Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2001, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2001, Blaðsíða 18
4 Finnur Vilhjálmsson skrifar Flest fýsir sælan og snúðu þér nú upp, Imba mfn. Ef einhver ætlaði sér að skrifa bók um rökffæði Islendinga ætti sá hinn sami að finna sér eitthvað annað að gera. Bókin er nefnilega þegar til og heitir Islenskir máls- hættir. Af einhverjum óskiljan- legum ástæðum virðist stór hluti þjóðarinnar telja það gott, gilt og gáfulegt í hvers kyns umræðu að kasta fram einhverri niðursoðinni speki í formi málsháttar og/eða tilvitnunar og telja sig þannig hafa sagt allt sem segja þarf - al- gerlega fært sönnur á réttmæti síns málstaðar. Viðmælendur verði þá bara alveg stumm - kjaft- stopp — og geti ekki annað en pakkað saman og viðurkennt vanmátt sinn gagnvart þess háttar yfirburða rökseinda- færslu. Spekina sækja röksnillingam- ir í hina og þessa brunna auk málshátt- anna. Biblían er vinsæl (enda efni hennar jú hafið v yfir allan grun), fomsögumar sömuleiðis, að ógleymdum þeim sæg af lífspeki- og tilvitn- anabókum ýmiss konar sem hrannast óhjákvæmilega upp á heimilum landsmanna eftir veisl- ur og merkisafmæli. Til eru jafnvel þeir sem láta nægja, hvenær sem þeir þurfa að standa fyrir máli sínu, að þylja óðamála upp biblíutilvitnanir, málshætti og vitur-maður-sagði- frasa í lange baner, oft algerlega samhengislaust, og fást ekki með nokkru móti til að ræða stað- reyndir máls heldur fjasa bara al- mennt í frösum út og suður. Með tilaetluðum árangri oft. Ástæðan er stundum fáfræði, almennt eða um umræðuefnið, og tilgangurinn að dylja vanþekk- inguna. Oftar þó hreinir og beinir útúrsnúningar. I þeim tilvikum veit viðkomandi að hann hefur rangan málstað að verja, öll rök hníga í aðra átt, en viðkomandi kýs að halda honum ftam til þrautar engu að síður vegna hags- muna, þrjósku eða annars konar hlutdrægni. Þetta er f ætt við það sem sagt hefur verið um nútímamanninn, að hann nenni ekki að hafa fyrir því að hugsa sjálfur. Páfágauka- svar málsháttasófista við þessu væri að sjálfsögðu hin marg- tuggðu „sannindi“ að allt sem hægt er að segja um öll mál hafi einhver annar sagt áður við skyld- ar aðstæður — bara betur. Því sé eins gott að taka sér bara þau orð í munn. Er heil brú í þessu? Nei, holumar í þessari speki eru þær að öll mál eru að minnsta kosti að einhverju leyti einstök og patent- lausnir — og -rök — einfaldlega ekki til. Hófsemi cetur verið ANDSDYGGÐ Eins er áberandi hvað mörgum finnst fínt að „hvetja til hófsemi" óháð málavöxtu og þykjast þannig sveipa sig skikkju vitra Nestorsins. Kona ein reit hjart- næma hugvekju í Moggann þegar Ámamálið stóð sem hæst og sagði eitthvað á þá leið að víst hefði þingmaðurinn gerst sekur um einhverjar smávægilegar yfir- sjónir en ættum við ekki bara að fyrirgefa honum. Það væri svo sem allt í lagi og gerist áreiðanlega með tíð og tíma en hvemig í ósköpunum er hægt að fyrirgefa manni sem ekki hefur sýnt einn einasta vott iðrunar heldur logið og blekkt alla, jafnt almenning, fjöl- miðla og eigin flokk, til að bjarga eigin skinni fram í rauðan dauðann? Finnst svo bara fáránlegt