Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2001, Blaðsíða 24
60
MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2001
Tilvera I>V
í f iö
I R V I N N II
kirkjunnar á Seyðisfirði verða í
kvöld kl. 20.30, en þá mun hinn
vinsæli karlakvartett, Álftagerðis-
bræður, flytja skemmtilega og
fjölbreytt dagskrá. Píanó-
undirleikari verður Stefán R.
Gíslason. Miða á tónleikana má fá
á skrifstofu Bláu kirkjunnar,
Ránargötu 3 á Seyðisfirði, og í
kirkju fyrir tónleikana.
' POPP ........_.....................
COLDPLAY í HÖILINNI Stórtónleik
ar Coldplay í Laugardalshöllinni eru
í kvöld. Sálin hans Jóns míns og
IVIaus hita upp, þó hvor i sínu lagi.
Böll
TVÓ DÓNALEG HAIIST Hljómsveitin
Tvö dónaleg haust leikur á Gaukn-
um í kvöld.
. Göngur_________________________
HAFNARGÖNGUHÓPURINN MEÐ
GONGUFERÐ FRA HAFNARHUSINU
I kvöld, miövikudaginn 22. ágúst,
stendur Hafnagönguhópurinn fyrir
gönguferö frá Hafnarhúsinu,
Miðbakkamegin, kl. 20. Farið verður
upp Grófina og um Grjótaþorp,
Ránargötu, Stýrimannastíg og
Vesturgötu að Ánanaustum. Til baka
meö Vesturhöfninni niöur á
Miöbakka og að Hafnarhúsinu. Þar
lýkur gönguferöinni. Allir velkomnir.
Sýningar
UÓSÁLFAR j SKUGGAHVERFI
Þessa dagana stendur yfir Ijós-
myndasýning í Stöðlakoti, Bókhlöðu-
stíg 6. A sýningunni sem kallast
Ljós og skuggar eru myndir sem
teknar voru í sumar í Skuggahverfi.
Verkefninu voru settar strangar
landfræðilegar skorður því svæðið
sem átti að mynda var aðeins hluti
hverfisins, milli Frakkastígs og
Klapparstígs neöan Hverfisgötu.
Rétt er að hafa í huga að þessi
takmörkun okkar segir ekki til um
mörk hverfisins, heldur markast
aðeins af því nýja skipulagi sem
áform voru uppi um. Ekki er ætlunin
að þetta sé heimildarsýning um
hverfið, heldur lítur hver Ljósálfur á
þaö meö sínum augum. Sýningunni
lýkur 26. ágúst og er opin alla daga
frá kl. 14.00-18.00.
KRISTINN MÁR INGVARSSON
SYNIR A MOKKA Sunnudaginn 12.
ágúst var opnuð sýning á verkum
Kristins IVIás Ingvarssonar
> Ijósmyndara á Mokka-kaffi viö
Skólavörðustíg. Þar sýnir hann 8
nýjar Ijósmyndir sem flestar eru
unnar á þessu ári. Sýningin ber
titilinn „Sending” og er þetta þriðja
einkasýning Kristins en hann hefur
meöal annars sýnt í Reykjavík,
Akureyri og Kaupmannahófn. Sýning
Kristins er opin á afgreiðslutíma
Mokka milli klukkan 9.30 og 23.30
alla daga vikunnar en henni lýkur 4.
september.
HANS MALMBERG í HAFNARBORG
I Hafnarborg, menningar og
listastofnun Hafnafjaröar, stendur
yfir sýning á Ijósmyndum sænska
Ijósmyndarans Hans Malmbergs.
Sýningin kallast ísland 1951 og
sýnir Islendinga við leik og störf
jafnt í sveit sem í borg á árunum
1947 til 1951. Sýningin er
samstarfsverkefni Hafnarborgar og
Þjóðminjasafns íslands og er hún
opin alla daga nema þriöjudaga frá
klukkan 11 til 17. Henni lýkur þann
27. ágúst næstkomandi.
„ SJá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísi.is
Maður Itfandi
# S % S Kolbrún
Ömenmng a mennmgarnott
„Undirbúningur fyrir
Landsmót skáta á Akur-
eyri á næsta ári er hafinn
af fullum krafti,“ segir
Ásgeir Hreiðarsson sem á
sæti í mótsstjórn en mót-
ið verður haldið að
Hömrum, nýju svæði
skátanna nærri Kjama-
skógi dagana 16.-23. júlí.
Að sögn Ásgeirs má
reikna með allt að 5 þús-
und mótsgestum og þar af
verða beinir þátttakend-
ur á bilinu 2000-2500.
Síðast þegar Landsmót
skáta var haldið á Akur-
eyri var það haldið í
Kjamaskógi en nú flytja
skátarnir sig á sitt eigið
umráðasvæði að Hömr-
um, „Þar höfum við verið
að byggja upp svæði sem
tjaldsvæði og almenn úti-
lífssvæði sem á að geta
tekið við svona viðburði,
en við gerum auðvitað
ýmislegt annað, t.d. í
sambandi við „þema“
mótsins sem er að þessu
sinni „álfar og tröll“. Það
verður unnið heilmikið
með það, bæði af okkur
og svo af krökkunum
sjálfum í undirbúningi
þeirra fyrir mótið,“ segir
Ásgeir.
