Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2001, Blaðsíða 10
10
Útlönd
FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2001
J>V
Slobodan Milosevic
Fyrrum Júgóslavíuforseti lét
saksóknara stríösglæpadómstóls
SÞ fá þaö óþvegiö í gær.
Milosevic úthúð-
aði stríðsglæpa-
dómstólnum
Slobodan Milosevic, fyrrum
Júgóslaviuforseti, úthúðaði stríðs-
glæpadómstóli Sameinuðu þjóðanna
þegar hann kom fyrir réttinn öðru
sinni i gær. Hann sagði dómstólinn
meingallaðan og að afleiðingarnar
fyrir leit mannkynsins að friði,
meðal annars, yrðu hrikalegar.
Carla Del Ponte, aðalsaksóknari
stríðsglæpadómstólsins, svaraði
óbótaskömmunum með því að til-
kynna að Milosevic yrði ákærður í
október fyrir meinta stríðsglæpi í
Bosníu og Króatíu. Áður var búið
að kæra hann fyrir glæpi gegn
mannkyni fyrir þjóðernishreinsan-
irnar í Kosovo árið 1999..
„Hann verður ákærður fyrir þjóð-
armorð í Bosníu," sagði Del Ponte
og bætti við að enn væri ekki búið
að ákveða hvernig ákæran fyrir
glæpina í Króatiu myndi hljóða.
Milosevic fór svo mikinn í réttar-
salnum að dómarinn sá sig knúinn
til að þagga niður í honum.
Ný-Sjálendingar koma til hjálpar í flóttamannamálinu:
Ástralska þingið
fellir neyðartillögu
Áströlsk stjómvöld sæta sífellt
harðari gagnrýni á alþjóðavettvangi
vegna afstöðu sinnar í máli afgönsku
flóttamannanna sem dvelja á norska
flutningaskipinu Tampa, sem legið
hefur við ankeri við Jólaeyjar síðan
um heigina. Stjórnin hefur einnig orð-
ið fyrir harðri gagnrýni heima fyrir
og virðist sem John Howard forsætis-
ráðherra sé að missa tökin á málinu
miðað við afstöðu ástralska þingsins í
gær. Þá var tillaga ríkisstjórnarinnar
um neyðarlög felld í efri deild þings-
ins en lögin hefðu heimilað stjóminni
að beita vaidi við að koma skipinu út
úr ástralskri landhelgi. Howard er þó
jafnharður í afstöðu sinni og segist
ekki muni gefa skipinu leyfi til að
koma i átralska höfn.
í kjölfarið leituðu áströlsk stjóm-
völd eftir hjálp sameinuðu þjóðanna
og mun Alexander Dower utanríkis-
ráðherra hafa verið í sambandi við
fulltrúa SÞ á Austur-Timor en ætlun-
in er að fulltrúar Ástrala, Noregs og
Indónesíu hittist á fundi í Genf i
kvöld til að flnna lausn á málinu.
Stjórnvöld á Austur-Tímor sögðust
í morgun tilbúin að koma til hjálpar
með því að bjóða flóttafólkinu tíma-
bundið hæli og Ný-Sjálendingar hafa
þegar gefið vilyrði fyrir að taka við
hluta af fólkinu. Helen Clarke, forsæt-
isráðherra Nýja-Sjálands, sagði það
skyldu alþjóðasamfélagsins að koma
fólkinu til hjálpar og sagði mögulegt
að taka við um 100 manns. Þá var
norski sendiherrann í Ástralíu vænt-
anlegur um borð í skipið í dag til að
kanna ástandið og ræða málið við
skipstjórann.
Norski sendiherrann á Jólaeyju
Ove Thorsheim, sendiherra Norömanna í Ástralíu, viö komuna til Jólaeyja en
hann ætlaði aö skoöa aöstæður um borö í norska flóttamannaskipinu sem
legiö hefur viö ankeri viö eyjarnar síöan um helgina.
UPPBOÐ
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Skógarhlíð 6,
Reykjavík, sem hér segir á eftir-
_________farandi eignum:__________
Álakvísl 72, 0101, 3ja herb. íbúð,
Reykjavík, þingl. eig. Edda Dagný Öm-
ólfsdóttir, gerðarbeiðendur Búnaðarbanki
fslands hf„ Glitnir hf., Íslandsbanki-FBA
hf„ Sparisjóður Reykjavíkur og nágrenn-
is, Sparisjóður Rvíkur og nágrennis og
Sparisjóður vélstjóra, útibú, þriðjudaginn
4. september 2001, kl. 10.00.
