Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2001, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2001, Page 7
FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001 DV 7 Fréttir Mikil fólksfækkun í Hrísey veldur áhyggjum: Okkur vantar fisk - segir oddvitinn sem segir að fólki megi ekki fækka meira Frá Hrísey Þar fækkaöi fólki um 14% á síöasta ári og menn eru uggandi um framtíö byggöar í eyjunni. DV, AKUREYRI:________________________ „Auðvitað veit maður ekki hvort þessi fólksfækkun heldur áfram en það er svo að ef okkur tekst ekki að treysta betur grunninn í atvinnulíf- inu hérna í eyjunni þarf voðalega lít- ið að gerast til að þessi þróun haldi áfram. Það er hugsanlegt að húskof- amir haldi eitthvað í fólkið en ef það er tæpt með vinnu og umræðan nei- kvæð þá auðvitað fer fólk. Til að hægt sé að veita nauðsynlega þjónustu má ekki fækka mikið hér,“ segir Narfi Björgvinsson, oddviti í Hrísey. Mikill fækkun hefur orðið á íbúafjölda í eyj- unni siðustu árin, á áratug hefur íbú- um fækkað úr um 300 i um 190 og á síðasta ári nam fækkunin 30 manns eða um 14% sem er geysilega mikið. „Auðvitað má segja að það sem að er hér, er að okkur vantar fisk. Þessi eyja byggðist upp á veiðum og vinnslu á sjávarfangi og við höfum orðið undir í staðarvali stærri fyrir- tækja fyrir slíka starfsemi og hér er engin útgerð botnflskskipa lengur. Samt sem áður fmnst manni að sjáv- arútvegurinn og vinnslan eigi að vera kjölfestan. Hér voru að jafnaði 60-80 manns í frystihúsinu þegar best lét. En ég held að það fólk sem hér er vilji vera hér áfram og ég veit um fólk sem hefur flutt héðan sem myndi vilja koma aftur ef hér væri vinnu að hafa. Hér er gott mannlíf en það er auðvitað erfiðara að halda uppi öflugu félagslífi þegar fólkinu fækkar,“ segir Narfi. Hríseyingar áttu talsverðan þorsk- kvóta þegar best lét fyrir nokkrum árum, en hann fór með Snæfelli þeg- ar það flutti vinnsluna til Dalvikur. Síðan hafa Hríseyingar reynt ýmsar leiðir til að skjóta öðrum stoðum undir atvinnulífið, s.s. fjarvinnslu, en árangur orðið lítill. „Menn verða að gera sér grein fyrir því að það verður að vera fiskur því atvinnulíf- ið í Hrísey byggir á honum og engu öðru. Það verður að taka á því máli ef við ætlum okkur ekki að missa allt út úr höndunum á okkur,“ segir Smári Thorarensen sem á sæti í sveitarstjóm í Hrisey. -gk DV-MYND NJÖRÐUR HELGASON Brautina burt Nú er veriö aö leggja nýjan gangstíg utan lóöarmarka landbúnaöarráöherra á Selfossi, uppgröfturinn notast í byggingu hljóömanar. Göngustígur færður frá húsi ráðherra DV, SELFOSSI:________________________ Framkvæmdir við að færa göngu- stíg og ljósastaura sem eru inni á byggingarlóð nýs húss landbúnaðar- ráðherra við norðurenda Ölfusár- brúarinnar á Selfossi eru hafnar. Ráðherra fór fram á það við bæjar- stjóm Árborgar í haust að göngu- stígurinn yrði færður enda lá hann innan lóðarmarka á nýbýli hans auk tveggja ljósastaura. Þá fór ráð- herra fram á það að gerð yrði hljóð- mön við húsið, í þeim tilgangi að draga úr hávaðamengun frá þjóð- veginum sem liggur í túnfæti ráð- herrans. „Það þurfti að byggja upp göngu- stíg á þessum