Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2001, Blaðsíða 8
Ragna Sara
Jonsdóttir
blaðamaður
Efni
Kaffigerðartækin mín standa mjög
nærri hjarta mínu um þessar mundir. Eg
var að fá mér nýjan perkúlator og mjólk-
urfroðuvél og hef verið að dunda mér við
að búa til Café Latte seinustu daga. Nátt-
úra Islands er mér líka ofarlega í huga,
það er hægt að hafa margt gagn af henni,
jafnt efnislegt sem og andlegt. Ætli sólin
sé svo ekki það sem stendur upp úr. Mað-
ur kann sérstaklega vel að meta hana
þegar maður býr á landi sem þessu.
Andi
Afró'tímarnir hjá honum Orville í
Kramhúsinu eru ansi magnaðir, sömu-
leiðis andi unnusta míns, hans Stefáns
Sigurðssonar, sem er reyndar ekki sá sami
og var með „Rólegt og rómantískt" í
gamla daga, og svo að lokum áhyggju-
leysi fátæka fólksins sem ég kynntist í
Mósambík og Svasílandi. Ég hefði ekkert
á móti því að hafa jafn afslappað hugar-
far og það.
Næstkomandi laugardag verður haldin Menningarnótt í Reykjavík
og í tilefni af því verða söfn, kirkjur, veitingahús, verslanir og gall-
erí opin fram eftir kvöldi. Alls kyns uppákomur setja svip sinn á
borgina en dagskráin verður með mjög fjölbreyttu sniði. Menning-
arnótt ber að þessu sinni upp á laugardaginn 18. ágúst sem er
einnig 215. afmæiisdagur Reykjavíkurborgar. Klukkan 12 á hádegi
mun Ingibjörg Sólrún Gísiadóttir setja hátíðarhöldin ásamt Reykja-
víkurmaraþoni sem fer fram sama dag. Að því loknu hefst svo hin
blómlega dagskrá og stendur hún ailan daginn og fram á nótt.
Grand rokk á Grand Rokk
Það veröur hart rokk sem ræður ríkjum á Grand Rokk á laugardaginn en þá leika
hljómsveitirnar Elixlr, Changer, Sólstafir og Forgarður Helvítis fyrir gesti. Fyrsta
sveitin stlgur líklega á svið upp úr 22.30 og síðan munu þær hver fylgja á eftir
annarri. Forgaröur Helvítis er um þessar mundir að vinna að nýju efni og eru upp-
tökur á þvl I fullum gangi. Hljómsveiin munu væntanlega flytja eitthvað af nýju
lögunum I bland við eldra efni. Sólstafir hafa líkt og Forgarður Helvltis verið starf-
andi I langan tima og eru þeir orðnir ein þéttasta hljómsveit landsins. Þetta
verða þvl hörku tónleikar með tveimur af reyndari böndum landsins ásamt tveim-
ur efnilegum af yngri gerðinni. Áhugasamt fólk um þétt rokk, brennandi kirkjur
og niðurrif kerfisins ætti því ekki að láta sig vanta á Grand Rokk á laugardag-
Tónlist, veitincar oc óvæntar uppákomur
Þeir sem eiga leið um Lækjargötuna á laugardag ættu endilega að stal-
dra við I Top Shop því þar verður margt um að vera. Frá kl. 18 og fram
eftir kvöldi verður boðið upp á veitingar og góða tónlist sem viöstaddir
geta notið á meðan þeir skoða það nýjasta I fatatískunni frá Top Shop.
Einnig verður boðið upp á fjölda óvæntra uppákoma og stendur Top I
Shop þar að auki fyrir tískusýningu I samvinnu við Eskimo Casting þar f
sem kynntir verða þátttakendur I Ford-fýrirsætukeppninni. Sýningin |
verður kl. 17 á Ingólfstorgi og að sjálfsögðu eru allir velkomnir.
1 JÓELOC JAGÚAR
Það verður nóg um að vera á Thomsen á menningarnótt. Frá kl. 22 leikur
kvartett Jóels Pálssonar lifandi djass eins og honum einum er lagið. Hann
munu halda uppi fjöri fram að miðnætti en þá mun Tríó Margeirs Ingólfsson-
ar taka völdin. Ætlun Margeirs og félaga er að halda uppi góðri stemningu
meö deep disco tónlist sinni alveg þangað til að Árni E. mætir I hús með
plötuspilarana sína. Hann ætlar síðan að halda partlinu gangandi með brjál-
aðri house-stemningu fram eftir nóttu. Á Vegamótum verða meðlimir Jagú-
ars frá kl. 19. Þeir munu leika léttan djass fyrir gesti og gangandi en tón- i
leikar með fullskipaðri hljómsveitinni hefjast svo upp úr miðnætti. Aðgangs- j
eyrir er 500-kall inn á Thomsen eftir kl. 01 og 1000 krónur á tónleika Jagú- J
ars á Vegamótum.
