Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2001, Blaðsíða 15
Það horfa flestir til London, Mílanó,
New York og Parísar þegar línurnar eru
lagðar á tískuvikunum. Þær eru haldnar
tvisvar á ári og kynna hönnuðir þar nýj-
an fatnað og það sem koma skal. Það
eru alltaf fleiri og fleiri borgir að bæt-
ast í hópinn og halda sína eigin tísku-
viku. Þetta hefur verið reynt á íslandi
og er Futurice, sem var haldið síðastlið-
ið sumar, enn í fersku minni. Við ríðum
á vaðið með umfjöllun um Mílanó og
kíkjum á það helsta sem ítölsku meist-
ararnir boða fyrir komandi haust og
vetur.
4
Dolce 6 Gabbana
Dolce 6 Gabbana
Dolce & Cabbana
Þeir Dolce og Gabbana eru alltaf með áber-
andi og skrautlegan fatnað sem vekur mikla
athygli. Þeir hanna glaðlegan fatnað og er
kynþokkinn aldrei langt undan. Fötin þeirra
henta súperríkum glamúrgellum og gæjum. Ef
þú elskar glamúr en hefur ekki efni á Dolce &.
Gabbana, getur þú huggað þig við það að þeir
hanna ódýrari línu sem þeir nefna einfaldlega
D&G.
I þetta sinn sækja þeir innblástur sinn til
amerísku landnemanna og eru í Davy
Crockett fíling. Þeir eru með frábærar leður-
buxur sem virka gamlar og eru þröngar, skó-
síðar, með klauf neðst á skálminni. Til að
mýkja þennan stíl og gera kvenlegri nota þeir
afar fallegar blúnduskyrtur og kjóla við leður-
buxurnar og poppa það svo upp með belti um
mjaðmimar.
Þeir nota mikið af brúnum tónum, setja
skæra liti inn á milli og ekki má gleyma svarta
litnum sem er allsráðandi fyrir veturinn.
Þeir eru líka undir áhrifum frá áttunda ára-
tugnum og er smá hippabragur á mörgum flík-
unum. Stuttu kjólamir með fínlegu blóma-
munstrinu og púffermunum eru æðislegir.
I Reykjavík er hægt að kaupa D & G fatn-
að hjá Sævari Karli í Bankastræti og er von á
haustvörunum í lok ágúst.
Miu Miu
Max Mara
Luella
Miu Miu
Miu Miu og Prada eru systurmerki og er það
Miuccia Prada sem er heilinn á bak við þau.
Miu Miu er ódýrari línan frá henni og gerir
því fólki sem er ekki mjög ríkt kleift að eign-
ast vandaða og fallega vöru.
Haust- og vetrarlínan frá Miu Miu er undir
sterkum áhrifum frá sjöunda áratugnum.
Stuttir babydoll-kjólar, maryjane-skór og skó-
síðir kjólar með hippalegu munstri er það sem
hefur vakið mesta athyglina frá þeim þetta
árið.
Skór og fylgihlutir frá Miu Miu slá alltaf í
gegn og er engin undantekning á því þetta
árið, þar sem Miuccia Prada veðjaði á maryja-
ne-skóna sem hafa heillað flesta.
Max Mara
Þetta er eitt fágaðasta merkið sem Italir
bjóða upp á, algjör klassík. Max Mara er fyrir
löngu orðið þekkt fyrir kápur sínar og yfir-
hafnir sem standast tímans tönn.
Max Mara er einmitt með geggjaðar kápur
og jakka fyrir haustið. Flíkurnar eru í Napóle-
onsstíl, tvíhnepptar kápur með háum kraga.
Ótrúlega flottar flíkur og að sjálfsögðu er
svarti liturinn áberandi.
I Reykjavík fæst fatnaðurinn í Max Mara-
versluninni á Hverfisgötunni. Þau eru að taka
inn þessa gallalínu frá þeim og verður hún
komin í hús seinna í haust. Max Mara býður
líka upp á ódýrari línu og heitir hún Sport-
max.
Luella
Þetta er eitt ferskasta nafnið í tískubransan-
um í dag og sló aldeilis í gegn í sumar með
pönkuð og graffítispreyjuð föt sín.
