Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2001, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2001, Blaðsíða 2
oru hvor? Á Gauknum var margt um manninn um helgina, Anna Rakel „sílikon“-gella var á svæðinu þó lílega ekki til að dást að Sebba Hiimarz sem var þó einnig viðstaddur. Hann hefur að öllum h'kindum verið að dást að frisi, oft kennda við Buttercup, en þvf miður fyrir Stebba var Valur kærastinn hennar einnig á svæðinu. Fjöln- ir mætti á svæðið og að sjálfsögðu var Linda P. \| með í för. Heiða og — Kristín atvinnu- —m., djammarar létu sig ekki i vanta og stigu þær létt- an dans ásamt Sverri úr Aðföngum. Jón Ólafsson var í góðu geimi sem og Ingvar Þórðar sem tók sér frí frá hreinsunarstörf- um á Eldborg til að fá sér einn kaldan í bænum. Einar Sambíógaur, Begga Ný- herjagella og Gummi Prik voru li'ka á Gauknum og Kolbrún ungfrú ísland.is sýndi sig einnig. 1 Á Rex var nóg um að vera og Sigga Beinteins mætti á svæðið og kom, sá og sigraði ásamt söngsystrum sínum, Andreu Gylfadóttur og Rut Reginalds, yngstu ömmu landsins. Einnig sást til Selmu Björns “evróvision-runnerup“ og Rúnars Freys. Gfsli Páls var á frívakt þetta kvöld en lét þó sjá sig seint á föstudagskvöldinu ásamt félögum sínum. Á Glaumbar sáust sjaldséðir hvítir hrafnar ásamt öðrum fuglum sem sjást kannski of oft. Einhverjir meðlimir Ski'tamórals voru á staðn- um þar á meðal Addi Fannar og Gunni sem og valið lið Land og sona en Hreimur lét sig ekki vanta og einhver hafði á orði að Biggi Nielsen hefði slegist með í för. Enginn annar en Svcrr- ir Stormsker, tónlistarmaður, skáld og út- varpsmaður, var sem kóngur f ri'ki sínu innan um alla hina kappana. Á Skuggabarnum var mikið um að vera enda síðasta Skuggadjammið i' langan, langan.langan ti'ma. Erpur Þ. Eyvindarson mætti á svæðið ásamt Karli West. Þeir blönd uðu geði við Skuggadrottningar ásamt Matta og Adda en þeir voru hinir hressustu enda þurfti ekki að borga fyrir búsið framan af kvöldi. Þá voru Skuggagellurnar Kristfn og Elfn T. f góðum gír enda stað- ráðnar í að láta síð- asta Skuggadjammið vera sem eftirminni- legast. Hannes hjá Flugleiðum var einnig mættur ásamt bróður si'num og fjármála- manni, Magnúsi, ekki er vitað hvar þriðji bróðirinn hélt sig þetta kvöld. Nýlega var stofnuð hljómsveitin „The Funerals" sem kemur fram í fyrsta sinn á menningarnótt á Súfistanum, í húsakynn- um AAáls og menningar á Laugaveginum, að flugeldasýning- unni lokinni. Fókus tók púlsinn á hljómsveitarmeðlimum og ræddi við þá um tónlist, tilfinningar og sumarbústaðaferðir. Hljómsveitina skipa þeir Ragnar Kjart- ansson söngvari, Þorvaldur Gröndal org- elleikari, O. Jónson gítarleikari_ og Þor- geir Guðmundsson trommari. Eg mælti mér mót við þá á Vegamótum hér á dög- unum og spurði þá spjörunum úr. Eftir að allir voru Súnir að koma sér vel fyrir létu drengimir vaða á súðum. Melankólískir mansöngvar úr SUMARBÚSTAÐ Sagan á bak við bandið er mjög falleg ..." byrjar Þorvaldur Gröndal, orgelleikari og annar aðallagasmiður hljómsveitarinn- ar. „... við Raggi hittumst heima hjá mér og byrjuðum að semja mansöngva á tvo gítara, fórum svo tveir upp í bústað fjöl- skyldu minnar uppi í Hvammi, sömdum meira, tókum svo einhver 40-50 lög upp á mini-disk og kassettutæki og drukkum rauðvín." Lög sveitarinnar eru öll á frekar svipuðum nótum að sögn strákanna en þeir segja að textarnir séu flestir um konur, vfn, brotin hjörtu og slóðina sem maður skilur eftir sig og aðrir skilja eftir í manni. „Það liggur slóð í gegnum hverja sál,“ segir Ragnar alvarlegur á svip og svei mér ef honum er ekki fúlasta alvara. Viðar heldur áfram: „Svo mætti Ó. Jónson gítar- hetjan okkar til landsins og við fórum að velja í bandið. Aðeins þeir bestu komu til greina enda er þetta einvalalið hljóðfæraleikara ... nema Toggi.