Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2001, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2001, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001 DV Fréttir Breti og íslendingur ákærðir í einu alvarlegasta e-töflumálinu sem komið hefur upp: Náðu í 5007 e-töflur í rómantískri Lundúnaferð - Bretinn neitar innflutningi - ákæruvaldið segir hann ótrúverðugan um fjölda atriða sóknari, fullyrti fyrir dómi i gær að það hefði verið Garreth sem skipulagði flkniefnaferðina til London, Hún taldi upp Qölmörg atriði fyrir Ingibjörgu Benediktsdóttur héraðsdómara sem hún telur sanna að Bretinn var upp- hafsmaður ferðarinnar. Kolbrún sagði að Víðir, sem hefur iðrast og viðurkennt brot sitt greiðlega allt frá því hann var handtekinn, eigi að fá að njóta þess við ákvörðun refsingar. „Af hverju átti Garreth að vera með Víði í eftir- dragi í þessari rómantísku ferð?“ spurði Kolbrún í gær og átti við að ótrúverðugt sé hjá Bretanum að halda því fram að hann og kona hans hefðu hitt íslendinginn af tilviljun á Liver- pool Street-járnbrautarstöðinni - það- an hefðu þau svo öll bókað sig og farið í lest á sama gistiheimili. Bretinn’var áður vinnuveitandi Víð- is hér heima. Hann heldur því fram að Víðir hafi komið að máli við sig nokkrum vikum fyrir ferðina og beðið sig um að taka við pakka fyrir sig í London og afhenda sér hann þar. Bret- inn kvaðst hafa samþykkt það af greiðasemi og þeir síðan, nánast af til- viljun, farið með sömu vél til London óg hist á jámbrautarstöðinni í London. Víðir, sem var í fjárhagsvandræöum, segir hins vegar að Garreth hafi ætlað að greiða sér 350 þúsund krónur fyrir að flytja pakka fyrir sig heim til ís- lands. Fyrir dóminn í gær kom unnusta Garreths sem sagðist hafa verið undr- andi og „hálf-fúl“ yfir því að Víðir hefði slegist í hópinn með henni og unnustanum í ferðinni. Garreth sagði hins vegar að unnustan hefði ekkert átt að fá að vita um „pakkann". Óttar Sveinsson í réttarhaldi í Héraðsdómi Reykja- víkur í gær kom fram hjá íslendingi, sem ákærður er fyrir innflutning á 5007 e-töflum, að Breti sem einnig er ákærður í málinu og hefur verið bú- settur hér á landi í um 4 ár, hafi feng- ið aðra til að áreita íslend- inginn innan veggja fang- elsisins á Litla-Hrauni á meðan þeir hafa setið þar í gæsluvarðhaldi. íslend- ingurinn hefúr setið í gæslu frá því hann kom til landsins frá London þann 24. júlí síðastliðinn með efnin í farangri sínum. Bretinn, sem kom með sömu vél til landsins og ís- lendingurinn, var hins vegar úrskurð- aður í gæsluvarðhald nokkrum vikum síðar. Þá taldi fíkniefnalögreglan sig geta fært fram sýnileg sönnunargögn, önnur en framburð íslendingsins, um að það hefði verið Bretinn sem skipu- iagði innflutninginn á efnunum frá London. Bretinn, Garreth John Ellis, 28 ára, neitaði fyrst að hafa átt nokkum þátt í innflutningi efnanna en kvaðst síðan hafa tekið við þeim ytra af ótilgreind- um aðilum og afhent íslendingnum efnin þar. Hann segir það hafa gerst í M12-ferð hans og íslenskrar unnustu sinnar til Lundúna - í ferðinni hefði hann nánast „af tilviljun" hitt Islend- inginn, Víði Þorgeirsson. Endurfundir á Liverpool Street Kolbrún Sævarsdóttir, settur sak- Bretinn neitaöi fyrst en ... Ákæruvaldiö telur sig hafa lögfulla sönnun fyrir því aö Bretinn, sem hér skýiir sér á bak viö yfirhöfn, hafi skipu- lagt innflutninginn