Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2001, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 22. AGÚST 2001
Fréttir
I>V
Hörð átök heilbrigðisnefndar og heilbrigðisfulltrúa Suðurlands:
Hjartakast í kjölfar áreitis
- framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlitsins lenti á sjúkrahúsi
Matthías Garðarsson, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Suðurlands, fékk hjartakast í kjöl-
far áreitis Heilbrigðisnefndar Suð-
urlands, sem staðið hefur undan-
famar vikur og mánuði, að hans
sögn. Matthías hefur átt við alvar-
leg veikindi aö stríða og hefur verið
í árs veikindaleyfi. Engu að síður
hefur Heilbrigðisnefnd Suðurlands
krafið hann ítrekað um skriflegar
skýringar vegna viðtals er birtist
við hann í DV 25. maí sl. Þá hefur
nefndin boðað hann á fund vegna
málsins.
Eins og fram kom í DV í gær
standa enn hörð átök milli heil-
brigðisnefndarinnar og Heilbrigðis-
eftirlits Suðurlands um tjáningar-
frelsi heilbrigðisfulltrúanna í fjöl-
miðlum. Viðtal við Birgi Þórðarson
heilbrigðisfulltrúa vegna átaksverk-
efnis landbúnaðarráð-
herra, „Fegurri sveitir
2000“, varð tilefni til
þess að heilbrigðisnefnd-
in hóf ítrekaðar bréfa-
skriftir til hans og bók-
aði um málið á hverjum
einasta fundi sínum um
langa hrið. Var Birgir
krafinn svara um á
hvaða heimild ákvörðun
hans um að veita DV
viðtal hafi grundvallast.
Þegar Matthías lýsti
síðan yfir fullum stuön-
ingi við starfsfélaga sinn
í viðtali við DV 25. maí
sl. hóf nefndin þegar að
krefja hann skýringa og
boða hann á fund þrátt
fyrir að hann væri að
jafna sig eftir mikið
áfall. í kjölfarið fékk
hann hjartakast, eins og
áður sagði, og var fluttur
á sjúkrahús og neyðar-
móttöku.
þurfti Matthías í aðra stóra höfuð-
aðgerð vegna þessa. Við þetta lam-
aðist hann algerlega hægra megin
og missti málið.
Þegar hann var farinn að jafna
sig eftir aðgerðirnar var hann flutt-
ur á sjúkrahús Selfoss. Hann var
rétt útskrifaður þaðan þegar hann
fárveiktist. Reyndist um að ræða
salmonellusýkingu, tiphymurium.
„Þetta voru ólýsanlegar kvalir,“ seg-
ir Matthías, sem var hafður í ein-
angrun um skeið og léttist um ein
20 kíló.
I desember sl. komst hann svo
loks í endurhæfingu á Grensási.
Umsjónarlæknir hans þar fyrirskip-
aði árshvild til þess að Matthias
næði sér að fullu eftir aðgerðirnar
og veikindin. Hann yrði að passa
sérlega vel að lenda ekki í streitu né
áreiti af neinu tagi.
DV-MYNDIR HILMAR ÞÓR
Fundargeröir á Netínu
Heilbrigöisnefnd Suöurlands birtir fundargeröir sínar á Netinu þar sem allir eiga greiðan aögang aö þeim.
Góöur vinur
Matthías stundar gönguferöir til, aö efla
heilsuna. ísienska tíkin sem hann á tekur
virkan þátt í þeim
Alvarlegt höfuðmein
Það var um miðjan september í
fyrra sem Matthías kenndi alvar-
legs meins í höfði. Var hann fluttur
meö hraði á sjúkrahús í Reykjavík
þar sem gerð var mikil aðgerð á
honum. Reyndist um að ræða hæg-
fara blæðingu inn að heila eftir fall
sem hann hafði hlotið í júlímánuði
þegar hann var á leið til vinnu sinn-
ar. Stór blóðgúlpur hafði myndast
milli heila og höfuðkúpu og var
hann fjarlægður. Tíu dögum síðar
Irafár í nefndinni
Þegar Matthías hvarf frá störfum
vegna veikinda höfðu hann og Birg-
ir heilbrigðisfulltrúi átt í langvinnu
stríði við heilbrigðisnefndina í kjöl-
far umfjöllunar fjölmiðla um
campylobactermengun í kjúklinga-
búinu að Ásmundarstöðum.
