Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2001, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2001, Page 11
FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001 I>V Útlönd u Franskir valdamenn rjúka upp til handa og fóta: Neita samskiptum við Alfred Sirven Franskir stjórnmálamenn ruku upp til handa og fóta í gær til að bjarga mannorði sinu eftir að fjöl- miðlar birtu einkasímaskrá Alfreds Sirvens, fyrrverandi yfirmanns rík- isolíufyrirtækisins Elf. Sirven er sakaður um að hafa greitt valda- mönnum mútur til að hafa áhrif á skoðanir þeirra. Fyrrverandi ráð- herrar, þingmenn og aðstoðarmenn gáfu út yfirlýsingar þar sem þeir ýmist neituðu því að þeir þekktu Sirven eða fullyrtu að samband þeirra við hann hefði alls ekki ver- ið óeðlilegt. „Ég hafði ekkert samband við Sir- ven,“ sagði Herve de Charette, fyrr- verandi utanríkisráðherra, í út- varpsviðtali. Sagði hann einu sam- skipti sín við Elf hafa verið vegna framlags úr góðgerðarsjóði fyrir- tækisins til hátíðahalda í borginni þar sem hann var borgarstjóri. Alfred Sirven / einkasímaskrá hans var beint númer til fjölda valdamanna. Sirven var handtekinn á Filipps- eyjum í síðustu viku eftir að hafa verið á flótta síðan 1997. Hann var leiddur fyrir rétt í París síðastliðinn miðvikudag. Er hann ákærður fyrir fjársvik og mútugreiðslur. Verjandi Sirvens kveðst ætla að kæra þjófnaðinn á símaskrá hans. Við handtökuna kom Sirven í veg fyrir að lögreglan gæti rakið síðustu símtöl hans með því að tyggja og gleypa kortið í far- síma sínum. Lögmaður Jeans-Christophes Mitterrands, sonar Frangois Mitt- errands Frakklandsforseta, sem ákærður er fyrir ólöglega vopnasölu til Afriku, segir það ekki undarlegt að nafn skjólstæðings sins hafi ver- ið í símaskrá Sirvens. Sirven hafi verið yfir alþjóðaviðskiptum Elfs þegar Mitterrand var ráðgjafi fóður síns i málefnum Afríku. Sandkastali á Miamiströnd Feröamenn virða fyrir sér 3,6 metra háan sandkastala sem myndhöggvarinn Victor Long frá Kendall í Flórída tók upp á því að reisa á ströndinni. Verkið tók listamanninn tvær vikur og er ekki annað að sjá en vel hafi tekist til. Uppreisnarbóndinn Bové fyrir rétti í Frakklandi: Barátta Róttæki franski bændaleiðtoginn José Bové kom fyrir rétt i Mont- pellier I gær, ákærður fyrir að brjótast inn í rannsóknarmiðstöð í borginni og eyðileggja þar erfða- breyttar hrísgrjónaplöntur. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Bové, auðþekkjanlegur af rostungs- legu yfirskeggi sínu, kemst í kast við lögin. Hann vakti fyrst athygli umheimsins árið 1999 þegar hann fór fyrir árás á veitingastað McDonalds í borginni Millau í sunnanverðu Frakklandi. Tilgang- urinn var að mótmæla ruslfæði og álögum á innflutning franskra osta og gæsalifrarkæfu til Bandaríkj- anna. Bové var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir tiltækið. Mörg hundruð félagar og stuðn- ingsmenn Bovés gengu með honum til dómhússins. Bændaforinginn á yfir höfði sér allt að fimm ára fang- elsi verði hann fundinn sekur að þessu sinni. fyrir framtíðinni Bændaforingi í réttarsalnum Franski bóndinn og hnattvæöingar- skelfírinn José Bové fyrir rétti í gær. „Ég tek á mig alla ábyrgð á þvi sem var gert með félögum mínum,“ sagði hinn 47 ára gamli sauðfjár- bóndi fyrir réttinum. „Hvað svo sem sumir segja, segja margir aðr- ir að barátta okkar sé barátta fyrir framtíðinni." Bové notaði tækifærið til að gagnrýna harkalega erfðabreytt matvæli sem hann sagði að vís- indamenn bæru ekki almennilegt skynbragö á. í síðasta mánuði slóst José Bové í lið með fátækum bændum í Bras- ilíu og aðstoðaði þá við að rífa upp erfðabreyttar sojaplöntur á til- raunabúi bandarisks stórfyrirtæk- is. Gripið var til þeirra aðgerða á meðan fram fór fjölmenn ráðstefna andstæðinga kapítalisma og hnatt- væðingar í borginni Porto Alegre, eins konar mótvægi við peninga- furstaráðstefnuna sem haldin er á hverju ári í Davos í Sviss. Vél: 1) Skipt um kerti. 2) Loftsía athuguð. 3) Bensínsíaathuguð. 4) Kveikjukerfi stillt og mælt. 5) Stilling vélar (ganghraði og útblástur). 6) Kælivökvi, frostþol mælt. 7) Kælikerfi þrýstiprófað. 8) Vélarolía mæld. 9) Viftureim athuguð. 10) Viftukúpling athuguð. Rafkerfi: 1) Rafgeymasambönd athuguð. 2) Hleðsla mæld. 3) Rafgeymirálagsmældur. 4) Ljós yfirfarin og stillt. 5) Rúðuþurrkur og sprautur athuguð. 6) Flauta, miðstöð og afturrúðuhitari athuguð. Undirvagn: 1) Hemlaprófun. 2) Hjólbarðar skoðaðir og loft mælt. 3) Bremsuvökvamagn mælt. 4) Pústkerfi og dempararathugaðir. Yfirbygging: 1) Hurðalæsingar og lamir smurðar. 2) Þéttilistar á hurðum silikon varðir. Ef talið er að skipta þurfi um annað en venjulega slithluti höfum við samband áður en það er gert. BOSCH HÚSIÐ BRÆÐURNIR ORMSSRN Lágmúla 9, sími 530 2800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.