Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2001, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2001, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 14. JtJNÍ 2001 Fréttir DV Tveir menn úr Reykjavík töldu sig vera aö nýta hlunnindi í Reykhólahreppi: Eru ákærðir fyrir að skjóta 115 toppskarfa - fuglafræöingur kvaddur til af dómara til aö kanna hræ sem geymd eru í frosti Sýslumaðurinn á Patreksfirði hefur gefið út ákæru á hendur tveimur Reykvíkingum fyrir að hafa skotið 115 toppskarfa og 6 lunda í Hergilseyjarlöndum í Reyk- hólahreppi í Barðastrandarsýslu í ágúst á síðasta ári. Réttarhöld áttu að hefjast í vik- unni en var frestað þar sem héraðs- dómari kvaddi til fuglafræðinga til að rannsaka hræin af fuglunum. Þau hefur sýslumaður látið geyma í frosti á Patreksfirði frá því í fyrra þegar málið kom upp. Fuglafræð- ingurinn mun m.a. kanna hvort hér var um að ræða unga eða fullorðna fugla. Mennirnir sem skutu fuglana töldu sig í fullum rétti þar tU lög- reglan hafði af þeim afskipti. Þeir voru í Hergilseyjarlöndum með fuUu leyfi landeigenda. Skarfur er friðaður á þeim árs- tíma sem um er að ræða í ákæru. Hins vegar töldu mennirnir sig vera að nýta hlunnindi jarðarinnar sem var heimilt þrátt fyrir friðunina. í málinu verður því sterklega gripið til varna. Sýslumaður ákærir mennina ann- ars vegar fyrir brot á lögum um vernd og veiðar á viUtum fuglum og spendýrum en hins vegar fyrir brot á reglugerð um fuglaveiðar og nýt- ingu hlunninda af villtum fuglum. Ófremdarástand: Margar læknastööur ómannaöar Aðalfundur Félags íslenskra landsbyggðarlækna, sem haldinn var nýlega í Borgamesi, vekur athygli stjórnvalda á því ófremdarástandi sem ríkir í heilbrigðisþjónustu landsbyggðarinnar. Um skeið hafi 15 tU 20 læknisstöður á landsbyggðinni verið ómannaðar eða aðeins setnar læknum um stundarsakir. Ástandið hafi versnað og nú sé svo komið að i sumum héruðum sé brostinn á flótti þar sem sem álag og starfsskUyrði eru algjörlega óviðundandi. Landsbyggðarlæknar telja fyrir- sjáanlegt, verði ekki gripið inn i þessa atburðarás með rótttækum hætti, aö þeim læknishéruðum fjölgi sem sjá á bak læknum sínum til annarra starfa. -GG VG til viðræðna: Vilja helst stilla upp eigin lista Samfylkingarfé- lag Akureyrar hef- ur ákveðið að bjóða fram i næstu sveitarstjórnar- kosningum vorið 2002. Félagið hefur ákveðið að leita eftir því hvort Steingrímur J. skapast geti breið Sigfússon. samstaða fólks á vinstri væng stjórnmálanna á Akur- eyri og því markmiði telur Samfylk- ingarfélagið að ekki verði náð nema með því að sameina krafta félags- hyggjufólks. Jón Ingi Cæsarsson, formaður Samfylkingarfélags Akureyrar, seg- ir að vilji sé til að kanna hvort ekki sé um sameiginlegan málefnagrund- völl að ræða. Samfylkingin telur að saga bæjarmála á Akureyri hafi ein- kennst af gríðarlegum styrk Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks til skiptis og því þurfi félagshyggju- fólk að breyta. Valgerður Jónsdóttir, formaður kjördæmisráðs VG í Norðurlandi eystra, segir að VG ætli að ræða við Samfylkinguna en mun fleiri VG- fylgjendur á Akureyri séu fylgjandi þvi að fara fram einir með lista. Steingrímur J. Sigfússon, þing- maður og formaður VG, segir það alls ekki yfirlýstan vilja VG að fara fram einir með lista við næstu sveit- arstjórnarkosningar þó sá andi svífi nokkuð yfir vötnum. -GG Skall á brúar- handriðið á Höfn Jepplingur með tjaldvagn í eftir- dragi hafnaði á handriöi brúarinnar yfir Hornafjarðarfljót i gærmorgun. ökumaðurinn slapp ómeiddur en jepplingurinn skemmdist það mikið að hann er óökufær og varð að flytja burt með krana. Að sögn lögreglu var maðurinn á löglegum hraða en brúin mun erfið