„Lengst af fékk ég frið heima,“
segir hann. „En ég hafði alltaf
áhyggjur af starfsfélaga mínum sem
stóð einn í stríðinu. En eftir að ég
lýsti yfir stuðningi við hann i DV
varð írafár í heilbrigðisnefndinni.
Ég var boðaður á hennar fund með
tölvupósti. Upplýsingar um fundar-
efni fengi ég hjá formanni hennar.
Ég var óneitanlega undrandi á
þessu þar sem ég var í veikindaleyfi
og nefndin var með vottorð og allar
upplýsingar um mig frá læknum.
Við Heimir Hafsteinsson, formaður
nefndarinnar, töluðum saman í
síma. Ég tjáði honum að ég myndi
ekki mæta á fundinn þar sem ég
væri í veikindaleyfi og ætti að forð-
ast allt álag.
Þá fór nefndin bréflega fram á
skriflegar skýringar mínar á viðtal-
inu og jafnframt var ítrekað að ég
ætti að mæta á fund hennar. Við
Heimir ræddum aftur saman í síma
og ég gerði grein fyrir afstöðu
minni og orðum í DV.
Allt þetta streð reyndi töluvert á
mig. En þegar ég svo las fundargerð
nefndarinnar eftir þennan fund 23.
júli sl. á Netinu varð mér svo um aö
ég endaði inni á sjúkrahúsi með
eins konar hjartaáfall. í fundargerð-
inni stóð að ég hefði verið boðaður
á fund en ekki mætt. Einnig, að
nefndin hefði ákveðið að ítreka
fyrra bréf til mín. Ekkert um veik-
indaleyfi mitt. Bara gefið opinber-
lega í skyn að ég hefði ekki mætt og
væri ekki að standa mig.“
Matthías kvaðst hafa fengið sáran
verk fyrir hjartað og út i vinstri
höndina þegar honum brá við lest-
urinn. Hjartað hafi farið að slá ofsa-
lega, en siðan hefði komið eitt og
eitt slag á stangli. Hann dvaldi á
sjúkrahúsi Suðurlands um nóttina
en var síðan fluttur suður á neyðar-
móttöku, þar sem hann var rann-
sakaður hátt og lágt.
„Landsbyggðarvandamár
Matthías hyggst hefja störf um
leiö og læknar leyfa honum það. En
fyrst liggur leið hans á Grensás-
deild, þar sem hann fer í eins konar
stöðumat.
„Ég vona bara að heilbrigðis-
nefnd beri gæfu til þess að beina
kröftum sínum einungis í þágu
þeirra sem hún á að starfa fyrir, þ.e.
fólksins í landinu," segir hann. „Ég
hef fengið það framan í mig að ég sé
„landsbyggðarvandamál" og sé að
reyna að koma óorði á Suðurland,
enda hef ég aldrei látið hagsmuna-
gæslu í héraði ráða ferðinni. Ég er
opinber starfsmaður og starfa sam-
kvæmt minni bestu samvisku. Ég
leitast við að benda á úrbætur þar
sem þeirra er þörf og koma upplýs-
ingum og hvatningum til almenn-
ings er efla heilbrigði og hollustu-
hætti. Þaö er skylda mín og þannig
mun ég starfa í framtíðinni.“
Heimir Hafsteinsson, formaður
heilbrigðisnefndarinnar, hefur neit-
að að tjá sig um þetta mál við DV.
Veðríö í kvöld HH9HI bi£ sJíi/ii/iidJ Veðriö á morgun
REYKJAVIK
Sólariag í kvöld 21.19
Sólarupprás á morgun 05.43
Síbdegisflób 20.57
Árdeglsfióö á morgun 09.24
Skýring&Y á vsburtéknum
k
VINDÁTT 10V-HITI
-10“
VINDSTYRKUR
1 metrum á sekúndu r
AKUREYRI
21.14
05.18
01.30
13.57
110
^FROST
Skúrir öðru hverju sunnanlands
Sunnan kaldi, 8 til 10 m/s, en lægir síðdegis
norðanlands. Skýjaö með köflum norðan-lands
en skúrir eöa rigning öðru hverju sunnan til.
