Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2001, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2001, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 26. MARS 2001 Fréttir I>V Rannsóknarskýrsla um orsakir flugslyssins í Skerjafirði: Fjölskylda flugmanns- ins hótar lögsókn - bróðir hans segir vinnubrögð rannsóknarnefndar ónákvæm Sami Daglas, bróðir Múhameðs Daglas, flugmanns vélarinnar sem fórst í Skerjafirði í ágúst síðastlið- inn, segir Rannsóknamefnd flug- slysa hafa breytt sögu sinni um ástæðu slyssins eftir að Sami og aðrir aðstandendur Múhameðs fóru frá landinu eftir slysið. Fimm manns létust af völdum slyssins og er hinn sjötti enn þungt haldinn vegna áverka sem hann hlaut í slys- inu. „Tveimur dögum eftir slysið sögðu rannsóknarmennirnir okkur að það væri ekkert sem benti til þess að um mistök af hálfu Mú- hameðs væri að ræða heldur ein- göngu vélarbilun. Eftir að við vor- um farin frá landinu breyttist sag- an,“ sagði Sami í viðtali við DV.í gærkvöld en hann býr í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Fjölskylda Mú- hameðs sendi í gær frá sér yfirlýs- ingu þar sem Rannsóknarnefnd flugslysa er harðlega gagnrýnd fyrir skýrslu sem hún sendi frá sér fyrir helgina um slysið. I yfirlýsingunni fullyrðir íjölskyldan að Múhameð hafl ekki borið sök á slysinu enda verið afar varkár flugmaður. „Svona gerðist þetta ekki. Ég trúi því ekki að þessir menn hafi komist að nokkurri niðurstöðu, það er svo mörgum spumingum ósvaraö," sagði Sami sem sjálfur er flugmað- ur. Tilgangurinn ekki að skipta sök „Skýrslan er skoðun mannanna sem hana gerðu en ekki hið sanna í málinu. Aðrir rannsóknaraðilar hefðu komist að annarri niður- stöðu,“ sagði Sami og bætti því við að hann teldi að vinnubrögð rann- sóknarnefndarinnar hefðu verið mjög ónákvæm. „Þeir ættu að láta fólk vita að þetta eru eingöngu skoð- anir þeirra þar sem þeir voru ekki í vélinni og geta því ekki vitað hvað gcrðist." í skýrslunni kemur fram að flug- maðurinn hafl ekki haft tiltækar nákvæmar uþplýsingar um raun- verulega eldsneytiseyðslu vélarinn- ar, að hann virðist ekki hafa gengið úr skugga um eldsneytismagnið við brottför frá Vestmannaeyjum og að afltap hreyfiisins hafl líklega verið vegna skorts á eldsneyti til hreyfils- ins þar sem eldsneyti á þeim tanki sem stillt var á gekk til þurrðar. Jafnframt segir að ljóst virðist að flugmaðurinn hafl ekki beint nefi vélarinnar niður til þess að halda eða ná upp flughraða til nauðlend- ingar á hafíletinum eftir að hann missti aflið. Múhameð Sami Daglas. Daglas. í skýrslunni segir: „Markmið flugslysarannsókna er að greina or- sakaþætti flugslysa í því skyni einu að koma í veg fyrir að flugslys end- urtaki sig og stuðla að því að öryggi í flugi megi aukast. Tilgangurinn er ekki að skipta sök og/eða ábyrgð." „En það er ekki hægt að ljúka rannsókn þegar enn eru svona margir lausir endar," sagði Sami. „Það er fullsnemmt að kenna Mú- hameð um þetta. Þeir hafa ekki nægar sannanir til þess að gera það. Múhameð gerði nákvæmlega það sem honum bar að gera. Það var ekkert sem hann hefði getað gert öðruvísi og hvaða flugmaður sem er getur staðfest það.