yfirferðar, einkum þegar aftanívagnar eiga í hlut. -aþ ^ Ólína Þorvarðardóttir skólameistari MÍ: Isfiröingar tárfelldu af gleöi yfir umsókninni - einhugur í skólanefnd um ráðninguna Menntaskólinn á ísafiröi ísfiröingar bíöa spenntir eftir aö Ólína Þorvaröardóttir veröi skótameistari. Samkvæmt heimildum DV ríkti einhugur í skólanefnd Menntaskólans á ísafirði um að beina þvl til menntamálaráð- herra að doktor Ólina Þorvarðar- dóttir þjóðfræðing- ur verði ráðin næsti skólameistari MÍ. Gengið var frá erindinu skrif- lega í gær en ráðherra ber að fara að umsögn skólanefndar. ísfirðingar bíða nú spenntir endurkomu Ólínu sem er gamall nemandi skólans. Ólafur Helgi Kjartansson, formað- ur skólanefndar, sagðist ekki geta tjáð sig um niðurstöðu nefndarinn- ar fyrr en ráðherra hefði fengið þær í hendur. Hann sagði þó að einhugur hefði verið í nefndinni en valið stóð að- eins um einn umsækjanda eftir að annar umsækjandi, Ásgerður Bergs- dóttir, dró sig í hlé. „Umsækjandinn er mjög hæfi- leikaríkur og hefur mikla menntun, mikla reynslu og nám í stjórnun að baki,“ sagði Ólafur Helgi Kjartans- son, „en það er ráðherrans að ákveða hver verður skólameistari.“ Elísabet Gunnarsdóttir arkitekt situr með Ólafi Helga Kjartanssyni, Gunnari Þórðarsyni, Birnu Lárus- dóttur og Önnu Jensdóttur í skóla- nefnd MÍ ásamt áheyrnarfulltrúa kennara og nemenda og Birni Teits- syni skólameistara. Hún sagðist heldur ekki geta tjáð sig um niður- stöðu nefndarinnar að svo stöddu. Aðspurð um hugsanlega komu Ólínu í starfið sagði Elísabet. Mikill fengur „Hún hefur gríðarlega reynslu og það yrði mjög mikill fengur að fá hana. Mér finnst stórkostlegt að hún skuli vilja takast á við stjóm þessa skóla. Fólkið í bænum nánast komst við af hrifningu yfir því að hún skuli hafa sótt um og einnig þeir kennarar sem hafa tjáð sig um málið.“ Björn Teitsson sem verið hefur skólameistari til margra ára lætur nú af þessari stöðu og er á leið til kennslustarfa á Akureyri. Ákvæði eru í lögum um að kennsluréttinda sé krafist í slíkar stöður á fram- haldsskólastigi. Þau réttindi hefur Ólína þó ekki en það er talið létt- vægt þar sem hún hafi mjög miklar prófgráður og reynslu sem dygðu henni að óbreyttu til að taka að sér rektorsstöðu í háskóla. Hún var m.a. metin hæf til að gegna lektors- stöðu við Háskóla íslands. Ólína gat þess líka í umsókn sinni að hún væri tilbúin að afla sér kennslurétt- indanna á fyrsta starfsári. Ráðherra hefur heimild samkvæmt 24. gr. laga númer 70/96 að setja mann til reynslu í embætti til eins árs í senn áður en hann er skipaður en þó aldrei lengur en í tvö ár. „Ég finn fyrir jákvæðum hug heimamanna en nú er það bara ráð- herrans að úrskurða um málið. Ef til kemur að ég fái stöðuna þá hlakka ég til að koma vestur á ísa- fjörð og takast á við þau verkefni sem þar bíða. Það var margskorað á mig að sækja um þessa stöðu. Ég vona því að þetta verði niðurstaðan og ég geti komið aftur heim í hérað með mitt fólk,“ sagði Ólína Þorvarð- ardóttir sem er tilbúin að pakka um leið og kallið kemur. -HKr. Vinnupallar óhreyföir í þrjú ár: Ekkert annaö en slysagildra - stendur til bóta, segir framkvæmdastjóri Vinnupallar við Domus Medica við Egilsgötu hafa staðið óhreyfðir í þrjú ár og á þeim tíma hefur vinna við frágang hússins að mestu legið niðri. Nágrannar hafa miklar áhyggjur af ástandinu en þeir segja vinnupallana, sem orðnir eru gaml- ir og lúnir, vera vinsælan sam- komustað ungmenna. Mikið er um veggjakrot á þeirri hlið hússins þar sem vinnupallarnir standa. „Þolinmæði margra sem hér búa er á þrotum. Pallarnir eru búnir að standa þama árum saman og það sér hver maður að öryggisnetin þjóna ekki lengur hlutverki sínu. Þetta er ekkert annaö en