Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2001, Qupperneq 24
28
Kvöldganga
á Þingvöllum
1 seinustu fimmtudags-
kvöldgöngu sumarsins á vegum
þjóögarðsins á Þingvöllum mun
Sumarliði ísleifsson fjalla um um
tilurð Þingvalla sem ferðamanna-
staðar. Meðal annars verður rætt
um komu fyrstu ferðamanna til
Þingvalla undir lok 18. aldar.
Gangan hefur klukkan 20 i kvöld og
lagt verður af stað frá útsýnis-
skífunni á Hakinu. Allir velkomnir
og ókeypis aðgangur
Klúbbar
■ BRAVO A THOMSEN Þaö veröur
nóg um að vera á Thomsen í kvöld
þegar breska söngkonan Nicolette
kemur fram á Bravo. Nicolette þessi
hefur sungiö með Massive Attack,
Plald, auk þess að hafa sungiö inn
á fjölda plata hjá Shut up and
Dance labelinu. Nicolette kemur
fram sem plötusnúöur í kvöld en
auk hennar koma fram atingere,
Exos og Árni Valur. Húsiö verður
opnað kl. 22 og þaö kostar 500 kall
Krár
■ DJ KARI A KAFFIBARNUM Eins
og alla fimmtudaga ætlar meistarinn
Kári aö heiöra gesti Kaffibarsins
meö nærveru sinni. Og í raun ekki
bara nærverunni, hann ætlar líka aö
mæta meö plöturnar sínar og spila
uppáhalds tónlistina. Góöar stundir.
Pjass
I TUBORGPJASS I DEIGLDNNI A
AKUREYRI Það veröur heljar djass-
veisla í Deiglunnl á Akureyri í kvöld
kl. 21.30. Kvintett Kristjönu Stef-
ánsdóttur ætlar að sjá um músíkina
og það kostar ekki nema 500 kall
inn.
■ KÓSÍ PJASS Á VÍDALÍN BISTRÓ
OG BAR Hjörleifur Jónsson og
félagar sjá um aö skemmta
gestum á Vídalín bistró og bar í
kvöld og á boöstólnum verður kósí
djass.
Leikhús
■ WAKE ME UP BEFORE YOU GO
GO Söngleikurinn Wake me up
before you go go eftir Hallgrím
Helgason veröur sýndur í kvöld
klukkan 20 í Borgarleikhúsinu. Örfá
sæti laus.
Sýningar
I UOSMYNDASYNING GRUNN-
SKOLANEMA Þessa dagana
stendur yfir I Gerðubergi Ijósmynda-
sýning grunnskólanema sem í vetur
hafa unniö undir handleiöslu
Marteins Sigurgeirssonar. Sýningin
er opin alla virka daga frá klukkan
12 til 17 og verður hún opin til 17.
ágúst næstkomandi.
■ HANPRITASÝNING í STOFNUN
ARNA MAGNUSSONAR Sýningin
sem stendur í Arnagarði viö
Suöurgötu er ætlaö aö minna á
þann hlut sem sagnalist og
bókagerð fyrri alda skipa í vitneskju
okkar um helstu merkisatburði
þjóöarsögunnar. Einnig aö beina
athygii serstaklega aö handritum og
sögum um viðburði og fólk sem fyrir
rúmum þúsund árum ollu
aldahvörfum. Sýningin mun standa
yfir til 25. ágúst næstkomandi og er
opin mánudaga til laugardaga.
Sjá nánar: Lífiö eftlr vinnu á Vísi.is
FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2001
DV
Tilvera
Á sínum tíma tókst Sylvester
Stallone á undraverðan hátt að skrifa
gott handrit að fyrstu Rocky-mynd-
inni og gera sig um leið að stjörnu í
leikararstéttinni. Afrek hans síðan
hafa ekki verið upp á marga fiska
hvort sem um er að ræða leiklist eða
ritlist. Stallone er aftur á móti fæddur
markaðsmaður og hefur sjálfsagt eng-
um með jafnlitla hæfileika tekist aö
halda sér á toppnum í jafnlangan
tíma. Sem leikari hefur Stallone yfir-
leitt valið skynsamlega og haft að leið-
arljósi að því færri orð því betri ár-
angur. Þegar hann hefur svo ætlað sér
of mikið, til að mynda hlutverk í gam-
anmyndum, þá hefur allt farið á
versta veg.
