Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2001, Síða 15
14
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2001
19
Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aöstoóarritstjórar: Jónas Haraldsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson
Fróttastjóri: Birgir Guðmundsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550, Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Fréttaþjónusta á Netinu: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dvdreif@dv.is
Akureyri: Strandgata 31, sími: 460 6100, fax: 460 6171
Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf.
Plötugerö: ísafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverð á mánuöi 2050 kr. m. vsk. Lausasöluverð 190 kr. m. vsk., Helgarblað 280 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgialds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
íslenskur skepnuskapur
íslendingar þurfa reglulega að láta eins og skepnur. Þetta
fullyrti læknir í Rangárþingi um síðustu helgi eftir að hafa
horft upp á þjóð sína ná nýjum botni í skrilslátum í útilegu
í Þórsmörk. Ekki verður efast um orð þessa læknis, sem
stóð vaktina frá kvöldi laugardags fram á miðjan sunnudag,
samtals 18 tíma. Tugir manna leituðu aðstoðar hans og var
ljótt að sjá hvernig fólk var farið. Læknirinn, Ólafur Árni
Sveinsson, talar heldur enga tæpitungu í DV á mánudag.
„Menningarstigið var komið ansi langt niður þarna um
nóttina og hrottafengin slagsmál voru mörg. Það fylgir kúlt-
úrnum á íslandi að fólk þarf að láta eins og skepnur við og
við til þess að fá útrás.“ Ólafur læknir segir eftir helgar-
reynslu sína að endurskoða verði samkomur þessa rænu-
litla fólks. „Mikil hætta fylgir því ef fólk hópast saman ölv-
að á svæði eins og Þórsmörk. Þar eru gil og klettar sem eru
slysagildrur fyrir fullt fólk sem finnur oft hjá sér hvöt til að
fara í gönguferðir hingað og þangað.“
Þetta eru orð í tíma töluð. Og vert er að staldra við mein-
ingu þeirra. Skrílslæti og skepnuskapur hefur vissulega
fylgt íslenska fylliríinu í árafjöld. Subbuskapur og allar teg-
undir af tillitsleysi hefur verið partur af uppeldi þjóðarinn-
ar, sem hefur fremur talið það sér til kosta en lasta að slást
við mann og annan svo aðrir sjái til. Fáar ef nokkrar þjóð-
ir ganga verr um landið sitt, enda virðast margir lands-
menn halda að móðir náttúra taki til eftir þá, rétt eins og
þeir hafa alist upp við á heimilum mæðra sinna.
íslenska þjóðin er ekki sú agaðasta í heimi hér. Þar er
langur vegur frá. Stundum má vart á milli sjá hvort hér á
landi búi þjóð eða samsafn tæplega 300 þúsund einstak-
linga. Samskipti þeirra eru gjarna þóttafull. Fólki sést á tíð-
um ekki fyrir í einstaklingshyggju sinni og dramblæti. Það
fer sínu fram og líður ekki annað en það sé fremst í hverri
biðröð. Svona þjóð hagar sér eins og henni sýnist, því hún
hugsar allt út frá eigin sinni. Svona þjóð hugsar og gerir
allt í skorpum og rokum, þá því hentar.
Þessu til viðbótar er stíf og stöðug víndrykkja. Lengi vel
á síðari árum hefur það verið tíska í umræðunni að kenna
hörðum flkniefnum um hvernig komið er fyrir þjóðinni.
Sagt er að amfetamín og e-töflur séu að leggja miðborgina í
rúst. Þetta er einföldun, ef ekki hrein vitleysa. Óhófleg vín-
drykkja skiptir þar mestu. Stífu helgarfylliríin eru enn til
staðar. Og víndrykkja eykst hröðum skrefum. íslendingar
bættu ofan í sig einni milljón lítra af víni á síðasta ári og
settu þá íslandsmet í áfengisneyslu.
íslendingum virðist ekki tamt að fara rólega með vín.