Hún er undir miklum pönk- og ska-áhrifum
fyrir haustið og veturinn. Það eru augljós áhrif
frá London níunda áratugarins. Stutt pils,
stórar rendur og Doctor Martens-skór. Ferskur
andblær í allri fáguninni í Mílanó.
Gucci
Dolce 6 Gabbana
Max Mara - kápa
Gucci
Gucci-tískuhúsið er eitt frægasta og virtasta
merkið í heiminum. Tom Ford er aðalhönnuður
þess og hefur hann verið umdeildur fyrir það að
leggja meiri áherslu á markaðssetningu heldur en
listræna sköpun.Hann hefur samt sem áður gert
Gucci ótrúlega vinsælt og er það eitt af þeim
merkjum sem er hvað mest hermt eftir. Það kann-
ast allir við renndu leðurjakkana sem hafa verið
ótrúlega vinsælir síðustu árin. Þeir eru dæmi um
hönnun Fords sem margir hermdu eftir og virðist
það því miður ekki ætla að taka enda strax.
Fyrir haustið er Gucci á fáguðum nótum og lín-
umar einfaldari en oft áður. Svarti liturinn er ríkj-
andi, en þó eru bleikir og lillaðir tónar inni á milli.
Tom Ford er í smá 60’s pælingum sem við sjáum á
kápum, baby-doll-kjólum og skófatnaði. Hann
notar líka „bondage“-stíl og skellir rennilásum hér
og þar á fötin.
Þessi lína hefur fengið afar misjafnar viðtökur
og eru margir á því máli að Tom Ford ætti að ein-
beita sér að glamúrnum því hann geri hann betur
en einfaldleikann.
Versace
Eftir að Gianni Versace var skotinn til bana f
Miami fyrir nokkrum árum tók systir hans Dona-
tella við húsinu. Henni hefur vegnað vel og er ein
valdamesta gellan í bransanum. Vesace er brjálæð-
islega dýrt og stendur fyrir glamúr lífssttl. Það er
því ekki að undra að stjömumar eru vitlausar f
þennan fatnað.
Fyrir haustið heldur Donatella sínu striki og er
aðaláherslan á lögð á glamúr. Það er svolítill rokk-
stjörnustíll í gangi sem er undir áhrifum frá átt-
unda áratugnum. Pinnahælar, þröngar buxur,
íburðarmikilar yfirhafnir og sólgleraugu. Hún er
enn þá undir áhrifum frá Scorcese-myndinni
Casino, þar sem Sharon Stone fór með aðalhlut-
verkið f miklum gelluham.
Það er framleidd ódýrari lína frá Versace og ber
hún nafnið Versus. Hönnun hennar miðast við að
ná til yngra fólks og er línan núna í skólastelpu-
stíl.
Versace
Skór
Það eru ferskar lfnur í skófatnaðinum fyrir vetur-
inn. Það sem virðist vera mest áberandi í Mílanó
eru áhrif frá sjöunda áratugnum. Það er mikið um
flatbotna skó og stígvél með langri tá, sem er ým-
ist mjó eða ferköntuð.
Gucci-stígvélin eru frábær og ná alveg upp að
hné, Fendi er líka undir sterkum 60’s áhrifum og
Lagerfeld hannar Barbarellu-stígvél.
Auðvitað eru pinnahælamir líka í gangi og eru
Dolce &. Gabbana og Versace enn í gellupæling-
um. Stígvélin eru af öllum gerðum, ýmist ökklahá
eða ná alveg upp að hné. Mörg stígvél ná reyndar
upp fyrir hné og eru þar enn á ferðinni Napóleons-
áhrif.
Hinir svokölluðu maryjane-skór eru líka áber-
andi og nota Miu Miu, Prada og Gucci þá mikið.
Gucci - kápa
Kápur
Þegar maður býr í vetrarríki eins og Islandi er al-
veg nauðsynlegt að græja sig upp með góða kápu
þegar haustið skellur á. Kápur og yfirhafnir er eitt-
hvað sem fólk fjárfestir frekar sjaldan í og þvf er
um að gera að vanda valið og allt í lagi að eyða
pínu meira. Fyrir haustið eiga Gucci ljósu 60’s
kápuna með rennilásnum, Max Mara í Napóleon-
spælingum og Prada með kvenlegar kápur og slár,
heiðurinn að flottustu kápunum og yfirhöfnunum
frá ítalfu.
Versus - kápa
i
17. ágúst 2001 f ó k u s
15