Ármúli 38, 0103, 117,2 fm verslunarhús-
næði á 1. hæð t.v. m.m. (Hljóðfæraversl-
unin hf.), Reykjavík, þingl. eig. Hljóð-
færaverslun Pálmars Árna ehf„ gerðar-
beiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf„
þriðjudaginn 4. september 2001, kl.
10.00.
Fannafold 160, Reykjavík, þingl. eig.
Guðmundur Birgir Stefánsson og Nanna
Björg Benediktz, gerðarbeiðandi Toll-
stjóraembættið, þriðjudaginn 4. septem-
ber 2001, kl, 10.00.______________
Flétturimi 7, 010304, 112,1 fm íbúð á 3.
og 4. hæð ásamt geymslu 0002 og bíla-
stæði nr, B-9 m.m„ Reykjavík, þingl. eig.
Stíghús ehf. (Ice Beauty Ltd), gerðarbeið-
andi Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 4.
september 2001, kl. 13.30.
Hjarðarhagi 45,0101, verslunar- og skrif-
stofuhús á S-hluta lóðar, Reykjavík,
þingl. eig. fsbúðin ehf., gerðarbeiðendur
Lífeyrissjóður verslunarmanna og Toll-
stjóraembættið, þriðjudaginn 4. septem-
ber 2001, kl. 13.30.
Hraunbær 24, 0101, íbúð á 1. hæð t.v.
m.m„ Reykjavík, þingl. eig. Ólafur
Straumland og Katrín Marisdóttir, gerð-
arbeiðendur Landsbanki Islands hf., höf-
uðst., Sameinaði lífeyrissjóðurinn, Spari-
sjóður Rvíkur og nágr., útib„ og Toll-
stjóraembættið, þriðjudaginn 4. septem-
ber 2001, kl. 13.30.______________
Laugavegur 138, 0301, 79,9 fm íbúð á 3.
hæð, Reykjavík, þingl. eig. Vélaleiga
K.Ó. ehf., Hafnarfirði, gerðarbeiðendur
Ibúðalánasjóður og sýslumaðurinn í
Hafnarfirði, þriðjudaginn 4. september
2001, kl. 13.30.
Leifsgata 3, 50% ehl. í 0201, miðhæð
m.m„ Reykjavík, þingl. eig. Júlíus Krist-
ófer Eggertsson, gerðarbeiðandi sýslu-
maðurinn í Hafnarfirði, þriðjudaginn 4.
september 2001, kl. 13.30.
Melabraut 46, Seltjamamesi, þingl. eig.
Þröstur H. Elíasson, gerðarbeiðandi Toll-
stjóraembættið, þriðjudaginn 4. septem-
ber 2001, kl. 13.30.
Sigtún 59, 0101, 3ja herb. íbúð á 1. hæð
m.m. og bílskúr, 8,992%, Reykjavík,
þingl. eig. Guðmundur Ragnar Bjömsson
og Sigríður Sveinsdóttir, gerðarbeiðendur
Ibúðalánasjóður og Tollstjóraembættið,
þriðjudaginn 4. september 2001, kl.
10.00.
Síðumúli 27, 010301, 332,4 fm vinnusal-
ur á 3. hæð og risloft m.m., Reykjavík,
þingl. eig. Viðskiptanetið hf„ gerðarbeið-
andi Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 4.
september 2001, kl. 13.30.
Skeiðarvogur 35,0001,2ja herb. kjallara-
íbúð, Reykjavík, þingl. eig. Pétur Guð-
bjartsson, gerðarbeiðendur Húsasmiðjan
hf. og fbúðalánasjóður, þriðjudaginn 4.
september 2001, kl. 13.30.
Skeljatangi 44,0201,4ra herb. íbúð, 88,7
fm á 2. hæð ásamt útigeymslu, Reykja-
vík, þingl. eig. Jón Vigfús Bjamason og
Svanfríður Linda Jónasdóttir, gerðarbeið-
endur Ingvar Helgason hf., Ibúðalána-
sjóður og Mosfellsbær, þriðjudaginn 4.
september 2001, kl. 10.00.
Skógarás 9, 0301, 3ja herb. íbúð á 3ju
hæð t.v., Reykjavík, þingl. eig. Hjörtur
Bergstað, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóð-
ur, þriðjudaginn 4. september 2001, kl.
10.00.
