Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2001, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001
I>v
Fréttir
Krafa 43 ára Hafnfirðings sem fer í skaðabótamál við örorkunefnd/ríkið:
Tugmilljónabætur fyrir
að „stela“ sjúkraskýrslum
- og nota gegn eigandanum - umboðsmaður úrskurðar einn úr nefndinni vanhæfan
43 ára Hafnfírðingur, Guðmundur
Ingi Kristinsson, hefur stefnt ríkissjóði
þar sem hann krefst 36,8 milljóna króna
i skaðabætur þar sem örorkunefhd hafi
árið 1998 tekið sjúkraskrá hans ólöglega
úr skjalasafhi Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Hann krefst einnig bóta í ljósi þess að á
sama ári hafi nefndin einnig tekið ólög-
lega bráðasjúkraskrá og göngudeildar-
nótur frá 1993 á slysadeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur. Þetta hafi verið gert án
samþykkis Guðmundar Inga og ekki
hafi verið kvittað fyrir af hálfu nefndar-
innar þegar skýrslurnar voru afritaðar.
Guðnumdur Ingi segir nefndina síðan
hafa notað gögnin gegn honum. Þannig
hafi nefndin hafnað endurupptöku í ör-
orkumatsmálinu og hún valdið honum
flártjóni og miska.
Einn í örorkumatsnefnd
vanhæfur
Umboðsmaður Alþingis úrskurðaði á
siðasta ári að einn úr örorkumatsnefnd,
Brynjólfur Mogensen læknir, hefði ver-
DV-MYND HILMAR PÓR
Guömundur Ingi Kristinsson var eitt
sinn lögreglumaöur og þar á eftir
starfsmaöur Brynju í 12 ár. Eftir þaö
lenti hann í örlagariku slysi. Nú er
hann /' skaöabótamáli viö ríkiö.
ið vanhæfur til setu í nefndinni þegar
hún fjallaði um endurupptökubeiðni
Guðmundar árið 1998. Umfjöllun nefnd-
arinnar endaði þá á þann veg að hún
hafnaði beiðni Guðmundar um endur-
upptöku.
Guðmundur Ingi lenti í árekstri árið
1993 sem hafði í fór með sér slæm
meiðsl á hálsi. Hann gekkst undir að-
gerö og var negldur á fjórum stöðum.
Eftir það varð hann að gangast undir
aðgerð í mjóbaki og var hann einnig
spengdur þar.
Niðurstaða örorkunefndar, áður en
Guðmundur Ingi gekkst undir mjóbaks-
aðgerðina, var að hann væri 30 prósent
öryrki og mætti hvorki stunda vinnu
með andlegu né lfkamlegu álagi. Þessu
mótmælti síðan Guðmundur og fór fram
á að örorka hans yrði endurmetin og
hækkuð. Því neitaði nefndin og hélt hún
því reyndar fram að meiðsl þau sem
maðurinn átti við að stríða hefðu einnig
orsakast áður en hann lenti í slysinu
árið 1993.
í ágúst 1999 komu til dómkvaddir
matsmenn í mál Guðmundar. Niður-
staða þeirra varð sú að þeir töldu að
hann hefði verið heilbrigður líkamlega
fyrir siysið árið 1993. Guðmundur Ingi
var síðan metinn með 75 prósent örorku
og 45 prósent miska. Guðmundur Ingi
hefur fengið greiddar bætur í samræmi
við þessa niðurstöðu.
Var nánast á götunni meö 4
börn
Guðmundur krefst nú dráttarvaxta,
skaðabóta og miska frá ríkinu. Hann
hafl t.a.m. staðið með 4 börn á götunni
á tímabili og orðið að selja ofan af sér
íbúð árið 1999. „Það er skelfilegt að
menn sem eiga að fara að lögum og vera
hlutlausir æði inn á sjúkrahús og hirði
sjúkraskýrslur án þess að hafa skriflegt
leyfi frá mér og án þess að biðja um þær
samkvæmt lögum og kvitta svo fyrir -
þetta varð ég a.m.k. að gera. Þetta er
ekkert annað en gróf valdníðsla,“ sagði
Guðmundur Ingi.