Það er eins og þeir lesi það út úr umbúðunum að innihald-
ið eigi að drekkast hratt. Æðibunugangurinn, nýjungagirn-
in og neysluhraðinn eru óvíða meiri en á Islandi. Kappið er
á öllum sviðum. Vera kann að þjóðin sé að reyna að vinna
upp fámenni sitt með því haga sér með þessum hætti; ekki
einasta vinni hver maður á við tvo, heldur hagi sér á allan
hátt á við tvo, þar á meðal í drykkju, ófyrirleitni og dólgs-
skap. Þjóðin sé í reynd tvöföld.
Fáar ef nokkrar þjóðir hafa lifað eins hraðar breytingar
og íslendingar á síðustu öld. Við upphaf þeirrar aldar
kunni þjóðin hvorki að leggja vegi né byggja hús. í lok
hennar stóð hún í fremstu röð þjóða í viðskiptum og at-
hafnalífi. En það er eins og þessi litla þjóð þurfi sína útrás
af og til, hún geti ekki stillt sig og verði að losa um höml-
urnar, losa um eðlið. Líklega hitti læknirinn í Rangárþingi
naglann á höfuðið: Hér þarf fólk reglulega að láta eins og
skepnur. Slíkt sé þjóðareðlið. .
Sigmundur Ernir
DV
Skoðun
Tyggingavernd og lánshæfni íbúða
Kjallari
Jóhanna
Siguröardóttir
alþingismaður
Breyting á brunabóta- og
fasteignamati hefur eðli-
lega valdið miklum óróa og
óvissu hjá fasteignaeigend-
um, enda hvílir á þessum
mötum tryggingavernd
húseigenda og lánshæfni
eigna þeirra, auk þess að
vera álagningarstofn fyrir
ýmsa skatta á heimilin.
Fráleitt er að þessar
breytingar leiði til skatta-
hækkana eins og á fast-
eignagjöldum og eignar-
skatti eða skerði vaxtabæt-
ur. Ríki og sveitarfélög eiga vafnings-
laust að létta þeim kvíða af heimilun-
um í landinu og gefa út að þau muni
falla frá öllum skattahækkunum vegna
þessara breytinga, sem eru um 5 millj-
arða króna. Borgarstjóri hefur reyndar
þegar gert það og skoðun efnahags- og
viöskiptanefndar er skýr um það sama.
Enn vantar skýringar
Fasteignamat hefur ekki getað
skýrt lækkanir sem orðið hafa á
brunabótamati umfram þær afskriftir
sem lagðar voru til grundvallar breyt-
ingunni en fullar afskriftir geta hæst-
ar orðið 26% en alltof algengt virðist
vera að eignir hafi lækkað í bruna-
bótamati um 30-50%. Sömu-
leiðis vantar i mörgum tilvik-
um skýringu á lækkun á fast-
eignamati sem samkvæmt
skilgreiningu Fasteignamats
ríkisins á að endurspegla
gangverð eigna. Sú skilgrein-
ing er beinlínis röng, því
óeðlilegt er að fasteignamat
verðleggi eignir.
Markaðsverö eigna hlýtur
fyrst og síðast að ráðast af
framboði og eftirspurn. Ótækt
________ er líka ef rikisvaldið ætlar
áfram að styðjast við bruna-
bótamat í lánsviðskiptum. Bruna-
bótamatið hefur þegar skekkt veru-
lega verðmyndun eigna og er á góðri
leið með að eyðileggja húsbréfakerf-
ið. Þaö sést best á því að vegna lágs
brunabótamats hefur fjöldi fólks ein-
ungis fengið lánað 40-45% af kaup-
verði eigna í húsbréfum en ekki
65-70% eins og lög gera ráð fyrir,
jafnvel þótt fólk hafi haft til þessa
greiðslugetu. Þannig er fólki beint í
miklu mæli í dýrari lán í bankakerf-
inu.