Skógarás 11, 0202, 5 herb. íbúð á 2. hæð
t.h„ Reykjavík, þingl. eig. Judit Trausta-
dóttir og Ómar Sævar Gíslason, gerðar-
beiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf.
og Greiðslumiðlun hf .- Visa ísland,
þriðjudaginn 4. september 2001, kl.
10.00.
Skólavörðustígur 17A, 0001, kjallaraí-
búð, þingl. eig. Öm Ingólfsson, gerðar-
beiðandi Tollstjóraembættið, þriðjudag-
inn 4. september 2001, kl. 10.00.
Sólheimar 20, 0001, 3ja herb. kjallaraí-
búð, 1 herb. og snyrtiherb. í kjallara,
Reykjavík, þingl. eig. Guðrún Kristjáns-
dóttir og Guðni Eðvarðsson, gerðarbeið-
endur Ibúðalánasjóður, Lífeyrissjóður
verslunarmanna og Tollstjóraembættið,
þriðjudaginn 4. september 2001, kl.
10.00.
Stigahlíð 28,0402, 75,2 fm íbúð á 4. hæð
t.h. m.m„ Reykjavík, þingl. eig. Þórdís
Leifsdóttir, gerðarbeiðandi Tollstjóra-
embættið, þriðjudaginn 4. september
2001, kl. 10.00.
Stúfholt 3. 0201, 50% ehl. í 72,1 fm íbúð
á 2. hæð t.v. m.m., Reykjavík, þingl. eig.
Haraldur Ágúst Bjamason, gerðarbeið-
andi Kreditkort hf„ þriðjudaginn 4. sept-
ember 2001, kl. 13.30.
Súðarvogur 32, 0301, 3ja hæð, Reykja-
vík, þingl. eig. Ólafur Haraldsson, gerð-
arbeiðandi Tollstjóraembættið, þriðju-
daginn 4. september 2001, kl. 10.00.
Svarthamrar 19, 0102, 4ra herb. íbúð á 1.
hæð, Reykjavík, þingl. eig. Margrét Sig-
ríður Sævarsdóttir, gerðarbeiðandi Toll-
stjóraembættið, þriðjudaginn 4. septem-
ber 2001, kl. 10.00.
Svarthamrar 48, 0101, 3ja herb. íbúðá 1.
hæð, Reykjavík, þingl. eig. Guðrún Jó-
hanna Amórsdóttir, gerðarbeiðendur
Ibúðalánasjóður, Islandsbanki-FBA hf„
útibú 526, og Tollstjóraembættið, þriðju-
daginn 4. september 2001, kl. 10.00.
Tryggvagata 4, 0305, Hamarshúsið, íbúð
á 3. hæð, Reykjavík, þingl. eig. Vatnsiðj-
an Lón ehf., gerðarbeiðendur Lífeyris-
sjóðurinn Lífiðn og Tollstjóraembættið,
þriðjudaginn 4. september 2001, kl.
13.30.
Tungusel 1, 0301, 4ra herb. íbúð á 3.
hæð, Reykjavík, þingl. eig. Júníus Páls-
son, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið,
þriðjudaginn 4. september 2001, kl.
10.00.
Unufell 33,0402,4ra herb. íbúð, 92,2 fm,
á 4. hæð t.h. m.m„ Reykjavík, þingl. eig.
María Guðfinna Andrésdóttir, gerðar-
beiðandi Ibúðalánasjóður, þriðjudaginn
4. september 2001, kl. 10.00.
Völvufell 50, 0202, 4ra herb. íbúð, 92,2
fm, á 2. hæð t.h. m.m„ Reykjavík, þingl.
eig. Ingibjörg Hauksdóttir, gerðarbeið-
andi Ibúðalánasjóður, þriðjudaginn 4:
september 2001, kl. 10.00.
Þingholtsstræti 1, Reykjavík, þingl. eig.
Valdimar Jónsson, gerðarbeiðendur Líf-
eyrissjóðurinn Framsýn, sýslumaðurinn á
Selfossi og Tollstjóraembættið, þriðju-
daginn 4. september 2001, kl. 13.30.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Baldursgata 28, 25% ehl„ Reykjavík,
þingl. eig. Björg Stefánsdóttir, gerðar-
beiðendur íslandsbanki hf„ höfuðst. 500,
og Sameinaði lífeyrissjóðurinn, þriðju-
daginn 4. september 2001, kl. 13.30.
Bárugata 37, 0001, 78,76 fm 3ja herb.
