Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2001, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001
DV
Neytendur
9
Árið 1981 kostaði bensínið 8 kr. sem samsvarar 122 kr. á núvirði:
Bensínið ódýrara en 1979-85
- af helstu fljótandi nauðsynjavörunum hefur kókið hækkað mest
Línurit: Þróun á veröi bensíns, mjólkur og gosdrykkja frá 1970 til 2001,
reiknað til núvirðis m.v. vísitölu neysluverðs
Tekiö skal fram að Hagstofan miðaði verö á gosi fyrst við 25 cl glerflöskur, árin
1980-1985 við litlar kókflöskur og síðan við áldósir svo veröiö er ekki alveg sam-
bærilegt allt tímabiliö. Ljóst viröist þó að þaö hefur yfirleitt sótt upp á viö.
Finnist mönnum bensíniö nú dýr-
ara en nokkru sinni skýrist það af
gleymsku. Lausleg athugun á bens-
inverði undanfarna áratugi leiðir
nefnilega í ljós að það var raunveru-
lega miklu dýrara fyrir 15-20 árum.
Hæst fór það haustið 1981, þegar
bensínlítrinn kostaði 8 krónur, sem
framreiknað með vísitölu neyslu-
verðs samsvarar nú 122,30 kr„ eða
um 20 krónum meira en bensín-
lítrinn kostaði í gærmorgun. Sam-
kvæmt tölum Hagstofunnar rauk
bensínverðið upp árið 1979 um rif-
lega þriðjung frá árinu áður. Og
næstu sex árin rokkaði það svo oft-
ast á milli 114 og 122 kr./l að nú-
virði en lækkaði síðan aftur um
nær 40% árið 1986.
Mjólkin líka ódýrari en
á 9. áratugnum
í leiðinni þótti blaðamanni fróð-
legt að líta á verðþróun tveggja ann-
arra af helstu fljótandi nauðsynja-
vörum flestra heimila: mjólkur og
gosdrykkja. I ljós kom að núvirði
þeirra hefur, ef eitthvað er, rokkað
enn meira en bensínverðið sem
glöggt má sjá á meðfylgjandi línu-
riti. Núviröi mjólkurlítrans var þó
yfirleitt upp á við, uns það snar-
hækkaði árið 1983 í sem svarar tæp-
ar 105 kr. lítrinn. Hæst komst mjólk-
urlítrinn í jafnvirði 108,50 kr. árið
1985 og var áfram yfir 100-kailinum
allt fram undir 1990.
Goslö hækkað allra mest
Það sem kom mest á óvart var að
gosdrykkirnir skuli hafa hækkað
meira í verði en bæöi bensín og
mjólk. Öfugt við það sem ætla mætti
virðist gosdrykkjaverð hafa hækkað
í takt við stóraukinn markað og
væntanlega vaxandi framleiðslu-
tækni á umliðnum áratug. Gos-
drykkir (aðallega mælt í kóka kóla)
eru nú dýrari, og jafnvel miklu dýr-
ari, en nokkru sinni a.m.k. í hálfa
öld. Innihald 25 cl glerflösku er t.d.
kringum tvöfalt dýrara en fram-
reiknað verð frá árunum 1970-1975.
Innihald lítillar (19 cl) kókflösku er
sömuleiöis tvöfalt dýrara en á árun-
um 1980-1985. Og 0,5 lítra kókdós
(sem Hagstofan hefur miðað við
undanfarin ár) hefur hækkað um
fjórðung að raunvirði síðan 1995.
-hei
Virðisaukaskattskyldar sendingar frá útlöndum:
Bögglarnir hrúgast upp
- og afgreiðsluferlið lengist
Komast seinna til skila
Eftir hæstaréttardóm nýveriö veröur aö fá skriflegt samþykki viötakenda sending
anna til aö tollurinn geti opnaö þær og hefur þaö lengt afgreiöslutímann töluvert.
Maður nokkur átti von á bóka-
sendingu frá Þýskalandi og fékk til-
kynningu heim til sín þess efnis að
hann ætti sendingu frá útlöndum.
En áður en hann gat fengið hana í
hendur þurfti hann að senda tollin-
um yfirlýsingu þess efnis að þeir
mættu opna hana til að kanna verð-
mæti sendingarinnar. Hann reyndi
nokkrum sinnum að faxa yfirlýsing-
una til tollsins en faxið þar tók ekki
á móti. Þá fór hann með hana á
næsta pósthús til að fá faxið sent og
var honum vel tekið. Þegar hann
svo spurðist fyrir daginn eftir kom í
ljós að tollinum hafði ekki borist
faxið og hann varð því að leggja leið
sína upp á Ártúnshöfða með yfirlýs-
inguna. Hann var að vonum ekki
ánægður með að þurfa að snúast
svona til að fá sendinguna sina í
hendur og segir að mikil afturför
hafi orðið á þessari þjónustu undan-
farið.