á e-töflunum 5.007. Keypti milljón í gjaldeyri Kolbrún sækjandi benti m.a. á það atriði í framburði Bretans að ótrúverð- ugt væri að hann hefði farið símalaus til London án þess að bóka nokkurt hótel og síðan hefði hann hitt Víði af tilviljun. Eftir það hefði hann farið ein- samall á bar, hitt þar mann sem hefði komið að máli við sig, án þess að þekkja nafn hans, og þeir síðan farið í bílferð þar sem honum var afhentur pakki eftir að Garreth afhenti umslag DV-MYNDIR HARI Ingibjörg dæmir Ingibjörg Benediktsdóttir, sem dómsmálaráöherra hefur skipaö hæstaréttar- dómara. dæmir í máli Bretans og íslendingsins. Máliö verður eitt af síöustu embættisverkum hennar í héraösdómi. íslendingurinn var handtekinn strax íslendingurinn kveöst hafa veriö fjár- þurfi og átt aö fá 350 þúsund krónur fyrir aö flytja pakka heim tii ísiands. Hann kveöst ekki hafa viijaö vita hve mikiö afefnum var í tösku hans né heldur hvaöa tegund þaö var. með peningum í frá Víði. Ákæruvaldið telur þessa frásögn ótrúverðuga, enda segi Bretinn að hann hefði ekki einu sinni litiö á þau efni sem honum vom afhent og seljendumir ekki talið pen- ingana, aðeins litið ofan í umslagið. Kolbrún benti auk þess á að rannsókn lögreglunnar hefði leitt í Ijós að nokkru fyrir utanferðina hefði Garreth keypt gjaldeyri hér heima fyr- ir rúma eina milljón króna á stuttu tímabili. Garreth bar reyndar að hann hafi komið með stærstan hluta þeirra peninga til baka til íslands eftir utan- ferð fyrr um sumarið og selt þá hér í banka. Engin gögn era til í bönkum hér á landi um þá endursölu. Einungis fingraför Bretans Ákæravaldið bendir auk þess á það atriði að engin fingrafór af Víði fmnist á fíkniefnapakkningunum - aðeins af Garreth - á 8 mismunandi stöðum. Þetta segir sækjandinn að komi heim og saman við frásögn Víðis sem kveðst hafa afhent Garreth farangur sinn áður en haldið var heim til Islands og þá hefði Bretinn séð um að pakka efn- unum inn. Víðir kveðst ekki hafa vilj- að vita hve miklu af efnum Bretinn kom fyrir í töskum hans né um hvaða tegund efna væri að ræða. „Þegar ég var tekinn og sá hvers lags efni þetta vora og hve mikiö varð ég bara feginn að þetta komst ekki á markað hér á landi,“ sagði Víðir. Lögreglumaður bar fyrir dóminum að hann hefði strax sýnt af sér iðrun og viðurkennt að hann hefði verið að gera ranga hluti. Búast má við að dómur gangi í mál- inu eftir um 3 vikur. Leikskóli í Garöabæ: Útboðslýs- ingin ekki nógu ítarleg - segir bæjarfulltrúi Vegna greinar í DV síðastliðinn miðvikudag um útboð Garðabæjar á leikskóla, þar sem fram kom að bæjarfulltrúinn Sigurður Björg- vinsson greiddi tillögunni at- kvæði sitt í bæj- arráði en sat hjá við afgreiðsiu málsins í bæjar- stjórn, sem ver- ið er að byggja vildi Einar Sveinbjörnsson, fulltrúi Fram- sóknarflokksins í Garðabæ, koma því á framfæri að hann og fulltrúi hans sátu hjá í kosningu bæjarráðs um útboðið vegna þess að þeim fannst útboðs- lýsingin ekki nógu ítarleg. Til dæmis sagði Einar kröfur bæjar- yfirvalda í málefnum varðandi börn með frávik og búnað leik- skólans ekki vera nógu skýrar. Einar bætti því við að hann væri annars hlynntur þvi að gera tilraunir með einkarekstur á leik- skólum. -SMK Reykjavík: Stakk af frá slysstað Lögreglan í Reykjavík leitar nú að ökumanni sem stakk af frá slys- stað um áttaleytið í fyrrakvöld. Ökumaðurinn, sem ók hvítum