íbúð í kjallara t.h. m.m. ásamt geymslu,
merkt 0002, Reykjavík, þingl. eig. Guð-
rún Kristjánsdóttir, gerðarbeiðendur
Ibúðalánasjóður og Tollstjóraembættið,
þriðjudaginn 4. september 2001, kl.
14.30. ___________________________
Lóð úr landi Miðdals, Mosfellsbæ, þingl.
eig. Mosfellsbær, gerðarbeiðandi Lands-
banki Islands hf„ aðalbanki, þriðjudaginn
4. september 2001, kl. 11.30.
Miðholt 7, 0303, 50% ehl. í 3. hæð t.h„
Mosfellsbæ, þingl. eig. Sigurður L. Ein-
arsson, gerðarbeiðandi Tollstjóraembætt-
ið, þriðjudaginn 4. september 2001, kl.
10.30. ___________________________
Reynimelur 29, Reykjavík, þingl. eig.
Guðrún Bjomsdóttir, gerðarbeíðendur
Landsbanki íslands hf., höfuðst., og Toll-
stjóraembættið, þriðjudaginn 4. septem-
ber 2001, kl, 15.30.______________
Víðimýri Mosfellsbæ, spilda úr landi Úlf-
arsár, þingl. eig. Búðir ehf., gerðarbeið-
andi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf.,
þriðjudaginn 4. september 2001, kl.
12.00.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Stuttar fréttir
Enginn vil nektarmyndina
Franskir Qöl-
miðlar hafa afþakk-
að boð um að kaupa
myndir af Jacques
Chirac forseta þar
sem hann spókar
sig allsnakinn fyrir
utan sumarhús sitt
við Miðjarðarhafs-
ströndina. Að sögn háðsritsins Le
Canard Enchainé var myndin tekin
af ljósmyndara sem hafði setið um
sumarhús forsetans.
Heita frekari samvinnu
Serbnesk stjórnvöld ætla að halda
áfram samvinnu sinni við stríðs-
glæpadómstól SÞ og framselja fleiri
menn sem grunaðir eru um stríðs-
glæpi, að því er forsætisráðherra
Serbíu, Zoran Djindjic, upplýsti í
gær.
Atkvæði talin á A-Tímor
Byrjað er að telja atkvæðin í
fyrstu lýðræðislegu þingkosningun-
um á Austur-Tímor. Búist er við að
frelsishreyfingin Fretilin fái yfir-
gnæfandi meirihluta atkvæða. End-
anleg úrslit verða ekki ljós fyrr en
10. september.
Evran kynnt
Forráðamenn evrópska seðla-
bankans hafa hrundið af stokkun-
um umfangsmikilli kynningarher-
ferð á evrunni, sameiginlegri mynt
ESB sem tekur gildi í tólf löndum
um áramót.
Elian aftur til BNA
Kúbverski dreng-
urinn Elian Gonza-
lez, sem var mið-
punktur hatrammr-
ar forræðisdeilu
mihi ættingja í
Flórída annars veg-
ar og föður á Kúbu
hins vegar, verður
hugsanlega hluti af kúbverskri
sendinefnd sem sækir barnafund
Sameinuðu þjóðanna í New York í
nóvember.
Sjö dularfull dauðsföll
Lík konu og fimm barna hennar
fundust í húsi í Sioux City í Iowa í
Bandaríkjunum f gær. Lík karl-
manns fannst á öðrum stað og kann-
ar lögreglan nú hvort einhver tengsl
eru þarna á milli.
Hitti Suu Kyi
Sendifulltrúi SÞ
hefur lokið fjögurra
daga heimsókn
sinni til Burma þar
sem hann hitti með-
al annarra stjórnar-
andstöðuleiðtogann
og friðarverðlauna-
hafann Aung San
Suu Kyi. Sendimaðurinn sagðist
bjartsýnn á árangur viðræðna her-
foringjastjórnarinnar og stjórnar-
andstæðinga.
Föður forsetans minnst
Suður-Afríkubúar vottuðu í gær
virðingu sína Govan Mbeki, bar-
áttumanni fyrir réttindum blökku-
manna og föður forseta landsins.
Mbeki lést á fimmtudag, 91 árs að
aldri.
Fimm iétust í varðhaldi
Fimm félagar til viðbótar úr trú-
arhreyfingunni Falun Gong í Kína
hafa látist í varðhaldi hjá lögreglu
vegna illrar meðferðar.