Tryggingavernd vegna
brunatjóns
Efnahags- og viðskiptanefnd Al-
„Lögboðnar brunatryggingar og grundvallarregla í vá-
tryggingarétti gera ráð fyrir að tjónþoli eigi að vera
jafnsettur fyrir og eftir brunatjón. Fasteignamat ríkis-
ins hlýtur að bera ríka ábyrgð ef matsgerðin er of lág
og með því sé verið að skapa falska tryggingavernd. “
þingis hefur falið lögfræðisviði Al-
þingis að skoða hvort breytingar
verði á þeirri tryggingavemd sem
brunabótamatið á að veita frá því
Vistvænt og sjálfbært
Þessi hugtök eru mikið notuð en
illa skilgreind og syngur þá hver með
sínu nefi. Sjálfbær fiskveiði er
þekktasta dæmiö en þá er átt við
veiðiálag sem tryggir varanlegan há-
marksafrakstur fiskstofns sem þannig
helst í jafnvægi tU frambúðar. Hins
vegar er sóknin sjálf mjög mismun-
andi „sjálfbær" ef tekið er mið af
orkunotkun og veiðikostnaði öllum
svo ekki sé minnst á brottkast. Þá
kemur önnur mynd í ljós. Smábátar
(undir 10 t) sem sækja stutt á heima-
mið, nota minnst eldsneyti miðað við
hvert kíló af afla. ísfisktogarar eyða
þrefalt meiri orku og frystitogarar
fimmfalt meira en smábátar.
Ef oliuverð tvöfaldast, sem er þó
ólíklegt í bráð, kostar eldsneyti frysti-
togara um 60 kr. á hvert hráefniskíló
miðað við núverandi veiðimynstur,
en það myndi augljóslega setja rekstr-
inum þröngar skorður; þó er sú orka
ótalin sem fer í smíðar og viðhald
skips og búnaðar. Þessi veiðimáti er
mjög orkufrekur „lúxusbransi“ i
Kjallari
- Jr g
Igr #.,2£*s
Jónas Bjarnason
efnaverkfræöingur
„Þegar rætt er um notkun vetnis sem eldsneytis eða
orkumiðlara á bíla verður að taka einnig tillit til allr-
ar orkunotkunar til fjárfestinga og reksturs. Ef
grunnorka (olía, kol, gas) hœkkar í verði, hœkkar allur
rekstrarkostnaður í tœkniiðnaði einnig. “
framleiðslu verðmætra af-
urða; hann getur verið
hættulegur að þvi leyti til,
að hinn hái rekstrarkostn-
aðar getur valdið tilhneig-
ingu til að íleyta rjómann
ofan af því sem kemur um
borð; starfsemin er ósjálf-
bær og mjög óvistvæn.
Orkuverð alls staðar
undirliggjandi
Þegar nánar er að gáð
kemur í ljós að orka, jarð-
efnaeldsneyti aðallega á Vesturlönd-
um, drífur áfram mestan hluta at-
hafnasemi manna, akstur farartækja,
matvælaiðnað, hitun húsnæðis, efna-
framleiðslu, framleiðsluiðnað og efna-
hagsstarfsemi í viðum skilningi. í þró-
unarlöndum er það sólin sem drífur
nánast allt með vexti matvæla. Mjög
dýr varningur eins og hátækjiibúnað-
ur kostar mjög mikla orku ef allt er
tínt til.
í mörgum tilvikum endurspeglar
verð á varningi einnig orkukostnað
við framleiðslu hans og dreifmgu.
Þess vegna felst orkunotkun í ílug-
véla- og frystitogararekstri, fyrir utan
eldsneytið sjálft, einnig í málmvinnsl-
unni, hönnuninni, tilraununum,
launakostnaðinum o.s.frv. Þetta er
augljóst ef rýnt er í samband orku-
verðs og vísitalna í hagkerfum þjóða.