japönskum bU, lenti í árekstri við annan fólksbU á Reykjanesbraut- inni skammt frá Staldrinu, með þeim afleiðingum að sá síðamefndi kastaðist af veginum og út í móa. Þá stakk ökumaður hvíta bílsins af. Ökumaður fólksbUsins var flutt- ur á sjúkrahús með sjúkrabU, en hann kvartaði undan eymslum í baki og fæti og máttleysi í höndum. Lögreglan fór samstundis að leita að ökumanni hvíta bUsins og fann bílinn skömmu síðar á bUastæði við Mjódd. Ökumaður var þá á bak og brott en hundur var i bUnum. Lögreglan lét fjarlægja bUinn með kranabifreið og fór með hundirm á hundahótelið að Leirum. Lögreglan biður þá sem geta gef- ið upplýsingar um slysið eða tjón- valdinn um að hafa samband við sig. -SMK VeÁriÁ i hvöld .20,. t \ íM' •W ■ Sólarlag í kvöld 17.43 17.19 Sólarupprás á morgun 09.39 09.31 Síðdegisfló& 19.34 00.07 Árdegisflóö á morgun 07.52 12.25 SKýtíngar á veöurtáknum _r^^.VINDÁTT 151 ~%.VINDSTYRKUR í metrum á sekurxíu 10 ________HITI -10 FROST HEIÐSKÍRT Jfe' $D> & O - LÉTTSKÝJAO HÁLF- SKÝJAÐ ALSKÝJAO SKÝJAÐ Hlýnar í nótt SV 8-13 m/s verða norðan til en A og NA 5-8 á sunnanverðu landinu. Él verða sunnan- og vestan til en víðast léttskýjað á Noröausturlandi. Hiti 0-3 stig allra syðst og vestast en annars frost 1-6 stig í dag. Austlæg átt og hlýnar heldur í nótt . Ifí RIGNiNG SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA w // 1 = ÉUAGANGUR ÞRUMU- SKAF- ÞOKA VEÐUR RENNINGUR Færðin á landinu Samkvæmt upplýsingum frá Vega- gerðinni er snjóþekja á Reykjanesbraut og hálkublettir á Hellisheiöi og Þrengslum, einnig um Mosfellsheiði. Á Vestfjöröum er snjóþekja og hálka á vegum og þæfingsfærð á Dynjandis- heiöi. Hálka er á Öxnadalsheiði og hálka og hálkublettir eru á heiöum á Norðausturlandi. Á Austurlandi eru víöa hálkublettir og snjóþekja. C=lSNJÓR mm ÞUNGFÆRT M ÓFÆRT i>T44MW-A'MHiaiWCT«7MW4!gif.«Sll!IBI?a Voftrið á niwgwn Rigning á Suðurlandi Spáð er austlægri átt, 13 til 18 m/s, rigningu og hita 1 til 5 stig á Suðurlandi en annars hægari, skýjað verður meö köflum og hiti í kringum frostmark. si'Míiuíiagtí Vindur: 3-8 m/s Hiti 5° tii .2° !¥!á!!UtIagt Vindur: 5-10 m/9% Hiti 5° tii -2° ítyV ÍHÍÓÍUttag*!! Vindun , r 5-10 m/9-' Hiti 50 tii o° Fremur hæg austiæg átt og stöku skúrir eöa slydduél. Hiti 0 tii 5 stig en vægt frost Inn til iandsins. Vaxandi S-átt, skúrir en síöar rigning og hiti 1 til 5 stig sunnan og vestan til en skýjaö meö köfium og vægt frost á Noröuriandi. SV-átt, skúrir eöa slydduél sunnan og vestan til en léttskýjaö á Noröaustur- landi. Hiti 0 til 5 stig. mtmnm' _ AKUREYRI skýjað -2 BERGSSTAÐIR alskýjað -3 B0LUNGARVÍK haglél -1 EGILSSTAÐIR -11 KIRKJUBÆJARKL. skýjaö -2 KEFLAVÍK snjókoma -1 RAUFARHÖFN alskýjað -6 REYKJAVÍK snjókoma -2 STÓRHÖFÐI snjóél 0 BERGEN léttskýjað -5 HELSINKI súld 3 KAUPMANNAHÖFN skýjaö 1 OSLO heiöskirt -8 STOKKHÓLMUR -1 ÞÓRSHÖFN skýjaö -2 ÞRÁNDHEIMUR snjóél -1 ALGARVE hálfskýjaö 9 AMSTERDAM skýjað 2 BARCELONA léttskýjaö 6 BERLÍN rigning 7 CHICAGO þokumóða 12 DUBLIN léttskýjaö -2 HALIFAX léttskýjaö -6 FRANKFURT skýjað 7 HAMBORG slydda 1 JAN MAYEN snjóél -11 LONDON 1 LÚXEMBORG skýjaö 3 MALLORCA skýjað 10 MONTREAL NARSSARSSUAQ heiöskírt -16 NEW YORK alskýjaö 2 ORLANDO hálfskýjað 16 PARÍS rigning 5 VÍN þokuruöningur 0 WASHINGTON léttskýjað 3 WINNIPEG heiöskírt -22 lli.-M'mlll.-L-tóliUHWÍIM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.