Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2001, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2001, Blaðsíða 28
Subaru Impreza FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö I DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Bensínverö: Hækkun ligg- ur í loftinu Verðbreytingar á bensíni lágu í loftinu hjá olíufélögunum i morgun. Samkvæmt því sem DV komst næst má gera ráð fyrir að bensínlítrinn hækki um um það bil eina krónu nú um mánaðamótin. Olíufélögin munu funda um hugsanlegar verðbreyting- ar í dag. Er gert ráð fyrir að niður- stöður liggi fyrir þegar líða tekur á daginn. Til grundvallar leggja þau meðaltal mánaðarins á heimsmark- aðsverði á bensini og gengi dollars á síðasta degi mánaðar. Að sögn Runólfs Ólafssonar, fram- kvæmdastjóra Félags íslenskra bif- reiðaeigenda, hefur heimsmarkaðs- verð á bensíni verið að stíga síðari hluta mánaðarins. Á móti kemur að gengi krónunnar hefur heldur styrkst gagnvart dollar á sama tíma. „Það er ekki ljóst enn hvort þessi þróun á heimsmarkaði hefur áhrif í átt til verðbreytinga," sagði Runólfur við DV í morgun. Heimsmarkaðsverð á tonninu af 95 oktana bensíni er nú 260 dollarar. Verðið hefur sveiflast að undanfórnu og fór mest niður i 215-218 dollara um tíma í síðasta mánuði. -JSS í Helgarblaði DV á morgun er ítarlegt viðtal við Alexander Bjöm Gíslason, heimilislausan öryrkja, sem hefur ákveðið að steftia Reykjavíkurborg til þess að fá þak yfir höfuðið. Alexander segir ótrúlega sögu sina og sýnir lesend- um inn í veröld hinna heimilislausu. Einnig er í blaðinu viðtöl og umfjöllun um landnám taílenskra kvenna á nokkrum sveitabæjum í Kelduhverfi sem hefur breytt menningu sveitarinn- ar á ýmsan hátt. Fjallað er um þá sem feta í fótspor feðra sinna í íslenskum stjómmálum og ástæður þess að menn kjósa að gera það. Viðtöl em í blaðinu við Ólaf Kjartan Sigurðarson, fyrsta fastráðna söngvara íslensku óperunnar, og Sigurð Flosason saxófónleikara sem blæs fyrir allt og aila. Æft fyrir alvöruleik Lærisveinar Atla Eövaldssonar, landsliösþjálfara íslands í knattspyrnu, undirbúa sig nú af krafti fyrir landsleik íslands og Tékklands á Laugardalsvelli kl. 14 á morgun. Ekki er aö efa aö leikurinn veröur skemmtilegur á að horfa, enda Tékkar engir aukvisar á knattspyrnuvellinum. Hér að ofan sjást leikmennirnir Árni Gautur Arason og Auöun Helgason en fjær er Jóhannes Karl Guðjónsson. Borað eftir heitu vatni á Hellisheiði skammt frá Skíðaskálanum í Hveradölum: Stefnt að 120 mega- vatta gufuaflsvirkjun - óbeisluð gufan á Hellisheiði getur mætt aukinni orkuþörf til stóriðju Þeir sem fara um Hellisheiði taka eftir því að á heiðinni hafa jarðbor- ar verið_ reistir og fluttir til i allt sumar. Á vegum Orkuveitu Reykja- víkur hefur þegar verið boruð ein 1.900 metra djúp hola á ská undir Skarðsmýrarfjall. Nú er verið að koma stærsta bor landsins fyrir við norðurhlíðar Stóra Reykjafells en Skíðaskálinn í Hveradölum er sunn- an við fjallið. „Við munum bora tæplega tveggja kílómetra djúpa holu á ská í jarðhita- svæðið við Hveradali, þegar borun þar lýkur verður sú hola látin jafna sig og hitna eins og nú er verið að gera við Skarðsmýrarfjall. Siðan verða holurnar látnar blása, í fram- haldi af því verða þær mældar til að sjá hvað þær gefa af sér,“ sagði Alfreð Þorsteinsson, stjómarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, við DV. Alfreð segir að á næsta ári sé ráð- gert að bora 2-3 holur af sömu stærð til viðbótar á Hellisheiði í rannsókn- DV-MYND NJORÐUR HELGASON Bormenn á fjalli Bor Jaröborana í vegarkarrti Suöur- landsvegar á Hellisheiði. arskyni. Þessar boranir á Hellisheiði eru gerðar í ákveðnum tilgangi. „Við stefnum aö byggingu 120 megavatta gufuaflsvirkjun á svæðinu, nálægt Kolviðarhóli, sem ætti að vera komin í gagnið árið 2005. Þessi