að einhver sé að pípa, upplifir sig sem fómar- lambið. í sama máli heyrðust margir segja alvöruþrungnir „saklaus uns sektin er sönnuð". Það er hárrétt per se en átti bara alls ekki við í þessu máli. Sekt getur sannast annars staðar en fyrir dómstólum. Að halda öðru fram er orðhengils- háttur. Það var ekki bara að fjöl- miðlar höfðu skaffað afgerandi sönnur á sekt Áma, hann hafði sjálfur játað. Hverju fleira óska menn eftir? Af sama meiði eru frasar á borð við „Sá yðar sem syndlaus er...“ og allt tal um „nomaveiðar", „mann- orðsmorð" og ofsóknir sem náðu hámarki f tilgerðarlegri og yfir- borðskenndri grein einhvers sjálf- stæðismanns úr Kópavoginum og kostulegri ályktun ungra sjálf- stæðismanna í Eyjum, einmitt undir steinkasts- og syndleysisyfir- skriftinni. Hér var einfaldlega verið að reyna að afvegaleiða um- ræðuna og beina kastljósinu frá kjama málsins. Það sem fyrir fólki sem viðhefur svona málflutning vakir er einfalt og vel við hæfi að enda á því að láta það kenna á eigin bragði: Tilgangurinn helgar meðalið. Þess má geta að fyrirsögnin er einmitt fengin úr bókinni Islensk- ir málshættir og er ágætt dæmi um íslenskt orðatiltæki sem þýðir ekki neitt. Jón Kjartansson frá Pálmholti Stephen Hawking ofureðlisfræðingur Það er engu líkara en Jón hafi fundið einhver ormagöng sem gera hon- um unnt að skjótast á milli Pálmholts og Cambridge ogsinna þannig hlut- verki sínu sem formaður Leigjendasamtakanna og prófessor í eðlis- og stjömufræði. Maðurinn í Cambridge trúir reyndar bæði á ormagöng og svarthol, en það er ekki Jón. Það er Stephen Hawking, keimlíkur Jóni í út- liti. Þrátt fyrir að vera fjötraður af hjólastól hefur hann komist til æðstu metorða f vísindasamfélaginu og tekst vel upp í að gera þvæld fræði sín auðskiljanleg fyrir almenning. Þetta hefúr vakið aðdáun margra á mannin- um sem trúir svo kröftuglega á sog-sog svarthola. Ef Jón væri ekki með þetta skásetta, skrásetta vörumerki sem skeggmottan er yrði hann ábyggi- lega umkringdur aðdáendum Hawks f hvert skipti sem hann fengi sér sæti. fÓkuS 27. jÚlÍ200l Regnboginn og Stjörnubíó frumsýna í kvöld Scary Movie 2, framhald myndarinnar sem sló svo óvænt í gegn í fyrra. Myndinni var leikstýrt af Keenan Ivory Wayans, einum fimm Wayans-bræðra sem starfa innan kvikmyndageirans í Hollywood, og komu bræður hans við sögu í myndinni. Nu eru þeir Wayans-bræður komnir aftur og að sjálfsögðu heitir myndin Scary Movie 2. Ruglinu haldið til streitu Sem fyrr eru hrollvekjur teknar fyrir og má segja að ekki standi steinn yfir steini eftir af þeim þegar Wayans-bræður eru búnir að fara f gegnum þær. Skot- spónninn er meðal annars The Omen, Exorcist og End of Days. I myndinni býður prófessor nokkrum nem- endum sínum að eyða einni helgi á glæsilegu ættaróð- ali úti í miðjum óbyggðum og er boðið þegið. Þegar á staðinn er komið fara ýmsir yfirnáttúrlegir atburðir að gerast, enda mjög reimt í húsinu. Fljótt byrjar hver nemandinn af fætur öðrum að hverfa og fátt virðist geta bjargað þeim ffá illum, en fyndnum, örlögum sín- um. Þess má geta að í Scary Movie stóð í lokin að ekk- ert framhald yrði gert. Þess vegna stendur „við