Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2001, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2001, Síða 9
FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2001 DV 9 Neytendur Ný lög um tóbaksvarnir: Réttur barna í fyrirrúmi Þrengt aö reykingafólki Ekki eru margir staöir eftir þar sem reykingafólk getur reykt í friöi og má sjá það hírast úti i öttum veörum til aö svala fíkn sinni. Hvar má ekki reykja? •k í grunnskólum * í vinnuskólum •k á leikskólum * þar sem dagvist barna fer fram * i húsum þar sem fram fer félags-, íþrótta- og tómstundastarf barna * í framhalds- og sérskólum * á öllum samkomum sem ætlaðar eru ungmennum á sjúkrahúsum (þó mega sjúklingar reykja í vissum tilvikum) k á öllum öðrum stöðum þar sem veitt er heilbrigðisþjónusta (nema íbúðarherbergjum vistmanna á hjúkrunar- og dvalarheimilum) k í þjónusturými stofnana, fyrirtækja og félagasamtaka * á veitinga- og skemmtistöðum (nema i afmörkuðum rýmum) * á hótelum og gistiheimilum (nema í tilteknum gistiherbergjum) * í gistiskálum * í sameign fjölbýlishúsa k i almenningsfarartækjum Hvar má reykja? k úti undir berum himni en ekki á lóðum þar sem starfsemi með böm fer fram * á eigin heimili og annarra, svo framarlega að börn séu ekki viðstödd * á afmörkuðum svæðum á veitinga- og skemmtistöðum * í tilteknum herbergjum hótela og gistiheimiia •k í sumum fangaklefum * í tilteknum íbúðarherbergjum hjúkrunar- og dvalarheimila •k í hluta farþegarýmis ílugvéla, svo framarlega sem þær hafa ekki viökomu á íslandi Fyrir nokkrum dögum samþykkti Alþingi ný tóbaksvarnarlög sem taka gildi þann 1. ágúst nk. Við gildistöku laganna eykst réttur hinna reyklausu mikið en mjög þrengir að reykinga- fólki. Aðaláhersla laganna varðar markaðssetningu og sölu tóbaks og rétt reyklausra til hreins lofts. Lögin munu eflaust koma til með að hafa margvísleg áhrif á líf fólks og nú þegar hefur komið upp nokk- uð hörð gagnrýni á þau. í lögunum er ákvæði um að forráðamenn barna skuli stuðla að því að þau andi ekki að sér lofti sem er meng- að af reyk af völdum annarra og þvi er lögð sú skylda á herðar þeirra sem bera ábyrgð á barni að forða þvi frá óbeinum reikingum. Því má spyrja hvort foreldrar sem reykja heima hjá sér þegar börnin eru ná- læg séu að brjóta lög? í fréttatil- kynningu frá Tóbaksvarnarnefnd segir að réttur fólks til reyklauss andrúmslofts sé viðurkenndur í lög- unum og að sérstaklega sé kveðið á um rétt barna. Þau séu sérlega við- kvæm fyrir tóbaksreyk og að marg- ar rannsóknir hafi sýnt að þeim sé öðrum fremur hætt við sjúkdómum og lasleika af völdum óbeinna reyk- inga. Hins vegar hefur laganefnd Lögmannafélagsins látið hafa eftir sér í fjölmiðlum að ríkið sé með þessum lögum að seilast ansi langt inn á friðhelgi einkalífsins. Flokkun eftir reykmagni? Reykingar verða óheimilar í þjón- usturými stofnana, fyrirtækja og fé- lagasamtaka, þar sem menningar- og félagsstarfsemi fer fram, þar með talið iþrótta- og tómstundastarf. Einnig verður bannað að reykja á veitinga- og skemmtistöðum nema á afmörkuðum svæðum þar sem tryggð er fullnægjandi loftræsting. Þó svo að hingað til hafi verið boð- ið upp á reyklaus svæði á veitinga- stöðum hefur í flestum tilvikum verið um málamyndarráðstafanir að ræða. Á flestum veitingastöðum eru reyklaus borð en þau eru oft þannig staðsett að allt í kringum þau má reykja og eins og allir vita berst tóbaksreykurinn um allt. Nú verður þetta fyrirkomulag ekki leyfilegt og þvf ljóst að margir veit- ingamenn