Ástæða þess að viðtakendur
þurfa nú að skila inn skriflegu sam-
þykki fyrir því að tollverðir opni
póstsendingar er sú að nýverið féll
hæstaréttardómur þess efnis að toll-
gæslunni væri óheimilt að opna
póstsendingar til landsins í þeim til-
gangi einum að finna út verðmæti
sendingarinnar. En það hefur verið
gert til að finna út verömæti henn-
ar og leggja á hana opinber gjöld. í
kjölfar dómsins breyttist vinnuferli
við afgreiðslu slíkra sendinga hjá ís-
landspósti og tollinum.
Þyngra og erfiðara ferli
Áskell Jónsson, framkvæmda-
stjóri sölu- og markaðssviðs íslands-
pósts, segir að hæstaréttardómur-
inn hafi haft töluverð áhrif á
vinnsluferlið hjá fyrirtækinu og
tollinum við afgreiðslu virðisauka-
skattsskyldra sendinga. „Áður fyrr
var ferlið þannig að ef upplýsingar
um verðmæti vöru var ekki utan á
pakka þá var sendingin einfaldlega
opnuð af okkar fólki og undir eftir-
liti tollsins í þeim tilgangi að ná í
þær,“ segir Áskell. „Nú verðum við
að fá skriflegt leyfi frá viðtakendum
sendinganna til að opna þær. Þetta
skriflega leyfi verður að berast til
okkar á faxi, í pósti eða koma verð-
ur með það til okkar. Þetta er svo
sem ekki flókið mál en það skapar
óþægindi." Þvi er nú öllum viðtak-
endum sendar tilkynningar um að
leyfið vanti og þeir þurfa að koma
því til póstmiðstöðvarinnar á Stór-
höfða. Því veltur afgreiðsluhraðinn
nokkuð á því hversu fljótur viðtak-
andinn er að bregðast við og koma
leyfinu þangað. „Við sjáum að þetta
fyrirkomulag hægir á öllu ferlinu
og pakkar safnast upp hjá okkur í
meira mæli en við eigum að venjast.
Þetta ástand skapar verulegan
aukakostnað fyrir íslandspóst og
viðtakandann og ég er viss um að
mun þyngra og erfiðara er fyrir toll-
inn að afgreiða sendingar sam-
kvæmt þessum nýju reglum." segir
Áskell að lokum.
Aðspurður segir Áskell að á
ákveðnum tímum geti verið að álag
sé svo mikið á faxtækið að það anni
ekki að taka á móti öllum þeim
sendingum sem berast en hann tel-
ur ekki að vandinn liggi þar.
„Lausnin á vandanum liggur ekki í
því að bæta við faxtækjum. Frekar
ætti að reyna finna skynsamlega
leið til að losna út úr þessari
klemmu svo afgreiðslan gangi vel
fyrir sig og að fulls jafnræðis sé
gætt þannig að tollayfirvöld, póstur-
inn og viðtakendur verði tiltölulega
sáttir. ÓSB
Húsráö:
í eldhúsinu
Sundurliflun greiflslu Ábyrgdartr. ökutækis Ðónus 75% Slysatr. ökumanns og eig. Iögjald framrúðutr. STOFN-afslátmr kr. kr. kr. kr. kr. 195.346 -146.510 10.596 4.236 -6 367
57.301 Dnia»rvcx(if
Bifreiöatryggingar:
Margir að fá
hækkun núna
Maður hafði samband við neyt-
endasíðuna og var ekki par ánægð-
ur með að bifreiðatryggingar af
Isuzu Trooper bifreið hans höfðu
hækkað um tæplega 50% á milli
ára. Honum fannst þetta mikil
hækkun því bifreiðin var sú sama
og hann hafði ekki lent í neinu
tjóni. Tryggingarupphæðin var á
síðasta ári 38.324 kr. en eins og sjá
má á myndinni 57.301 kr. í ár.
Þegar haft var samband við Sjóvá-
Almennar fengust þær upplýsingar
að hér væri um að ræða hækkun
sem sem varð á bifreiðatryggingum í
fyrra vegna aukinnar tíðni tjóna auk
þess sem hvert tjón kostaði meira.
Hækkunin var sett á í byrjun sum-
ars og því fá þeir sem voru nýbúnir
að endurnýja tryggingar sinar hækk-
unina ekki fyrr en nú.