“ Múhameð var flugmaður hér á landi, flugkennari og kenndi auk þess bömum arabísku. Hann var síðastur þriggja bræðra til þess að flytja til Islands en hér bjó hann í 10 ár. Sami flutti frá íslandi árið 1992 eftir fimm ára búsetu en þriðji bróð- irinn bjó hér á landi í sex ár. Víðhaldsbækur vantaöi í yfirlýsingunni spyr ijölskyldan hvort Flugumferðarstjórn hafi stað- ið sig sem skyldi þetta kvöld, hvers vegna Múhameð hafi verið gert að snúa frá veflinum oftar en einu sinni og hvers vegna aðeins önnur flugbraut Reykjavikurflugvailar var í notkun. Þá spyr fjölskyldan hver beri ábyrgð á því að á hverju ári sé fjölda árekstra flugvéla naumlega afstýrt við Reykjavíkurflugvöll. Einnig vill flölskyldan vita hvar hreyfill vélarinnar sé nú en rann- sóknamefndin sendi hann úr landi viku eftir slysið. Sami taldi að sú staðreynd að við- haldsbækur vantaði i vélina þegar hún kom til landsins ætti að fá meiri athygli. „Við getum ekki lífgað hann við aftur en við munum gera það sem í okkar valdi stendur tii þess að koma í veg fyrir að mannorð hans verði óhreinkað að tilefnislausu," sagði Sami en fiölskyldan hótar lög- sókn á hendur „hverjum þeim sem reynir að fela sannleikann", eins og segir í yfirlýsingunni. -SMK Breiðholt: Skóflu og hníf beitt í átökum Tveir menn voru fluttir á slysa- deild Landspítalans í Fossvogi að- faranótt sunnudagsins eftir átök i Breiðholti. Annar maðurinn var stunginn með hníf og særðist illa en hinn var barinn með skóflu. Hvorugur þeirra var talinn vera í lífshættu en sár hins fyrrnefnda voru samt sem áður nokkuð alvarleg. Talið var að átökin hafi tengst fikniefnabraski en svo virðist sem hópur manna hafi veist að tveimur og einn úr hvorum hópnum slasast. Þrír menn voru handteknir í tengsl- um við málið en lögreglan í Reykja- vík er með það í rannsókn. -SMK DV-MYND HILMAR PÓR Glæsikettir Mikil ogglæsileg kynjakattasýning var haldin um helgina í Grafarvogi. Þar mátti sjá ýmsar tegundir katta sem ræktaö- ar eru hér á landi eins og hann Helios sem er af burmakyni sem er þekkt fyrir sérstaklega falleg blá augu. Snilldartaktar í vesturbænum - þegar Rikki bílstjóri flutti ÍR-húsiö Rikki bílstjóri var ekki lengi að því. Með risatengivagn í eftirdragi flutti hann ÍR-húsið frá Landakoti og niður í Slipp í gær án þess að förlast eina sekúndu: „Þetta eru mestu flutningar sem ég hef lent í og þetta gerir maður ekki einn. Ég var með góða aðstoð- armenn," sagði Rikki sem heitir fullu nafni Ríkharður Pálsson og vakti verðskuldaða eftirtekt og að- DV-MYNDIR HK Lagt af stað Fyrsti spölurinn - Túngatan. Trjásnyrting Nokkur tré fengu óumbeðna snyrtingu þegar Rikki og húsiö áttu leið hjá. A leiöarenda ÍR-húsiö komiö niöur í Slipp - þangaö sem feröinni var heitiö. dáun íbúa í vesturbænum á meðan á flutningum stóð: „Þetta er eins og blanda af martröð og draumi,“ sagði hús- freyja við Öldugötu sem trúði vart sínum eigin augum þegar Rikki ók fram hjá með ÍR-húsið á pallinum. „Og hann rekst ekki utan í neitt,“ bætti hún við og klappaði saman lófunum. Að visu snyrti Rikki og húsið Fyrsta beygjan Rikki beygir trukknum af Túngötu og niöur á Ægisgötu. nokkur tré sem slúttu út á