Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2001, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2001, Blaðsíða 17
I „Maður var alltaf með einhverja frasa og svona í þáttunum og ég held að ég verði að íslenska það alit. Það þýðir ekkert að vera með einhverjar enskuslettur því þá fær maður bara útvarpsráð á bakið. Mörður verður bara kominn alveg bandbrjálaður i stúdíóið. Maður verður bara að bera virðingu fyrir þvi,“ segir hinn króníski Robbi rapp hlæjandi. Gamli rapphundur- inn er loksins að komast á öldur ljósvakans aftur með hipp-hopp- þáttinn sinn „The Chronic" og með honum Frikki Fingaprint, margfaldur íslandsmeistari í skífuskanki. Að þessu sinni verður þátturinn á bylgjulengd Rásar 2 og þar heitir það sko að „beina kúlna- hríð í afturenda blámanns" en ekki „bust a cap in a niggas ass“. Nafn þáttarins verður þó enn upp á eng- ilsaxneskuna. „Já, ég var búinn að tékka á því. Hann myndi þá annars bara heita Króník, eða Krónískt flæði,“ svarar Robbi og glottir við íslenskuninni. Gamla góða X-ið Þátturinn var fimm ár við lýði á X-inu sáluga - allt frá fyrsta útsend- ingardegi þess - og „The Chronic“ hlýtur að eiga nokkurn heiður af því að buxurnar sigu jafnlangt nið- ur á rasskinnar unglingshjarðanna og raun ber vitni og að jafnvel fyrr- um síðhærðir gruggrokkarar kunna fyrstu línurnar í fyrstu lög- um Snoop Doggy Dogg. „Þetta kom eiginlega eins og sprengja. Allt í einu voru allir að flla þetta. Erlend- is er þetta ekki einu sinni tíska, þar er þetta menning, sem þú ert ann- aðhvort hluti af eða ekki. Hérna heima var þetta tískubóla. í dag er mjög finn kjarni sem leggur allan sinn metnað í rímurnar óg tónlist- ina,“ segir Robbi um sveiflukennt fylgi við hipp-hopplífsstílinn. Chronic hætti í árslok ‘98 eftir stutta viðdvöl á útvarpsstöðinni Skratz og Robbi fékk tveggja ára óumbeðið frí frá útvarpsstörfum þar til Mono 877 ætlaði að ættleiða sameiningartákn allra skoppara. „Það gekk ekki nema í þrjár vikur áður en Mono hætti,“ segir Robbi. Nú verður þátturinn á undan Party Zone Rásar 2. „Þetta er sama „lineöppið" og var á X-inu, gamla góða X-inu, þegar það var í kofan- um í Austurstræti, að Frikka viðbættum" segir hann. Frelsun á Beat Street Robhi hefur ekki mikið hórasi á milli tónlistarstefna og haldið trún- aði við hipp-hoppið um áraraöir. Áhuginn kviknaði snemma. „Ég var að kíkja í gegnum plötu- safnið mitt um daginn og fann plötu sem ég hafði merkt mér þegar ég var tíu ára. Það var fyrsta hipp- hoppplatan mín sem afi hafði keypt handa mér erlendis. Hún er algjör klassík, með Fat Boys. Ég byrjaði eiginlega að fila þetta þegar breikið kom, svona um ‘84.“ segir Robbi og rifjar upp hipp-hoppfrelsun sina á frumsýningu breikmyndarinnar Beat Street í Háskólabíói fyrir margt löngu. í kjölfarið segist hann hafa orðið nokkuð lunkinn í skrykkinu. „Ég get reddað mér með nokkur spor ef út í það fer,“ segir hann sannfærandi. Þeir hafa alla tíð verið fáir, jafnaldrar Robba með svipuð áhugamál en hann segist hafa orðið litið var við það á skóla- göngunni. „Ég gat nú alltaf svarað fyrir mig, en ef við vorum að fara í skólaferðalög og svoleiðis þá var allur hópurinn með eitt kassettu- tæki og ég með mitt. Þannig skar maður sig úr,“ segir hann. Skammbyssan í hanskaholfinu „Það eru fordómar gagnvart hipp-hopptónlist og klæðnaðinum sem henni fylgir. En það er bara hér á íslandi. Maður er spurður að því hvort maður ætli ekki að fara að vaxa upp úr þessu. Fólk áttar sig ekki á því að þetta er komið til að vera. Ég ætla að vera eins og Rúni Júl. Það er alveg á hreinu. Orðinn fimmtugur og bara i góðu flippi með Chronic enn þá. Þá verð ég kominn á Útvarp Sögu eða eitt- hvað,“ segir hann með látbragði. Hann segist hafa orðið skotspónn kjaftasagna á tímabili. „Það voru tvær helvíti fyndnar sögur sem gengu um mig og ég var oft spurð- ur um úti á götu. Ein var sú að ég geymdi skammbyssu í hanskahólf- inu. Fólk var að spyrja mig um þetta og öskra á eftir mér „Má ég sjá byssuna?" Svo var önnur. Þegar Éugees komu hérna þá átti ég að hafa gengið til þeirra og sagt að ég væri svartur maður, fastur i hvit- um likama. Sú saga er búin að fara út um allt og fullt af fólki sem held- ur ekki bara að ég hafi