Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2001, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2001, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001 DV 7 Fréttir Umdeild efnistaka Frá Mývatni þar sem kísilgúr hefur lengi valdiö deilum. Þrír bændur við Mývatn: Kæra ríkið vegna kísilgúrs Þingfest hefur verið í Héraðs- dómi Reykjavík- ur mál þriggja bænda í Mývatns- sveit gegn ríkinu, vegna fyrirhug- aðrar kísilgúr- töku úr Syðri- Flóa Mývatns. Bændurnir eru Þorgrimsson. Kári þorgrímsson í Garði, Eysteinn Sigurðsson Arnar- vatni og Gylfi Yngvason á Skútu- stöðum. „Það sem við viljum fá fram er ógilding á úrskurði umhverfisráö- herra vegna stjórnsýslukæru í framhaldi af úrskurði skipulags- stjóra varðandi umhverfismat á fyr- irhugaðri kisiigúrtöku úr Syðri- Flóa frá því í haust," segir Kári Þor- grímsson, einn þremenninganna. „Meginatriðið er þó túlkun um- hverfisráðherra á varúðarreglunni sem okkur finnst vera alveg snúið viö miðað við það sem talið hefur verið eðlilegt. Síðan finnst okkur sem allt mat á áhrifum kísilgúr- námsins hafa verið framselt til framkvæmdaaðilans þannig að hann hafi í rauninni frjálsar hend- ur. Þetta eru meginatriðin auk ým- issa formsatriða og okkur finnst að ef hægt er að koma svona hlutum í gegnum umhverfismat sé það held- ur léttvæg aðferðafræði." Kári segir aðra aðalkröfu þre- menninga að samkomulagið um kís- ilgúrnám frá árinu 1993. Hann segir þá félaga vera með gott mál í hönd- unum ella hefðu þeir ekki farið af stað í þennan málarekstur. -gk. Fallegur málari aö verki Góöviörisdagar sumarsins er sá tími sem margir nota til aö mála hús og híbýli. Elsa Hlín Einarsdóttir var aö undirbúa málningu á Tónlistarskól- anum á Dalvík er DV átti leiö hjá. Kári Innan við 70% bílbeltanotkun - kemur mönnum á óvart Aöeins 69% ökumanna nota bíl- belti og 80% farþega í framsæti. Þetta eru helstu niðurstöður könn- unar sem umferðaröryggisfulltrúar Slysavamafélagsins Landsbjargar og Umferðarráðs gerðu í sl. viku. Samkvæmt könnuninni þá virðist beltanotkun vera skást í austur- hluta borgarinnar en vesturbæing- ar eru meiri slóðar hvað þetta varð- ar. Bílbeltanotkun úti á landi virðist vera nokkuð almenn úti á þjóðveg- unum en innanbæjar í kaupstöðum vera afskapalega slök. „Þetta ástand kom mér mjög á óvart þegar ég fór að skoða málið,“ sagði Kristján Friðgeibsson sem er umferðaröryggisfulltrúi á Reykja- víkursvæðinu. „Ég hafði þá tilfinn- ingu að á milli 80 og 90% ökumanna Spenniö beltin Kristján Friögeirsson segir litla bílbeltanotkun koma sér á óvart. og farþega notuðu bílbelti, en töl- urnar eru allt öðruvísi. Þetta virðist vera eitthvert andvaraleysi sem þessu veldur og áróðurinn fyrir beltanotkun er vísast ónógur. Ég vil mjög gjarnan að áróður fyrir bíl- beltanotkun verði nú aukinn þegar þessar tölur liggja fyrir því allar staðreynir sýna að beltin geta bjarg- að.“ Kristján Friðgeirsson segir að sú hugmynd hafi á sínum tíma verið á íloti að ökumenn sendiferöabíla ættu að vera undanþegnir þeirri skyldu að nota bílbelti. „Það var ekki látið undan þessu, en könnun- in nú sýnir að ökumenn og farþegar á litlum fyrirtækjabílum koma lang- verst út úr þessari könnun. Þessir hópur verður að bæta sig og þar með sitt eigið öryggi." -sbs Framleiösluaukning hjá Laxá: Hefur 60% af innan- landsmarkaðnum Laxá hf. í Krossanesi er tíu ára um þessar mundir en fyrir- tækið var stofnað eftir gjaldþrot ístess. í tilefni af því var boðið til mikillar