“ „Það er rétt ..." játar Þorgeir sorgmædd- ur, ...“ég var víst ekki „first choice“ sem trommari. Það voru bara allir aðrir trommarar á landinu uppteknir þessa helgi við að æfa sig fyrir Eldborg." Bensínknúin plata „Við tókum upp plötu helgina 27.-29. júlí í sumabústaðnum hans Þorvaldar sem er 60 ára gamall, 20 fermetra stór, raf- magnslaus kofi uppi f Hvammi." Svo var ein löng æfing á föstudaginn sem endaði á því að Raggi drapst, allir fóru að rífast og Doddi skemmdi skóna mína,“ segir Þor- geir. „Svo á laugardag var tekið upp og á mánudagsmorguninn var platan tilbúin og komin í dreifingu innan við viku eftir að bandið var myndað,“ segir Þorvaldur hreykinn. Eg spyr hvernig þeir hafi farið að því að athafna sig í rafmagnslausum bústað. „Við tókum með okkur rafstöð og 15 lítra af bensíni og svo náttúrlega upp- tökutæki. Þegar platan var fullkláruð þá áttum við svona sirka hálfan lítra eftir þannig að það munaði ekki miklu að græjumar dræpust þegar við tókum upp síðasta lagið,“ segir Viðar. Þetta er bensínknúin plata, það er ekkert dísil hér,“ botnar Ó. Jónson hróðugur. Strax eftir flugeldasýninguna Þeim sem fýsir að berja hljómsveitina augum gefst fljótt kostur á því en eins og fyrr segir spila þeir á Súfistanum í Máli og menningu strax eftir flugelda- sýninguna á menningarnótt. Strákarnir eru afslappað- ir og eru vongóðir um að ná að skapa svipað andrúms- loft og myndaðist í sumarbústaðnum helgina góðu. „Og þó, ef við ætlum að fanga stemninguna eins og hún var uppi í bústað þá verðum við helst að vera of- urölvi. Það er svo sem hægt að koma því í kring en við þyrftum líka að vera með rafstöð og aðeins tuttugu fer- metra pláss. Og svo mættu náttúrlega ekki vera nein- ir áhorfendur á staðnum, það myndi skemma allt.“ segir Ragnar með áhyggjufullan tón í röddinni. Von- andi verður honum ekki að ósk sinni en skv. áreiðan- legum upplýsingum mun flugeldasýningin mikilfeng- lega verða búin um hálftólfleýtið og því verður húsið eflaust nokkuð þéttsetið þegar drengirnir stíga á svið. 31 ingað til „Það markverðasta sem kom fyrir mig í þessari viku og líklega það eina markverða er það að ég var rændur. Þannig er mál með vexti að einhverj- ir óprúttnir náungar stálu veiðistöngunum mínum. Eg tel það vera borna von að hafa hendur í hári þrjótanna. Þessi atburður skyggir á allt annað um þessar mundir, meira að segja er þetta markverðara en mál Áma Johnsens, ég er hreinlega alveg í mínus yfir þessu.“ Bubbi Morthens tónlistarmaður Tonlist fró Thule: Trabantar og annað bórujórn flrnþór Birgisson: Poppari af guðs nóð Menningarnótt: Hvað er þess virði að sjó? Bræður f tónlist: Halli og Laddi f Eurovision! J w~ 15 K % 18 5] $uper Furry flnimals: Odrepandi hljómsveit Tfskan f Mflanó: Þræðirnir fyrir þig Vinkill: Unaðsemdir hórþvottar 15 atriði: Ertu staddur ó menningarnótt ForsíSumyndina tók Teitur af flrnþóri Birgissyni Höfundar efnis Ari Eldjám Hafsteinn Thorarensen Sissa ritstjorn@fokus.is Agúst Bogason Höskuldur Daði Magnússon Trausti Júlíusson auglysingar@fokus. is Finnur Þór Vilhjálmsson Sigtryggur Magnason fokus@fokus.is iTíTim f Ó k U S 17. agúst 2001 i l iS í i U í 4 < l í * TTTrTTTiTTTTTTÍil

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.