Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2001, Blaðsíða 11
11
FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001
H>V______________________________________________________________________________________________ Hagsýni
Útilegubúnaður fyrir alla fjölskylduna:
Kostar svipað og sólar-
landaferð fyrir einn
HÖTTAKA
Þó íslendingar flykkist í hópum
til útlanda á hverju sumri eru æ
fleiri sem kjósa að ferðast innan-
lands og upplifa hina einu sönnu
útilegustemningu. En til þess að svo
megi verða þarf fólk að eiga viðlegu-
búnað. Þeir sem ekki hafa komið
sér upp slíkum búnaði geta búist
við töluverðum útgjöldum en
grunnbúnaður fyrir fimm manna
fjölskyldu, þ.e. tjald, dýnur og prím-
us, kostar um 40.000 kr. og er þá
miðað við að keypt sé tjald á tæpar
30.000 kr., frekar ódýrar dýnur og
prímus. Vilji fólk betri aðbúnað,
eins og stórt tjald, góðar dýnur,
svefnpoka, stóla og borð og allt ann-
að sem nútímamaðurinn telur nauð-
synlegt í góða útilegu er auðvelt að
eyða mörgum tugum þúsunda í við-
bót. Oft getur borgað sig að kaupa
vandaðan búnað, þó hann sé aðeins
dýrari. Það er ekki þörf á að eiga
allt til að komast af stað, margt má
missa sin, og oft gerir það ferðirnar
skemmtilegri og eftirminnilegri ef
redda þarf t.d. borði á einhvern
frumlegan hátt.
Þórarinn Einar Engilbertsson,
sölumaður í Nanoq,
féllst á segja lesend-
um DV frá því helsta
sem í boði er og skoð-
aðir voru útilegu-
pakkar frá Nanoq og
Intersport. í Nanoq
var stillt upp pakka
fyrir 5 manna fjöl-
skyldu en í Intersport
fyrir fögurra manna
fjölskyldu. Ekki er
um verðkönnun að
ræða, eingöngu er
verið að reyna að
gefa fólki einhverja
hugmynd um hvað
búnaðurinn kostar.
Reynt var að nota
vörur sem eru i milli-
verðflokki en að sjálf-
sögðu er hægt að
kaupa bæði dýrari og
ódýrari samsetning-
ar.
Kúlutjöld
vinsælust
Tjöld kosta allt frá
nokkur þúsund krón-
um og upp í tugi þús-
unda. Verðið fer að
sjálfsögðu eftir því
hversu stór þau eru
og frá hvaða fram-
leiðanda því gæðin
eru misjöfn. Æ
minna selst af appel-
sínugulum segldúks-
tjöldum með bursta-
lagi, nú eru kúlu- og
braggatjöld vin-
sælust. Þó eru margir
sem eiga gömul tjöld
og standa þau enn
fyrir sínu. Flest ný
tjöld eru úr polyester
og segir Þórainn að
tjöld úr því efni skýli
fólki ekki- síður en
segldúkstjöldin auk
þess sem þau séu
mun léttari og oft ein-
faldari í uppsetningu.
„Fólk velur sér auð-
vitað tjöld eftir þvi
hvernig á að nota
þau. Tveggja til
þriggja manna tjöld
eru það lítil að þau nýtast nær ein-
göngu sem svefnstaður á meðan
fjögurra til átta manna tjöldin eru
áest með aukarými þar sem fjöl-
skyldan getur hafst við, t.d. þegar
borðað er. Þegar kemur að því að
kaupa tjald fyrir flölskylduna þá
Utilegupakki fra Nanoq
Gott veöur, góður búnaður og gott skap. Meira þarf ekki í hina fullkomnu útilegu. Við mælum þó ekki með að tjaldað
sé við Kríngluna eins og á þessari mynd. Allur þessi pakki kostar 81.130 kr. og er hann miðaður við 5 manna fjöl-
skyldu. Inni í þessari tölu er þetta skemmtitega tjald sem er með tveimur „svefnálmum", 5 góðir svefnpokar, 5 vind-
sængur, pumpa, þorð, 2 stórir stólar, prímus með tveimur hellum, pottasett, kælikista og borðbúnaður.
aldri bama hvort kaupa skuli sér-
staka barnasvefnpoka fyrir þau eða
bara venjulega poka sem þau síðan
vaxa upp í. „Svo eru líka til pokar
sem hægt er að stytta, eða taka end-
ann af. Þeir nýtast vel, því þegar
barnið vex stækkar pokinn með.
Þeir geta þó kostað um 2000 kr.
meira en aðrir pokar. Það eykur út-
gjöldin í upphafi en sparar kaup á
nýjum poka seinna meir.“
Endalaust hægt að bæta við
Þegar búið er að fjárfesta í grunn-
búnaðinum má sífellt bæta við eftir
því sem efni og aðstæður leyfa.
Prímus er nauðsynlegur, margir
nota hann sem hitagjafa í tjaldinu
þó ekki sé mælt með notkun þeirra
inni. Á gaskútana er hægt að fá ým-
iss konar búnað, svo sem eldunar-
hellur, ljós og fleira.