gang- stéttina á Ægisgötunni þar sem leið- in lá. En þar við sat enda var búið að taka niður alla ljósastaura og umferðarskilti á leiðinni til að greiða flutningnum leið niður í Slipp. ÍR-húsið er 80 tonn að þyngd, 21 metri að lengd, 9 metra hátt og rúm- lega 8 metra breitt: „Ég þurfti að sýna lagni, Ég neita því ekki,“ sagði Rikki þegar húsið var komið niður í Slipp þar sem það bíður þess að verða flutt enn og aft- ur á endanlegan stað - hvar sem það nú verður. „Blessaður vertu! Þetta hleypur á milljónum," sagði Rikki þegar hann var spurður hvað það kostaði að flytja svona stórt hús og hann er til í slaginn aftur - hvenær sem er. -EIR í mál við Davíð Öryrkjabandalag- ið hefur höfðað mál á hendur Davíð Oddssyni forsætis- ráöherra og krefst þess að fá afhent minnisblað sem vitnað er til í fylgi- skjali með frum- varpi ríkisstjórnarinnar í öryrkja- málinu svokallaða. Allt flug í hættu Allt flug innaniands og utan fell- ur niður í flóra daga ef af verkfalli félaga í Félagi flugmálastarfsmanna ríkisins verður. Félagar í Félagi flugmálastarfsmanna ríkisins sam- þykktu að boða til flögurra skamm- tímaverkfalla i apríl og maí næst- komandi ef ekki nást samningar fyrir þann tíma. Loðnar loðnuvonir Sáralítil loðnuveiði hefur verið síðasta sólarhring og skipstjórar eru margir þeirrar skoðunar að ver- tíðinni sé nú lokið. 150 milljónir í íkveikjur Sjóvá-Almennar áætlar að félagið hafi greitt hátt í 150 milljónir króna í bætur í fyrra vegna brunatjóna af völdum íkveikju. 101 í Rúðuborg Kvikmyndin 101 Reykjavik var valin besta myndin á norrænu kvik- myndahátíðinni i Rúðuborg í Frakklandi. Af 10 myndum voru 2 íslenskar; 101 Reykjavik og Englar alheimsins. Ávísanaheftum stolið Lögreglunni í Reykjavík var til- kynnt um innbrot í fyrirtækið Stál- húsgögn hf. á Skúlagötunni um kiukkan 18 í gærdag. Þar hafði hurð verið brotin upp og komst þjófurinn þannig inn í húsnæðið, sém hýsir verksmiðju, verslun og skrifstofur fyrirtækisins. Tveimur ávisanaheft- um var stolið og töluverðar skemmdir unnar á hurðinni. Manndráp af gáleysi Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt ökumann fólksflutn- ingabifreiðar í þriggja mánaða skil- orðsbundið fangelsi og sviptingu ökuréttinda í sex mánuði fyrir manndráp af gáleysi. Ökumaðurinn var ákærður fyrir að hafa 6. ágúst síðastliðinn ekið fólksflutningabif- reið suður Hringveg við Þelamerk- urskóla í Glæsibæjarhreppi án nægjanlegrar aðgæslu, of hratt mið- að við aðstæður. Eldur í bíl Slökkviliðið á höfuðborgarsvæð- inu var í gærdag kallað að bíl sem stóð í ljósum logum við Ánanaust. Bíllinn, sem var af gerðinni Toyota, var nokkuð kominn til ára sinna og er það talinn vera hluti af ástæö- unni fyrir eldinum. Enginn slasað- ist vegna eldsvoðans og gekk greið- lega að slökkva logana. Bíllinn er hins vegar töluvert skemmdur eftir brunann. Vatnslaust í Hafnarfirði Ekkert kalt vatn var í Hafnarfirði í gærdag eftir að aðalæð fór í sund- ur á mótum Lækjargötu og Öldu- götu í gærmorgun. Viðgerð stóð yfir á æðinni í allan gærdag en hún er orðin gömul og er það talið vera or- sök bilunarinnar. -EIR/SMK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.