Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2001, Blaðsíða 23
27
FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2001
DV Tilvera
Hjartaknúsarinn 52 ára
Hjartaknúsarinn og
kvennagullið Richard
Gere er 52 ára í dag.
Gere er fæddur í borg-
inni Philadelphiu í
Pennsylvaniu. Hann
byrjaöi i háskóla en
hætti fljótlega og ákvað að reyna frek-
ar fyrir sér sem leikari. Eftir að hann
tók að sér að leika aðalhlutverkið í
Pretty Woman á móti Juliu Roberts
hefur hann komist á beinu brautina
og fengið hvert stórhlutverkið á fætur
öðru. Sambýliskona hans er leikkon-
an Carey Lowell og eiga þau soninn
Homer James Jigme Gere sem er tæp-
lega eins og hálfs árs.
Hruturinn (21
i viuuiquiii u
"V I
og þao sem \
Glldir fyrir laugardaginn 1. september
Vatnsberinn (20. ian.-i8. febr.l:
, Þú verður óþyrmilega
fyrir barðinu á seina-
wm gangi annarra í dag og
* upplýsingar, sem þú
þarfnast nauðsynlega, gætu borist
of seint.
Rskarnir (19. febr.-20. mars):
Fréttir sem þú færð eru
I ef til viU einmitt þær
upplýsingar sem þig
vantar til að ljúka við
ákveðið verkefni. Kvöldið verður
ánægjulegt í faðmi fjölskyldunnar.
Hrúturinn (21. mars-19. aprii):
. Þetta verður góður
I dagur á vettvangi fé-
lagsmála. Þeir sem
hafa gengið í gegninn
erfiðleika í ástarlífinu fara nú að
sjá bjartari tið á því sviði.
Nautið (20. apríl-20. maíl:
/ Samkeppni af ein-
hverju tagi vekur
áhuga þinn og eykur
atorku. Forðastu að
eyða of miklu í óþarfa. Ferðalag
er á dagskrá.
Tvíburarnir (21. maí-21. iúní):
Ljúktu við þaö sem þú
’ þarft nauðsynlega að
gera svo að þú hafir
tíma fyrir skemmtanir
og þaff sem gæti komið upp fyrir-
varalaust.
Krabbinn (22. iúní-22. iúin:
Þú getur staðið fast á
I þínu í samræðum en ef
þú mætir einhverjum
sem er enn þverari
■ þú að gæta þess að taka
málið ekki of alvarlega.
Liónlð (23. iúlí- 22. áeiistl:
Fólk gæti fengið það á
tilfmninguna að þú
hafnaðir þvi ef þú ein-
blínir of mikið á sjálf-
an þig og fundist sem þú vanrækt-
ir það.
Mevian (23. áeúst-22. seot.l:
a- Þótt þú hittir fyrir
tungulipra manneskju
^^^tverður þú að gæta þín
' * T að láta hana ekki snúa
skoöunum þínum eins og henni
sýnist.
Vogin (23. sept-23. okt.l:
Fjáimálin standa vel
og mimu fljótlega
standa enn betur þar
sem viðskiptin
blomstra hjá þér. Láttu það eftir
þér að taka það rólega í kvöld.
Sporðdreki t?4. okt.-?i. nðv.J:
I Þú gætir lent í snúinni
aðstöðu í dag þar sem
jþú veist ekki hvort þú
átt að beita kænsku
eða sýna góðvild. Eitthvað gerir
þig tortrygginn í ákveðnu máli.
Bogamaður (22. nóv.-2l. des.):
LÞú átt í erflðleikum
'með að koma þér nógu
vel á framfæri. Ekki
vera með þessa minni-
máttarkennd. Þú getur allt sem
þú vilt ef þú leggur þig fram.
Steingeitln (22. des.-l9. ian.):
Það kemur sér vel að
nota skynsemina í
samskiptum við hitt
kynið. Ekki treysta
um of á hjálp sem þér hefur
verið lofað.
Tæki og tól
Tæknimenn vinna viö að stilla búnaöinn til aö
senda brúökaupið inn á Netiö.
Ríðandi að fornum sið
Brúðhjónin komu ríöandi til athafnarinnar á Strák og Krapa frá Ytri-Skógum.
Giftu sig í Hálsanefs-
helli undir Reynisfjalli
- brúðkaupið í beinni útsendingu á Netinu
Borgaralegt brúðkaup
Siguröur Gunnarsson, sýslumaöur í Vík, gaf Timothy og
Alison saman í Hálsanefshelli undir Reynisfjalli.
Innsfgla með kossi
Eins og lög gera ráö fyrir kyssti Timothy sína heittelskuöu
Alison í iok athafnarinnar.
Fyrr í vikunni var haldið allsér-
stætt brúðkaup í Hálsanefshelli
undir Reynisfjalli í Vík þegar Ali-
son Matochak, 32 ára rithöfundur.
og Timothy Masick, 32 ára tölvu-
graflker frá New York, voru gefln
saman. Athöfnin fór fram í fogru og
björtu veðri. Sigurður Gunnarsson,
sýslumaður í Vík, gaf þau saman en
Kristinn Bergsson leiðsögumaður
var svaramaður.
Þar sem fjölskylda og vinir brúð-
hjónanna eru dreifðir um víða ver-
öld gripu þau til þess ráðs að senda
brúðkaupið út í gegnum gervihnött
Cruise kærir
Erótíski fjölbragðaglímumaður-
inn, Kyle Bradford, sem kvikmynda-
stjarnan Tom Cruise hefur kært
vegna viðtals í franska slúðurblað-
inu Actustar, hefur staðfest að við-
talið sé uppspuni frá upphafi til
enda og að blaðið hafi aldrei rætt
við hann. í umræddu viðtali kemur
fram að Cruise, sem stundaði fjöl-
bragaðaglímu á námsárunum, sé
elskhugi Bradfords og fleira i þeim
dúr. „Ég þekki ekki einu sinni
manninn," sagði Bradford. Lögmenn
Cruise lögðu fram kæru gegn Brad-
ford í byrjun maí og er þar farið
fram á litlar 69 milljónir punda í
skaðabætur. „Ég er búinn að gera
grein fyrir mínum málum og ef
Cruise heldur málinu til streitu verð
ég að lýsa mig gjaldþrota og þar með
fellur fjárkrafan niður. Þetta jaðrar
við ofsóknir af hans hálfu.“
og inn á Netið. Þau höföu boðið 300
manns að horfa á athöfnina beint.
Brúðhjónin höfðu komið til
Reykjavíkur um áramótin 1999-2000
og hrifist svo af landi og þjóð að þau
ákváðu að koma hingað til að gifta
sig.
Brúðhjónin komu ríðandi til at-
hafnarinnar. Alison var í himinblá-
um brúðarkjól sem hún hafði valið
með tilliti til litanna í íslenskri nátt-
úru. Brúðkaupsnóttinni eyddu þau
svo að Hótel Skógum en fóru siðan í
þriggja daga ferðalag um hálendið.
Hægt er að skoða brúðkaupið á
slóðinni www.matochak.com/wedd-
ing.html.
-ÁE
FOSTUDAGSKVÖLDIÐ
LAUGARDAGSKVOLDIÐ
HLJÓMSVEITIN
GREIFARNIR
VERÐA I STUÐI
HLJÓMSVEIT
GEIRMUNDAR
VALTÝSSONAR
Allir íþróttaviðburðir í beinni á risaskjám. Pool. Góður matseðill.
Tökum að okkur hópa, starfmannafélög. Stórt og gott dansgólf.