Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2001, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001
I>V
Fréttir
Mál ríkislögreglustjóra gegn fyrrv. sparisjóðsstjóra í Ólafsfirði:
Olöglegar lánafyrir-
greiðslur og undanskot
DV-MYND BRINK
Sparisjóösstjóri fyrir dómi
Þorsteinn A. Þorvaldsson, til vinstri á myndinni, fyrrverandi sparisjóðsstjóri í Ólafsfiröi, gengur úr
Héraðsdómi Norðurlands eystra í gærmorgun. Með honum á myndinni er Jónatan Sveinsson,
lögmaður hans.
Þorsteinn A. Þorvaldsson, fyrrum
sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Ólafs-
fjarðar, viðurkenndi við framhald
fyrirtöku málshöfðunar Ríkislög-
reglustjóra gegn honum í Héraðs-
dómi Norðurlands eystra í gær að
hann hefði í mörgum tilfellum veitt
lán umfram viðmiðunarmörk og í
sumum tilfellum veitt ábyrgðir sem
hvergi komu fram í bókhaldi sjóðs-
ins. í öðrum tilfellum, eins og t.d.
vegna 20 milljón króna láns til
Valeikar vegna saltflskkaupa, við-
urkennir Þorsteinn að það lán hafi
ekki verið fært í bókhald spari-
sjóðsins en það hafi hins vegar ver-
ið afurðalán fyrirtækisins. í
nokkrum tilfellum viðurkennir
Þorsteinn að ábyrgðir hafi verið
veittar án heimildar og lán ekki
færð í bókhaldi þar sem honum
hafi verið kunnugt um að upphæð
útlána hafi farið fram úr útlána-
þaki sem í flestum tilfellum er 50%
af eigin fé sparisjóðsins. Þorsteinn
sagði að ákvarðanir um lán um-
fram viðmiðunarmörk hefðu bæði
verið teknar af honum og þáver-
andi stjórn sparisjóðsins og eins
hafi endurskoðandi sparisjóðsins
tekið saman lista yfir útlán og
listað sérstaklega upp fyrir spari-
sjóðsstjóm. í sumum tilfellum voru
skuldbindingar langt umfram allt
eigið fé sparisjóðsins. Engar tölur i
ákæruskjali rík-
islögreglustjóra.
vora vefengdar
en verjandi Þor-
steins, Jónatan
Sveinsson hrl.,
benti á að í all-
nokkrum tilfell-
um hefðu lán
verið veitt fyrir
árið 1995 en
ákæran nær til
áranna 1995,
1996 og 1997.
í engum til-
fellum viður-
kennir Þor-
steinn að hann
hafl stefnt
sparisjóðnum i
hættu og í sum-
um tilfellum
hafi ekki verið
um útlánatap að
ræða, eða hann
framið umboðs-
svik. I mörgum
tilfellum viður-
kennir Þor-
steinn ekki „pörun“ lána, þ.e. að
lán til fyrirtækja og einstaklinga
eigi saman eins og t.d. til Sport-
hússins, eigenda verslunarinnar og
fjölskyldna þeirra. Þorsteinn sagði
fyrir dómi að i því tilfelli hefði
hann lánað einstaklingum í góðri
trú en pörunarreglur hefðu komið í
kjölfarið sem breyttu því. Sparisjóð-
urinn hefur afskrifað um 600 milij-
ónir króna vegna lána á áður-
nefndu tímabili en Sparisjóðabank-
inn kom sparisjóðnum til aðstoðar
með 250 milljón króna framlagi til
að forða Sparisjóði Ólafsfjarðar frá
gjaldþroti. Fjölskipaður dómur
mun dæma í þessu gríðarlega um-
fangsmikla máli. -GG
Héraðsdómur dæmir karlmann í þriggja ára fangelsi:
Hrottafengin nauögun
Héraðsdómur dæmdi í gær kari-
mann í þriggja ára fangelsi fyrir
nauðgun og likamsmeiðingar á sam-
býliskonu sinni i sumarhúsi í Helga-
fellssveit á Snæfellsnesi sumarið 1999.
Auk þess var maðurinn dæmdur fyrir
húsbrot og eignaspjöll í íbúðarhúsi
við Hólaberg i Reykjavík. Honum er
jafnframt gert að greiða konunni eina
milljón króna í miskabætur auk máls-
kostnaðar.