stað, þama var ekki göngustígur fyrir, aðeins vegslóði sem notaður var. Við keyrum ekki í burtu það sem grafið er upp úr vegstæðinu því það notast á staðn- um,“ sagði Jón Guðbjörnsson, bæj- artæknifræðingur Árborgar, við DV. Jón segir að heildarkostnaður við framkvæmdina ásamt flutningi ljósastauranna sé á milli 2 og 300 þúsund krónur. Hús landbúnaðarráðherra er nú farið að rísa af grunninum, þessa dagana er verið að reisa útveggi hússins og því ekki langt í að á granninum standi hið reisulegasta hús, sannkallað óðal á einum besta útsýnisstað Selfossbæjar. -NH Ekki horft í krónurnar á Akureyri: 18 milljóna dælustöðvarhús DV, AKUREYRI:______________________ Hús sem risið hefur á horni Gler- árgötu og Þórannarstrætis á Akur- eyri hefur vakið nokkra athygli. Hús- ið er allsérkennilegt i útliti, byggt með hallandi veggjum og fleiri „útúr- dúrum“ og gluggar mjög áberandi. Útlit hússins bendir ekki til þess að í því sé dælustöð sem dælir affalls- vatni af Eyrinni og miðbænum upp í kyndistöð við Þórunnarstræti, en sú er samt sem áður raunin og eini til- gangurinn með byggingunni er að hýsa vatnsdælur. „Það er auðvitað ekki nauðsynlegt að byggja svona flotta dælustöð frek- ar en það sé yfirhöfuð nauðsynlegt að 'byggja flott," sagði Magnús Finnsson hjá Norðurorku sem er veitufyrir- tæki Akureyrarbæjar. „Húsið varð að vera á þessum stað í bænum sem DV-MYND GK. Dýr dælustöö Hús dælustöövarinnar á mótum Glerárgötu og Þórunnarstrætis kost- ar tæpar 20 milljónir. er nokkuð áberandi og því var ákveð- ið að hafa stöðina áberandi sem inn- legg í húsaflóruna. Húsið er ekki full- búið, það er eftir að ganga frá i kring- um það og ganga frá lýsingu innan- dyra. Húsið verður ávallt upplýst innandyra og því nokkuð áberandi," sagði Magnús. Þegar talið barst að því hvað „her- legheitin" kosti sagði Magnús að það lægi ekki fyrir endanlega. „Nei, það liggúr ekki fyrir, en kostnaðaráætl- un nam 18 milljónum króna og inni- falið í því er flutningur stöðvarinnar sem var áður í einu verksmiðjuhús- anna á Gleráreyrum." Nokkuð hefur heyrst að staðsetn- ing stöðvarinnar hafi farið fyrir brjóstið á mönnum en húsið þykir trufla nokkuð umferð við aðkeyrslu að Glerártorgi og bíla sem ætla upp Þórunnarstræti. „Staðsetningin er bundin við lagnakerfi og einhverjar breytingar á því hefðu kostað mjög mikið. Vissulega hefði verið hægt að grafa dælustöðina í jörð en reynslan af slíkum mannvirkjum er ekki góð,“ sagði Magnús. -gk Notaður bíll *■ £ o* < (D Til sölu Mercedes-Benz CLK230 Compressor, 193 hö., nýskr. 11/99, sjálfskiptur, ABS-hemlar, ASR-spólvörn, ESP-stöðugleikakerfi, hraðastillir, 16“ álfelgur, rafdr. rúður, rafdr. útispeglar, fjarst. samlæsingar, útvarp/CD, sumar- /vetrardekk o.fl. Ekinn 16.000 km. T, . • ... Q., Verðkr. 4.150.000. Til synis hja Bilahollinm hf., Bíldshöfða 5. ------------------------------www.raesir.is Raftækja dagar 5&9Ö0 39.995 kr Tricty Bendix þvottavél 1000 snúningar r HÚSASMIDJAN Sími 525 3000 • www.husa.is U T S A L A Opnunartími: án.-fim. og lau. kl. 10-18 is. kl.10-19. Sun. kl.12-17 70% afsláttur t.d. talandi drekar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.