Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2001, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001
DV
5
Fréttir
afsláttur
Meiri framleiðslukostnaður íslensks grænmetis en meiri gæði:
Niðurfelling tolla kann að
setja 1.500 ársverk í uppnám
Garðyrkjubændur bíða nú átekta
þeirra áhrifa sem afnám tolla af inn-
fluttu grænmeti kann að hafa á
markaðinn, jafnvel þótt um sé t.d.
að ræða lauka sem ekki eru fram-
leiddir hérlendis eóa íssalat. Anna
Sigriður Pétursdóttir, garðyrkju-
bóndi að Brúnalaug í Eyjafjarðar-
sveit, segir að ársverk í grænmet-
inu séu um 1.500 og garðyrkjubænd-
ur um 200 talsins, þar af grænmetis-
framleiðendur 72, svo atvinna
margra er í húfi ef niðurfelling tolla
kippir undirstöðunum undan fram-
leiðslunni. Anna Sigríður segir að
framleiðslukostnaður íslensks
grænmetis verði alltaf meiri en er-
lendis en á móti komi meiri gæði
svo eðlilegt sé að verð á því sé
hærra. Bent hafi verið á að á móti
niðurfellingu innflutningstolla
komi lækkun á rafmagni en þeir
bændur sem nota hvað mest raf-
magn hérlendis eru að framleiða
blóm. Gerð hefur verið tilraun með *
framleiðslu á papriku í skammdeg-
inu og nota til þess raflýsingu en
það hefur ekki gefist vel en gengur
betur við agúrkuframleiðslu þar
sem þær eru fljótari að skila af sér
uppskeru og tekjum. Niðurfærsla
rafmagnsverðs skipti því ekki neinu
höfuðmáli.
Ólafsfjörður
Ólafsfiröinga sárvantar kennara.
Ólafsfjörður:
Vantar í
helming
stöðugilda
Fyrirsjáanleg er mikill barátta
milli sveitarfélaga landsins um
kennara á skólaárinu 2001/2002.
Reykjavíkurborg hefur nú bæst í
þennan hóp en allt fram á yfirstand-
andi skólaár var tiltölulega létt að
manna grunnskóla borgarinnar
með réttindakennurum, en ekki
lengur. Gylliboð Fræðslumiðstöðvar
Reykjavikur til kennara á lands-
byggðinni undirstrikar meira en
annað þessa stöðu sem nú er.
Tilboð sveitarfélaga á landsbyggð-
inni eru með ýmsum hætti. í Ólafs-
firði er kennurum boðin 50% niður-
greiðsla á húsaleigu fyrstu 2 árin og
síðan 25% niðurgreiðsla á 3. ári og
flutningskostnaður til Ólafsfjarðar
greiddur og hafi kennari starfað í 4
ár eða lengur er flutningskostnaður
frá Ólafsfirði greiddur.
Þórgunnur Reykjalín, skólastjóri
Gagnfræðaskóla Ólafsfjarðar, segir
að búið sé að auglýsa eftir kennur-
um en því miður hafi engin við-
brögð orðið, ekki eitt símtal. Til
Gagnfræðaskólans vantar 4 kennara
en fyrir eru 5 kennarar með rétt-
indi.og sumir í hlutastarfi. Þór-
gunnur segist vona að einhverjir
þeirra leiðbeinenda sem starfað hafi
í vetur haldi áfram, sæki engir
kennarar um. „Við Hildur Ólafs-
dóttir Arnars, skólastjóri Barna-
skóla Ólafsfjarðar, auglýstum sam-
an eftir kennurum en það er sama
ástandið þar því þar vantar 4 kenn-
ara. Ég er mjög svartsýn á þetta.
Okkur vantar t.d. dönskukennara
en það er mjög erfitt að fá dönsku-
kennara og það er mjög erfitt að
manna dönskukennsluna," segir
Þórgunnur. -GG
Af öllum Sony og Panasonic vörum!
Fimmtudaginn 1 O. maí til
laugandagsins 12. maí
0CO
hugsaðu | skapaðu | upplifðu
Skaftahiíd 24 • 105 Reykjavík • www.aco.i»
„Við sem erum að framleiða
papriku óttumst helst við óheftan
innflutning að þar er um að ræða
niðurgreidda vöru erlendis frá og
paprikurækt hérlendis muni leggj-
ast af. Við munum þá væntanlega
fara út i það að framleiða agúrkur
og tómata og vegna aukins fram-
boðs mun verðið á þeim vörum falla
niður í nánast ekki neitt og þar með
er grundvellinum kippt undan allri
stéttinni.
Okkur finnst það hart að vera að
borga meira fyrir rafmagnið hér en
t.d. Akureyringar en á móti kemur
að ég get notað virðisaukaskattinn
til frádráttar," segir Anna Sigríður
Pétursdóttir.
Gjaldskrá Norðurorku á Akur-
eyri er um 27 til 30% lægri en gjald-
skrá RARIK, sem er raforkusalinn í
Eyjafjarðarsveit. Lægstu raforku-
gjaldskrá landsins er að finna á Suð-
urnesjum en síðan koma Akureyri,
Hafnarfjörður og Reykjavík með
svipaða gjaldskrá.
Óttast um vinnuna
Anna Sigríöur Pétursdóttir, garöyrkjubóndi segir atvinnu margra geta veriö í
húfi ef niöurfelling tolla eigi sér staö.
"*cr<
Á www.aco.is velun þú hvaða lönd lenda
( 5 efatu saetunum ( réttni nöö. í vinning
en Sony sjónvanp aö andvinöi einnan
mitljón knóna. Ef fleini en einn enu með
nétta svaniö venðun dnegið ún þeim hópi.
Taktu þátt í netleik ACO á
www.aca.is. 1.000.000
króna Sony sjónvarp í vinning.