Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2001, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2001, Qupperneq 10
10 Útlönd FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001 DV Helmut Kohl Saksóknarar falla frá málsókn. Kohl borgar sektir og sleppur við ákæru Helmut Kohl, fyrrverandi Þýska- landskanslari, á ekki lengur á hættu að verða ákærður vegna ólög- legra greiðslna til flokks síns, Kristilega demókrataflokksins. Hann borgar 12 milljónir króna í sekt og saksóknarar falla frá ákæru. Þetta tilkynnti dómsmálaráðuneytið í Nordrhein-Westfalen í gær. Kohl viðurkenndi 1999 að hafa tekið við milljónaframlögum án þess að láta bókfæra féð. Hann hef- ur hins vegar aldrei viljað greina frá þvi hverjir gáfu fé í leynisjóð flokks hans. Hann kveðst hafa lofað að þegja og sagði siðast við yfir- heyrslu fyrir þremur vikum að hann ætlaði ekki að svíkja loforðið. Ók drukkin og fékk skaðabætur Kanadamenn ná ekki upp í nef sér af hneykslan eftir að dómari úr- skuröaði að slys sem drukkinn öku- maður olli væri að hluta til atvinnu- rekanda hans að kenna. Fyrirtæk- inu var gert að greiða ökumannin- um sautján milljónir króna í skaða- bætur vegna meiöslanna sem hlut- ust af slysinu. Málavextir eru þeir að í jóla- veislu árið 1994 fékk Linda Hunt sér nokkra drykki og hélt svo áfram að drekka með nokkrum vinum sínum á krá. Akstursskilyrði á heimleið- inni voru afleit og lenti Linda í árekstri. Dómarinn var á því að vinnuveit- andinn hefði átt að koma i veg fyrir að konan settist undir stýri, til dæmis með því að kalla á lögguna. Helmsókn Solana mótmælt Belgradbúar brenndu brúöu í líki Solana. Lofar að hjálpa Júgóslavíu Javier Solana, utanríkismála- stjóri Evrópusambandsins, lofaði í gær í heimsókn sinni í Belgrad i Serbíu að hjálpa Júgóslavíu. Á með- an Solana fundaöi með Vojislav Kostunica, forseta Júgóslavíu, efndu hundruð manna til mótmæla. Hrópuöu mótmælendur slagorðin Solana barnamorðingi og Solana fasisti. Kvaðst Solana, sem var framkvæmdastjóri NATO fyrir tveimur árum, skiija tilfinningar þeirra. Kona særðist í bílsprengju í Jerúsalem: Sharon og Barak ræða nýja stjórn Til stendur að leiðtogar tveggja stærstu stjórnmálaflokkanna í ísra- el hittist í dag og að sögn talsmanns Likud-bandalags harðlínumannsins Ariels Sharons er líklegt aö þeir ræði möguleikana á myndun sam- steypustjórnar. Sharon sigraði Ehud Barak, frá- farandi forsætisráðherra og leiðtoga Verkamannafiokksins, með miklum yfirburðum í forsætisráöherrakosn- ingunum á þriðjudag. Sharon hefur frest fram í mars til að mynda nýja stjóm og koma fjárlögum í gegn, ella verður að boða til nýrra kosn- inga. Lægra settir embættismenn flokkanna tveggja settust niður í gær, aðeins nokkrum klukkustund- um eftir að bílsprengja sprakk í hverfi strangtrúaðra gyðinga í Jer- úsalem. Ein kona særðist í spreng- ingunni. „Það sem gerðist í dag er hörmu- legur atburður sem krefst þess að við stöndum saman i baráttunni Sprengja í Jerúsalem ísraelskir borgarar hlaupa burt frá brennandi bíl eftir aö öflug sprengja sprakk /' hverfi strangtrúaöra. gegn hryðjuverkum," sagði Sharon við fréttamenn skömmu eftir að sprengjan sprakk. Tveir áður óþekktir hópar Palest- ínumanna lýstu ábyrgð á sprengju- tilræðinu í gær á hendur sér. Það ku alloft hafa gerst þá fjóra mánuði sem liðnir eru frá byrjun uppreisn- ar Palestínumanna. Sprengjan sprakk á bílastæði nærri guðfræðiskóla í hverfi strang- trúaðra gyðinga, skammt frá arab- íska hluta Jerúsalem. Þótt sprengj- an væri öflug særðist aðeins ein kona lítillega og niu aðrir fengu að- hlynningu vegna taugaáfalls. Ehud Barak tilkynnti eftir ósigur- inn fyrir Sharon aö hann myndi láta af embætti leiðtoga Verka- mannaflokksins og jafnframt hætta á þingi þegar Sharon hefði myndað nýja stjóm. Barak féllst í gær á að leiða viðræðunefnd flokks síns, ásamt friðarverðlaunahafanum Shimoni Peres. Króatar mótmæla framsali Mikill fjöldi Króata kom saman í bænum Sinj í sunnanverðri Króatíu í gær til aö mótmæla