Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2001, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2001, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001 DV Fréttir Mikil þorskgengd á grunnslóð út af Vestfjörðum: Brjálæði að gefa stein- bítsveiðar frjálsar - segir Benedikt Páll Jónsson, skipstjóri á Bjarma BA „Það mikið af þorski á grunnslóð- inni hérna út af Vestfjörðum. Þetta er sama sagan og þegar Hafró minnkaði þorskkvótann í 150.000 tonn, það hefur ekki í annan tíma verið meira af þorski hérna og það árið. Það hefur aldrei verið sam- ræmi á milli ráðlegginga þeirra og þorskgengdar. Við skruppum út núna af því að það vantaði sex tonn og tókum eitt kast með sex tonnum á stuttum tíma,“ segir Benedikt Páll Jónsson, skipstjóri á dragnótabátn- um Bjarma BA, þar sem hann var að landa vænum þorski á Flateyri. Fiskurinn fer að hluta til vinnslu á staðnum auk þess sem hluti aflans er fluttur til Keflavíkur þar sem út- geröin lætur vinna fyrir sig svokall- aðan flugfisk, sem fluttur er með flugi á neytendamarkaði erlendis. „Vegna þessa erum við með ein- hvern besta frágang á afla sem þekkist hér við land. Skömmu eftir að fiskurinn er kominn um borð er búið að kæla hann niður í frost- mark sem margfaldar gæði hráefn- DV-MYND GS Sklpstjórinn Benedikt Páll Jónsson, skipstjóri á Bjarma BA, í brúarglugganum. ★ isins og þýðir um leið hærra verð,“ segir þessi aflasæli skipstjóri. Benedikt er alinn upp við feng- sælustu steinbítsmið við Islands- strendur, út af sunnanverðum Vest- fjörðum. Þegar talið berst að þeirri ákvörðun sjávarútvegsráðherra að gefa steinbitsveiðar algjörlega frjálsar verður hann ómyrkur í máli. Enda telur hann að niður- skurður á öðrum aflaheimildum og síhækkandi verð á leigukvóta muni leiða til þess að gengið verði mjög nærri stofninum. „Ég geri ráð fyrir að við reynum við steinbítinn þegar sóknin í hann verður orðin algjörlega óheft. Það er algjört brjálæði að losa hann undan kvóta. Það hefði verið nær að kvóta- setja trillumar því þær munu ekk- ert komast að til að fiska á næstu steinbítsvertíð. Svæðið verður fullt af stórum útilegulínubátum og tog- urum sem sjálfsagt eyða stofninum. Það segir sig sjálft að allir munu reyna að fiska steinbítinn eins og þeir geta. -GS Veðurklúbburinn á Dalbæ: Gott veður verður áfram — en ívið vætusamara DV, DALVÍK: Klúbbfélagar geta ekki verið ann- að en sáttir við júníspána sem gekk mjög vel upp, svo vel að við fengum þessa dýrindistertu frá Dalvíkur- byggð og færum við þeim og öllum sem sendu okkur blóm og kveðjur þann 21. júní okkar bestu þakkir, segja þeir veðurklúbbsmenn á Dal- vík þegar þeir kynna nýja spá júlí- mánuðar. Klúbbfélagar eru á því að veðrið verði svipað og verið hefur seinni part júni, þó hlýrra og meiri rign- ing, sem betur fer fyrir gróður og jörð, og ætti að vera svo að minnsta kosti fram að 20. júlí. Upp úr því gæti hann orðið vinda- og vætusam- ari allavega i einhverja daga, en ekki neitt stórvægilegt. Einn í klúbbnum var á því að leiðindaþokan sem hefur gert fólki lífið leitt geri það eitthvað áfram. Með nýju tungli gæti vindáttin orð- ið önnur, kannski meira sunnan eða suðvestan, og þetta gæti þýtt að veðrið á suðvesturhorninu verði ekki neitt sérstakt. „En við vonum að þetta standist ekki og sem flestir fái að njóta sumarblíðu," segir Veð- urklúbburinn á Dalbæ. Tunglið kviknar 20. júlí, þann dag er bæði Þorláks- messa að sumri og Margrétar- messa hin síð- ari. Tunglið kviknar i vest- norðvestri og lítur ágætlega út með það. Þó gæti það skipt máli hvernig hann tekur tunglinu. Hundadagarnir byrja 13. júli á Margrétar- messu hinni fyrri og við mælum með að fólk taki eftir veðri þann dag og svo er bara að vona að það verði gott og þar af leiðandi allir hundadagarnir. Oft er talað um að það verði jafnan breyting á veðri með þeim. Veðrið þennan dag gæti líka skipt sköpum Veðurspámenn Veðurklúbburinn á Dalvík heldur úti reglulegum veöurspám. Félagarnir gera ráð fyrirgóðu veðri áfram en þó reikna þau með meiri vætu. í sambandi við haustið. Ef hann rignir boðar það vott haust. 