Hann segir að 40-50
manns hafi að undan-
fornu starfað að undir-
búningi mótsins, en sú
tala eigi eftir að tvöfald-
ast eða jafnvel þrefaldast
á næstu mánuðum. „Um
síðustu helgi vorum við
að Hömrum með skáta-
mót sem var í rauninni
bara vinnuútilega og þar
voru um 70 manns.
„Þema“ þess móts var
..byggjum brýr“ og við
vorum að bryggja brýr
yfir Brunnána og einnig
að planta út, sá í kanta og
laga tU á ýmsan hátt. Það
má því segja að undirbúningurinn
að Hömrum sé kominn í fullan
gang.
Við höfum byggt upp almenn
tjaldsvæði að Hömrum sem getur
DV-MYND BG
Ungir skátar láta ekki sitt eftir liggja viö undirbúninginn að Hömrum.
tekið ýmsa viðburði eins og þetta
mót. Hér er 60 þúsund fermetra
tjaldsvæði tUbúið, það er verið að
leggja vegi, koma upp salemisað-
stöðu og við erum að byggja ýmsa
afþreyingaraðstöðu. Þannig hafa
verið gerðar hér þrjár tjamir þar
sem eru bátar og vatnaleiktæki og
önnur leiktæki munu verða á
svæðinu í framtíðinni. Ég á ekki
von á öðru en hér verði allt flott
og fint næsta sumar þegar lands-
mótið hefst,“ segir Ásgeir.
-gk
Landsmót skáta á Akureyri næsta sumar:
Undirbúningur í fullum gangi
Dálítið einkennUegt að vera í
mannfjöldanum á Arnarhóli á
menningarnótt og horfa á Garðar
Cortes hreyfa varirnar hljóðlaust á
stóru tjaldi. Hátalarakerfið virkaöi
ekki en fólkið á Arnarhóli lét það
ekki trufla sig og söng af hjartans
lyst, en vitanlega ekki í takt. ís-
lenskar einstaklingshyggjuraddir í
rigningunni. Ég beið lengi eftir
Uugeldasýningunni en var í svo
góðum félagsskap að mér leiddist
ekki. Flugeldasýningin var góð en
ekki jafn glæsileg og í fyrra. Það
hefði mátt bruðla meira í ár en R-
listinn hefur ekki þorað. FuUvíst
að sjálfstæðismenn í borgarstjórn
hefðu heimtað reikningsyflrlit og
skýringar.
Frá Arnarhóli lá leiðin í Ingólfs-
stræti. Þar voru nokkrir ungir
menn í grimmdarlegum slagsmál-
um. Tveir beittu sér af mestri
hörku. Annar þeirra tók hinn og
barði höfði hans margsinnis við
búðarglugga. Vegfarendur stóðu
stjarfir. Kona æpti að manni sín-
um: „Gerðu eitthvað, gerðu eitt-
hvaö, við getum ekki bara staðið
hér.“ „Við blöndum okkur ekki í
þetta, þarna eru brjálaðir menn,“
sagði hann. Hann virtist satt að
segja hafa töluvert til síns máls.
Skyndilega var eins og ekkert
hefði gerst. Sá sem barði svo Ula á
félaga sínum tók utan um hann og
faðmaði hann og fórnarlambið
ljómaði eins og sól-
in. Það var eins og
þeir hefðu margoft
tekið þessa syrpu
áður og fyndist að í
þetta sinn hefði
þeim tekist sérlega
vel upp. Og nóg um
áhorfendur. Lög-
reglan kom á svæð-
ið og þegar hún
var spurð hvað
fólk ætti að gera
þegar það yrði
vitni að slagsmál-
um eins og þessum
var svarið stutt og
laggott: „Forða
sér.“
Ó borg mín borg
virtist aUt í einu
syndum spillt. Á
heimleið treysti ég
mér ekki gegnum
drukkinn ung-
lingaskara sem ég
taldi víst að stæði
fyrir misþyrming-
um á náunga sín-
um og gekk Berg-
staðastrætið. Þar
mætti ég í rigning-
unni dauða-
drukknum manni
á sokkaleistunum.
„Af hverju er ég
ekki í skóm?“
„Það er alltaf eitthvað dapurlegt við fulla karl-
menn, sérstaklega þegar þeir vita ekki lengur
hvar þeir eiga heima.u
spurði hann mig.
Skáldlegt ímyndunar-
afl mitt var í lág-
marki svo ég átti ekk-
ert svar, en kom mér
umsvifalaust í um-
hyggjusamt móður-
hiutverk, sagði hon-
um að fara heim og úr
blautum sokkum,
annars fengi hann
kvef. „Gott ráð,“ taut-
aði hann mæddur og
hélt svo áfram að ráfa
um í leit að heimili
sínu sem hann sagði
eiga að vera þarna
einhvers staðar á
Bergstaðastrætinu.
Það er alltaf eitthvað
dapurlegt við fulla
karlmenn, sérstak-
lega þegar þeir vita
ekki lengur hvar þeir
eiga heima.
Ég komst heim til
mín án þess að verða
fyrir hnjaski óðs lýðs.
Ég sá ekki nægilega
mikiö af menningu
þessa menningarnótt
en varð nokkurs vís-
ari um ómenningu
stórborgarinnar.
Maður er alltaf að
kynnast einhverju
nýju.