Þegar DV leitaði eftir viðbrögðum
Ragnars Hall, formanns örorkunefndar,
kaus hann að tjá sig ekki um málið,
a.m.k. ekki að svo stöddu. -Ótt
Mikil mengun þegar skólpræsi stíflaðist:
Skólpi veitt í Varmá
á undanþágu
- lagað innan þriggja ára, segir heilbrigðisfulltrúi
Mannasaur og annar sá úrgangur
sem venjulega ferðast eftir skólpleiðsl-
um gusaðist út í Varmá þegar
skólpræsi stífLaðist. Við stífluna sullað-
ist skólpið upp úr brunni og rann út í
ána. Ekki er vitað hversu lengi rörið
hefur verið stíflað en verulegrar meng-
unar var farið að gæta í ánni af völd-
um þessa.
Þorsteinn Narfason, heilbrigðisfull-
Sigur Rós á sigurgöngu
Sveitin veröur útnefnd bæjarlista-
maöur Mosfellsbæjar 17. júní.
i;
Mosfellsbær:
SigurRósbæj-
arlistamaður
trúi í Mosfellsbæ, fór þegar á staðinn
eftir að DV hafði haft samband við
hann i gær. Hann sagði að skólpræsið
lægi ofan úr Álafossbyggðinni. Þegar
var kallað á hreinsibíl til að Qarlægja
stífluna.
Þorsteinn sagði að bæjarstarfsmenn
færu mánaðarlega milli staða til þess
að kanna bilanir á skólplögnum. Eins
væri treyst á að almenningur léti vita
ef svona nokkuð kæmi upp á. Bakvakt
væri allan sólarhringinn í áhaldahúsi
bæjarins þar sem hægt væri að ná í
starfsmenn í sérstöku númeri.
„Það er mjög sorglegt að þetta skyldi
hafa komist í ána,“ sagði Þorsteinn,
sem sagði að hún yrði látin hreinsa sig
sjálf af lífrænum úrgangi. Það rusl í
henni sem væri sýnilegt yrði hreinsað
burt.
Aðspurður um tilhögun skólpræsa-
mála á svæðinu sagði Þorsteinn að
Mosfellsbær hygðist tengja fráveitu-
kerfi sitt til Reykjavíkur innan þriggja
ára. Nú færi allt skólp í rotþróarkerfi
og endaði neðst í Varmá. Ekkert sýni-
legt færi í ána en allur fljótandi úr-
gangur færi þangað sem stæði. Varmá
rennur sem kunnugt er út í Leirvog.
Þar gætir áhrifa flóðs og fjöru. Vogur-
inn er mikið notaður til útivistar og
því tíðar mannaferðir í fjörunni.
Spurður um hvort þetta væri brot á
reglum um fráveitur sagði Þorsteinn
að samkvæmt reglugerð um mengun
vatns væri þama um að ræða „gildi
sem væri yfir mörkum". Sveitarfélög
hefðu frest til 2006 til að leysa sín mál.
Fráveitan í Mosfellsbæ væri því á und-
anþágu, ef svo mætti segja. -JSS
DV-MYND HILMAR ÞÓR
Skólp í Varmá
Þaö gaf heldur á aö líta þegar Ijós-
myndari DV kom aö Varmá í fyrradag.
Mikil mengun var í ánni og auöséð
að þar svam m.a. lífrænn úrgangur
manna í stórum stíl. Þaö skiptir þó
ef til vill ekki sköpum því allt skólp
endar hvort eö er neöst í ánni. Á inn-
felldu myndinni er brunnurinn sem
skólpiö sullaöist upp úr. Þetta er
væntanlega komiö í lag nú.