slysagildra og spurning hvenær einhver slasast þarna. Svo er líka sjónmengun af húsinu," sagði nágranni í samtali viö DV . Jón Gauti Jónsson, framkvæmda- stjóri Domus Medica, sagði fram- kvæmdir við húsið hafa tekið mun lengri tíma en áætlað var. „Við höf- um að sjálfsögðu haft áhyggjur af þessu en sem betur fer standa þessi mál nú til bóta. Vinna viö klæðn- ingu hússins hefst innan skamms og við stefnum að því að Domus Medica verði fint og fallegt í sumar- lok,“ segir Jón Gauti Jónsson. -aþ DV-MYND JAK Gamlir og lúnir vinnupallar Unglingar sækja í vinnupallana og halda sig gjarna á þaki hússins, eins og sést á veggjakrotinu á efstu hæö. Umsjón: Hörður Kristjánsson netfang: hkrist@ff.is Sighvatur hættir...! Glæný tíðindi berast nú af málefn- um forystumanna Samfylkingarinnar úr höfuðstað Vest- fjarða og fyrrum eldrauðum bæ krata. í blaðinu Skutli á Isafirði, sem kom út á sjó- mannadaginn og reyndar er enn titl að í haus „blað A1 þýðuflokksins í Vestfiarðakjördæmi", er að finna „skúbb“ ársins á forsíðu. í fimm dálka fyrirsögn segir: „Sig- hvatur Björgvinsson hættir á þingi“ og f undirfyrirsögn að séra Karl V. Matthíasson taki við þing- sætinu. Einhvern tíma hefðu minni tíðindi en þetta þótt tilefni til mikill- ar umræðu. Við rannsókn pottverja á málinu kom í ljós að ansi margir mánuðir eru siðan fréttin var í há- mæli í öllum fiölmiðlum sem gefnir eru út í Reykjavík. Skýringin á upp- slættinum í Skutli hljóti því að vera að fréttin hafi ekki borist vestur fyrr en með vorskipinu... Kippt af dagskrá! Stöð tvö hleypti af stað f vetur spurningaþættinum Viltu vinna milljón? Naut hann fá- dæma vin- sælda og sátu menn sem límdir fyrir framan skjái landsmanna með- an svarendur helltu úr viskubrunn- um sínum. Svo góðir þóttu þættirnir aö ákveðið var að endursýna þá í sumar. Það vakti því athygli á þriðjudag að endursýningunni var kippt út úr áður prentaðri dagskrá. Þykir það synd því mörg óborganleg svör komu fram við spumingum þáttarstjórnanda. Þar minnast menn til dæmis nýyrðis á öðru heiti á kart- öflum sem kallaðar voru „moldarapp- elsínur." Eins þegar annar svarandi var ekki alveg klár á hvað teikni- myndakapparnir Rip, Rap og Rup voru margir.... Ólíkt hafast menn að Á meðan íslenskir hvalveiðisinnar rembast éins og rjúpan við staurinn að fá Áma M. Mathiesen sjávar- útvegsráðherra til að heimila hval- veiðar berast önd- verö tíðindi af næsta nágranna okkar í vestri, Grænlendingum, sem fram til þessa hafa mátt veiða hvali. Þar á bæ horfa menn nú fram á það dragi stórlega úr veiðunum á næstu árum. Ekki vegna Greenpeace eða Pauls Watsons, sem eru að hrella þarlenda veiðimenn með skæruhernaði, heldur hafa Grænlendingar sjálfir ekki leng- ur áhuga á að veiða hvali. Þeir nýta ekki einu sinni þá kvóta sem þeir þó hafa til hvalveiða. Nú hyggjast stjórnvöld þar í landi auka eftirlitið og hreinlega reka útgerðarmenn til að nýti hvalveiðileyfin. Ætli Konráð Eggertsson hrefnuskytta og félagar hafi frétt af þessu..? Hvaða vesen...? Vestur á fiörðum hafa menn verið að velta sér upp úr þvf að dr. Ólína Þorvarðardóttir hefði ekki kennslu- j réttindi sem fram- '! haldsskólakennari og væri því óhæf til að hljóta ráðningu sem skólameistari Menntaskólans á ísafirði. Pottverjum þykir þetta alvarlegur hlutur þvf þaö er langt síðan ákveðið var i heita pottinum að Ólína fengi ,jobbið“. Birni Bjarnasyni ráðherra hefði því verið í lófa lagið að ráða Ólínu strax eftir lestur heita pottsins fyrir margt löngu. Auk þess þykir skjóta skökku við í pottinum að meiri kröfur þurfi að gera til menntaskólarektors vestur á fjörðum en doktors og háskólakenn- ara við Háskóla íslands...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.