Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2001, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2001, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2001 DV Fréttir Tímamótatilraun Kjötmjöls ehf. og samstarfsaðila hafin: Bílaeldsneyti unn- ið úr dýrafitu - reynsluakstur bílaflota á lífdísil fyrirhugaður á næsta ári Kjötmjölsverksmiöjan viö Selfoss hefur nú, ásamt Iðntæknistofnun, hrint af stað vinnu við einstætt til- raunaverkefni sem felst í að framleiða lífdísil; dísilolíu sem unnin er úr dýrafitu, matarolíu og lýsi. Aðrir sam- starfsaðilar Kjötmjöls ehf. að verkefn- inu eru Orkustofnun, Mjólkurbú Flóa- manna, Kaupfélag Ámesinga, Gáma- þjónustan og Olís. Lífdísil, eða biodies- el, eins og framleiðslan nefnist erlend- is, hefur ekki verið framleitt hér á landi áður og er því um merka tíma- mótatilraun að ræða. Orkusjóður hefur styrkt verkefnið um 7,3 miiljónir króna. Að sögn Guðmundar Tryggva Ólafs- sonar, umhverfisfræðings og verkefn- isstjóra hjá Kjötmjöli, eru verklegar tilraunir við framleiðslu á eldsneytinu þegar hafnar. Tilraunimar hafa gengið eftir áætlun. „Við erum byijaðir aö hvarfa þá fitu sem við höfúm haft aðgengi að en þær tifraunir fara að mestu fram í verk- smiðju S. Hólm í Njarðvík," sagði Guð- mundur. „Þetta verkefni miðar að því að rannsaka hvort mögulegt sé að framleiða eldsneyti á þennan hátt og hvort það sé hagkvæmt." Miöað viö 1200 tonn Við vinnslu afgangs dýraafurða hjá Kjötmjöli verða árlega til 1000 tonn af blandaðri dýrafitu. Þá berast um 200 tonn af blandaðri notaðri matarolíu til DV-MYND NH Tilraunin hafin Tækjabúnaði við tilraunina hefur verið komið upp. Á myndinni sést hluti hans. Sorpu á hverju ári. Einnig berst nokk- urt magn af úrgangslýsi sem búið er að vinna eftirsóknarverðar fitusýrar úr. Þannig er gert ráð fyrir nýtingu um 1200 tonna af hráefni á ári. Brennsla olíunnar sem eldsneytis á bíla og vélar þykir ákjósanleg leið til að nýta fituúr- ganginn og draga um leið úr mengun vegna útblásturs disilvéla. „Við eram að vinna úr dýrafitu og steikingafeiti sem safnað er frá mat- sölu- og veitingastöðum," sagði Guð- mundur. „Hins vegar erum við ekki byrjaðir á tilraunum með lýsið. Tækja- búnaður, þ.e. skilvindur og hreinsi- búnaður, er þegar kominn upp en nú þurfum við að stilla af hversu mikið þarf að hreinsa, hversu mikið þarf af iblöndunarefnum og svo framvegis. Nú erum við að gera tilraunir með að framleiða efnið sjálft sem nefnist metylester og er notað á vélamar á sama hátt og venjuleg disilolía. Ekki þarf að breyta búnaði bílanna fyrir líf- disilinn. Tilraunir með notkun elds- neytisins á bila koma seinna í ferlinu. Við erum að vonast til að þær tilraun- ir hefjist formlega í vor.“ Á mjólkurbíla Verkefnisstjórnin hefur þegar út- vegað bílaflota til að prófa tilrauna- eldsneytið á þegar þar að kemur. Um er að ræða mjólkurbíla frá Mjólkur- búi Flóamanna, fóðurbila frá Kaupfé- lagi Ámesinga og sorpsöfnunarbíla Gámaþjónustunnar. „Þær niðurstöður sem við munum fá koma til með að skera úr um hvort eldsneytið verður blandað með jarð- efnaeldsneyti, þ.e. dísilolíu. Við mun- um prófa þetta eldsneyti hreint og við munum prófa það blandað. Strax með 20 prósenta blöndun lífdísils í jarðefnadísil dregur verulega úr mengun í útblæstri. Með 20 prósenta blöndun næst töluvert meira en 20 prósenta hreinni útblástur," sagði Guðmundur. Lífdísil þykknar fyrr, t.d. í kulda, heldur en jarðefnadísil. Með 20 pró- senta blöndun myndu þau áhrif hverfa að miklu leyti. Fyrstu hag- kvæmniathuganir benda til að