Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2001, Blaðsíða 7
7
FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001
DV
BIR: Þetta helst
IWflBSIÍ
HEiLDARVIÐSKlPTI 3000 m.kr.
- Hlutabréf 800 m.kr.
- Húsbréf 900 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
© Pharmaco 181 m.kr.
€ íslandsbanki 125 m.kr.
©Össur 106 m.kr.
MESTA HÆKKUN
© Olíufélagið 3%
©Össur 1,7%
© Búnaöarbankinn 1,3%
MESTA LÆKKUN
©Marel 12%
©Opin kerfi 8,4%
© Nýherji 6,3%
ÚRVALSVÍSITALAN 1054 stig
- Breyting O -1,19%
Krefjast
lögbanns
Þrír hluthafar í Lyfjaverslun ís-
lands hf., þar af einn stjórnarmaður
í félaginu, hafa þann 12. júní lagt
fram lögbannsbeiðni hjá Sýslu-
manninum í Reykjavík í tilefni af
fyrirhuguðum kaupum Lyfjaversl-
unar íslands hf. á Frumafli ehf.
Beinist beiðnin að Lyfjaverslun
Islands hf. og Jóhanni Óla Guð-
mundssyni, eiganda Frumafls ehf.
Krefjast hluthafarnir þess að lagt
verði lögbann við því að Lyfjaversl-
un geri kaupsamning við Jóhann
Óla, f.h. eigenda Frumafls ehf., um
kaup á hlutafénu og við því að
Lyfjaverslun ráðstafi til Jóhanns
Óla, eða annarra seljenda, hlutafé í
Lyfjaverslun sem endurgjaldi sam-
kvæmt slíkum samningi.
Ossur fær 13,5
milljóna
dollara lán
Fulltrúar Össurar, Islandsbanka
og Norræna fjárfestingarbankans
(NIB) undirrituðu í gær lánssamn-
inga að jafnvirði 13,5 milljóna doll-
ara eða um 1,4 milljarða íslenskra
króna.
Um er að ræða endurfjármögnun
vegna kaupa Össurar á bandarisku
stoðtækjafyrirtækjunum Flex Foot
og Century II Innovations og
sænsku fyrirtækjunum Pi Medical
og Karlsson & Bergström, að því er
fram kemur í frétt frá Össuri hf.
Lánið er til þriggja ára.
GENGH) i-HSgS 14.06.2001 kl. 9.1
KAUP SALA
HfigDollar 104,590 105,130
y^Pund 145,560 146,300
l*ÍKan. dollar 68,860 69,290
EHbönskkr. 11,9610 12,0270
BBHNorskkr 11,2240 11,2860
ESsænsk kr. 9,6530 9,7060
9Hn. mark 14,9962 15,0863
| Fra. franki 13,5928 13,6745
j 5 Bolg. franki 2,2103 2,2236
' ,| Sviss. franki 58,4300 58,7500
C3hoII. gyllini 40,4604 40,7036
^Þýskt mark 45,5884 45,8623
lh. líra 0,04605 0,04633
HJC Aust. sch. 6,4797 6,5187
Port. escudo 0,4447 0,4474
\ ' , Sná peseti 0,5359 0,5391
; 1 * l.lap. yen 0,85680 0,86190
B 1 írskt pund 113,213 113,894
1 SDR 130,8100 131,6000
Hecu 89,1631 89,6989
Viðskipti
Umsjón: Viöskiptablaðiö
Vísitala neysluverðs
hækkar um 1,5% í júní
- hækkunin ekki eins mikil síðan í janúar-febrúar 1990
Vísitala neysluverðs miðuð við
verðlag í júníbyrjun 2001 var 212,6
stig og hækkaði um 1,5% frá fyrra
mánuði. Vísitala neysluverðs án
húsnæðis var 211,7 stig og hækkaði
um 1,8% frá maí.
Þetta er töluvert meiri verðbólga
en fjármálafyrirtækin höfðu spáð en
þau spáðu að meðaltali 1,2% breyt-
ingu milli mánaða. Hækkunin hefur
ekki verið eins mikil og frá því milli
janúar-febrúar 1990. Verðbólga síð-
ustu þriggja mánaða mælist nú tæp
4,2% og tæp 18% á ársgrundvelli og
hefur hún ekki verið eins mikil og
frá því milli nóvember, desember og
janúar áramótin 1985/1986 þegar
hækkunin var 4,3%.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
visitala neysluverðs hækkað um
6,8% og vísitala neysluverðs án hús-
næðis um 7,1%.
I samtali Viðskiptablaðsins við
Birgi ísleif Gunnarsson seðlabanka-
stjóra kom fram að bankinn hefði
ekki tekið neina ákvörðun um hvort
að bankinn hygðist grípa til ein-
hverra aðgerða vegna þessara verð-
bólgutalna. „I þeirri yfirlýsingu sem
við gáfum út sameiginlega, ríkis-
stjórnin og Seðlabankinn, í lok
mars kemur fram að ef 12 mánaða
verðbólgan vikur frá settu marki
sem er 6% þá ber okkur að senda
greinargerð til ríkisstjórnarinnar
um ástæður og hvernig við bregð-
umst við og hversu langan tíma það
taki að ná verðbólgunni aftur inn
fyrir mörkin. Þetta erum við að
undirbúa núna en það tekur auðvit-
að einhvern tíma. Meira get ég ekki
sagt á þessu stigi,“ sagði Birgir ís-
leifur.
Verð á innfluttum vörum hækk-
aði um 2,5% (vísitöluáhrif 0,9%) en
verð á innlendum vörum og græn-
meti hækkaði um 1,7% (0,32%). Þá
hækkaði verð á þjónustu um 0,9%
(0,28%).
