Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2001, Blaðsíða 22
I
... Á VlTABAR
Staðurinn er ekki opnaður fyrr en kl. 15
þannig að jafnvel verstu bytturnar geta reikn-
að með að vera orðnar slarkfærar um opnun.
Þrátt fyrir misgæfulegan viðskiptavinahóp er
maturinn þvílíkt lostæti að það hálfa væri
ágætt. Gleymmérei'borgarinn með gráðaosts-
hvítlauks-dæminu er algjör snilld og ef mað-
ur er ekki svangur þá getur maður alltaf hald-
ið upp á „litla laugardag“ á miðvikudegi með
því að panta sér einn „flaming Sambuca“ og
skjögra svo heim í 45° halla.
... í ÖSKJUHLÍÐINA
Frábær staður; endalaust af bílum, fullum af
dularfullu fólki í vafasömum erindagjörðum
sem búið er að laumuleggja upp við alla veg-
kanta, einn og einn manfskur skokkari,
smokkar, rifin klámblöð, hasspípur, krúttlegar
kanínur að krafsa í öllu draslinu og löggan
kemur reglulega og skannar svæðið. Svo eru
líka gömul neðanjarðarbyrgi þama ... Sann-
kölluð perla.
... Á SJÓ
Frábær tilbreyting! Nóg af peningum,
ferskt loft og svo er alltaf hægt að stytta sér
stundir með annaðhvort klámmyndum eða
lyfjaskápnum. Mórallinn um borð er frábær;
enginn er uppnefndur eða lagður í einelti og
nýliðum er tekið með skilningsríku brosi. Og
svo er vinnutíminn náttúrlega algjör snilld:
Sex tfma vinna, sex tíma hvíld, sex tíma
vinna, sex tíma hvfld, sex tíma vinna...
aaaaaaa! Guð blessi vökulögin!
... oc sæktu „Sumarglaðning" hjá Kók.
Það eina sem þú þarft fyrst að gera er að
kaupa örfáar flöskur og þegar þú ert loksins
búinn að vinna myndavél eða 2 1 kók þá get-
urðu halað inn hátt í hálfa aðra milljón hjá
endurvinnslunni. „I’d like to give the world a
coke ...“
15 atriði sem benda til
þess að þú sért staddur
á menningarnótt
1
■i. ♦ Landslið atvinnulausra leikara hefur
allt í einu nóg að gera.
2 ♦ Það situr brosandi maður og leikur á harm-
óníku fyrir framan klámblaðarekkann í
Eymundsson og ekki einn einasti kúnni reynir
að henda honum út.
Dyravörðurinn
hneigir sig. Og ekki til
að skalla þig.
3. Þú færð þér ekki kaftein í kók á bamum,
heldur rauðvfn. Og tekur litla sopa.
4
| ♦ Þú kemst ekki lengur upp með
að sparka f krakkana í Götuleikhúsinu þeg-
ar þeir eru að bögga þig.
5. Þú getur labbað niður í Austur-
stræti og öskrað: „HOMMAR!“ án þess
að vera laminn (þetta á reyndar líka við
um seinustu helgi eins og gefur að
skilja).
6. Það eru engir skeiterar á Ing-
ólfstorgi, bara fertugar húsmæður að
dansa og spila á lúft'klarínett.
7-Þú gerist skyndilega harð-
ur ballett-aðdáandi eftir að hafa
fattað hvað búningarnir eru
þröngir. Þú réttlætir það að
sjálfsögðu út frá fagurfræðilegu
sjónarmiði en notar kíkinn
samt óspart.
13.
Þú notar
somu
pikköpp'lín-
ur og venju'
lega nema
skýtur inn
ávarpsorðum
og þérunum.
“Afsakið, fröken.
Eg týndi síma-
númerinu mínu.
Gætuð þér nokkuð
lánað mér yðar?“
14. Daman sem
þú pikkar upp er í
flatbotna skóm, svörtu
vaðmálspilsi, ómáluð
og ekki í brjóstahaldara.
Og þér finnst hún
GUÐDÓMLEG!
8* Ste„„insin
niðri f bæ minnir á 17. júní fyrir utan blöðrumar ..
flosið ... og landabrúsana ... og kynþáttaárásimar.
. og kandí'
9. Þú stendur í mannþröng á Lækjartorgi og finnst sem þú
sért staddur á tískusýningu hjá flóamarkaði. Úlpuliðið yfirtek-
ur miðbæinn.
. Það er tómt á Rex en fullt í Máli og menningu.
11.1 staðinn fyrir að kýla manninn sem sullaði bjórnum sín-
um yfir þig þá kastarðu ósjálfrátt fram fyrriparti og skorar á
hann að botna.
♦ Mennirnir á myndinni eru a) ekki töff
auglýsing frá símafyrirtæki, b) ekki elskendur, c) ekki hand-
teknir fyrir óspektir á almannafæri heldur d) skemmtikraftar
sem vinna 1 dag af 365 í árinu. Ekki mikil uppgrip í eldgleyp-
astétt. Nema á menningamótt, auðvitað. Þá hafa allir nóg að
gera.
erjir ^erða hvar?
„Akkúrat núna er ég staddur í Ed-
inborg, var að lenda. Um helgina
verð ég í Madrid á Spáni að semja
handritsgrunna að sjónvarpsþáttum
um Latabæ. Þetta verða brúðuþættir
með leiknu ívafi og eru ætlaðir fyrir
bandaríkjamarkað. Með mér er
svona „creative" teymi skipað Islend-
ingum og útlendingum. Við höfum
tvær vikur til að semja 26 þætti svo
þetta verður stíft en við höfúm leigt
hús undir okkur og ætlum að loka
okkur inni. Það er ró og næði í Ma-
drid, fjarri heimahögum, og svo er 42
stiga hiti þama núna þannig að ég
býst ekki við að maður eigi eftir að
þola lengi við utandyra. Þá einbeitir
maður sér bara betur að vinnunni."
Magnús Scheving, þolfimimeistari og
skapari Latabæjar
„Ég ætla að skella mér á
sýningu á Hedwig í kvöld.
Það er búið að vera mjög
gaman að setja þetta verk
upp og svo er almennt góð
stemning í salnum þannig
að ég ætla að skella mér enn
eina ferðina. Eftir það fer ég
síðan í afmæli til vinkonu
minnar og síðan væntan-
lega á Hverfisbarinn. Svo á
laugardaginn er menning-
amótt og ég ætla bara að
rölta niður f bæ og skoða
mig um.“
M agnús Geir Þórðarson
leikhússtjóri
„Ég hafði hugsað mér að
nota helgina f að fara í veiði-
og hestaferð. Á laugardaginn
verð ég í Elliðaánum að
renna fyrir lax og svo á
sunnudaginn er ég að fara
ásamt kollegum mfnum í út-
reiðarferð. Annars ætla ég að
nota helgina í að slappa af og
njóta góða veðursins og ég
vona bara að ég komist frá
þessu öllu saman á lífi.“
Gunnar Helgason leikari