sagt þetta, heldur bara veit að ég sagði þetta,“ segir hann og rekur upp hlátur samfara sögustundinni. Það mætti samt eiginlega segja að Robbi hafi tímabundið náð þeim status að vera heimsfrægur á íslandi, eða að minnsta kosti á íslandi, fyrir litlar sakir. Áttu þér marga aödáendur? „Nei, nei. Maður fær virðingu fyrir það að hafa lagt sitt af mörk- um og lagt sig allan í það. En ís- land er svo lítið að þú þarft ekki annað en fara i megrun í sjónvarp- inu og þá ertu orðinn þjóðhetja og frægari en forsetinn," segir Chron- ic og gerir lítið úr vinsældunum. Hlustaðiróu aldrei á Vanilla Ice? „Jú, jú. Ég man alveg eftir því þegar hann kom fram,“ játar sá króníski með semingi. „Hann setti mark sitt á hipp-hoppsöguna með því að eiga eitt versta rapplag fyrr og síðar.“ En geta hvítir menn yfirleitt rapp- að? „Já. Ég held að það hafi sannað sig með komu Eminem á markað- inn. Af því að fyrir þremur-fjórum árum var hann einn heitasti und- erground-rapparinn. Það var ekki fyrr en Dr. Dre tók hann upp á sína arma að allt sprakk. Hann fór úr því að vera mjög ferskur neðanjarðarrappari yflr í að verða söluhæsti rappari allra tíma og það gerist ekki nema þú kunnir eitthvað fyrir þér í rímnaflæði." Fann sig ekki í rapparanum Plötusnúðadjobbið kom í kjölfar útvarpsþáttanna. „Einhvern tímann var ákveðið að ég ætti að vera skóla- plötusnúðurinn eða eitthvað svoleið- is og fékk nú fljótt leið á því. Svo þegar X-ið kom þá var enginn að sinna hipp-hopptónlist. Ég fór til þeirra og spurði hvort ekki væri möguleiki að vera með hip-hopþátt. Á þeim tíma spilaði ég bara diska og það náttúrlega þýðir ekkert að vera hipp-hoppplötusnúður og spila bara geisladiska og snéri ég fljótt yfir í vínilinn," segir Robbi. „Út frá þætt- inum byrjaði ég að spila mikið. Ég hef að vísu minnkað það, en spila r reglulega á Prikinu og fleiri stöðum og finnst það alltaf jafn gaman.“ Hefurðu aldrei sjálfur íhugaó að snúa þér að tónlistarsköpuninni? „Jú, jú,“ segir hann og brosir. „Fyrir 4-5 árum rappaði ég með Bubbleflies. En ég einhvern veginn fann mig aldrei í þessari rappara- stöðu. Ég fann meiri þörf hjá mér til að spila tónlistina og skemmta fólki á þann háttinn. Síðan pródúseraði ég smá með Bigga bix. Ég er með smá- aðstöðu úti í bæ til að dútla sjálfur . bara og er aðallega að leika mér,“ segir hann. Hr. Chronic hefur einnig verið iðinn við að flytja inn plötu- snúða og segist hafa fundið þörf hjá sér til þess, oftast vegna þess að hann sjálfan hafi langað að berja þá augum. Hann er ekkert á leiðinni að kveðja það svið og vonast til þess að hipp-hoppið komi sterkt undan vetri með erlendum tónlistarmönnum sem hann ætlar að fá til liðs við sig og láta troða upp á Gauki á Stöng. Vinirnir á vellinum Hvernig veröur þessum köppum vió þegar þú hringir í þá og bióur þá um aó koma til íslands? „Þeim finnst það nefnilega svo frábært. Þeir spyrja „ísland, hvað er 1 það?“ og svo segja þeir að það sé ekkert mál. Flestir þessara gæja eru til í að koma bara upp á grínið. Margir hafa heyrt að það séu sætar stelpur hérna og það er nóg fyrir þá.“ Og hvernig taka svertingjar þér? „Þeir taka mér eins og hverjum öðrum. Svo lengi sem þú ert bara þú sjálfur er ekkert hægt að taka þér neitt öðruvísi. Tónlistarformið hef- ur breiðst út um allan heim og ís- land er bara einn af viðkomustöðun- um. Ég held að þeim finnist bara mjög kúl að það hafl náð til svona lítillar eyju.“ Fyrir kaldhæðni örlag- anna eyðir Robbi vinnudögum sin- um í amerískasta umhverfi á ís- landi, nefnilega á herstöðinni á Mið- nesheiði, og gæti mörgum þótt fynd- ið. „Það er nú bara tilviljun. Afi minn var fjármálastjóri á vellinum þannig að ég fór að vinna þama á sumrin. Svo þegar ég kláraði Versló losnaði þarna staða og ég hef verið þar síðan, enda kann ég ágætlega við mig hjá Kananum.“ Og hvernig kanntu við Bandaríkin og Kana almennt? „Ég kann ágætlega við mig í stórborgunum enda hef ég lítið annað séð af Bandaríkjunum. Ameríkanar eru mismunandi eins ^ og allir, og ég hef eignast nokkra ágæta félaga þarna úti sem uppi á velli. Þannig að þetta er hið ágætasta fólk,“ segir sá króníski að lokum. 16. mars 2001 f Ó k U S 17

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.