Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2001, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2001, Side 25
29 FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 l>v Tilvera Eminem hótar mordi á plötu Þrátt fyrir að ný plata rapparans Eminems sé enn ekki komin á mark- að er hún þegar umdeild. í síðasta lag- inu hótar hann söngvurum banda- rísku hljómsveitarinnar Limp Bizkit lifláti. „Ég ætla að stinga byssu upp í munninn á þér og sprauta á vegginn," rappar Eminem. Hann reynir ekki að leyna því að hótununni er beint gegn DJ Lethal. Fredi Durst fær einnig sinn skammt. Eminem hljómar reið- ari en nokkru sinni þegar hann kallar söngvara Limp Bizkit aula sem hermi bara eftir honum. Bond-leikari í hnapphelduna Pierce Brosnan Bond-leikari hefur ákveðið að giftast unnustu sinni, Keely Shaye Smith, i byrjun ágúst. Brúðkaupið verður haldið í rómversk- kaþólskri kirkju í vesturhluta heima- lands hans, Irlands. Brosnan er ekkill en hann var giftur fyrrverandi Bond- stúlkunni Cassöndru Harris. Hann hefur tvisvar frestað að giftast núver- andi unnustu sinni, nú síðast vegna veikinda sonar síns. Talið er að leikarinn hafi samið við breska tímaritið Hello um einkarétt á myndatöku í brúðkaupinu og fengið tugi milljóna fyrir. Puff Daddy kominn meö nýja Lopez Rapparinn Puff Daddy virðist vera búinn að jafna sig eftir að hin íðil- fagra Jennifer Lopez lét hann flakka fyrir skemmstu. Hann spókaði sig með nýrri Lopez í Mónakó á dögun- um, að minnsta kosti ígildi .nýrrar Lopezar. Sú nýja er nefnilega ískyggi- lega lík hans fyrrverandi og er síst eft- irbátur hennar hvað fegurð varðar. Jennifer er hins vegar hörkukvendi og það má ekki vanmeta snarræði hennar í erfiðum aðstæðum. Það sannaði hún þegar hún bjargaði nýja kærastanum sínum frá því að kafna í mat sínum. Hún beitti Heimlich-að- ferðinni, prýðiskvenkostur það. Heilbrigðisstofnunin á Selfossi: Liósmæður á Netið Ljósmæður á Heil- brigðisstofnun Suður- lands á Selfossi opn- uðu nýlega heimasíðu þar sem finna má helstu upplýsingar um meðgöngu, fæð- ingu og sængurlegu. Ljósmæðurnar við stofnunina lögðu I sameiningu til efni á síðuna góðu sem hefur fengið mjög já- = með upplýsingar fyrir foreldra kvæðar viðtök- ur. „Við höfum á síðustu dög- um verið að fá mörg bréf í tölvupósti frá til dæmis for- eldrum sem eru afskaplega ánægðir með það efni og upplýsing- ar sem fæst á heimasíö- unni,“ segir Svanborg Egilsdóttir yfirljós- móðir. Vatnsfæöingar vinsæiar Fæðingar á Heilbrigðisstofnun- inni á Selfossi eru gjarnan á bilinu 140 til 180 á ári hverju. „Á árinu 2000 voru 167 fæðingar hjá okkur. Það er greinilegt að margir foreldr- ar hafa kosið að eignast börn á tímamótaárinu 2000. Fæðingarnar verða sjálfsagt eitthvað færri í ár enda þótt við sjáum árið aldrei ná- kvæmlega fyrir,“ segir Svanborg Egilsdóttir. Hún er ein átta ljós- mæðra sem starfa við stofnuina auk þess sem einn af yflrlæknun- um, Jón B. Stefánsson, er sér- menntaður í kvensjúkdómum og fæðingarhjálp. Vaxandi vinsælda nýtur meðal þeirra barnshafandi kvenna sem koma á fæðingar- deildina á Selfossi að ala börn sín I vatni. Fyrir sjö árum var þar settur upp myndar- legur vatnspottur sem kon- urnar geta alið böm sín í ef áhugi er fyrir hendi. Það hef- ur talsvert verið að aukast á síðustu árum en á síðasta ári ólu rúmlega þrettán prósent DV-MYNQ EÖJ Á fæðingardeildinni. Á bilinu 140 til 180 konur fæöa börn á Heilbrigöisstofn- uninni á Selfossi á ári hverju. Margar konur kjósa aö fæöa börn sín í vatni. þeirra sem komu á deildina börn sin pottinum góöa. Að fæða börn með þvi lagi þykir mörgum konum afbragðsgott. Barnsfæöing eölilegur hluti af lífinu „Við erum að færa okkur inn í nútímann með þvl að bjóða fólki upp á að nálgast upplýsingar um barneignir og fæðingar á Netinu," segir Svanborg Egilsdóttir. Það var Guðlaug Einarsdóttir, ljósmóðir við deildina, sem óf síðuna sem er mjög