Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2001, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2001, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 27 I>V Tilvera ;1H Boy George fertugur Boy George verður fertugur í dag. Geor- ge, sem var söngvari Culture Club á fyrri hluta níunda áratug- arins, vakti athygli fyrir klæðaburð, hár- greiðslu og að vera óhræddur við að viðurkenna samkyn- hneigð sína. George reyndi fyrir sér sem sólósöngvari en náði aldrei sömu vinsældum og áður. Hann hefur því meira verið tíður gestur á slúðursíð- um dagblaða, enda komist í kast við lögin vegna eiturlyfjaneyslu. Hann er í dag búinn að rétta úr kútnum og hef- ur endurvakið Culture Club. Gildir fyrir föstudaginn 15. júní Vatnsberinn (20. ian.-t S. fehr.l: . Dagurinn verður við- f burðaríkur og þú hef- in- meira en nóg að gera. Varaðu þig á að vera ekki of tortrygginn. Happatölur þínar eru 5, 9 og 35. Fiskarnlm9. febr.-20. mars): Þótt þú sért ekki fylli- llega ánægður með ástandið eins og er er það ekki endilega ástæðá til að íhuga miklar breyt- ingar. Hrúturinn (21. mars-19. aprilt: k Þú verður var við illt Jumtal og ættir að forð- ^ ast í lengstu lög að ^ koma nálægt þvi. Það gæti haftleiðinlegar afleiðingar. Happatölur þínar eru 2, 10 og 30. Nautið (20. aDril-?0. maíl: ■ Taktu ekki meira að þér en þú ræður við. Þú vilt vinna verk þín vel og er því afar mik- ilvægt að þú náir góðri einbeit- ingu. Tvíburarnir (21. mai-21. iúníu Atburðir dagsins gera ”þig líklega bjartsýnan en þú verður að gæta hófs, sérstaklega í pen- a. Ekki vera kærulaus. Happatölur þínar eru 7, 13 og 33. Krabbinn (22. iúní-22. iúiít: Einhver vandamál | koma upp en þegar þú ' kynnir þér málið nán- ar sérð þú að þú þarft ekkl aö hafa áhyggjur. Fáðu hjálp ef þú getur. i viuuiamii u. -£i ingamalum. Líónið (23. iúlí- 22. áeústl: Þú þarft að einbeita þér að einkamálunum og rækta samband þitt við ákveðna mann- eskju sem þú ert að fjarlægjast. Rómantíkin kemur við sögu í dag. Mevian (23. áeúst-22. sept.l: Haltu þig við áætlanir þínar eins og þú getur og vertu skipulagður. Þér bjóðast góð tæki- færi í vinnunni og skaltu fremur stökkva en hrökkva. Vogin (23. sept.-23. okt.l: J Fréttir sem þú færð r>*/ eru ákaflega ánægju- V/ legar fyrir þína nán- r / ustu. Hætta er á smávægilegum deilum seinni hluta dagsins. Sporðdreki (24. okt.-21. nnv.V. Viðbrögð þín við því sem þér er sagt eru mikilvæg. Þú mátt ekki vera of gagnrýn- in, það gæti valdið misskilningi. Happatölur þínar eru 9, 18 og 27. Bogamaður (22. nóv.-21. des.l: Taktu ekki mark á fólki sem er neikvætt og svartsýnt. Kvöldið verður afar skemmti- legt í góðra vina hópi. Happatölur þínar eru 5, 8 og 23. Steingeitin (22. des.-19. ian.1: Eitthvað sem þú vinn- ur að lun þessar mund- ir gæti valdið þér hug- arangri. Taktu þér góðan tíma til að íhuga málið. Þú færð fréttir sem gleðja þig mjög. Sportvörugerðin hf.. Skipholt 5. s- 562 83K3. DV-MYND SÆDÍS HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR Ailt á fullu í löggustöðinni Galleríkonur á fullu að mála nýja húsnæölö, þær eru ekki búnar aö taka fangaklefana niöur og þeir veröa til sýnis fyrir þá sem vilja skoöa slíkar vistarverur. Arkað í íþróttahúsið. Börn fjölmenntu meö foreldrum sínum á Þorláksvöku 