lífdísil verði fjárhagslega samkeppnishæft við hefðbundið jarðefnadísil. Aukin framleiösla erlendis Lífdísil er stöðugt að ryðja sér til rúms erlendis. Nú er eldsneyti af þeirri tegund framleitt á meira en hundrað stöðum úti í heimi. Sú fram- leiðsla er að stórum hluta úr jurtaol- íu, t.d. umframframleiðslu soja- baunaoliu. Afgreiðslustöðvar eru reknar bæði í Evrópu og Bandaríkj- unum. „Framleiðsla af þessu tagi kæmi aldrei til með að uppfylla þá þörf sem er fyrir dísileldsneyti hjá okkur,“ sagði Guðmundur. „Aðalástæðan er sú að ekki fellur til nægilegt hráefni. Sem hugmynd um stærð myndi það magn sem hér hefur verið nefnt samsvara ársnotkun eitt þúsund dísilfólksbíla. En þarna er um sjálfbæran orku- gjafa að ræða. Þetta er enn frekari nýting á þeim afurðum sem við erum að vinna með. Sjálfbæmi landbúnað- arins er þama að stíga enn eitt skref fram á við.“ -JSS Málshöfðun ÖBÍ: Er skylt að fylgja samþykkt Alþingis - segir ráðherra Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra og Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður era varkárir í oröum vegna yfir- j lýsinga Garðars Sverrissonar, for- j manns Öryrkja- bandalags íslands, í DV gær. Þar lýsti Garðar því yfir að bandalagið undir- í byggi nýja máls- f höfðun vegna meintra vanefna sem áttu að fylgja dómi Hæstaréttar í öryrkjamálinu j svonefnda. Máls- j höfðunin verður að óbreyttu birt á næstunni. „Alþingi sam- þykkti löggjöf i framhaldi af ör- j yrkjadómnum og síðan vann nefnd frekari tillögur um breytingar á al- mannatryggingalöggjöfinni. Þær tillög- ur fólu í sér viðbótarhækkanir á bót- um sem áttu að nýtast þeim sem verst era settir. Þetta era þær línur sem ég vinn eftir og tel mér skylt að gera,“ segir Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra. „Ég hef í sjálfu sér lítið um þess- ar yfirlýsingar að segja að svo stöddu, en tek fram að ég vil hafa sem best samskipti við öryrkja." „Mér sýnist Garðar Sverrisson þjóna lund sinni með þvi að eigna mér einum nefndarálitið um Öryrkjadóminn sem við fjórir nefhdarmenn áttum sameigin- lega aðild að,“ sagði Jón Steinar Gunn- laugsson hrl. „Það er auðvitað ekki nema sjálfsagt að ÖBÍ eða einstakir menn innan þess beri undir dómstóla sjónarmið sin og kröfur sem lúta að því að á þeim sé brotinn réttur við fram- kvæmd þeirra laga sem sett vora í fram- haldi af öryrkjadómnum." -sbs Jón Kristjánsson. Jón Steinar Gunnlaugsson Aðlaóandi auglýsingar Tökum á sjónvarpsauglýsingum fyrir Akureyrarbæ er nýiokið og er tilgangurinn meö gerð þeirra aö laða fleiri íbúa til bæjarins. Um er aö ræða hluta afátaki stýrihóps til að fjölga fólki í bænum og hefur framtakið vakið nokkra athygli. Heimilislausir á höfuðborgarsvæðinu: Ástandið hefur versnað „Á þessu ári höfum við haft tilfinn- ingu fyrir því að heimilislausum sé að fjölga," sagði Lára Bjömsdóttir, félags- málastjóri hjá Reykjavikurborg, við DV. Hinn 1. ágúst sl. var 601 á biðlista eftir félagslegum íbúðum. Starfsmenn félagsþjónustunnar tóku lauslega saman fjölda heimilislausra um mánaðamótin febrúar/mars sl. Þá reyndist hann vera um 60 manns. Starfsmennirnir hafa á tilfinningunni að ástandið hafi versnað síðan og fleiri komið til sögunnar. „Þegar við tókum þetta saman var það af því að við höfðum áhyggjur," sagði Lára. „Starfsfólkið var búið að segja að leggja þyrfti fram áætlan- ir um að leysa vandann. Úrræði fyrir marga hverja úr þessum hópi era ekki einfóld. Þar koma inn i áfengi, geðsjúkdómar og ef til vill félagsleg vandamál af ein- hverjum toga. Að- standendur era kannski búnir að