Manninum er í ákæruskjali gefið
að sök að hafa slegið sambýliskonu
sína, í sumarhúsinu i Helgafellssveit,
með krepptum hnefum í andlit og í
líkama hennar, tekið hana hálstaki,
sparkað í hana, hrint henni niður
stiga í nokkur skipti, þröngvað henni
til kynmaka og annarra kynmaka,
ýmist með ofbeldi eða hótunum um of-
beldi.
í ákærunni segir jafnframt að kon-
an, sem var sautján ára þegar atburð-
urinn átti sér stað, hafi bólgnað og
rnarist mikið í andiiti. Hún hlaut glóð-
araugu, marðist á hálsi, hlaut mar-
bletti víða um líkamann og verulega
áverka við op legganga og endaþarms.
Hjúkrunarfræðingur, sem starfar á
neyðarmóttöku, sagði fyrir dómi að
áverkar stúlkunnar hefðu verið svo
miklir að þetta hefði verið eitt hrika-
legasta tilvik sem hún hefði séð á
neyðarmóttöku.
Hálfum mánuði eftir atburðinn
hafði lögregla afskipti af manninum
og var honum veitt áminning, Þess
var krafist að hann léti strax af hótun-
um um ofbeldi gagnvart konunni og
íjölskyldu hennar. Nauðgarinn ílúði
land áður en dómsmeðferð hófst en
hann var framseldur frá Svíþjóð í vor.
Maðurinn játaði fyrir dómi að hafa
valdið konunni líkamsmeiðingum en
hann neitaði að hafa þröngvað henni
til kynmaka. Hann viðurkenndi að
hafa brotist inn í íbúðarhús í Hóla-
bergi og valdið þar tjóni.
Dómurinn komst að þeirri niður-
stöðu að framburður konunnar væri
trúverðugur og væri hann vel studdur
öðrum gögnum málsins.
Sakaferill mannsins nær aftur til
ársins 1992 og hafði hann hlotið 20
refsidóma fyrir ýmis afbrot fram að
þeim tíma sem nauðgunin átti sér
stað. Nemur óskilorðsbundin refsivist
fram að nauðgunardómnum meira en
sjö ára fangelsi. Metið var til refsi-
þyngingar að árás ákærða hefði verið
hrottafengin, hún hefði staðið lengi
yfir og konan hefði óttast um líf sitt á
tímabili. Því þótti hæfileg refsing vera
þriggja ára fangelsi. -aþ
Hólasandur:
Sauðaþjófur
áferð
Lögreglan á Húsavík rannsakar
nú sauðaþjófnað sem talinn er hafa
átt sér stað fyrir skömmu í Mý-
vatnssveit. Bóndi sem var við
grenjaleit á Hólasandi gekk fram á
hræ af fimm haustlömbum. Hann
gerði lögreglu viðvart og við nánari
skoðun kom í ljós að lömbin höfðu
verið skotin í hausinn. Þau hafa
verið úrbeinuð og haus og hluta
skrokksins síðan fleygt skammt frá
veginum sem liggur um Hólasand.
Lögreglan á Húsavík segir tvö
lambanna hafa verið tekin úr eyju í
Mývatni. Sauðaþjófurinn er ófund-
inn en lögreglan á Húsavík hefur,
sem fyrr segir, rannsókn málsins
með höndum. -aþ
Áskrifendur í sólina
Sólartilboð DV felur í sér góðan af-
slátt af ferðum með ferðaskrifstof-
unni Sól til Portúgals og Kýpur.
Sólartilboð DV:
Gríðarleg
ásókn
- símkerfið sprakk
Rúmlega hundrað áskrifendur
DV bókuðu sæti á fyrsta degi Sólar-
tilboðs DV. Sólartilboðið er í sam-
vinnu við Ferðaskrifstofuna Sól og
er boðið upp á ferðir til Portúgals og
Kýpur. Að sögn forráðamanna Sólar
voru viðtökurnar á fyrsta degi slík-
ar að símkerfið sprakk og kalla
þurfti út aukamannskap til að sinna
bókunum.