aðgengileg og er á slóðinni http://hss.selfoss.is/bom. „Við viljum að fólk geti nálgast allar upplýsingar, skýrar og fordóma- lausar, á einum stað. Stundum hafa farið af stað ýmsar sérkenni- legar sögur um að hlutirnir í þessu ferli „meðganga-fæðing-sængur- lega“ eigi að vera með einhverjum allt öðrum hætti en raunin er. Upp- lýsingar um hið sanna og rétta í málinu getur fólk aflað sér þarna. Við lifum líka á þeim tímum nú að barnsfæðing sé eðlilegur hluti af lífinu en ekki sjúkdómur en þessa viðhorfs varð vart á síðari hluta síðustu aldar,“ segir Svanborg. Auk þess sem ljósmæður, sem starfa við Heilbrigðisstofnunina á Selfossi, sinna fæðingarhjálp og konum í sængurlegu eru þær nú í seinni tíð einnig farnar að sinna mæðravernd á heilsugæslustöðv- um vítt og breitt á Suðurlandi. Fer sá þáttur raunar vaxandi rétt eins og sjálf meginstarfsemin á sjúkra- húsinu á Selfossi. -sbs Dagsins amstur látið lönd og leið á björtu sumarkvöldi Bæjarstjórn lét spretta úr spori - á fantagóðum reiðvegum í upplandi Hafnarfjarðar Veðrið lék við hesta og menn þegar stjórn Hesta- mannafélagsins Sörla í Hafn- arfirði bauð bæjarstjórnar- mönnum á hestbak í fyrra- kvöld. Tilgangurinn var auð- vitað fyrst og fremst að skemmta öðrum og sjálfum sér. Máttarvöldin lögðu sitt af mörkum því vorveðrið var eins og hest gerist. Góðir reiðvegir sem lagðir hafa ver- ið af myndarskap fyrir góðan stuðning HafnarQarðarbæjar og reiðvegasjóðs Landssam- bands hestamannafélaga spilltu heldur ekki fyrir. Það var einmitt um hluta þessara reiðvega sem ferð- inni var heitið. Einnig var lit- ið á hið góða keppnissvæði fé- lagsins. Þar er aðstaða öll með besta móti og þar veröur íslandsmót barna og unglinga í hestaíþróttum einmitt Nýtt kort Forsíöa á hinu nýja reiðvega- korti sem feröa- nefnd Sörla er aö láta gera og veröur tilbúiö inn- an skamms. haldið dagana 22., 23! og 24. júní nk. Fyrir þá sem ekki þekkja til má geta þess að net reið- vega liggur um uppland Hafn- arfjarðar. Þannig liggja sam- tengdar götur í Gráhellu- hrauni. Þar er hægt að velja sér styttri reiðleiðir eða lengri. Þá er hægt að fara svo- nefndan Hamraneshring, frá Hlíðarþúfum og út fyrir Hamranes, að Hvaleyrar- vatni. Einnig er hægt að fara Kjóadalshring, leið sem ligg- ur í kringum Kjóadal, Seldalsveg, frá Hvaleyrar- vatni, um Seldal (og inn á Kjóadalshring) og Smyrlabúð- arleið, frá Kaldárselsvegi með Smyrlabúð í norðúrbotn Búr- fellsgjár. Þannig tengist Hamranesleiðin Seldalsleiðinni sem tengist Kjóadals- DV-MYNDIR EOJ Lagt í ‘ann Bæjarfulltrúar ásamt bæjarstjóra tilbúnir í slaginn. F.v.: Tryggvi Haröarson, Valgeröur Halldórsdóttir, Magnús Gunnarsson bæjarstjóri, Steinunn Guöna- dóttir og Þorsteinn Njálsson. Magnús og Blossi Þaö fór vel á meö þeim Magnúsi Gunnarssyni bæjarstjóra og hestin- um Blossa frá Árgeröi, bæöi fyrir reiðtúr og eftir. Sveifla á Tryggva Þaö var sveifla á Tryggva Haröarsyni bæjarfulltrúa á hestinum Skildi í upphafi feröarinnar. hring o.s.frv. Frá Kaldárseli er hægt að ríða hringinn í kringum Helgafell eða taka stíginn til vinstri og ríða í Valaból. Einnig er hægt að ríða suður til Krýsuvíkur. Reiðveganefnd Sörla er að láta vinna reiðleiða- kort af svæðinu, allt frá Rauða- vatni, suður fyrir Helgafell og austur fyrir Elliðavatn. Þar verða m.a. kennileiti og vel merktar reiðleiðir. Félagsmenn Sörla fá kortið án endur- gjalds en öðrum verður það selt við vægu verði. Og auðvitað skorar nefnd- in á önnur hestamannafélög að halda uppi merkinu og láta útbúa góð reið- vegakort af sínu svæði. -JSS Móttaka Viðhjálmur Ólafsson, formaöur Sörla, bauö Magnús Gunnarsson bæjarstjóra og bæjarfulltrúa velkomna á svæöiö. T.v.: Guörún Guömundsdóttir og Stefania Sigurö- ardóttir, stjórnarmenn í Sörla. IGNIS 4x4 SPORTJEPPLINGURINN Meðaleyðsla 6,9 I 1.545.000,- SUZUKI BILAR HF Skeifunni 17. Simi 568 51 00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.