virkjun er hugsuð fyrir aukna orkuþörf fólks á Reykjavíkursvæðinu en einnig til að mæta aukinni orkuþörf til stóriðju," sagði Alfreð. Hann segir að nú sé fyrst og fremst verið að skoða vestur- hluta þess svæðis sem borgin á á Hellisheiði, fleiri staðir verði skoðað- ir í framtíðinni, til dæmis hafi verið boruð tilraunahola við Ölkelduháls. Auk djúpborana á svæðinu er ver- ið að bora grynnri holur á heiðinni til að áætla og fylgjast með áhrifum væntanlegrar virkjunar á grunn- vatnsstöðu á svæðinu. Framkvæmdir við gufuaflsvirkjanir þurfa að fara í umhverfismat eins og aðrar stórfram- kvæmdir. „Gufuaflsvirkjanir hafa allt önnur áhrif en vatnsaflsvirkjanir en það eru margir þættir sem þarf að skoða þegar ráðist er í byggingu þeirra eins og hvað jarðhitasvæðin geta gefið af sér án þess að gengið sé of nálægt þeim,“ sagði Alfreð Þor- steinsson. -NH Skinnaiðnaður hf.: 37 sagt upp „Þetta er sorglegt," sagði Bjöm Snæbjömsson, formaður Einingar- Iðju á Akureyri. Skinnaiðnaður hf. sagði i gær upp alls 37 starfsmönn- um. Ástæðan er sögð m.a. óvissa á skinnamörkuðum. Alls vinna 130 manns hjá fyrirtækinu. Bjöm sagði að þrátt fyrir þetta væri ástand atvinnumála á Akureyri nokkuð gott og ekki útlit fyrir fleiri hópuppsagnir. Nokkur stór matvæla- vinnslufyrirtæki í bænum væru t.d. að auglýsa eftir starfsfólki. -sbs Kaupfélag Árnesinga: Uppsagnir a hótelum KÁ hefúr sagt upp starfsfólki á tveimur af sex hótelum sínum, sem em frá Keflavík og austur á Kirkjubæj- arklaustur. Á Hótel Selfoss hefúr öllu starfsfólki utan hótelstjóranum verið sagt upp. Starfsfólkið sem fékk upp- sagnarbréfm er um tíu talsins og em uppsagnir óhjákvæmilegar, að sögn Jóhönnu Róbertsdóttur forstöðumanns hótelrekstrar kaupfélagsins. Þá hefúr öllu starfsfólki á Hótel Kirkjubæjarklaustri sem telur um hálfan tug verið sagt upp. Þær upp- sagnir koma til vegna skipulagsbreyt- inga, að sögn Jóhönnu. -sbs Mosfellsbær greiðir eina milljón króna vegna lóðaúthlutunar: Tíu þúsund krónur á hvern mann sem sótti um lóð en fékk ekki Um eitt hundrað manns hafa á und- anfómum dögum fengið senda tíu þús- und króna ávísun frá Mosfellsbæ. Um er að ræða fólk sem sótti um lóð á vest- ursvæði bæjarins í fyrra en fékk ekki. Úthlutunin var kærð til félagsmála- ráðuneytis sem felldi úrskurð síðast- liðið vor. í úrskurðinum kom skýrt fram að sveitarfélögum er óheimilt að mismuna fólki eftir búsetu - en aðferð- in sem bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ beittu var einmitt að veita þeim for- gang sem áttu að baki tíu ára búsetu i bænum. Mosfellsbær ver nú milljón krónum til að ljúka megi máli þeirra sem ekki fengu lóð á sínum tima. Jóhann Sigur- jónsson bæjarstjóri segir að með pen- ingagreiðslunni sé bærinn að reyna að koma til móts við þá umsækjendur sem ekki fengu lóð. „í úrskurði félags- málaráðuneytis kom fram að við hefð- um ekki haft heimild tl að láta bæjar- búa hafa forgang við úthlutun lóða á vestursvæði bæjarins. Við úthlutuðum um 40 lóðum á þessu svæði á síðasta ári og sökum mikils fjölda umsókna tók bæjarráð þá ákvörðun að þeir hefðu forgang sem búið hefði í tíu ár samfleytt í bænum,“ segir Jóhann. Þá segir bæjarstjóri að ákveðið hafi verið að tíu þúsund krónur væru hæfi- leg upphæð og færi nærri útlögðum kostnaði hvers og eins við lóðaum- sókn. „Við buðum fólki þessi málalok í júlí og af um hundrað manna hópi hafa aðeins tveir sent inn athugasemd- ir. Hinir hafa tekið við greiðslunni og teljum við að málinu sé lokið gagnvart þeim.“ Jóhann segir að lóðaúthlutanir í framtíðinni hljóti að fara þannig fram að umsækjendur verði dregnir úr potti og heppnin ein ráði hverjir fái lóð. -aþ Rafkaup Armúla 24 • S. 585 2800 Heilsudýnur t sérflokkil æfn&heil sa j Reykjavík 581 2233 Akureyri 461 1150

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.