framsali hershöföingjans Mirkos Noracs til stríösglæpadómstóls SÞ í Haag í Hollandi. Mótmælendurnir telja að Norac hershöföingi sé saklaus af öllum ákærum. Þeir lokuöu aðalveginum frá Split til Zagreb til aö leggja áherslu á mál sitt. Harður eftirskjálfti í Gujarat á Indlandi í nótt: Ibuarnir slegnir óhug en tjónið lítið sem ekkert íbúar í Gujarat-fylki á Indlandi voru slegnir miklum óhug í nótt þegar nokkrir jarðskjálftar skóku héraðið enn á ný en embættismenn sögðu að svo virtist sem litlar skemmdir hefðu orðið. „Við höfum ekki fengið neinar fregnir um tjón úr öllu héraðinu. Við erum enn að fá nýjar upplýsing- ar en ég tel að áhrifin hafi ekki orð- ið mikil,“ sagði Anil Mukim, hér- aðsdómari í borginni Bhuj, í viðtali við fréttamann Reuters í morgun. Bhuj varð verst úti í jarðskjálft- anum mikla þann 26. janúar síðast- liðinn. Sá skjáifti mældist 7,7 stig á Richter og varð að minnsta kosti þrjátíu þúsund manns að bana. Rúmlega ein milljón manna missti heimili sín í hamfórunum. HJá Rauða krosslnum Þessi hálfsextuga kona liggur á sjúkrahúsi Rauöa krossins í Bhuj. Skelfingu lostnir ibúar kaup- sýsluborgarinnar Ahmedabad dvöldu utandyra í nótt eftir skjálft- ana sem voru meðal þeirra öflug- ustu sem hafa komið eftir stóra skjálftann. Stærsti skjálftinn í nótt mældist 5,3 stig á Richter. Indverska blaðið Indian Express sagði að fjörutíu manns aö minnsta kosti hefðu slasast í óðagotinu þeg- ar þeir reyndu að koma sér út úr háhýsum. Á þriðja tug manna lét búa um sár sín á sjúkrahúsinu í Ah- medabad. Yfirvöld i Bhuj eru hætt eiginlegu björgunarstarfi eftir stóra skjálft- ann og eru farin að snúa sér að hreinsunar- og uppbyggingarstarfi. Hjálpargögn halda áfram að koma erlendis frá. Reno Janet Reno, fyrr- verandi dómsmála- ráðherra Banda- ríkjanna, kom í gær til Washington til að gefa eftirmanni sínum, John Ash- croft, góð ráð. Ash- croft hafði farið fram á fund með Reno sem flutt er til Flórída. Öldungadeild Banda- ríkjaþings staðfesti i síðustu viku skipun Ashcrofts í embætti dóms- málaráðherra. Fær ráð hjá Bandaríkin greiða skuld Sex ára löngu striði um skuld Bandarikjanna tO Sameinuðu þjóð- anna er lokið. Bandaríkin hafa nú ákveðið að greiða skuldina gegn því að framlög þeirra til stofnunarinnar verði minnkuö. Skipuleggja mótmæli Wahid Indónesíuforseti hélt í morgun til Jövu til að stilla til frið- ar meðal stuðningsmanna sinna sem reiöst hafa tilraunum til að koma honum frá völdum. Stuðn- ingsmennirnir hafa heitið því að halda áfram mótmælum sínum. Símakóngur samþykktur Þingið í Taílandi kaus í morgun formlega símakónginn Thaksin Shinawatra, sem sakaður hefur ver- ið um skattsvik, i embætti forsætis- ráðherra. Powell á fund Annans Colin Powell, ut- anríkisráðherra Bandaríkjanna, fer í næstu viku á fyrsta fund sinn með Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóð- anna. Gert er ráð fyrir að stefna í málefnum Afríku og Miðausturlönd- um verði ofarlega á dagskránni auk refsiaðgerðanna gegn írak. Powell hefur enn ekki útnefnt eftirmann Richards Holbrookes hjá Samein- uðu þjóðunum. Ákæra undirbúin Bandarískir embættismenn íhuga nú hvernig ákæru eigi að birta Ro- bert Pickett sem hleypti af skotum við Hvíta húsið í vikunni. Hann er sagður veill á geði. Vill í glákuaðgerð í BNA Joseph Estrada, sem rekinn var úr T embætti forseta Fil- iPPseyja' er aö Bl - _ hugsa um að fara til MQi <4^' Bandaríkjanna í að- F ■■ > gerð vegna gláku í næsta mánuði. Estrada, sem bann- að hefur verið að fara úr landi vegna spillingarákæru, kvaðst í viðtali ætla að sækja um leyfi yfirvalda til fararinnar. Estrada heldur því fram að hann sé enn forseti og að hann sé einungis í leyfi frá störfum. Hann vísar öllum sakargiftum á bug. íhaldsmenn vara við Breskir íhaldsmenn sögðu i gær að komandi kosningar kynnu að verða síðasta tækifæri Breta til að kjósa um áframhaldandi eigin mynt eftir að Blair forsætisráðherra blés nýju lífi í evruumræðuna á mið- vikudaginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.