Hugmyndir Bolla í Sautján um stækkun Sundhallarinnar:
Viðkvæmt en spennandi
- segir Alfreð Þorsteinsson, formaður átaks um Heilsuborg
- leysir Stefni af hólmi
|
Hljómsveitin Sigur Rós verður út-
nefnd bæjarlistamaður Mosfellsbæjar
á sunnudaginn, 17. júní. Sveitin hefur
að undanfómu haldið til í Mosfells-
bænum og nýverið komu piltamir sér
upp hljóðstúdíói í gömlu Álafosshús-
unum. Sigurganga Sigur Rósar hefur
verið mikil að undanfómu og nýlega
kom sveitin úr vel heppnaðri tónleika-
ferð um Norður-Ameríku og Evrópu.
Mosfellingar em að vonum stoltir af
hljómsveitinni og samkvæmt heimild-
um blaðsins þótti menningarmála-
nefnd við hæfi að heiðra sveitina með
þessum hætti. Sigur Rós kemst þar
með i flokk frækinna listamanna en
áður hafa til dæmis Diddú og Karla-
kórinn Stefnir verið kjörin bæjarlista-
menn.
Sigur Rós leikur á tónleikum í
Barcelona á Spáni í kvöld en heimild-
ir herma aö fulltrúar sveitarinnar
verði viðstaddir hátíðarhöldin á
sunnudag og taki formlega við bæjar-
listamannsnafnbótinni. Auk heiðurs-
ins fær bæjarlistamaður Mosfellsbæjar
þriggja mánaða starfslaun. -aþ
„Mér líst vel á
hugmyndir Bolla
en það verður ekki
fram hjá því litið
að málið er við-
kvæmt en um leið
spennandi," sagði
Alfreð Þorsteins-
son, borgarfulltrúi
og formaður átaks-
ins, um að mark-
aðssetja Reykjavik
sem heilsuborg er-
lendis. „Þessar
hugmyndir falla
vel að átakinu um
Heilsuborgina því
við erum ekki sist
að kynna sund-
laugar okkar og
heita vatnið er-
lendis. En ég man
þá tíð þegar ég
flutti tillögur í
borgarstjóm fyrir
25 árum um breyt-
ingar á Sundhöil-
inni þá féOu þær
Sundhöllin er teiknuð af Guðjóni Sam-
Alfreð í Sund-
höllinni
Vildi sjálfur
breyta Sundhöll-
inni fyrir 25
árum.
Björn Bjarnason
Daglegur gestur.
í grýttan jarðveg.
BoHi i Sautján með ttorbrotnar bugmyndir um rniðbwinn:
VIII stœkka Sundhöllina um helming
- og relm nýjan Kvennaskóla víö Aust urbæjanikrtlatm
Frétt DV um hugmyndir Bolla
Hefur komiö róti á fastmótaöar hugmyndir manna um
hvernig umgangast skuli menningarverömæti.
úelssyni og það líta
margir á byggingu
sem sjálfstætt lista-
verk,“ sagði Alfreð.
Tillögur Bolla Kristinssonar, kaup-
manns í tískuversluninni Sautján, sem
kynntar vom hér í DV í gær, ganga út
á að byggja risapall með bílageymslu á
túnbletti sem stendur ónýttur sunnan
við Sundhöilina og koma þar fyrir
bamasundlaug, heitum pottum og sól-
baðsaðstöðu. Tillögur Alfreðs Þor-
steinssonar fyrir aldarfjórðungi vora
hins vegar róttækari því Alfreð lagði
til að byggð yrði kaffitería á þaki Sund-
hallarinnar.
Bjöm Bjarnason menntamálaráð-
herra er fastagestur í Sundhöllinni á
hverjum morgni og hefúr látið sér
annt um bygginguna. Ekki náöist í
hann í gær þar sem hann var að opna
myndlistarsýningu í Ósló. Bolli Krist-
insson, höfundur fyrirhugaðra breyt-
inga á Sundhöllinni, hefúr staðfest að
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri hafi skoðað tillögur hans með
opnum hug, velvilja og litist vel á.