Af hækkunum má nefna að verð á
nýjum bílum hækkaði um 4,1%
(0,35%) og verð á bensíni og olíu
hækkaði um 3,0% (0,15%). Verð á
mat og drykkjarvörum hækkaði um
1,6% (0,27%). Markaðsverð á hús-
næði lækkaði um 0,5% (0,05%).
VST býður 53% af
kostnaðaráætlun
Tilboð í verkfræðihönnun og vinnu
við útboðsgögn Kárahnjúkavirkjunar
hafa verið gerð opinber. Af þeim má
sjá að hópur verkfræðifyrirtækja sem
verkfræðiskrifstofan VST leiðir er
með langlægsta tilboðið sem hljóðar
upp á einungis 53% af reiknaöri
kostnaðaráætlun.
Tilboð VST hljóðar upp á 1150 millj-
ónir. I hópnum með VST eru Al-
menna verkfræðiskrifstofan, Elect-
rowatt, Harza og Rafteikning.
I samtali við Þorstein Hilmarsson,
upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar,
kom fram að í upphafl hefðu sex aðil-
ar verið valdir til að bjóða í hönnun-
ina en fimm hefðu skilað inn tilboð-
um. Við val á tilboöinu gefur Lands-
virkjun sér ákveðnar forsendur á því
hverjir hljóti verkið. Þær forsendur
taka mið af upphæð tilboðsins og mat
Tilboö í verkfræöihönnun
Viö val á tilboöinu gefur Landsvirkjun sér ákveönar forsendur á því
hverjir hljóti verkiö.
er einnig lagt á tæknilega getu og
hæfni aðilans. Þorsteinn sagði að mið-
að við þessar forsendur hefði hópur-
inn sem VST leiðir fengið hæstu ein-
kunn en lagði mikla áherslu á að ekki
væri enn ljóst hver hlyti verkið. Þor-
steinn sagði að mikil vinna af hálfu
Landsvirkjunar hefði verið lögð í það
að tryggja jafnræði þeirra aðila sem
buðu í verkið varðandi allar upplýs-
ingar. Þorsteinn sagði þó að því væri
ekki að leyna að VST hefði verið sá
aðili sem vann grunnvinnuna við
Kárahnjúkavirkjun í upphafi þannig
að þeir byggju kannski yfir einhverj-
um upplýsingum sem hinir aðilarnir
hefðu ekki. „Ef VST fær ekki verkið
mun þó sá aðili sem hlýtur verkið
geta nálgast öil gögn sem VST aflaði
sér við grunnvinnuna," sagði Þor-
steinn.
Hinir hóparnir sem buðu í verkið
voru leiddir af Hönnun, Colenco, Mott
og Norconsult. Innan þeirra raða voru
meðal annars íslensk fyrirtæki og fyr-
irtæki sem höfðu unnið við hönnun
hér á landi áður.
1,8 milljarða tap
á fyrirtækjum
Stökktu til
Costa del Sol
Verri staöa
Eiginfjárhlutfall félaga á VÞÍ lækkaöi úr 33,8% 1999 í
30,1% áriö 2000.
Hagnaður fyrirtækj-
anna á VÞÍ fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði
nam alls 27,9 milljörð-
um króna í fyrra. Hagn-
aðurinn skiptist þannig
að sjávarútvegur var
með 8,7 milljarða hagn-
að, samgöngur með 2,4,
hugbúnaður með 1,6 og
iðnaður og framleiðsla
með 5,5 milljarða í
hagnað.
En vegna neikvæðra
fjármagnsliða og af-
skrifta var hagnaður
fyrirtækjanna eftir
skatta neikvæður um
1.8 milljarða. Mest tap
var í sjávarútvegi, eða
4.8 milljarðar. Næst-
mesta tapið var í sam-
göngum, eða hálfur
milljarður. Hagnaður
varð þó á hugbúnaðar-
framleiðslu sem nam i
milljarði og iðnaði og framleiðslu um
1,3 milljarða. Hagnaður fyrirtækjanna
eftir skatta árið 1999 nam aftur á móti
8,1 milljarði og 6,7 milljörðum árið
þar á undan. Hagnaður fyrirtækjanna
eftir skatta dróst mest saman í sjávar-
útvegi, eða um alls 9,9%. Þar á eftir
komu samgöngur með 3,5%. Hagnað-
ur í hugbúnaðarframleiðslu og iðnaði
og framleiðslu jókst um 0,4 og 0,7%.
Eiginfjárhlutfall félaga á VÞl lækk-
aöi úr 33,8% 1999 í 30,1% árið 2000.
Arðsemi eiginfjár félaga á VÞÍ var
neikvæð upp á 1,7% en hafði verið
7,1% og 8,2% árin þar á undan.
Arðsemi eiginfjár banka og spari-
sjóöa dróst verulega saman milli ár-
anna 1999 og 2000. Arðsemi eiginfjár
árið 1999 var 17,8% en aðeins 9,8%
árið 2000.
5. júlí, í viku,
frá kr. 39.985.
Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tækifæri á
síðustu sætunum til Costa del Sol 5. júlí í
viku. Þú bókar núna og 4 dögum fyrir
brottför segjum við þér hvar þú gistir og
að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu
fararstjóra okkar allan tímann.
Kr 39.985 Kr. 49.930
Verð á mann miðað við hjón með 2 böm, 2 til 11 ára, flug. gisting, skattar. Verð á mann miðað við 2 í íbúð, viku, 5. júlí.
0
Heimsferðir
Skógarhlíð 18 sími 595 1000. www.heimsferdir.is