Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2001, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2001, Síða 28
FRETTASKOTIÐ SÍMINNSEM ALDREISEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 Veitt atvinnuleyfi - janúar tll apríl 1.323 Atvinnuleyfi 63% fleiri í ár Rúmlega 350 atvinnuleyfi voru gefin út í apríl þrátt fyrir verkfóll miðað við 200 í apríl 2000. Veitt atvinnuleyfi fyrstu flóra mánuði ársins eru þar með 1.320 eða 63% fleiri en á sama tímabili * í fyrra, samkvæmt yfirliti Vinnumála- stofnunar. í aprfl mældist atvinnuleysi 1,6% af mannafla en miklu meira á Norðurlandi og ríflega tvöfalt meira á Austurlandi, þar sem atvinnulausum Qölgaði um 75% milli mánaða og nær 100% frá april í fyrra. Um 2.760 manns voru á skrá í apríllok, um 500 fleiri en í lok mars. Riflega fjórðungur var í sjávarútvegi og fiskvinnslu. -HEI ( a Skemmtistaðaveiðar Fókus morgundagsins færir þér ná- kvæman leiðarvísi um hvemig á aö bera sig að við veiðar á skemmtistöð- unum. Þú færð að vita allt um hvemig á að draga hitt kynið á tálar og leiðin verður greið í framhaldinu. Hljóm- sveitin Ham ræðir um endurkomuna, spjallað er við hugsjónamenn sem em á ieið á kommúnistaþing í Alsír og birt- ur er nákvæmur leiðarvísir um hvem- ig ungdómurinn á að lifa af „þrælavist- ina“ í unglingavinnunni. Tvíeykið Rósi og Dúsa ræða um tískutrendin í dag og í Lífinu eftir vinnu finnur þú nákvæm- an leiðarvísi um það sem er að gerast um helgina. 1» Sóldýrkendur dv-mynd hilmar þór Blíðviöri hefur heilsað iandsmönnum síðustu daga og hitinn stigið vel vel á annan tuginn. Þessar stútkur lágu mót sói 'í Laugardainum í gær. Spáð er ágætu sólfari víðast hvar á landinu næstu daga. Sjá veðurspána bls. 4 Mjög hörð lending fram undan að mati ASÍ: Skattalækkunin mistök hjá stjórnvöldum - raðgreiðslulánum skuldbreytt í lífeyrissjóðslán Rannveig Sig- urðardóttir, hag- fræðingur hjá Al- þýðusambandi Is- lands, telur að við- snúningur sé að verða í efnahags- lífinu. Greinilegt sé að heimili og Rannveig fyrirtæki séu að Sigurðardóttir. byrja að aölaga sig minni tekjuaukn- ingu og hærri skuldastööu. Eins og fram kom í DV í gær þýðir 6% árs- veröbólga í stað 4% að skuldir heimilanna aukast um 10 milljarða á ári. Hver mifljón í skuld einstak- lings tfl 25 ára hækkar í afborgun- um um tæplega 1000 krónur á ári fyrir hvert prósentustig verðbólgu og þegar aðrar hækkanir bætast við hafi þetta veruleg áhrif á fjár- hag almennings. Varöandi tölur um kaupmátt- araukningu milli fyrstu ársfjórð- unga 2000 og 2001 segir Rannveig að hafa verði í huga að inni í þessum tölum séu umsamdar launahækkanir tveggja ára sem geta verið á bilinu 7-16%. „Um- skiptin eru í nánd og þau eiga eftir að verða mjög skjót. Hjá líf- eyrissjóðunum berast t.d. sögur af því að mikið sé orðið um að fólk sé að skuldbreyta rað- greiðslulánum í lífeyrislán. Nú kemur þessi verðbólga, minni tekjuaukning og meiri útgjöld,“ segir Rannveig. ASÍ vill ekki spá um hvort for- sendur kjarasamninga muni halda en Rannveig segir ljóst að ráðstöfunartekjur fólks muni ekki aukast jafn hratt og verið hefur undanfarin ár. Hún gagn- rýnir ákvarðanir stjórnvalda. „Það sem gerðist í kjarasamning- unum 1997 var að þá urðu all- miklar launahækkarnir á sama tíma og verðbólgan var mjög lág. Þá voru skattar llka lækkaðir og mín skoðun er að það hafi verið mistök. Það hefði verið betra að eiga hana inni nú þegar dregur úr tekjuaukningunni, þar sem þenslan var ærin fyrir,“ segir Rannveig. Um það aðlögunarskeiöið sem þegar er hafið spáir Rannveig harðri lendingu: „Ég held að að- lögunin muni gerast mjög hratt. Það sést á innflutningi og veltu- tölum og við vitum að það mun draga úr byggingarframkvæmd- um með haustinu." Reynt var ítrekað að ná í Geir H. Haarde fjármálaráðherra vegna þessa máls, án