Þegar rætt er um notkun vetnis
sem eldsneytis eða orkumiðlara á bíla
verður að taka einnig tillit til allrar
orkunotkunar til fjárfestinga og rekst-
urs. Ef grunnorka (olía, kol, gas)
hækkar í verði, hækkar allur rekstr-
arkostnaður í tækniiðnaði einnig.
Þótt margir séu skotnir í vetni
vegna þess að það mengar ekki á notk-
unarstað, er sú leið nú um
tvisvar til þrisvar sinnum dýr-
ari en notkun dísilvéla. Ef olía
og kol hækka þrefalt í verði,
verður vetnisleiðin áfram ca
tvisvar sinnum dýrari; hún
verður hvergi nærri vistvæn.
Skýringin er sú að vetni hefur
herfilega vonda geymslueigin-
leika og allur tæknibúnaður
kostar orku og mengun í fram-
leiðslulöndunum.
Litiö til landbúnaðar
Skemmtilegt viðtal var haft nýlega
við ungan vísindamann um velferð
dýra í tengslum við vaxandi kröfur um
framleiðsluafköst í landbúnaði. Hann
sagði að sauðfjárræktin væri mjög
sjálfbær, en það orkar tvímælis því
hvert kíló lambakjöts þarfnast einnar
oliueiningar (eldsneyti og áburður);
það er 25% nýting orku miðað við vetr-
arfóðrun stofníjár. Á sumrin gengur
féð til beitar aðallega á óræktuðu
landi, en gróður er víðast hvar í vörn
eða í afturfor. Starfsemin er því ekki
vistvæn né sjálfbær þvi hún kostar
mikla aðflutta orku og veldur umhverf-
isspjöllum. Lýsingarorðið vistvænn er
tæpast tO nema í miðstigi, þ.e. eitthvað
er vistvænna en annað.
Það er illa búið að vísindamönnum
á íslandi. Þeir hafa bara vettvang
meðal jafningja til að viðra niðurstöð-
ur sínar og fá viðurkenningu. í stjórn-
kerflnu eru „kúnnar" eða móttakend-
ur niðurstaðna oft aðilar sem hafa
ekki áhuga á niðurstöðum ef þær eru
álitnar vondar. HagsmunaaðUar, t.d. í
landbúnaði, hafa ekki áhuga á þeim
rannsóknum sem sýna að gróður er í
afturför í landinu.
Jónas Bjarnason
Spurt og svaraö
Ertu sammála því að tekið verði 20 mittjarða króna lán til að greiða niði
Gudjón Ármann Eyjólfsson,
skólastjóri Stýrimannaskólans:
Gœta sjálfstœðis
þjóðarinnar
„Ég held að það þurfi að fara
mjög varlega í slíkar lántökur.
Þetta eru náttúrlega mjög stór-
ar tölur en ef þetta stöðvar verðbólguþróunina i
landinu þá er kannski verjandi að gera þetta, en
að mjög yfirveguðu ráði. Ef þetta stöðvar verð-
bólguþróunina í landinu að mati hagfræðinga
þá er þetta tU þess vinnandi. Ég minni á að það
verður borga skuldimar, líka þessa 20 milljarða
króna ef það lán verður tekið. Er búið að reikna
út vaxtabyröina? Skuldir íslendinga hafa alltaf
verið í hærri kantinum og ef við ætlum að gæta
sjálfstæðis okkar sem þjóðar verðum við að
gæta þess að spenna bogann ekki of hátt.“
Jón Bjamason,
þingmadur VG:
Alvarleg sjúk-
dómseinkenni
„Viðskiptahallinn og skulda-
staðan erlendis eru hin alvar-
legu sjúkdómseinkenni rangrar
stefnu í efnahagsmálum og þá feUur gengiö fyrr
eða síðar. Ríkið hefur greitt niður innlendar
skuldir á síðustu árum eins og fjármálakerfi
landsins hefur þolaö. Erlendar lántökur til að
greiða niður innlendar skuldir er eins og
sprauta af morfíni. Þegar áhrifm dvína elnar
sjúklingnum sóttin með auknum þunga á ný.