Sólartilboð DV gildir aðeins fyrir
áskrifendur blaðsins og er um að
ræða 50 þúsund króna afslátt af ferð
fyrir tvo til annars hinna tveggja
áfangastaða. Auk þess fylgir tilboð-
inu að frítt er fyrir böm til Kýpur
og veittur er 25 þúsund króna
barnaafsláttur fyrir eitt barn til
Portúgals. Ef börnin eru fleiri er
veittur 20 þúsund króna afsláttur
fyrir hvert þeirra.
Áskrifendur eru hvattir til að
kynna sér tilboðið hjá Ferðaskrif-
stofunni Sól við Grensásveg. -aþ
Vehríö í kvóld
Rigning suðvestanlands
Suðlæg átt, 5-10 m/s, I dag en suöaustan
8-13 vestan til í kvöld. Skýjaö meö köflum
norðaustan til og hætt viö síðdegisskúrum.
Rigning suövestan- og vestanlands og einnig
suðaustanlands I kvöld.
Sólargangur og sjávarföll
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 23.51 00.23
Sólarupprás á morgun 03.13 02.08
Síödegisflóð 17.59 22.32
Árdeglsflóö á morgun 06.14 10.47
Skýringar á ve&urtáknum
J^VINDATT 10V-HITÍ
m -io° V ViNOSTYRKUR V cdact ! niatrtiin i sekiiwíu r«Ua f HBOSKÍRT
€3 0
LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAD SKÝJAÐ ALSKÝJAO
wr w #lfw-
RIGNING SKÚRIR SIYDDA SNJÓKOMA
w \ : : =
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Flestir vegir færir
Vegir á hálendinu hafa flestir verið
geröir færir fyrir umferö. Nýlega er
búiö aö opna veginn í Kverkfjöll af
þjóövegi 1. Einnig veginn um
Sprengisand, I Kerlingarfjöll og í
Loömundarfjörð.
Hlýjast austanlands
Suölægri átt, allt að 13 m/s, er spáö sums staöar vestanlands á
morgun. Skúrir veröa sunnan- og vestanlands en annars skýjað með
köflum. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast austanlands.
Fostudagu
Vindur:
5-7 m/í
Hiti S°til 18“
Vindur:
5-7 m/s i
Hiti 10" til 18° * « t
Hæg sv-átt, súld vestan
tll, skýjaö meö kóflum.
Síödeglsskúrlr á Norð-
austurlandl. Rlgnlng
sunnanlands um kvöldlö.
Hitl 8-18 stlg, na.
Fremur hæg suðlæg og
síöar breytileg átt. Víöa
rigning, þó slst
noröaustanlands. Hlti 10
tll 15 stlg, hlýjast noröan
tll.
N-átt, um 10 m/s vestan
tll en annars hægari.
Rignlng noröanlands en
iéttir tll sunnanlands. Hlti
7 tll 15 stig, hlýjast
sunnanlands.
AKUREYRI rigning og súld 10
BERGSSTAÐIR alskýjaö 10
BOLUNGARVÍK alskýjaö 8
EGILSSTAÐIR 10
KIRKJUBÆJARKL. þokuruðningur 9
KEFLAVÍK súld 8
RAUFARHÖFN alskýjaö 8
REYKJAVÍK súld 8
STÓRHÖFÐI alskýjaö 9
BERGEN léttskýjaö 16
HELSINKI léttskýjað 22
KAUPIVIANNAHÖFN léttskýjaö 18
ÓSLÓ þokumóöa 17
STOKKHÓLMUR 23
ÞÓRSHÖFN rigning 10
ÞRÁNDHEIMUR þoka 16
ALGARVE heiöskírt 19
AMSTERDAM léttskýjaö 18
BARCELONA léttskýjaö 21
BERLÍN léttskýjaö 19
CHICAGO skýjaö 20
DUBLIN rigning 14
HALIFAX skýjaö 13
FRANKFURT léttskýjað 17
HAMBORG léttskýjaö 18
JAN MAYEN súld 3
LONDON léttskýjað 21
LÚXEMBORG skýjaö 17
MALLORCA heiöskírt 22
MONTREAL skýjaö 17
NARSSARSSUAQ rigning 6
NEWYORK alskýjaö 22
ORLANDO heiöskírt 25
PARÍS skýjað 20
VÍN alskýjaö 15
WASHINGTON alskýjaö 21
WINNIPEG 11