Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2001, Side 28
36
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2001
Tilvera DV
lí f iö
E F T 1 R V I N N U
Fiðla og píanó í
Sigurjónssafni
Sif Tulinius fiðluleikari og
Steinunn Birna Ragnarsdóttir
píanóleikari koma fram á fyrstu
sumartónleikum þessa árs í
Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í
Laugarnesinu. Þeir verða í kvöld
og hefjast kl. 20.30. Á efnisskrá
eru vel þekkt og vinsæl verk
eftir marga vel þekkta og
vinsæla höfunda.
Pjass
I „3“ A CAFE OZIO Hljómsveltin
„3“ verður með tónleika í kvöld kl.
21.30 á Café Qzio. Hljómsveitina
sklpa: Stefán Órn Gunnlaugsson,
söngur, og Ragnar Örn Emilsson,
gítar. Á efnisskránni eru lög eftir
margar af frægustu einförum popp-
sögunnar svo sem Tom Waits, Dav-
id Bowie, James Taylor, Paul Simon
o.fl. 600 kr. inn
Kabarett
V\ SPENNANDI HUOÐVERK I NY-
I ISTASAFNINll I dag kemur fram
lod Summers - Separating Si-
rnces: Það er gjörningur og fyrir-
jstur um sögu hljóösins frá stóra
hvellinum til tungutaks tölvunnar. Þá
emur fram Magnús Blöndal
Jóhannsson sem flytur verk sitt
Hieroglyphics
■ RATLEIKUR í TÚNFÆTINUM í
dag er athyglinni beint aö Hátúni 14
á menningarhátíðinni í túnfætinum
sem stendur yfir þessa viku í Hátúni
10,12 og 14. Klukkan 17 verður
þar kynning á íþróttum fatlaðra,
bogfimi, borðtennis og boccia. Kl.
18 er ratleikur. Þá er fimm til sex
manns raðað saman í hópa og fer
leikurinn fram á lóöum húsanna í
kring. Þar leita menn uppi ákveðna
pósta og leysa verkefni. Allir geta
tekið þátt og verðlaun eru veitt fyrir
bestu úrlausn, að mati dómnefndar.
Bíó
■ RAFEIND. EGILSSTÓÐUM Bíó-
húsið Rafeind sýnir stórmyndina
Pearl Harbor kl. 20.
Sýningar
I HEFÐ OG NYSKOPUN I
SIGURJONSSAFNI Sumarsvnine
Listasafns Sigurjóns Ólafssonar í
Laugarnesinu ber heitið Hefð og
nýsköpun. Þar,má sjá úrval verka
eftir Sigurjón Ólafsson frá þrjátíu ára
tímabili, 1930-60. Á sýningunni eru
30 Ijósmyndir og 24 skúlptúrverk,
bæði raunsæ portrett og
abstraktverk, þar á meðal þrjú verk
sem ekki hafa veriö sýnd
opinberlega í fjóra áratugi.
■ HEILBRIGÐISMINJAR í
NESSTOFU Nesstofusafn sýnir
heilbrigöisminjar frá landinu öllu.
Munirnir koma frá einstaklingum,
Læknaskólanum í Reykjavík,
sjúkrahúsum og víðar og tengjast
kennslu I læknisfræði,
fæðingarhjálp, sullaveiki,
skurðaðgerðum og mörgu fleiru.
Nesstofa er eitt af elstu steinhúsum
landsins. Hún er opin sunnudaga,
þriðjudaga, fimmtudaga og
laugardaga milli kl. 13 og 17.
Popp
I STOR-STEFNUMOT A GAUKNUM
Það er ekkert venjulegt Stefnumóta-
kvöld á Gaukl á Stöng. Stórvesír-
arnir í Maus, plús gestir, mæta á
svæðið eftir frekar rólega tíö meö
nýtt efni til kynningar. Þetta er eitt-
hvað sem allir veröa að tékka á
enda yfirleitt ekkert annaö en snilld
sem kemur frá Mausurunum.
Sjá nánar: Lífiö eftlr vinnu á Vísi.is
Veit kúnstina bak viö góöan kaffisopa
Lilja Pétursdóttir í Kaffitári í Kringiunni.
DV-MYND HARl
stappi við lögin
Cassandra Sheen, dóttir vandræða-
gemsans Charlies Sheens, var hand-
tekin fyrir innbrot 1 fatabúð á dögun-
um. Stúlkan er einungis 16 ára gömul
og var henni sleppt í umsjá móður
sinnar.