2001 Þorláksvaka 2001: Fjölskylduskemmt- un á stórafmæli Þorlákshafnarbær er fimmtíu ára um þessar mundir og er mikið um dýrðir í bæjarfélaginu og Þor- láksvakan 2001 stendur nú sem hæst. Um síðustu helgi var haldin fjölskylduskemmtun í íþróttamið- stöðinni. Áður en dagskráin hófst var farið í skrúðgöngu og fóru skát- ar fyrir henni. Lúðrasveit Þorláks- hafnar lék nokkur lög og formaður afmælisnefndar, Sigurður Bjarna- son, setti hátíðina. í kjölfarið fylgdi söngur leikskólabarna, kóra og söngvara, keppni yngri barna, íþróttaálfurinn mætti á svæðið og boðið var upp á „hoppukastala", rennibraut, fótstigna bíla og teygju- stökk fyrir þá allra huguðustu. Á laugardagskvöld var skemmt- uninni haldið áfram. Guitar Islancio lék fyrir gesti, heimahljóm- sveitin Hálfbræður kom fram og Steinn Ármann fór með gamanmál. Hin vinsæla hljómsveit Sóldögg lék síðan fyrir dansi. Mál manna var að þessi skemmtun hefði tekist mjög vel og ekki skemmdi blíðskaparveð- ur fyrir hátíðarhöldunum. Reynir ad hætta reykingum Kvikmyndaleikkonan Melanie Griffith, sem er orðin 43 ára, ætlar nú að leggja hart að sér við að reyna að hætta að reykja. I mai síðastliðnum sat Melanie, sem er eiginkona hjartaknúsarans Antonios Banderas, við dánarbeð fóður síns sem lést af völdum lungnakrabbameins. Fyrr á þessu ári tókst kvikmyndaleik- konunni að venja sig af neyslu Vicodintaflna. Hún telur það hafa verið miklu auðveldara en að hætta að reykja. „Þetta verður erfitt en þjáningar föður míns veita mér vonandi styrk,“ sagði Melanie þegar hún tók þátt í göngu gegn reykingum i Los Angeles nokkrum dögum fyrir andlát fóður sins. Vill vinina með í heimildarþátt Söngkonan Madonna á nú í samvinnu við BBC um heimildarmynd um ævi hennar og feril. Og eins og venjulega er það Madonna sem ræður mestu. Hún hefur hvatt vini sína til að koma fram í þættinum og segja álit sitt á henni. Meðal þeirra sem hún hefur leitað til eru Stella McCartney, Britney Spears og Jean Pard Gaultier, að því er erlend slúðurblöð fullyrða. Samtímis varar Madonna vini sína við rithöfundinum Andrew Morton sem er að rita ævisögu hennar. Nýja heimildarmyndin verður að öllum líkindum vingjarnlegri í garð Madonnu. Sérfraeðingar í fluguveiði Mælum stangir, splæsum línur og setjum upp, , ■ H gir, J lur Áhugasamir áhorfendur Þaö má meö sanni segja aö hin fjölmörgu skemmtiatríöi hafi fangaö ungu kynslóðina. DV-MYNDIR RAGNAR JESPESEN Teygjustökk Þeir huguöustu í Þorlákshöfn fengu aö prófa sig í teygjustökki. Gallerí Grusk í gömlu lögreglustöðina: Fangageymslur til sýnis í galleríinu DV, 6RUNDARFIRÐI:____________________ Gallerí Grusk í Grundarfirði hef- ur fengið gömlu lögreglustöðina í Grundarfirði undir starfsemi sína og hafa félagarnir í Grusk undan- farnar tvær vikur unnið af kappi við að standsetja húsið. Þær fengu styrk frá málningarverksmiðjunni Hörpu til að mála húsið. Veggir hafa verið rifnir niður til að fá opn- ara og betra rými og lögð verða ný gólfefni og fleira endurnýjað. Fangageymslur sem eru enn á sínum stað verða til sýnis fyrir þá sem það vilja. Hægt verður að nálg- ast þar bæklinga o.fl. Ef undirbún- ingurinn gengur að óskum er stefnt að því að opna næstkomandi laugar- dag. -DVÓ/SHG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.