þurfa að leggja út í tölu- verðar framkvæmdir til að breyta stöðum sínum þannig að hægt sé að uppfylla ákvæði laganna. Hið sama má segja um eigendur skemmti- staða þar sem reykingar hafa verið leyfðar svo til alls staðar. Eins þurfa stjórnendur veitingastaða að leitast við að vemda starfsfólk gegn tó- baksreyk, hvernig sem það verður gert. Þar sem heilbrigðis- og trygg- Oft má fá svínakjöt á ágætisverði og með réttri matreiðslu er það herramannsmatur. Hér er uppskrift með beinlausum svínahnakka, asp- as og mozzarellaosti sem er tOvalin sem helgarsteik. í þennan rétt þarf eftirfarandi hráefni: 800 g svínahnakki, beinlaus (í flórum sneiðum) Ný rakvél fyrir konur Gillette hefur sett á markað nýja rakvél, Venus, sem sérstaklega er ætluð fyrir konur og er hún fyrsta þriggja blaða kvenrakvélin sem kemur á markaðinn. Á henni eru gúmmípúðar sem innihalda Aloe Vera og E- vítamín sem gerir raksturinn betri og mýkri. Rakvélinni fylg- ir askja sem hægt er að hengja upp á vegg ásamt blöðum. Rakvélarblöð- in eru í vatnsþéttum umbúðum sem koma í veg fyrir að óhreinindi safn- ist fyrir í blöðunum sem eru því alltaf þurr og hrein. Það er heild- verslunin Glóbus sem sér um dreif- ingu á Venus-rakvélinni. ingamálaráðherra er heimilt að setja nánari reglur um reykingar á þessum stöðum má búast við ein- hverskonar flokkun á þeim með til- liti til reykinga og loftræstingar. Því gætu reykingar verið leyfðar á sumum stöðum á meðan aðrir væru reyklausir, annað hvort alveg eða að hluta til. Nú þurfa sölustaðir sem selja tó- bak að fá til þess sérstakt leyfi heil- brigðisnefndar viðkomandi svæðis 3 msk. matarolía til steikingar Scdt og pipar Mozzarellasósa 100 g spínat, ferskt 12 stk. perlulaukur 8 stk. ferskur spergill, grænn 8 stk. vorlaukur 6 stk. hvítlauksrif 3 msk. matarolía 1 pakki hollandaise-sósa 100 g smjör 2 1/2 dl mjólk 4 msk. steinselja 80 g mozzarellaostur, rifinn Aöferö Steikið kjötsneiðarnar í heitri olíu í 8 mínútur, snúið nokkrum sinnum. Bragðbætið með salti og pipar. Mozzarellasósa Skerið grænmetið niður (perlu- laukinn i tvennt), snyrtið spergil með því að skera neðan af honum og flysja ysta lagið af. Sjóðið ásamt vorlauk i léttsöltu vatni i 2-3 mín. Steikið í heitri olíu í 1-2 mínútur. Lagið hollensku sósuna skv. upp- skrift og bætið í hana rifnum mozzarellaosti og steinselju. Hrærið grænmetinu út í og ausið yfir steik- og fylgi þeir ekki reglum sem settar eru um þessa starfsemi má svipta þá leyfinu. Lögin banna einnig að unglingar yngri en 18 ára selji tóbak en þar sem margir sölustaðir eru mannað- ir unglingum setja þau stjómendur sölustaðanna í vanda. Því hafa heil- brigðisnefndir leyfi til að veita tímabundnar undanþágur frá þessu ákvæði þar sem erfitt getur verið að manna sölustaði. -ÓSB ina. Berið fram með grófu brauði. Uppskriftin er fyrir fjóra. Úr Ferskt og framandi Nýjar rafhlöður Tvær nýjar tegundir af rafhlöðum frá Duracell eru komnar á markað hér á landi. Annars vegar er um að ræða Duracell Ultra M3 sem er sér- hönnuð fyrir orku- frek tæki, eins og stafrænar mynda- vélar, halogenvasa- ljós, GPS-staðsetn- ingartæki, mynd- bandstökuvélar og fleira. Hins veg- ar er um að ræða Duracell Plus raf- hlöðu sem hentar betur fyrir tæki sem nota minni orku. Má þar nefna reykskynjara, klukkur, símboða og venjuleg vasaljós. Heildverslunin Glóbus sér um dreifingu Duracell- rafhlaðnanna. Helgarmaturinn: Svínahnakki með mozzarellasósu 1 IvH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.