Sjaldan fellur eplið langt frá eik-
inni, hefði margur sagt en Charlie fað-
ir hennar hefur ósjaldan gerst brotleg-
ur við lög og eyddi stórum hluta af 10.
áratugnum í meðferð vegna fikniefna-
og áfengisneyslu. Hann var einn af
fastakúnnum vændiskonunnar Heidi
Fleiss og var margsinnis kærður fyrir
likamsárásir á fyrrum kærustur. Nú
virðist dóttir hans ætla
að halda uppi Sheen-
nafninu í réttarskjöl-
um.
Bíógagnrýni
Sam-bíóin/Háskólabíó - Pearl Harbor:
Sápuópera í skugga árásar
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Lilja Pétursdóttir keppti í kaffilögun á Miami:
Fjórða á heimsmeistara-
móti kaffibarþjóna
Dóttir Sheens í
„Menn mættu til leiks ábúðar-
miklir með James Bond-töskur en í
þeim voru ekki byssur heldur
freyðikönnur, þjöppur og önnur
áhöld sem þarf til kaffilögunar,"
segir Lilja Pétursdóttir í Kaffitári,
nýkomin af heimsmeistaramóti
kaffibarþjóna á Miami á Flórída.
Keppendur voru 12 og höfðu þeir
allir sigrað keppnir í sínum heima-
löndum. Lilja hreppti fjórða sætið á
heimsmeistaramótinu og raðaðist
þar á eftir nágrönnum okkar í
norðrinu, Dönum, Norðmönnum og
Svíum.
Mynstrið er bónus
Hinn danski Martin Hildebrandt,
sem varð í þriðja sæti á síðasta ári,
hreppti heimsmeistaratitilinn í ár
og þau úrslit hljóta að gefa Lilju
vonir um enn meiri frægð og frama
á næsta móti. En hver er kúnstin
við fyrsta flokks kaffisopa?
„Kúnstin felst í því að gera gott
kaffi,“ segir Lilja og heldur áfram:
„Til þess þarf úrvalshráefni, góða
kvöm og rétta mölun á kaffinu. Síð-
an þarf maður auðvitað að vera með
vinnubrögðin á hreinu. Það er
dæmt um meðhöndlun hráefnisins
og ýmis tæknileg atriði, einnig
bragð, framreiðslu og útlit.“ Lilja
segir að þótt flott sé að bera fram
bolla með mynstri í mjólkurfroð-
unni skipti það ekki mestu máli.
„Það er bara bónus,“ segir hún.
Áhuginn vaxandi víöa um
helm
Auk ýmissa áhalda til kaffilögun-
ar kveðst Lilja hafa tekið með sér
bollapör og skeiðar, G-mjólk frá MS
og expressókaffi. Kvöm og kanna
voru á staðnum og kveðst Lilja hafa
fengið eina stutta æfingu áður en
keppnin sjálf hófst. „En hluti af því
að vera góður kaffibarþjónn er að
geta komið að öllu ókunnugu og
framreitt samt fyrirmyndarkaffi,"
segir hún. Kaffibarþjónar læra ekki
sitt fag í hefðbundnum skóla heldur
felst námið í þjálfun og Lilja segir
margt hægt að læra í alþjóðlegum
mótum eins og því sem hún er ný-
komin af. „Tilgangurinn með svona
keppnum er að efla fagið sem slíkt
og auka þekkingu fólks. Áhuginn á
kaffilögun er greinilega vaxandi
viða í heiminum og það er frábært
því þá getur maður ferðast um og
alls staðar fengið gott kaffi.“
-Gun
Fær líklega að
fjúka frá Virgin
Vaxandi líkur eru nú á því að
hrollkryddið Mel B verði látið fiúka
frá Virgin-útgáfufélaginu. Hún hefur
hæst komist í 13. sæti breska smá-
skífulistans með lagið Lullaby og for-
dæmi eru fyrir því að stjörnur séu
látnar fjúka fyrir svo slælega frammi-
stöðu. Fyrrverandi Boyzone-drengur-
inn Stephen Gately náði smáskifu
sinni Stay hæst í 13. sæti listans og
var losaður undan samningi fyrr í
þessum mánuði. Allar kryddpíurnar
nema Victoria Adams hafa átt góðu
gengi að fagna i sólóferli og nú síðast
sló hæverska barnakryddið Emma
rækilega i gegn.