25. júlí er Jakobsmessa, ef þurrt er og bjart þann dag þá boðar það að það verði góð nýting á heyjum. En ef bjart sólskin er allan daginn verð- ur næsti vetur harður og kaldur. -hiá Stefnt aö tíföldun á barraeldi í Skagafirði Veltan úr 30 í 500 milljónir króna Hjá fiskeldisfyrirtækinu Máka á á hlýsjávarfiskinum barra, er nú að Sauöárkróki, sem sérhæfir sig i eldi hefjast slátrun en ekki er enn Uppsveifla Barraeldi gefur vel af sér ef marka má þá uppsveiflu sem er hjá Máka. ákveðið hvort slátrað verður hægt og rólega eftir þörfum og slátrunin þá látin ná yfir allt árið eða hvort henni verður lokið á tiltölulega stuttum tíma. Nú er um 50 tonn af barra komin í sláturstærð en mark- aðssvæðið er fyrst og fremst Bret- land. Nú fást um 600 krónur fyrir kílóið i skilaverð sem er ásættanlegt að mati framkvæmdastjórans, Guð- mundar Arnar Ingólfssonar líffræð- ings. Fiskurinn sem nú er slátrað er mjög blandaður, frá 400 upp í 800 grömm. Ársvelta Máka er nú um 30 milljónir króna og fer stigvaxandi. „Það stendur til að fara að beina sjónum að innanlandsmarkaðnum kerfisbundið með þvi að ræða við forsvarsmenn veitingahúsa og fisk- búða og bjóða þeim barra til kynn- ingar. Nú getum viö boðið fiskinn í litlum og stórum skömmtum með þessari nýju aðstöðu sem viö höfum komið okkur upp í Fijótum. Við fluttum fiskinn þangað fyrir ári og þar fer nú fram allt uppeldi en seiðaeldi fer áfram fram á Sauðár- króki. Auðvitað útheimtir það auk- inn mannafla að vera svona á tveimur stöðum en í dag starfa sjö manns hjá Máka,“ segir Guðmund- ur Örn Ingólfsson. Fyrir nokkrum árum varð stöðin fyrir miklum skakkafólllum, bæði vegna rafmagnsleysis og eins vegna þess að allt of mikið súrefni var í vatninu. Nú er búið að sníða þá vankanta af ásamt fleirum með auk- inni tækni og þjálfun á mannskap. Verið er að ráðast í mjög mikla stækkun á fyrirtækinu og stefnt á tíföldun framleiðslunnar og yrði ársveltan þá um 500 milljónir króna. -GG Umsjón: Gylfi Kristjánsson netfang: gylfik@ff.is Jón Steinar hissa Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður, sem hefur far- ið með mál þriggja stjómarmanna í Lyfjaverslun íslands sem barist hafa gegn þeirri ákvörðun meiri- hluta stjórnarinn- ar að kaupa Frum- afl ehf., er undr- andi á þeim skyndilega áhuga meirihluta stjórnar Lyfjaverslunarinn- ar að vilja slíðra sverðin og ná sáttum. Jón Steinar hefur lýst því yfir að það sé harka- legt að beita valdi (meirihlutavaldi væntanlega) til að ná fram vUja sín- um eins og meirihluti stjórnar Lyfja- verslunarinnar gerði en koma síðan og bjóða sættir. Væntanlega má taka undir með lögmanninum og spyrja hvers vegna hlutimir vom ekki gerðir i öfugri röð. Erfitt hjá Árna Árni M. Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir. Ekki er nóg með að Héraðsdómur Reykjavíkur hafi hafn- að þeirri kröfu ríkisins sem lögð var fram að undir- lagi hans, að máli ASÍ gegn ríkinu vegna lagasetning- ar á sjómenn væri vísað frá, heldur snupraði dómurinn ríkið og dæmdi því að greiða óvenjuháan málskostnað. Hitt er svo að samkvæmt nýrri skoð- anakönnun er Ámi sá ráðherra sem landsmenn virðast óánægðastir með og í könnuninni sögðust innan við 50% kjósenda Sjálfstæðisflokksins vera ánægðir með störf hans í ráðu- neytinu. Það er reyndar ekki ný saga að sjávarútvegsráðherra verði að axla ábyrgð á ýmsum hlutum sem ekki eru í hans valdi að ráða við, eins og t.d. ástand fiskistofna og hvað er æskilegt að veiða mikið úr þeim. Ein með öllu Akureyringar hafa nú ákveðið að halda ekki lengur hátíð um verslun- armannahelgi undir nafninu Halló Akureyri enda hefur misjafnt orð farið af þeirri hátíð í ár- anna rás. Nú verður blásið til ijölskyldu- hátíðar undir heitinu Ein með öllu í þess stað. Hvað þetta „allt“ er er hins vegar ekki á hreinu en vonandi er t.d. notkun eiturlyQa ekki þar innifalin en slíkt þótti setja svartan blett á „hallóið" fyrir 2-3 árum sér- staklega. Það hverjir standa að Einni með öllu virðist ekki alveg á hreinu, gjarnan er rætt um svokallaða hags- munaaðila í því sambandi en samt virkar það eins og Ein með öllu sé hálfgerður bastarður. Vonandi fer ekki fyrir hátíðinni eins og þeirri sem haldin var á Melgerðismelum í Eyjafirði í lok níunda áratugarins undir sama nafni en „hagsmuna- aðilar" þeirrar hátiðar enduðu fyrir dómstólum eftir að hafa reynt að sleppa við að greiða lögboðin gjöld af tekjum hátíðarinnar. Þungu fargi létt Yfirleitt er það þannig þegar knatt- spyrnulið tapar leik að þjálfarinn er óánægður en þó er það ekki algilt. Þannig var þjálfari kvennaliðs KA/Þórs og KS mjög ánægður eftir 0-6 tap á heimavelli gegn ÍBV um síðustu helgi og var engu líkara en liö hans hefði unnið stórsigur. Hann sagði stelpumar sínar hafa ver- ið að uppskera eftir mikið puð á æf- ingum, ieikurinn hafi verið stórt skref hjá liði hans og svo kiykkti hann út með að segja að þungu fargi væri af sér létt!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.