gefast upp og þeir sem um ræðir era algjörir einstæðingar." Lára sagði að i kjölfar athugunarinn- ar hefði verið stofnuð nefnd um úrræði fyrir alit að 15 heimilislausa einstak- linga. Tillögumar yrðu lagðar fram á næsta félagsmálaráðsfundi sem haldinn yrði í næstu viku. Félagsþjónustan myndi í kjölfarið hefja leit að húsnæði. Gistiskýlið í Þingholtsstræti hefði verið orðið teppt af fólki sem væri búið að vera þar langtímum saman. Skýlið væri hugsað sem bráðabirgðalausn og yrði starfsrækt sem slíkt. í helgarblaði DV á morgun verður viðtal við Alexander B. Gíslason sem hyggst stefna borginni fyrir hönd heim- ilislausra. Hann verður sjálfur á göt- unni frá og með morgundeginum. -JSS Mikið fjón vegna vatnsleka Mikið tjón varð í íbúð við Ægisgötu um eittleytið í nótt þegar heitt vatn flæddi úr þvottavélarslöngu. Húseig- andi hafði rétt bragðið sér frá þegar slanga í þvottavélinni gaf sig með fyrr- greindum afleiðingum. Gengst í ábyrgð Stjóm Byggða- stofnunar samþykkti í gær að gangast í ábyrgð fyrir afurða- lánum sláturleyfis- hafa í bankakerfinu vegna komandi slát- urtíðar. Ríkisstjómin hafði áður lagt stofn- uninni til 30 milljónir króna til að leggja í varasjóð á móti ábyrgðinni. Vextir afúrðalánanna lækka um 4-6%. Naut réðst á mann Maður var fluttur slasaður á Heil- brigðisstofnun ísafjarðar eftir að naut réðst aftan að honum á bænum Botni í Súgandafirði. Slysið átti sér stað í gær og hafði maðurinn verið að búa naut- gripi til flutnings í sláturhús. Án réttinda Samkvæmt eiganda Köfunarskólans er ekkert eftirlit með kennslu í sport- köfun og kennarar hafa jafiivel ekki kennsluréttindi eins og reglur segja til um. Forstjóri Siglingastofnunar segir stofnunina munu skoða og auka eftir- lit með réttindindum áhugaköfúnar- kennara. - RÚV greindi frá. Vill skattalækkun Fjármálaráðuneyt- ið telur fremur ástæðu til að óttast Hf ^ samdrátt í efnahags- I lífinu en ofþenslu. ÍH Flest bendi til þess að M hagvöxtur á yfir- K- M stanáancli ári verði minni en síðustu spár gerðu ráð fyrir og landsfram- leiðsla dragist saman. Því hljóti megin- áherslur í hagstjóm að miða að því að bæta rekstrarskilyrði atvinnulífsins með lækkun vaxta og skatta. - RÚV greindi frá. Fundað með lögreglu Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráð- herra átti fund í gærmorgun með full- trúum félags lögreglumanna í Reykja- vík. Lögreglumenn vildu hitta ráð- herra vegna fregna af þvi að fækka þurfi lögreglumönnum í borginni til áramóta til að embætti lögreglustjóra verði innan ramma fjárlaga. Næg löggæsla? Ásta Möller, þing- maður Sjálfstæðis- flokksins í Reykja- vik, telur ekki nauð- synlegt að þingmenn Reykvíkinga hittist til að ræða fækkun lögreglumanna í borginni í haust. Hún bendir á að hér á landi séu hlut- fallslega fleiri lögreglumenn á íbúa heldur en annars staðar á Norðurlönd- Tölvupóstlestur rannsakaöur Búið er að kalla hlutaðeigandi aðila til yfirheyrslu í rannsókn lögreglunn- ar á meintum lestri starfsmanns Sím- ans á tölvupósti viðskiptavinar fyrir- tækisins. Könnuð era brot á fjarskipta- lögum og hins vegar hvort starfsmaður Símans hafi verið borinn röngum sök- um. Ekki er reiknað með niðurstöðu í málinu strax. Minni tekjur Bein og óbein afleiðing gengislækk- unar íslensku krónunnar orsakaði yfir 100 m.kr. gjaldahækkun á rekstri Sam- vinnuferða-Landsýnar hf. fyrstu 6 mánuði ársins 2001. Rekstrartekjur fé- lagsins fyrstu 6 mánuði ársins 2001 námu 769 m.kr. sem er um 29% veltu- minnkun frá árinu 2000. -HKr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.