Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2001, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2001
11
I>V
Útlönd
Hægri flokkurinn og sósíalistar sigurvegarar norsku stórþingskosninganna:
Verkamannaflokkurinn
beið mikið afhroð
DV, ÓSLÓ:
Strax klukkan níu I gærkvöld, þeg-
ar útgönguspár voru birtar, var ljóst
að svartsýnustu spár um fylgi norska
Verkamannaflokksins rættust, en
flokkurinn tapaði 23 þingmönnum.
Útgönguspáin gerði aðeins ráð fyrir
24,9 prósenta fylgi flokksins, sem er
versta útreið hans síðan 1927. Og
raunveruleikinn varð verri þvi flokk-
urinn fékk aðeins 24,4% atkvæða þeg-
ar upp var staðið og hafði þá tapað
10,5% fylgi. Þrátt fyrir afhroðið í
kosningunum vildi Jens Stoltenberg,
forsætisráðherra og þingleiðtogi
flokksins, ekki að ríkisstjórnin segði
af sér í nótt. Fyrst vill hann kanna hið
nýja pólitíska landslag sem kosning-
arnar færðu þjóðinni.
Hægri flokkurinn vann sinn
stærsta kosningasigur frá 1981 og er
nú næststærsti flokkur landsins með
21,3% atkvæða, 7% meira en í síðustu
kosningum. Forsætisráðherraefni
flokksins Jan Petersen sagði um leið
og fyrstu tölur birtust að þær væru
áköllun á stjórnarskipti sem skjótast.
Petersen vill, strax í dag, kanna mögu-
leikana á stjórnarmyndun með Kristi-
lega þjóðarflokknum og Kjell Magne
Bondevik, með stuðningi Framfara-
flokksins, Vinstri og Fjöruflokks
•Thorbjörn Jagland
Thorbjöm Jagland, utanríkisráöherra
Noregs og formaöur Verkamanna-
ftokksins, beiö mikiö afhroö i norsku
stórþingskosningunum í gær.
Steinars Bastesen. Kjell Magne
Bondevik getur vel unað við úrslit
kosninganna þar'sem flokkur hans
tapaði mun minna fylgi en gert var
ráð fyrir.
Annar sigurvegari kosninganna er
Sósíaliski vinstri flokkurinn, undir
forystu Kristinar Halvorsen. Flokkur-
inn jók fylgi sitt um sjö prósent, í
13,9%, og kemur inn á Stórþingið með
22 þingmenn, 14 fleiri en hann hafði
áður. Þrátt fyrir fylgisaukninguna
hafa vinstri flokkamir, SV og Verka-
mannaflokkurinn, færri þingmenn nú
en Verkamannaflokkurinn hafði einn
á síðasta kjörtímabili. Það er því ekki
útlit fyrir að Verkamannaflokknum
takist að haida um stjórnartaumana
nema nokkra daga til viðbótar.
Karl Ivar Hagen getur verið ánægð-
ur með niðurstöðuna fyrir Framfara-
flokkinn, en honum var spáð afhroði
en tapaði aðeins 0,6 prósentum og ein-
um þingmanni og er því enn þriðji
stærsti flokkur landsins með 14,7%
kjósenda á bak við sig.
Lengi leit út fyrir að Fjöruflokkur
Steinars Bastesens næði að bæta við
sig tveimur þingmönnum en sá
draumur leiðtogans brást á enda-
sprettinum. Steinar verður því eftir
sem áður eini þingmaður flokksins.
Það sem upp úr stendur eftir kosn-
ingarnar í gær er að Kristilegi þjóðar-
flokkurinn og Kjell Magne Bondevik,
eru í lykilhlutverki þegar kemur að
stjórnarmyndun. Ef marka má um-
mæli Bondeviks, bæði í kosningabar-
áttunni og eftir að fyrstu tölur birtust
í gærkvöld, er ekki útlit fyrir að tak-
ist að mynda starfhæfa ríkisstjórn í
nánustu framtíð. Bondevik aftekur
nefnilega með öllu að eiga nokkurt
samstarf við Framfaraflokkinn og
Karl I. Hagen. Án Framfaraflokksins
er myndun hægristjórnar nánast úr
sögunni þar sem stuðningur Vinstri
og Fiöruflokksins dugar ekki til að
mynda meirihluta með Hægri og
Kristilega. Það verður einnig erfitt
fyrir Bondevik að taka upp samstarf
við Verkamannaflokkinn og Stolten-
berg, sem hrakti hann frá völdum
fyrir 18 mánuðum. Alla kosningabar-
áttuna andaði köldu milli Bondeviks
og Stoltenbergs sem sakaði þann fyrr-
nefnda m.a. um fordóma í garð sam-
kynhneigðra. Ringulreiðinni í norsk-
um stjórnmálum er því hvergi nærri
lokið og enginn sýnilegur þingmeiri-
hluti er í augsýn sem stendur.
Kjell Magne Bondevik
Bondevik var þegar í nótt farinn aö
kanna landslagiö og möguleikana.
Bondevik kannar
hug Sponheims
Samkvæmt fréttum norskra fjöl-
miðla mun Kjell Magne Bondevik,
leiðtogi Kristilega þjóðarflokksins,
strax í nótt hafa hringt í Lars Spon-
heim, leiðtoga Vinstri flokksins, þegar
Ijóst var í hvað stefndi í norsku stór-
þingskosningunum og rætt við hann
um möguleikana á hugsanlegu stjórn-
arsamstarfi þeirra við Jan Petersen,
formann Hægri flokksins. Svar Spon-
heims mun hafa verið að hann lokaði
ekki neinum dyrum en að Vinstri,
sem aðeins hafa tvo þingmenn, þyrftu
tíma til að hugsa málið.
Skólakrakkar fagna forseta sínum
Nemendur í Justina grunnskólanum i Jacksonville á Ftórída umkringdu George W. Bush Bandaríkjaforseta þegar hann
heimsótti þá i gær. Forsetinn tók þátt i málþingi um lestur og hitti einnig aö máli þróöur sinn, ríkisstjórann, Jeb Bush.
m a s t e r k e r f i
Senaumum
-Íand-fllít—
Smíðum og setjum upp allar stærðir af lyklakerfum.
Við komum á staðinn
og veitum
að
Sérverslun og verkstæði með lykla,
læsingar og skyldar vörur.
NEYÐAR
ÞJONUSTAN
1 y k 1 a o g
lásasmiðjan
Laugavegi 168, 105 Reykjavík, Sími: 562 5213, Fax: 562 5278
„AL.LT HEFUR VERIÐ FUNDIÐ UPP SEM HÆBT ER AÐ FINNA UPP“.
CHARLEB H. OUELL, STJÓRNARFORMABUR BANDARIskU EINKALEYnSBKRIPBTOFUNNAR, 1899.
Er ekki full
-r~
ASTÆÐA TIL
ÞESS AÐ FYLQJAST MEÐ?
>lal )l;i<)i(^