Utidansleikur með Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
Geirmundur Valtýsson er íslendingum góðkunnur. Þessi síhressi sveiflukongur ætlar aö
fljúga yfir heiðar og skemmta Reykvíkingum eins og honum einum er lagið. Það verður
sem sagt norðlensk stemning á Naustinu kl. 22 þegar hetja norðanmanna stígur með
hljómsveit slna á svið. Dansleikurinn verður Tryggvagötumegin við Naustið og er viss-
ara að mæta þangað tímanlega því að margt verður um manninn enda ekki á hverjum
degi sem helsta stjarna Norðurlands
mætir til höfuðstaöarins til þess að
skemmta. Þetta er eitthvað sem eng-
inn ætti aö láta fram hjá sér fara.
Danskur djass í Norræna húsinu
Trióið KAK eða Koppel-Andersen-Koppel er band skipað reyndum dönskum hljóðfæraleikurum og leika
þeir djass á heimsmælikvarða. Þeir hafa verið að spila saman I sjö ár og eru eftir þann tíma orðnir svo
ótrúlega samæfðir að það jaðrar viö hugsanalestur. Ekki alls fyrir löngu gáfu þeir út plötuna „Kakophon-
ia“ sem er byggð upp á gömlum slögurum I bland við snilldarlegar improviseringar þeirra félaga. Þetta er
einstakt tækifæri fýrir djassaðdáendur að sjá sanna meistara að verki en KAK mun leika fyrir gesti I Nor-
ræna húsinu kl 18.
Gulli Briem í Landsbankanum
Opið hús verður I húsakynnum Landsbankans í Austur-
stræti frá kl. 18. Þar verður margt að gerast og má þar
helst nefna að meistararnir Gunni og Felix verða með
uppistand auk þess sem Karl Ágúst Úlfsson ætlar að
fara á kostum. Einnig verður Dixielandhljómsveit Árna
ísleifssonar á svæðinu ásamt listasystrunum Rut og
Gullu Olsen. Hápunktur kvöldsins er svo kl. 20 þegar
að Gunnlaugur Briem frumflytur trommuverk. Aðal-
steinn Ingólfsson verður svo með kynningu á vegg-
myndum sem hanga I afgreiðslu Landsbankans.
Fluceldar, fjöldasöncur
OC ANNAÐ áhugavert
Rugeldar munu fara á loft frá Faxagarði kl.
23, umsjón meö flugeldasýningunni er I
höndum Hjálparsveitar skáta I Reykjavlk. Á
meðan á þessu stendur verður samsöng-
ur menningarnæturgesta undir stjórn
Garöars Cortes sem mun njóta aöstoðar
Óperukórsins og Lúðrasveitar verkalýðs-
ins. Að flugeldasýningunni lokinni mun
slagverkshópurinn Benda frumflytja for-
leik.
Annað sem vert er aö benda á er að
Apparat spilar I listasafni ASÍ kl. 17, auk
þess sem nýja leikhúsið Vesturport verður
með sýningu og Galleri Hlemmur verður
með áhugaverða hluti I boði. Alls kyns upp-
ákomur verða svo eitthvað fram eftir kvöld-
inu, skemmtistaðir og kaffihús verða að
sjálfsögðu opin eins og venjulega. Undan-
farin ár hefur þátttaka verið mjög góð og
þvl ekki von á öðru en fjöldi fólks leggi leið
sína I bæinn á laugardag.
Féhgitlml Sköá
OFUltHET.HJlt II\ l ltSIH<;SI\S
Þetta eru mjög einstakar myndir. Það er
sjaldan að menn komist svo nærri skóm
á þessum árstíma.
fókus 17. ágúst200l
Um miðjan ágúst og fram í byrjun september
er fengitími hjá skóm. Þeir verða þá nokkuð
úrillir og erfiðir viðureignar. Þeir eru fáir
sem lagt hafa líf sitt og limi í hættu til að
ná myndum sem þessum.
Þetta eru fyrstu myndirnar af mökum skóa.
Eins og sést þá leggst vinstri skórinn alveg
upp að þeim hægri án þess þó að fara upp
á hann eins og maðurinn hefur tilhneigingu til.
Kynfæri skóa eru vísindunum hulin ráðgáta.