Það er dapurt ef ASl hefur þetta til málanna að
leggja. Við þurfum tU framtíðar aukinn jöfnuð í
samfélaginu og efla útflutningsatvinnuvegina en
ekki prenta fleiri innstæðulausa seðla.“
Guðmundur Hállvarðsson,
þingmaður Sjálfstœdisflokks:
Frekari rök
verkalýðsforystu
„Mér finnst að það þurfi að
koma frekari rök frá verkalýðs-
forystunni fyrir þessu og frek-
ari tölulegur útreikningur á hagkvæmninni,
meiri en við höfum séð nú þegar, og áður en ég
svara þessu játandi. Ég tel að við þurfum að
skoða hvaða önnur áhrif þetta hefur heldur en
aðeins styrkingu á krónunni. Hvaða efnahags-
legu áhrif hefði þetta í víðara samhengi. Hafa
aörir þættir hins viðskiptalega umhverfis verið
skoðaðir ef þetta yrði gert?“
sem var fyrir breytinguna. Einnig á
lögfræðisvið að svara þeirri spurn-
ingu hvort ríkið væri skaðabótaskylt
ef til brunatjóns kæmi og tjónþolar
væru ekki jafnsettir fyrir og eftir
brunatjón.
Lögboðnar brunatryggingar og
grundvallarregla í vátryggingarétti
gera ráð fyrir að tjónþoli eigi að
vera jafnsettur fyrir og eftir bruna-
tjóii. Fasteignamat ríkisins hlýtur að
bera ríka ábyrgð ef matsgerðin er of
lág og með því sé verið að skapa
falska tryggingavemd. Ekki síst i
þeim tilvikum þar sem stofnunin
hefur eftir lagabreytinguna 1999,
sem heimilaði að taka tillit til af-
skrifta, hækkað verulega brunabóta-
matið og nú er af þessari sömu stofn-
un skyndilega lækkað aftur um
margar milljónir.
Áður en Alþingi sleppir hendi af
málinu verður Fasteignamat ríkisins
og tryggingafélögin að sýna þaö
svart á hvítu að þeir sem lenda í
brunatjóni verði jafnsettir fyrir og
eftir tjón bæði að því er varðar
stærð, gæði og verðmæti eignarinn-
ar. Sömuleiðis verður ríkisvaldið að
falla alveg frá því að miða lánavið-
skipti við brunabótamat.
Jóhanna Sigurðardóttir
mim
Ummæli
Logandi landshluti
„Suðm’land logaði í
brennivínsóeirðum alla
helgina. Og þá riQaðist
þetta upp: Fyrir nokkrum
vikum reið mikil alda
hneykslunar og vandlæt-
ingar yfir samfélagið vegna meintrar
misnotkunar á börnum í auglýsinga-
skyni. Harðorðar ályktanir bárust frá
félögum, greinar birtust í blöðum og svo
framvegis og svo fór að auglýsingin sem
uppnáminu olli var tekin úr umferð.
Þetta var bjórauglýsing sem þóttist ekki
einu sinni vera pilsnerauglýsing. Hún
sýndi nokkra stráka með trésverð og
leikur þeirra berst inn í garðinn hjá
brjáluðu konunni, minnir mig. Þetta er
minning. Því nú kemur klipp. Við sjá-
um að þetta eru sömu mennirnir og
skiljum á augabragði að hér eru æsku-
vinir að rifja upp skemmtilegar minn-
ingar úr bernsku. Bjór er þarna settur í
samband við leiki bernskunnar, sak-
leysi hennar, tímaleysi og litlu stórtíð-
indin, Paradís bernskunnar. Og það er
ófyrirgefanlegt."
Guömundur Andri Thorsson á pressan.is.