Það þarf mikla þolinmæði til að
sitja yfir fyrsta einum og hálfa tím-
anum í Pearl Harbor. Á þessum
tíma, sem verður að teljast eðlileg
kvikmyndalengd, er dembt yfir okk-
ur ástarsögu sem hefur akkúrat
engan sjarma, heldur er samansafn
af klisjum úr sápuóperum. Þegar
það bætist við að ekki er hægt að
segja að gneisti á milli leikaranna
þriggja, Ben Afileck, Kate Beck-
insale og Joss Hartnett, þá er ótrú-
legt til þess að hugsa að jafn reynd-
ir fagmenn og Jerry Bruckheimer
og Michael Bay skyldu ekki hafa
gert sér grein fyrir þessu. Þegar svo
aftur á móti er litið til fyrri afreka
þeirra, sérstaklega Armageddon, þá
á þessi slæma útkoma á fyrri hlut-
anum ekki að koma neitt á óvart. í
Armageddon sem og í Pearl Harbor
er engin virðing borin fyrir persón-
um heldur allt lagt í umbúðimar.
Bruckheimer hefur sagt að metn-
aður hans sé að fá sem flesta í bíó
og þegar það er eini metnaðurinn
hjá kvikmyndagerðarmanni þá er
ekki að sökum að spyrja að lítið er
gefið fyrir flóknar söguskoðanir og
innihaldsríkan texta. Heldur er far-
ið af stað með hugmyndir sem eiga
að koma þeirri kynslóð, sem mest
sækir kvikmyndahúsin, í bíó. Sú
tæknivædda kynslóö vill sjá eitt-
hvað sem grípur augað og því verð-
ur ekki neitað að þegar liður á
myndina og við fáum það sjónarspil
sem nafn myndarinnar er dregið af
verður atburðarásin tilkomumikil.
Áður en það gerist erum við búin
að fá dramatíska ástarsögu um tvo
æskuvini sem eru flugmenn í
bandaríska hemum. Annar þeirra,
Rafe, verður ástfanginn af hjúkrun-
arkonu, sem lítur fram hjá les-
blindu hans og gefur honum vottorð
um að hann sé hæfur flugmaður.
Þetta gerist rétt áður en hann býður
sig fram sem
flugmaður í
stríðshrjáðu
Englandi. Ástin
er mikil á milli
þeirra og því er
sárið djúpt hjá
hjúkkunni þeg-
ar þær fréttir
berast að flug-
vél Rafes hafi
verið skotin
niður. Hún leit-
ar huggunar
hjá Danny. Þeg-
ar svo Rafe birt-
ist fullfrískur
verða að sjálf-
sögðu blikur á
lofti í samskipt-
um þeirra.
Þetta gerist
rétt áður en japanskar flugvélar
herja á Perluhöfn með hörmulegum
afleiðingum. Árásin sjálf er stór-
fengleg með öllum sínum tækni-
brellum enda Bay og Bruckheimer á
heimavigstöðvum hvað það varðar.
Þessi hluti myndarinnar lyftir
henni verulega. Og ég hélt að eftir
nærri klukkutíma orrustugný yrði
endirinn tilfinningaþrungið uppgjör
á milli aðalpersónanna þriggja.
Svo er nú ekki. Bruckheimer hef-
ur sennilega spáð í spilin og séð
fram á að það gæti dregið úr aðsókn
ef Bandarikjamenn væru látnir
tapa. Svo hann skellir aðalpersón-
um sínum í leynilega aðgerð, árás á
Tokyo. Nú er sögukunnátta mín
ekki nægilega góð til að geta sagt
hvort rétt er farið með í kvikmynd-
inni varðandi þessa árás, sem á að
hafa komið í kjölfarið á árás Jap-
ana. En ef svo er þá hafa Japanar
ekki verið þeir einu sem stunduðu
sjálfsmorðsárásir. Alla vega er i lok-
in komin upp sú staða sem Bruck-
heimer hefur viljað, að Bandarikja-
menn eru meiri stríðsmenn en Jap-
anar.
Pearl Harbor er þriggja tíma löng
og æði misjöfn, en þegar upp er
staðið þá get ég ekki imyndað mér
að nokkur hafi sérstaklega gaman
af henni. Fyrri hlutinn er ástarsaga
sem fær engan til að hafa samkennd
með persónunum og síðari hlutinn
er, þegar flett er af umbúðunum,
ekkert annað en tæknibrellur um
leið og myndin sýnir að stundum er
nóg að gera fyrir áhættuleikara í
Hollywood.
Lelkstjóri: Michael Bay. Handrit: Randall
Wallace. Kvikmyndataka: John Schwartzman.
Tónlist: Hans Zimmer. Aöalleikarar: Ben Af-
fleck, Kate Beckinsale, Joss Hartnett, Cuba
Gooding jr., Alec Baldwin og Jon Voight.