Hiti 10 til 18 stig aö deginum, hlýjast
norðanlands.
ÁD £3 ö
IETTSKÝJAÐ HÁLP- SKÝJAÐ SKÝJAÐ AISKÝJAO
í'Ql Q 4 4Í*5A 1 kJ % &
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA
OV V o °w W =
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR POKA
r4TíVí#
-tjg, Æ.
10^
Ástand fjallvega OrMúókult
Ófært í Breiðdal -"'■hh:
Ófært er í Breiödal við Höskuldsstaöi
og um Öxi, fært er frá Reyöarfirði M
suður um Suðurfjarðaveg. Unniö er að UnöokBlf
hreinsun á vegi frá Reyöarfirði til »: t’/s > #' VBömjokiiH
Eskifjarðar og Noröfjarðar. Fært er um .
aðra helstu þjóðvegi landsins, víða um mm 1 fúrá j^Wl,
landið er unnið aö vegagerö og eru vegfarendur beðnir að sýna tillitsemi. V®ö)r á tkyggöum sva»óum íýnUiaJofcoil •ru lokiftlr þar til annaft vwsur Bugiyst www.vogag.ls/faard
Austlæg átt ríkjandi
Austlæg átt, 8 til 10 m/s vestast og með suöurströndinni en annars
hægari. Skýjaö með köflum noröanlands en skúrir eða rigning öðru
hverju sunnan til. Hiti 10 til 18 stig að deginum, hlýjast noröanlands.
Vindur:'
3-8 m/%
Hiti 10“ til 16”
Austlæg átt, 3 tll 8 m/s.
Súld eða rignlng meft
köflum suöaustan- og
austanlands en annars
skúrlr. Hltl 10 tll 16 stlg,
hlýjast vestanlands.
Laugar
Vindur.
3-5 nv's’ý
Hiti 8° til 16°
Fremur hæg norölæg átt.
Rignlng eöa súld noröan-
og austanlands en léttlr tll
syöra. Hltl 8 til 16 stig,
hlýjast sunnanlands.
Hiti 8° til 16°
Hæg norölæg átt, skúrlr
noröaustan tll en annars
skýjaö meö köflum eöa
léttskýjaö. Hitl 8 tll 16
stlg aö deglnum, hlýjast
sunnanlands.
-JSS
AKUREYRI skýjaö 12
BERGSSTAÐIR alskýjaö 12
BOLUNGARVÍK rigning 10
EGILSSTAÐIR skýjaö 13
KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö 9
KEFLAVÍK skúrir 10
RAUFARHÖFN léttskýjaö 9
REYKJAVÍK úrkoma 10
STÓRHÖFÐI úrkoma 10
BERGEN skýjaö 12
HELSINKi skýjað 14
KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 18
ÓSLÓ skýjaö 12
STOKKHÓLMUR þokumóöa 16
ÞÓRSHÖFN léttskýjaö 12
ÞRÁNDHEIMUR súld 10
ALGARVE heiöskírt 18
AMSTERDAM skýjaö 18
BARCELONA þokumóða 22
BERLÍN skýjað 19
CHICAGO hálfskýjaö 21
DUBLIN léttskýjaö 9
HALIFAX þoka 19
FRANKFURT heiðskírt 17
HAMBORG heiðskírt 17
JAN MAYEN súld 7
LONDON léttskýjað 17
LUXEMBORG heiöskírt 18
MALLORCA léttskýjaö 22
MONTREAL heiöskírt 19
NARSSARSSUAQ léttskýjaö 6
NEW YORK léttskýjaö 24
ORLANDO heiöskirt 22
PARÍS léttskýjaö 15
VÍN skýjaö 20
WASHINGTON heiöskírt 17
WINNIPEG heiöskfrt 16