Skylda stjórnvalda
„Samkvæmt lögum um tóbaksvamir
sem gilt hafa allt frá árinu 1996 er
bannað að selja börnum og unglingum
tóbak. Á undanfórnum árum hafa
kannanir ítrekað sýnt að því miður
heyri það til undantekninga að útsölu-
staðir tóbaks hafi virt þetta ákvæði tó-
baksvarnarlaganna og á milli 70 og
80% útsölustaða tóbaks hafa selt börn-
um og unglingum tóbak. Eitt af lög-
bundnum hlutverkum heilbrigðis-
nefnda sveitarfélaganna er að hafa eft-
irlit með að lögum þessum sé fylgt og
þeim ber ótvíræð skylda til að grípa til
aðgerða vegna þeirra útsölustaða sem
staðnir eru að ólöglegri sölu tóbaks til
barna og unglinga."
Hrannar B. Arnarson á kreml.is.
vNKSSeÉMvAN
P\SL BV lRi?UKe nuoif. Sepvice^
Tilgangslaust óðagot
Bragi Bergmann,
Fremri-kynningarþjónustu:
Áhrifin á efna-
^ hagslífið
„Ég tel það eðlilegt að þessum
hugmyndum sé ekki hafnað
umyrðalaust, þessar tillögur
ASÍ verði skoðaðar frekar og hvaða áhrif þær
koma til með að hafa á efnahagslífið og gengi
krónunnar sem má alls ekki við því að veikjást
meira en orðið er. Hugmyndin er alls ekki út í
hött, en það verður að skoða þessar tillögur al-
veg gríðarlega vel áður en ákvörðun um lántöku
verður tekin. Ef þetta er leið til þess að styrkja
gengi krónunnar, kemur þetta sterklega til
greina. En ef þetta verður til þess að veikja
gengi gjaldmiðilsins, segi ég nei við tillögum
miðstjórnar ASÍ.“
Ekki hendir það oft í erli
dagsins að þakklátt bros
ókunns samferðamanns ylji
manni um hjartarætur. Það
henti þó á svo ólíklegum
stað sem við kassa i stór-
markaði á annatíma undir
vikulok. Á undan sögu-
manni var kona með stóra
körfu af vörum sem áttu að
duga heimili hennar næstu
vikuna. Varla þurfti að geta
sér þess til að hún væri að
ljúka vinnuvikunni úti í
bæ og heima biðu heimilis-
störfin. Verslunarferðin lendir
þarna á milli og var ekki laust við að
armæðusvipur hvildi yfir konunni.
En kassastúlkan var í fullu fjöri
og þeysti vörunum yfir verðlesarann
og hrúgaðist vikuforðinn upp hinum
megin við kassann. Skrifað var upp
á krítarkvittunina með eldingar-
hraði og svo var hamast við að tína
varninginn í pokana. En það gekk
ekki hraðar fyrir sig en svo að varn-
ingur næsta manns hentist yfir
hauga viðskiptavinarins á undan,
sem var flaumósa að reyna að hafa
undan að forða sínu góssi í plastpok-
ana.
Þá gerðist undrið
Svona uppákoma er svo hvers-
dagsleg og almenn að vart er tekið
eftir henni lengur. En nú brá eitt
fórnarlambið út af vana sínum og
gerði ofboðið að umtalsefni. Af-
greiðslustúlkan var beðin að
hægja ofurlítið á sér og konan
sem var að útrétta milli úti-
vinnu og heimilisstarfa leit
upp úr öllu fuminu, sakbund-
in á svip fyrir að hafa ekki
undan.
En þá gerðist undrið. Mað-
urinn sem átti vörurnar sem
ruddust yfir illa pokaðan
haug konunnar bað hana vin-
samlegst að taka lífinu með
ró. Honum lægi ekki svo mik-
ið á að honum gæfist ekki
tími til að bíða á meðan hún
pakkaði niður sínum viku-
forða og kæmi honum undan
áður en næsta flóð skylli yfir.
Mæðusvipurinn hvarf eins og
dögg fyrir sólu og þakklátt
bros færðist yfir andlitið og
sá sem truflaði vinnureglur
kassastúlkunnar var ekki síð-
ur ánægður innra með sér og
þóttist enda vel hafa gert, þótt
í litlu væri.
