.a.: Við islendingar viljum
ganga um ÞingveUi, rifja upp söguna
og ganga nokkurn spöl tU suðurs,
rekast þar á hlið eða girðingu þar sem
stendur „No trespassing, please" - eða
ÖU umferð bönnuð. Svo sannarlega
hittir Árni þarna í mark. Það væri
þjóðarskömm ef útlendingur gæti sett
upp skUti þar sem okkur væri bann-
aður aðgangur að ValhöU, sem vissu-
lega tilheyrir ÞingvöUum og þjóðinni
og er aUt að því helgur staður í okkar
augum. Ríkisstjóm íslands á að
stöðva þessa smánarsölu og kaupa
ValhöU nú þegar.
Bankaráðið víki
Friðrik Friðriksson hringdi:
Mér fmnst ekki við hæfi að banka-
ráð Búnaðarbankans, eða a.m.k. for-
maður þess sitji á meðan rannsókn
stendur yfir hjá ríkislögreglustjóra á
meintu misferli bankans á kaupum á
bréfum í Pharmaco. Aukinheldur sem
rUdslögreglustjóri segir að málið sé
stórt og alvarlegt. Fjármálaeftirlit r&-
isins, sem hafði forgöngu um rannsókn
málsins, á að sjálfsögu að víkja öUu
bankaráði Búnaðarbankans frá. Það er
ábyrgt fyrir innri málefnum bankans,
ekki einstaka starfsmaður. Rétt eins og
skipstjóri eða forstjóri í fyrirtæki.
SE
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangið:
gra@ff.is
Eða sent bréf til: Lesendasíða DV,
Þverholti 11, 105 Reykl'avík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar með bréfunum á
sama póstfang.