Af og til hefur Stallone skrifað
handrit að eigin myndum, einn eða
með hjálp annarra, og hefur hann lít-
ið lært á þeim vettvangi í gegnum tíð-
ina, samanber Driven, en stærsti galli
hennar er einstaklega klisjukennt
handrit sem meira að segja hinum
reynda spennumyndaleikstjóra Renny
Harlin hefur verið ofviða. Hann gerir
þó sitt til að bjarga myndinni með
skínandi góðum og spennandi atrið-
um á kappakstursbrautinni en fer út
fyrir mörkin þegar hann lætur tvo
kappaksturbíla elta hvor annan á göt-
um Chicago.
Driven gerist sem betur fer að
Að loknum kappakstri
Sylvester Stallone leikur hinn reynda Joe Tanto sem miölar hinum
ungu af reynslu sinni.
nokkrum hluta á kappakstursbraut-
inni. í upphaft fylgjumst við með
harðri baráttu um heimsmeistaratitil-
inn á milli handhafa titilsins, Beau
Brandenburg (Til Schweiger), og
krónprinsins, Jimmy Bly (Kip
Pardue). Til að Bly eigi einhvern séns
leitar liðsstjórinn til Joe Tanto (Sylv-
ester Stallone), reynds ökuþórs sem
má muna betri daga, til að styðja við
bakiö á Bly á kappakstursbrautinni.
Það kemur i ljós að Tanto er ekki
ókunnugur öðrum persónum myndar-
innar og má segja að atburðir fyrir
utan kappaksturbrautina séu eins og í
vel heppnaðri sápuóperu og slæmt til
þess að vita að Stallone og Harlin
skuli ekki hafa getað fundið safameiri
sögu í kringum atburðarásina á akst-
ursbrautinni. Þetta gerir það að verk-
um að persónurnar eru ílatar og
óspennandi. Með fyrirsjáanlegri at-
burðarás mistekst til dæmis algerlega
að skapa einhverja spennu um það
hver stendur uppi sem sigurvegari.
Reynt er að skapa jafnvægi á milli
ökuþóranna hvað varðar skapgerð.
Þeir eru allir þrír hetjur og góðir inni
við beinið. Steyptir í sama form og
hafa jafnmikla útgeislun og freðýsur.
Gerðar hafa verið ágætar kappakst-
ursmyndir og efst er í huga kvikmynd
Johns Frankenheimers, Grand Prix,
þar sem virkilega tókst að skapa raf-
magnaða stemningu frá upphafi til
enda. Hún var samt barn síns tíma og
lifir í minningunni. Driven hefur í
raun ekkert sem vert er að hafa í
minningunni. Myndin er illa skrifuð
og illa leikin. Það eru aðeins
kappaksturatriðin og þá um leið
árekstrar sem er vel gert. Vert er í
lokin að geta tónlistarinnar. Það
mætti halda að myndin væri gerð fyr-
ir tónlistarrásina MTV. Það er ekki
nóg með að það syngi og hvíni í mót-
orum og hjólbörðum heldur er bætt
við lögum á hæsta styrk sem ekkert
hafa með myndina að gera.
Leikstjóri: Renny Harlin. Handrit: Sylvest-
er Stallone. Kvikmyndataka: Mauro
Fiore. Tónlist: BT. Leikarar: Sylvester
Stallone, Burt Reynolds, Kip Pardue, Til
Schweiger, Gina Gerson og Estella War-
ren.