Utilegupakki frá Intersport
Þessi pakki er ætlaður fyrir 4 manna fjölskyldu og kostar hann 69.070 kr. eða svipað og
tveggja vikna sólarlandaferð fyrir einn. Inni í þessum pakka er tjaldið, 2 svefnpokar fyrir full-
orðna og 2 fyrir börn, tvær tvíbreiðar vindsængur, pottasett, diskasett, borð og stólar og
prímus meö tveimur hellum. Á myndina vantar kælibox,sem kostar frá 2990 kr., og pumpu
sem eru frá 560 kr. i Intersport. Tekið skal fram að í báöum verslununum er hægt að fá
bæöi ódýrari og dýrari vörur en hér eru sýndar.
höfuðmáli og þar er
tjaldið i aðalhlutverki.
Ég mæli ekki með því að
keypt sé tjald eftir því
hvernig það lítur út á
mynd, aUtaf skyldi skoða
tjöldin uppsett áður en
ákvörðun er tekin,“ segir
Þórainn.
Eins og á fínasta hóteli
Glös á fæti, fallegir diskar og taumunnþurrkur eru meðal þess
sem prýða þetta borð, auk þess sem sjá má litla salt- og pipar-
stauka á. trébretti og tvær litlar kertalugtir. Ekki amalegt að
snæða góðan gríllmat við þessar aðstæður úti í náttúrunni. Vör-
urnar fást í Nanoq.
hvet ég fólk tU að skoða vel úrvalið
á markaðnum og taka vel ígrundaða
ákvörðun. Tjaldið á eftir að fylgja
fjölskyldunni í mörg ár, jafnvel ára-
tugi, og þarf því að uppfyUa vel
kröfur hennar. Þegar ferðast er með
börn getur góður aðbúnaður skipt
Með innbyggðri
pumpu
Til eru nokkrar gerðir
dýna, fyrst ætti að nefna
gömlu góðu svampdýn-
urnar. Þó þær séu góðar
til síns brúks geta þær
tekið töluvert pláss í fjöl-
skyldubílnum, sérstak-
lega ef um er að ræða
dýnur fyrir fimm manna
fjölskyldur. Þórarinn
segir að oft taki fólk
svampdýnur fyrir litlu
börnin en sofi á ein-
hverju öðru sjálft, eins og t.d. vind-
sæng. Þær eru sígildar og til í mörg-
um verðflokkum. Rétt er að benda
fólki á að kaupa ekki vindsængur
með kodda því þá er erfitt að ráða
hæð undir höfði. Fyrir góðan næt-
ursvefn á vindsæng er betra að vera
á sléttri dýnu með gamla góða
svæfilinn undir höfðinu. Með vind-
sængunum er gott að hafa pumpu
en einnig eru til vindsængur með
innbyggðum pumpum, svo og vind-
sængur sem blásast út sjálfar þegar
þær eru teknar í sundur. Þær eru
afskaplega þægilegar en jafnframt
töluvert dýrari en hinar.
Halo-fiber eða gæsadúnn?
Svefnpoka er gott að eiga þegar
farið er í útilegur en ef fjárfesta á í
útilegubúnaði og ekki eru til nægir
peningar fyrir öllu má alveg láta þá
bíða. í staðinn er hægt að taka með
sér hlý teppi og sængur og láta það
duga þar til peningar eru til fyrir
svefnpokum. Ókosturinn við sæng-
urnar er að þær taka allt of mikið
pláss í skottinu þegar koma þarf
þeim fyrir með öllu hinu sem með-
ferðis þarf að hafa i fjölskylduúti-
legu.
Ágætir svefnpokar kosta frá 8.000
kr. í Nanooq og væntanlega er hægt
að fá þá ódýrari einhvers staðar.
Þórarinn segir að verð svefnpoka
ráðist mest af því hvaða fylling er í
þeim, hvort um sé að ræða halo-
fiber eða gæsadún, svo dæmi séu
tekin. Gæsadúnssvefnpokar eru
dýrir en mun hlýrri. „Svefnpokar
sem þola 8’ C frost eru fínir til notk-
unar í sumarútilegur hér á landi og
ef eingöngu á að nota pokann
þannig er óþarfi að eyða peningum
í poka sem þolir meiri kulda. Ég
nota sjálfur þannig poka og það er
alveg nóg,“ segir Þórarinn. Að-
spurður segir hann að það fari eftir
Þórarinn Einar Engilbertsson
„Þegar kemur að því að kaupa tjald
fyrir fjölskylduna þá hvet ég fólk til
að skoða vel úrvalið á markaðnum
og taka vel ígrundaöa ákvörðun.
Tjaldið á eftir að fylgja fjölskyldunni í
mörg ár, jafnvel áratugi, og þarf því
að uppfylla vel kröfur hennar. “
í stærri tjöldum er fólk með borð
og stóla sem fást í miklu úrvali.
Kröfurnar sem fólk gerir til þessara
hluta eru misjafnar, sumir láta sér
nægja lítið borð og fjóra kolla á
meðan aðrir vilja veglegri stóla eða
jafnvel uppblásin sófasett. í þessum
efnum hefur plássið í tjaldinu mest
að segja, hvað rúmast inni í því.
Pottasett og borðbúnaður fást
einnig í miklu úrvali og meðan
sumir láta sér nægja einnota diska
og glös eru þó flestir með léttan
búnað úr plasti. Hægt er að kaupa
þennan búnað í settum eða stökum
hlutum og ættu allir að finna eitt-
hvað við sitt hæfi. -ÓSB
LINCOLN TOWN CAR, 04/99,
4800 cc, ek. 5.000 þús. km,
drapplitur, ssk., álfelgur, ABS,
hraðastillir, rafdrif, leður o.fl.
Verð aðeins kr. 3.990.000
Bildshofða 5 • S. 567-4949
bilahollin.is