Oddur Olafsson
skrifar:
eyðandi á frásögn af svo
ómerkilegum atburði sem
að framan er lýst. En hann
kann að vera eftirtektar-
verðari en sýnist í fljótu
bragði. Hraðinn og óðagotið
á mörgum sviðum nútíma-
lífs er komið á það stig að
engu er likara en að mann-
skepnan sé að reyna að fara
fram úr sjálfri sér í kapp-
hlaupi við tímann sem
alltaf hefur betur þegar upp
er staðið, eða öllu heldur
þegar út af er lagst.
En tíminn er ávallt afstæður. Eft-
irreksturinn við kassa stórmarkaða
er í öfugu hlutfalli við þann óratima
sem viðskiptavinurinn fær til að
valsa um í allsnægtunum og tína í
körfumar sem eru belgmiklar og
taka lengi við. Það er í þágu kaup-
mannsins að verslunin taki sem
allra lengstan tíma því þá eru meiri
líkur á að margur óþarfinn lendi í
körfunni en þegar viðdvölin er stutt.
En þegar verslun er lokið og að
því kemur að borga og pakka niður,
þá er settur á ofboðshraöi til að
losna sem allra fyrst við viðskipta-
vininn út úr versluninni. Kaupmenn
gera sér enga grein fyrir hvað þetta
háttalag er óþægilegt og jafnvel fyr-
irkvíðanlegt að lenda í.
Ekki er við fólkið á kössunum að
sakast. Það hlýðir aðeins fyrirskip-
unum verslunarstjóranna sem fara
að óskum sinna yfirboðara um
vinnubrögðin. Ef óþarflega langar
biðraðir myndast við kassa stór-
markaðanna er það aðeins um að
kenna vondu skipulagi og vitlausum
áherslum í verkstjórn.
Dýrmætiö sanna
Ofboðið i kapphlaupinu mikla við
tímann veldur undantekningarlítið
meira tjóni en nemur ímynduðum
ávinningi. Streitan eykst og heilsan,
líkamleg sem andleg, versnar. Þaö
dæmi sem hér er tekið er aðeins brot
af þeim eftirrekstri og meðfylgjandi
áreiti sem er hluti af daglega lífinu.
Kappaksturinn í umferðinni og
veiklunarkenndur framúrakstur er
hlutskipti ökumanna sem aldrei geta
komið sér saman um hvað sé eðlileg-
ur ökuhraði. Umferðarlög breyta þar
engu um.
Svo aftur sé vikið að því verklagi
sem kassafólkinu í stórmörkuðum er
gert að hlíta skal mjög dregið í efa að
afgreiðsla gangi fljótar fyrir sig með
svona djöfulgangi eða að það stuðli
að neins konar hagkvæmni. Það er
aðeins viðskiptavininum til ama og
versluninni til skammar.
Þótt þakklátt bros í amstri dagsins
teljist seint vera efnahagslegur
ávinningur er það samt meira virði
en fullar og rúmgóðar matarkörfur
sem hent er með heiftarhraði í við-
skiptavininn þegar hann er búinn að
borga. Þess vegna er dýrmætt að
draga aðeins úr hraðanum. - Það
liggur ekki svona mikið á.
Mlðstjórn ASÍ leggur til aö ríkiö taki 15 til 20 milljaröa króna lán til greiöa niöur innlendar skuldir ríkissjóös til aö efla krónuna og draga úr veröbólgu.
Aö fara fram úr
sjálfum sér
Vel má samsinna því að
ekki sé prentsvertu og pappír
„En tíminn er ávallt afstœður. Eftirreksturínn við kassa stór-
markaða er í öfugu hlutfalli við þann óratíma sem viðskipta-
vinurinn fœr til að valsa um í allsnœgtunum og tína í körf-
umar sem eru belgmiklar og taka lengi við. “