lugum“ í undirtitli Scary Movie 2. Keenan Ivory Wayans er þekktastur þeirra bræðra. Frægð sína á hann að þakka að vera framleiðandi, handritshöfundur og aðalleikari vinsæls sjónvarps- þáttar, In Living Color, en þáttaröð þessi er margverð- launuð. Fyrsta kvikmyndahlutverk hans var í Hollywood Shuffle, þar sem hann var einnig annar handritshöfunda. Fyrsta kvikmyndin sem hann leik- stýrði var I’m Gonna Get You Sucka. Hann lék auk þess í þeirri mynd og skrifaði handritið. Hann hefur íeikið í nokkrum kvikmyndum, meðal annars A Low Down Dirty Shame, Menace to South Central... og The Glimmer Man. Wayans hefur ekki yfirgefið sjón- varpið þó nóg sé fyrir hann að gera í kvikmyndum. Hann hefur verið á síðkvöldum með sjónvarpsþátt sem gengur undir hans nafni, The Keenan Ivory Wayans Show, þar sem hann fær gesti til sín í létt spjall. Bræður Keenans, Marlon og Shawn, sem báðir leika í Scary Movie auk þess að hafa aðstoðað stóra bróður við gerð handritsins, hófu báðir feril sinn hjá Keenan, Shawn í kvikmyndinni I’m Gonna Get You Sucka og Marlon (In Living Color. Kvikmyndin Brother verður frumsýnd í Bíóborginni og Kringlubíói í kvöld. Myndin hefur vakið nokkra athygli erlendis og verður að teljast góður kostur fyrir bíóáhuga- menn um helgina. Bræðrabönd f Lfi Brother segir sögu japanska harðjaxlsins Yamamoto (Beat Takeshi) eftir að hann er rekinn úr yakuza-klíku og neyðist til að flýja frá Tokyo. Hann heldur til Los Angeles í leit að yngri hálfbróður sínum sem heitir Ken (Claude Maki). Yamamoto gengur í fyrstu illa að aðlagast lífinu í borg englanna, hann talar ekki tungu- málið og honum finnst menningin framandi og um- hverfið fjandsamlegt. Yamamoto tekst þó að hafa uppi á Ken sem reynist vera vingjarnlegur „smádíler". Skömmu eftir að Yamamoto kom til Los Angeles lenti hann í útistöð- um við svartan Ameríkana sem heitir Denny (Omar Epps) og reynist vera í sömu klíku og Ken. Þrátt fyrir útistöðumar tengjast Japaninn og svertinginn sterkum vinaböndum og verða sem bræður. Áður en langt um líður eru þeir félagar komnir út í stórfelld viðskipti með fíkniefni og „bisnessinn" geng- ur vel. En Adam var ekki lengi í paradís, Mafían fer að hafa afskipti af starfseminni og allt fer til fjandans. Menn skipast í fylkingar og spurning dagsins er hver getur treyst hverjum. Brother er fyrsta myndin sem Takeshi Kitano leik- stýrir utan Japans en frá 1989 hefur hann nánast gert eina mynd á ári í heimalandi sínu. Þekktasta mynd hans til þessa er HANA-BI sem vann gullljónið í Fen- eyjum 1997. Kitano er einnig þekktur sem leikari og lék m.a. í Merry Christmas Mr. Lawrence. Leikarinn Omar Epps, sem leikur Denny, þykir með efnilegri leikurum Hollywood í dag en hann hefur t.d. leikið á móti Bruce Willis og Nick Nolte í Breakfast of Champions og í Spike Lee-myndinni Love and Basketball. Claude Maki, sem fer með hlutverk Kens, er fæddur í Tokyo og er ein helsta stjarna japanskra leikara af yngri kynslóðinni. Hann hóf feril sinn sem leikari fjórtán ára gamall í sjónvarpi en varð síðan þekktur sem brimbrettakappi og vandræðagemlingur. i l*

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.