Skreggur
Skrekkur er ein af þessum örfáu
barnamyndum sem fullorðnir hafa líka
gaman af. Persónurnar í Skrekk eru
kannski ekki raunverulegar (enda hvað
væri skemmtilegt við það?) en svo |if-
andi og hver andlitsdráttur svo listileg-
ur, hver hreyfing svo ekta að þaö út af
fyrir sig er ævintýralegt. En ef tæknin
I væri þaö eina sem gerði myndina at-
hyglisveröa heföi hún ekki haldiö manni
jafn hugföngnum og hún gerði. Sagan
er einfaldlega skemmtileg og afskap-
iega vel skrifuð. -SG
Bridget Jones’s Díary
**** Bridget Jones er persóna sem
skríöur beint inn í hjartað á manni og
maður bæði hlær og finnur til meö
henni. Handritiö er eins og best veröur
á kosið: bæði hnyttið og rómantískt og
það er ekki nóg meö aö aðalpersónurn-
ar þrjár séu vel úr garði gerðar, með
þeim er heill hópur af vel heppnuöum
og vel leiknum aukapersónum, nokkuö
sem aðeins virðist geta gerst í breskum
myndum. -SG
Tillsammans
*** Lukas Moodysson leikstýröi
Fuckíng Ámál. Tillsammans er ekki eins
áhrifamikil eða eins þétt kvikmynd og
Fucking Ámál án þess hún valdi von-
brigðum. Um er aö ræða skemmtilega
úttekt á frjálslyndi í lok hippatímabilsins
á áttunda áratugnum og hvaöa áhrif
skoðanir og gerðir foreldra hafa á börn-
in sem þau ala upp í umhverfi sem þau
eru ekkert sérlega hrifin af. -HK
Virgin Suicides:
Systurnar sem heilluðu
Fallegar systur
Fjórar af fimm Lisbon-systrunum sem strákarnir sýná mikinn áhuga.
Háskólabíó frumsýnir á morgun
Virgin Suicides eftir Sofiu Coppola.
Sofia er eins og kunnugt er dóttir
hins virta kvikmyndaleikstjóra,
Francis Ford Coppola, og þykir
þessi frumraun hennar hafa tekist
einstaklega vel i alla staði. Með að-
alhlutverk fara Kirsten Dunst,
James Woods og Kathleen Turner.
Virgin Suicides gerist í Michigan
á áttunda áratugnum og segir frá
Lisbon-fjölskyldunni, dæmigerðri
Leikstjórinn og aöallelkkonan
Sofia Coppola og Kirsten Dunst ræöast viö meöan á tökum stendur.
millistéttarfjölskyldu sem býr i
dæmigerðu úthverfi i Bandaríkjun-
um. Athyglinni er sérstaklega beint
að dætrunum fimm sem eru fallegar
og eru þær helsta áhugamál strák-
anna í bænum. Ekki síst vegna þess
að foreldrar þeirra eru mjög strang-
ir og þær fá ekki mörg tækifæri til
að hitta jafnaldra sína utan skólans
og verða því enn þá meira spenn-
andi fyrir vikið.
Sagan af Lisbon-systrunum er
sögð af einum þessara stráka mörg-
um árum eftir að atburðirnir gerast
og er Ijóst að eitthvað dularfullt og
hræöilegt hefur gerst í fjölskyld-
unni. Myndin hefst með frásögn af
sjálfsmorði einnar systurinnar.
Sagan í myndinni á það sameigin-
legt með upprunalegu skáldsögunni
eftir Jeffrey Eugenides að hún bygg-
ist á sýn og túlkunum strákanna í
hverfinu og er því öðrum þræði
saga af uppvexti þeirra og unglings-
árum. Lisbon-dæturnar fá á sig goð-
um líkan blæ vegna þess hversu
ósnertanlegar þær eru.
-HK
One Night at McCools
*** Aö mörgu leyti óvenjulega
skemmtileg gamanmynd/film noir.
Handritiö vel skrifaö að mestu en dettur
pínulítiö ofan í of mikil smartheit á köfl-
um. Þrjá sögur karla sem falla fyrir
glæsilegri stúlku, sögur sem fléttast
saman, þannig að stundum kemur
sama atriöið oft fyrir frá mismunandi
sjónarhornum. Liv Tyler fær tækifæri til
aö leika sama atriöið sem engill, hús-
móöir eða hóra - sem hún gerir nú
bara prýðilega. -SG
Spy Kids
*** Robert Rodriguez er heldur bet-
ur búinn aö skipta um gír ( Spy Kids,
laufléttri og skemmtilegri fjölskyldu-
mynd þar sem honum tekst aö
skemmta öllum fjölskyldumeölimum á
hvaða aldri sem þeir eru. Spy Kids er
alveg laus viö sykursætan söguþráð
sem oftar en ekki einkennir fjölskyldu-
vænar kvikmyndir Myndin er stórfeng-
legt sjónarspil tæknibrellna og fyndinna
atriða í samanþjappaðri
atburðarás sem svíkur
engan. -HK
Biogagnryni
Bensínið í botn
Sam-bíóin - Driven ^
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.