grillveislu í birgðaskála Laxár sl. föstudag þar sem fjöldi manns, starfsmenn, við- skiptavinir o.fl., fögnuðu þessum tímamótum. Laxá framleiðir fiskeld- is- og gæludýrafóð- ur en fiskeldisfóður hefur verið fram- leitt síðan 1987. Til að tryggja hágæða- fóður eru ávallt notuð fyrsta flokks hráefni. Fram- leiðsla Laxár er mest seld innan- lands, markaðs- hlutdeild þar er um 60%, en einnig hef- ur verið sótt á er- lenda markaði. Velta félagsins árið 2000 var 210 milljónir króna. Vöruþróun er í öndvegi og Laxá leitast við að vera í fremstu röð í framleiðslu á fóðri. Vorið 1997 voru gerðar umtals- verðar tækni- breytingar á verk- smiðju félagsins til þess að unnt yrði að framleiða orkuríkara fóður og mæta þannig kröfum viðskipta- vina. Til fiskeldis er boðið extrúder- að hágæða fóður en Laxá framleið- ir og selur fóður fyrir lax og aðra laxfiska, s.s. bleikju, regnboga- silung og urriða, lúðu og sand- hverfu, sæeyru, þorsk og gælu- dýrafóður en einnig er framleitt gæludýrafóður fyrir ketti og hunda. Kattafóðr- ið heitir Cató og var þróað í sam- starfi við Iðn- tæknistofnun í verkefninu „Vöru- þróun 94“. Mark- aðssetning á Cató hófst í nóvember 1996 og hefur það fengið mjög góðar viðtökur á markaðinum. Hunda- fóðrið hefur einkum verið selt til Danmerkur. -GG DV-MYND BRINK Valgerður Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Laxár, viö stæöu af framleiöslu fyrirtækis- ins sl. föstudag en þá var haldin grillveisla vegna 10 ára afmælis fyr- irtækisins. Á laugardeginum var öllu fóörinu skipaö um borö í skip til útflutnings til Færeyja. Aðsóknarmet að sundlauginni í Borgarnesi: Lokuðu lauginni vegna mannmergðar DV, BORGARNESI:______ Margir nutu veð- urblíðunnar í Borg- arfirði um síðustu helgi og er talið að um fimm þúsund manns hafi verið í Húsafelli um helg- ina. Eitthvað af þessu fólki hefur skellt sér i sund í íþróttamiðstöðina í Borgamesi því að í hitanum og blíðunni á laugardag var sleg- ið aðsóknarmet að DV-MYND INDRIÐI JÖSAFATSSON. íþróttir út um allt Eins og sjá má var þaö gríöarleg- ur fjöldi sem nýtti sér góöa veör- iö í Borgarnesi á laugardag, í sundlauginni, á íþróttavellinum og út um allar trissur, enda sannarlega veöriö til þess. sundlauginni í Borgarnesi. Tæplega enda blíðan 1800 manns komu í sund og þurfti ina mikil. að loka í laugina um tíma vegna mikillar aðsóknar að sögn Indriða Jósafatsson- ar, íþrótta- og æsku- lýðsfulltrúa Borgar- byggðar. Þessa sömu helgi fór einnig fram Bún- aðarbankamót í knattspyrnu sem lað- aði að sér fjölda ungra drengja, stúlkna og foreldra þeirra. Mótið tókst í alla staði mjög vel Borgarnesi alla helg- -DVÓ Utankvótaafli, risafiskur flæktist í línuna: Sex metra hákarl á línu DV. BOLUNGARVÍK: Albert Þór Jónsson hefur nú í vor gert út á grálúðu á bát sínum, Bryn- dísi ÍS. Nú fyrir skömmu, þegar hann var að draga línuna norður af Homi, flæktist stór hákarl í línuna. Albert batt hákarlinn rækilega við bát sinn og hélt til hafnar í Bolung- arvík með feng sinn. „Ég fann strax að það var eitt- hvað þungt á. Það var þó ekkert erfitt að draga hann,“ sagði Albert og lét ekki mikið yfir þessum auka- afla sínum. Fyrirtæki Óskars Friðbjarnarson- ar í Hnífsdal, Harðfiskur og hákarl, keypti fiskinn af Alberti, en hann var um það bil sex metrar á lengd, hin vænsta skepna. Ekki reyndist unnt að vega hákarlinn í Bolungar- vík en talið var að hann vægi ekki minna en 1000 kíló. -VH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.