Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2001, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2001, Blaðsíða 20
24 FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 DV + Tilvera ÆLmilEM Traffic ★★★★ Áhrifamikil og vel gerð kvikmynd frá Steven Soderbergh þar sem í þremur sögum, sem tengjast óbeint, er fjallað um margar hliðar á eiturlyfjavandan- um. Soderbergh kvikmyndaði Traffic að langmestu leyti sjálfur með myndavélina í höndunum og gefur það myndinni sterkara yfir- bragð en ella, stundum minnir hún að þessu leyti á dogma-mynd- irnar dönsku, sérstaklega Mexíkó- hlutinn. Leikarar eru upp til hópa mjög góðir þar sem fremstir með- al jafningja fara Benecio Del Toro og Michael Douglas. -HK Memento ★★★★ Sumar myndir eru svo góðar að þær fara meö manni út úr kvikmyndahúsinu. Góð dans- mynd gerir mann léttan í spori, góö gamanmynd getur spriklað í manni heilan dag og góðir þriller- ar skilja mann eftir óöruggan og spenntan og Memento gerir það svo um munar. Pálminn fer til leikstjórans og handritshöfundar- ins Christophers Nolans sem vef- ur sögu áreynslulaust úr nútíö í fortíð í nútíð þannig að allt geng- ur upp og enginn laus endi sem situr eftir eins og vont bragð í munni. -SG Spy Kids ★★★ Robert Rodriguez er held- ur betur búinn að skipta um gír í Spy Kids, laufléttri og skemmti- legri fjölskyldumynd þar sem honum tekst að skemmta öllum fjölskyldumeðlimum á hvaða aldri sem þeir eru. Spy Kids er al- veg laus við sykursætan söguþráð sem oftar en ekki einkennir fjöl- skylduvænar kvikmyndir Myndin er stórfenglegt sjónarspil tækni- brellna og fyndinna atriða í sam- > anþjappaðri atburðarás sem svík- ur engan. -HK Les riviers pourpres ★★★ Hörð sakamálamynd með hraðri atburðarás þar sem verið er að eltast við raðmorðingja sem skilur við fórnarlömb sín þannig að áhorfandinn fær gæsahúð. Myndinni hefur verið líkt Seven og má að hluta réttlæta þá lík- ingu, meðal annars er útlitið líkt. Les riviers pourpres hefur samt sín sérkenni og þó sjokkerandi sé þá stendur hún hinni mögnuöu Seven að baki í þeim efnum. Kvik- myndataka og klipping er fyrsta flokks og Jean Reno og Vincent Cassel eru trúverðugir í hlutverk- um lögreglumannanna. -HK Liv Tyler leikur í One Night at McCool’s: Frétti tólf ára gömul hver faðir hennar er sinni fyrstu Liv Tyler leikur aðalhlutverkið í One Night at McCool’s sem frum- sýnd verður á morgun. Myndin gerist á stuttum tíma og segir frá samböndum sem myndast á milli einnar konu og þriggja karl- manna. Þetta byrjaði eitt kvöld á McCool’s-barnum. Þrir grunlausir menn og ein ákveðin kona hittast. Það er mikið að gera og spenna í andrúmsloftinu. Komiö er að lok- un, Randy (Matt Dillon) er að vinna á bamum. Lögfræðingurinn Carl (Paul Reiser) er enn þá inni á staðnum og rannsóknarlögreglu- maðurinn Dehling (John Good- man) er nýkominn í hús enda er staðurinn orðinn að vettvangi glæps. Hvað er það sem tengir þessa þrjá aðila? Er það líkið eða er það hin sjóðheita Jewel (Liv Tyler)? Áður en kvöldið er á enda er Jewel orðinn afgerandi þáttur í lífí þeirra allra og þeim er ljóst að hún er meira en þeir ráða við... og einnig að hún ræður við meira en þá þrjá. Liv Tyler er ekki gömul, fædd 1. júlí 1977. Var hún sautján ára þegar hún lék í kvikmynd. Hafði hún þá kynnst frægðinni frá mörgum hliðum, verandi dóttir rokkarans Steven Tyler i Aerosmith og fyrirsætunnar Bebe Buell og stjúpdóttir Todd Rundgrens. Tyler segir um sjálfa sig að hún sé sönnun þess að ljóti andar- unginn geti breyst í svan. Hún hafi alltaf haft lítið álit á útliti sínu. Þetta hafi þó breyst þegar henni voru boðin sýningar- störf fjórtán ára gamalli. Það var fjölskylduvinur, súperfyrirsætan Paulina Porizkova, sem fékk hana til að fara úr gallabuxun- um og í fín föt fyrir myndavélina. Áður hafði hún lent í því að uppgötva tólf ára gömul hver faðir henn- ar var. Áður hafði hún verið lát- in halda að Todd Rundgren væri faðir hennar. Þegar myndavélin og Liv Tyler hittust í fyrsta sinn var það ást við fyrstu sýn og áður en langt um leið var hún kom- in á forsíður ung- lingablaðanna' Liv Tyler í One Night at McCool’s Leikkona sem þrátt fyrír ungan aldur á að baki merki- iegan feril. Seventeen og Mirabella. Eitt skipt- ið þegar hún var að leika í auglýs- ingakvikmynd ákvað hún að hætta sýningarstörfum og snúa sér að kvikmyndum. Sjálfsagt hafa margar stúlkur hugsað