árangurs. -BÞ Bandaríski herinn vill íslenska presta á Völlinn: Gaman að predika í strápilsi á Hawaii - segir presturinn í Keflavík Séra Sigfús B. Ingvason. með Bandarfsk her- málayfirvöld á Keflavíkurflug- vefli hafa aflétt þeirri kvöð á presta sína að þeir séu banda- rískir ríkisborg- arar. Er þetta gert vegna skorts á prestum á Vellin- um. Opnast þar möguleiki fyrir íslenska presta að sækja um starf meðal hermanna en slíkt myndi hafa í för með sér mögulegan tilflutning á milli bandarískra herstöðva víða um heim. „Það væri gaman að predika f strápilsi á Hawaii þó svo ég hafi ekki hug á að sækja um,“ segir séra Sigfús B. Ingvason, sóknar- prestur í Reykjanesbæ, sem telur þessa breytingu á skipan mála hið besta mál. Ekki séu til nógu mörg brauð f landinu fyrir alla þá presta sem þess óska og sífellt sé verið að útskrifa nýja guðfræðinga. „Þetta er gott fyrir atvinnuástandið í stéttinni," segir séra Sigfús. Á Keflavíkurflugvelli starfa bæði lúterskir prestar og kaþólsk- ir. Að auki gegna fjölmargir gyð- ingar herþjónustu og því er kirkja hermannann'a á Keflavíkurflug- velli byggð sem fjölnota guðshús. Séra Sigfús telúr að herprests- þjónusta íslenskra presta gæti opnað þeim möguleika til ferða- laga víða um heim þó ekki henti starfið fjölskyldufólki vel: „Menn eru svo stutt á hverjum stað. Mað- ur er rétt búinn aö kynnast prest- unum á Vellinum þegar þeir eru flognir annað." -EIR Ferðaskrifstofur: 15-20% samdráttur í sólarflugi - framboð minnkað 15%—20% samdráttur verður milli ára í sólarlandaflugi helstu ferðaskrif- stofa í sumar. Þær gerðu ráð fyrir aukningu frá árinu 2000 þannig að tekjurýrnun er mikil miðað við áætl- un. Guðrún Sigurgeirsdóttir, fram- leiðslustjóri hjá Úrvali-Útsýn, segir að fyrirtækið hafi brugðist við þessum búsifjum með því að minnka framboð- ið og meðai annars hafi nýr áfanga- staður verið lagður af. Ferðirnar í ár kosta um 11% meira en sambærileg ferðalög í fyrra en Guðrún telur að skýringar á hruninu séu ekki aðeins fall krónunnar. „í fyrra kom endir á gríðarlega uppsveiflu og kannski voru áætlanir okkar ekki raunhæfar. Allur annar kostnaður almennings er líka að hækka,“ segir Guðrún og nefnir sem dæmi bensínverð. Staðan þýðir að þeir sem eru til- búnir að stökkva af stað í ferðalög með örskömmum fyrirvara geta keypt ferðir á hagstæðu verði en í góðærinu var svo mikil eftirspurn að litið var um slík tækifæri, að sögn Guðrúnar. Guðjón Auðunsson, framkvæmda- stjóri hjá Samvinnuferðum-Landsýn, skýtur á að þar nemi samdrátturinn 15-20 prósentum. Líkt og aðrir í grein- inni telur hann þó að ferðaskrifstofur nái nokkuð að bjarga sér fyrir horn með því að skera niður framboð. Þær aðgerðir hafl valdið því að nýting vél- anna sé góð. „Það er líka bara þannig að ákveðinn hópur fólks virðist ætla að bóka seinna en áður,“ segir Guðjón sem getur ekki skotið á hve mikið tekjutap verður miðað við áætlun. Árið 2000 var sett met i sólarferða- gleði landans. Nú blasir hins vegar við að íslendingar muni spara sér mikinn gjaldeyri. -BÞ Dráttarvélarslys: Þyrla sótti slas- aöan mann Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti slasaðan mann úr Vatnsdal á slysa- deild Landspítalans í Fossvogi. Maður- inn haföi orðið undir dráttarvél þar sem hann var við störf ásamt föður sinum. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi vildi slysið þannig til að maðurinn hugðist taka sér far með dráttarvélinni með því að standa á tröppu. Trappan gaf sig og féll maður- inn kylliflatur til jarðar og fékk aftur- hjól dráttarvélarinnar yfir sig. Ekki liggur ljóst fyrir hversu mikil meiðsl maðurinn hlaut en hann var ekki tal- inn i lífshættu í gærkvöld. -aþ. Jói útherji Knattspyrnuverslun Ármúla 36 • sími 588 1560 * * * / * * í / * * * * * *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.