EIR
Ingibjörg Sólrún
Líst vel á Bolla.
BffiaiÆIIH—c
Tónlistarhús 2003
Framkvæmdir
við tónlistarhús f
miðborg Reykjavík-
ur hefiast árið 2003
og munu standa í
tvö til þrjú ár. Þetta
kom fram í ræðu
sem Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir
borgarstjóri hélt í gær þegar hug-
myndasamkeppni um skipulag mið-
borgar og Austurhafnar var kynnt.
3000 í Norður-Víkingi
Um 3000 manns taka þátt i heræf-
ingu varnarliðsins á Keflavíkurflug-
velli, Norður-Víkingi, sem fram fer
hérlendis í næstu viku. Landhelgis-
gæslan mun m.a. æfa uppgöngu í
skip þar sem veitt er mótspyma.
Einangrunarstöðvar
Umboðsmaður Alþingis hefur
birt niðurstöðu þar sem segir að
landbúnaðarráðuneytinu hafi ekki
verið heimilt, samkvæmt lögum, að
neita einkaaðilum að stofna ein-
angrunarstöðvar fyrir gæludýr.
Fjallgöngumað-
urinn Haraldur
Örn Ólafsson lenti í
blindbyl í hlíðum
Denali-fialls, hæsta
fialls N-Ameríku, í
gær og þurfti að
skilja mestallan far-
angur sinn eftir.
Hann varð viðskila við Iridium-
gervihnattasíma sinn. Flugvél flutti
Harald og félaga hans, Erik Wyman,
til Anchorage í Alaska.
Skýrari bensínmerkingar
Samkeppnisstofnun hefur beint
þeim tilmælum til olíufélaganna að
verðmerkingum á eldsneyti verði
komið í viðunandi horf. I bréfi sem
stofnunin sendi kemur fram að á
mörgum sjálfsafgreiðslustöðvum sé
ekki hægt að lesa verðið fyrir en að
dælingu lokinni.
Lögbann á Lyfjaverslun
Þrír hluthafar í Lyfiaverslun Is-
lands hafa lagt fram lögbannsbeiðni
hjá Sýslumanninum í Reykjavík
vegna fyrirhugaðra kaupa Lyfia-
verslunar íslands á Frumafli ehf.
I blindbyl
Rammstein komnir
Þýska hljómsveitin Rammstein
kom til landsins í gærkvöld. Sveitin
heldur tvenna tónleika í Laugar-
dalshöll um helgina. Alls hafa verið
seldir 11 þúsund miðar á tónleika
hljómsveitarinnar.
Varð fyrir lyftara
Vinnuslys varð við Suðurhöfnina í
gær þegar maður varð fyrir lyftara frá
Eimskip. Maðurinn lenti með fótinn
undir lyftaranum og var fluttur með
sjúkrabifreið á slysadeild. Meiðsl
mannsins reyndust ekki alvarleg.
Sleppt úr gæsluvarðhaldi
Tveimur mannanna, sem setið hafa
í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á
skattsvikum í byggingariðnaði, var
sleppt í gærkvöld. Þeir játuðu báðir
brot sín. Þriðji maðurinn verður yfir-
heyrður í dag.
Tekur á móti forseta
Ólafur Ragnar
Grímsson forseti fer
í þriggja daga heim-
sókn til Færeyja í
lok júní. Margrét
Danadrottning hefur
veitt Anfinn Kafis-
berg, lögmanni Fær-
eyja, leyfi til að vera
gestgjafi Ólafs. Færeyingar fagna nú
annarri forsetaheimsókn sinni en Vig-
dís Finnbogadóttir fór þangað, fyrst
forseta, árið 1987.