Mataruppskriftir eru góðar til
síns brúks en hvers vegna er aldrei
sagt frá því hvað getur farið úr-
skeiðis við eldamennskuna? Þær
hljóma nefnilega flestar eins og mat-
argerðin sé ekkert mál, hægt sé að
galdra fram léttsteikt heilag-
fiski með pönnugljáðu græn-
meti með engiferkeim á
kvöldmatarborðið. Svo
þegar allt fer úrskeiðis er
sökinni varpað á aum-
ingja kokkinn sem ekki
var að gera annað en
fylgja leiðbeiningum út í
ystu æsar. Við búum
nefnilega ekki öll í stál-
slegnu tilraunaeldhúsi þar
sem ró og friður ríkir klukku-
stundum saman og ekkert truflar
listakokkinn við sköpun listaverks-
ins. Á heimilum landsmanna hring-
ir síminn, hundurinn bítur bréfber-
ann og bamið brýtur rúðu og allt
þetta getur gerst á meðan kvöldmat-
urinn er undirbúinn. Því brennur
sósan viö, það gleymist að setja
kartöflurnar yfir og saltstaukurinn
veltur um koll og allt saltið rennur
í kássuna. Og hvað er þá til ráða?
Matreiðslubækumar gefá ekki svör
við því þar sem ekki þykir söluvæn-
legt að telja upp öll þau mistök sem
geta átt sér stað þegar tilteknir rétt-
ir eru eldaðir. Því eru hér nokkur
góð ráð sem gott er að hafa við
hendina þegar eitthvað fer úrskeið-
is í eldhúsinu.
* Ef avocado-
ávöxturinn er
óþroskaður er
gott að skera
hann í tvennt
og láta liggja
með tómötum,
eða öðru
grænmeti sem
gefur frá sér
etylen í nokkra
stund. Þá ætti
hann að mýkjast.
* Ef ísinn er of fros-
inn til að hægt sé að ná honum úr
forminu er ekki ráðlagt að setja box-
ið í heitt vatn því þá bráðnar ísinn of
mikið. Heldur skyldi nota kalt vatn,
það gerir sama gagn og ísinn heldur
sér betur.
* Ef ekki er til rjómi/mjólk í
kaffið má þeyta eggjahvítu og nota
hana í staðinn.
* Þurfi að sjóða kartöflur í hvelli
þá má auðvitað skera þær í minni
bita en einnig getur verið gott að
stinga hreinum stálnöglum í gegn-
um þær því málmurinn leiðir hit-
ann inn í kartöflurnar og þær verða
tilbúnar fyrr.
* Ef nota á egg í uppskrift og
þau eru ekki til á heimilinu má not-
ast við mjólk og edik í staðinn. Þá
er einn dropi af ediki settur í eitt
glas af mjólk og það notað i staðinn
fyrir egg. Þetta ráð dugar þó ekki ef
eggin eru mikilvægur þáttur upp-
skriftarinnar.
* Ef rúsínur eru þurrar má hella
sjóðandi vatni yfir þær, setja lokiö á
og láta standa í smá stund. Vatninu
er síðan hellt af og þá ættu rúsín-
urnar að vera eins og nýjar.
* Ef maturinn verður of krydd-
aöur, t.d. af pipar eða chilli, má
bjarga sér með því að bæta vatni út
i. En ef rétturinn er þannig að ekki
má þynna hann of mikið er ráð að
nota rjóma í staðinn. Rjóminn tekur
nokkuð af sterka bragðinu úr réttin-
um. ÓSB
VM59I
TH797
RM294
TLI24
PU439
Hyundai Pony SE
Verö: 290.000
Nýskr. 05.1993, I300cc vél,
4 dyra, 5 gíra, blár, ekinn 106 þ.
Hyundai Sonata GLSi
Tilboð: 930.000 verð: 1.180.000
Nýskr. 03.1998,2000cc vél,
4 dyra, sjálfskiptur, brons,
ekinn 31 þ.
Mazda 323
Verð: 990.000
Nýskr. 03.1999, 1500cc vél,
4 dyra, 5 gíra.grár, ekinn 60 þ.
Renault Megane RT
Verð: 1.290.000
Nýskr. 04.1999, 1600cc vél,
4 dyra, 5 gíra.grænn, ekinn 14 þ.
Toyota Corolla Terra
Verð: 890.000
Nýskr.01.1998, I300cc,
4 dyra, 5 gíra.grænn, ekinn 59 þ.
úrval af
góðum
notuðum
bílum
í síma
575 1230
Grjóthálsi
bílaland.is