eins en eins og allt sem Tyler hefur tekið sér fyrir hendur þá var ekki að sökum að spyrja að hún var fljótt komin á lista yfir eftirsóttar leikkonur af yngri kynslóðinni og má hún þakka því þriðju kvik- myndinni sem hún lék í, Stealing Beauty. Á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 1996 var það þessi nítján ára gamla leikkona sem stal senunni og var prinsessa hátíðarinnar. Ferill hennar blómstraði í kjölfar- ið og lék hún með góðum árangri í gamanmyndum og spennumynd- um auk þess sem hún sýndi hvað i henni býr í Onegin þar sem hún lék dramatískt hlutverk á móti Ralph Fiennes. Næst munum við sjá Liv Tyler í tríólógíunni sem gerð hefur verið eftir Hringadrótt- inssögu. Kvikmyndir sem Liv Tyler hefur leikiö í: Silent Fall, 1994 Heavy, 1995 Empire Records, 1995 Stealing Beauty, 1996 That Thing You Do, 1996 Inventing the Abbots, 1997 U-Turn, 1997 Armageddon, 1998 Plunkett & Macleane, 1999 Cookie's Fortune, 1999 Onegin, 1999 Dr. T & the Women, 2000 One Night at McCool's, 2001 Filmundur og Háskólabíó sýna Some Voices: Geðsjúklingur í samfélaginu State and Main ★★★ Það skín í gegn að allir hafa skemmt sér vel viö gerð State and Main og þess vegna ómögulegt annað en skemmta sér viölíka vel sem áhorfandi þótt hún sé kannski ekki svo ýkja merkileg. Myndin skartar líka fyrirtaks leikarahópi sem hefur greinilega gaman af að leika sér með þennan afburðavel skrifaða texta. William H. Macy er leik- stjórinn Walt Price sem þarf að kljást við allt og alla og er frábær. j, David Paymer leikur hinn dóna- lega framleiðanda, Marty Rossen, og skemmtir sér vel og Alec Bald- win og Sarah Jessica Parker fara létt með kvikmyndastjömurnar. -SG Along Came a Spíder ★★★ Morgan Freeman endur- tekur úr Kiss the Girls og satt best að segja bjargar hann miklu með yfirveguðum leik í mynd sem er flöt þegar haft er í huga hversu áhugaverðar persónurnar eru og söguþráðurinn flókinn. Á móti — kemur að leikstjórinn, Lee Tama- ~ hori (Once Were Warriors), er fag- maður og góð kvikmyndataka og klipping, ásamt tónlist sem passar vel við efnið, skapar spennuþrung- ið andrúmsloft sem fleytir mynd- inni áfram og gerir hana að af- þreyingu sem er þess virði að eyða kvöldstund yfír. 4C Að þessu sinni frumsýnir Fil- mundur í samvinnu við Háskólabíó bresku verðlaunamyndina Some Voices sem leikstýrt er af Simon Cellan Jones. Myndin er fyrsta kvikmyndin sem Jones leikstýrir og hefur hann fengið mikla og verð- skuldaða athygli fyrir þessa frumraun sína. í Some Voices segir frá bræðrun- um Ray og Pete. Ray er nýlega út- skrifaður af geösjúkrahúsi og Pete rekur kafFihús. Hann hefur mikið á sinni könnu en þarf engu að síður að líta til með Ray og sjá til þess að hann taki geðlyfin sín. Ray vinnur á kaffihúsinu og þar kynnist hann Lauru, ungri, skoskri konu sem er nýskilin við mann sinn sem beitti hana líkamlegu ofbeldi, og verður ástfanginn af henni. Smám saman fer Ray að telja sér trú um að hann geti verið án geðlyfjanna og í fram- haldi af því tekur gjáin milli heims- ins sem hann upplifir og umhverfis- ins að breikka ískyggilega. Some Voices tekur á þeim siðferð- islegu málum sem geta komið upp þegar samfélaginu sjálfu er falið að glíma við geðsjúkdóma, í stað stofn- ana, og sýnir fram á að undir þeim kringumstæðum þýðir lítið að taka á málum með svarthvitum hætti, ekki fremur en á öðrum sviðum mannlífsins. Tæknin er notuð til hins ýtrasta til að koma sýn Rays á heiminn til skila, áhersla er lögð á það hvernig hann sér og skynjar heiminn en ekki á það hvernig heimurinn skynjar hann, eins og svo oft vill verða. Með aðalhlutverk fara Daniel Craig, Kelly McDonald og David Morrissey. Leikstjórinn Simon Cell- an Jones hefur í mörg ár veriö með- al virtustu sjónvarpsleikstjóra Breta og fer hann einkar glæsilega af stað í kvikmyndaheiminum. Hann byrjaði feril sinn i skemmt- anabransanum sem sendill hjá 20th Century Fox í London. Áhugi á ljós- myndum gerði það að verkum að hann lagði það starf fyrir sig og var meðal annars fréttaljósmyndari í Beirút áður en hann réð sig til BBC þar sem hann hefur starfað megnið af sínum starfsferli. Meðal nýrri verka hans fyrir BBC má nefna fyrstu seríuna í myndaflokknum Cracker, The Riff Raff Element, Our Friends in the North og In Your Dreams, allt sjónvarpsmyndir sem hafa verið verið verðlaunaðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.