Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2001, Blaðsíða 22
26
ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2001
Islendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
85 ára________________________________
Tómas Tómasson,
Kistuholti 3a, Selfossi.
80 ára_______________________________
Krístján Loftsson,
Aöalbraut 25, Drangsnesi.
Hann tekur á móti gestum í samkomu-
húsinu Baldri, Drangsnesi, laugard.
15.9. kl. 20.30.
Sigríður S. Jónsdóttir,
Sléttuvegi 17, Reykjavík.
75 ára_______________________________
Bjarni Ásmundsson,
Sogavegi 148, Reykjavík.
Ingibjörg Ólafsdóttir,
Vallargötu 12, Súöavík.
Kristján Sigurösson,
Staöarborg, Breiödalsvík.
Páll Marteinsson,
Byggðavegi 124, Akureyri.
Sigfríöur Björnsdóttir,
Faxastíg 9, Vestmannaeyjum.
Sigurbjörg Óskarsdóttir,
Lautasmára 22, Kópavogi.
Stefanía Ástvaldsdóttir,
Víðigrund 28, Sauðárkróki.
70 ára_______________________________
Guöni Hans Bjarnason,
Vindási 1, Reykjavík.
Svavar Jónsson,
Laugarholti 7e, Húsavík.
Sveinbjörn Hjálmarsson,
Kirkjubæjarbraut 2, Vestmannaeyjum.
60 ára_______________________________
Björk Aðalsteinsdóttir,
Ægistöu 94, Reykjavík.
Elsa Bjarnadóttir,
Stóra-Fjaröarhomi, Hólmavík.
Kristín Jónsdóttir,
Kársnesbraut 113, Kópavogi.
Ólína Sigurbjört Guömundsdóttir,
Grenivík, Grímsey.
Þórhallur Magnússon,
Asparási 6, Garðabæ.
50 ára_______________________________
Björg Pétursdóttir,
Dalatanga 1, Mosfellsbæ.
Guörún Árnadóttir,
Seiöakvísl 17, Reykjavík.
Halldór Sigurösson,
Syöri-Sandhólum, Húsavík.
Lárus Ögmundsson,
Kjalarlandi 3, Reykjavík.
Sigurgeir Benediktsson,
Hagatúni 8, Höfn.
40 ára________________________
Erik Jensen,
Lóni, Akureyri.
Jóna Hálfdánardóttir,
Grundarási 11, Reykjavík.
Jónína Björg Guömundsdóttir,
Álakvísl 10, Reykjavík.
Sigrún Andersen,
Stórageröi 31, Reykjavík.
Sigrún Baldursdóttir,
Vesturási 49, Reykjavík.
Snorrí Þór Snorrason,
Silfurbraut 6, Höfn, Hornafirði.
Valur Sveinbjörnsson,
Langholtsvegi 76, Reykjavík.
Smáauglýsingar
sa
visir.is
Andlát
Vigfúsína Erlendsdóttir, áöur til heimilis
I Miötúni 19, lést á hjúkrunarheimilinu
Eir miövikud. 29.8. Jaröarförin hefur far-
iö fram I kyrrþey.
Svava Slgríöur Kristjánsdóttir frá fsa-
firöi, síðast til heimilis á írabakka 16,
lést á Landspítala Hringbraut laugard.
1.9. sl. Útförin hefur fariö fram í kyrrþey
aö ósk hinnar látnu.
Hulda Gígja lést á Landspítala Landa-
koti föstud. 7.9.
Ásgeir Magnússon vélstjóri, Hrafnistu,
Hafnarfiröi, lést laugard. 1.9. Útförin
hefur fariö fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Jensína Sigurjónsdóttir, Hrafnistu
Reykjavík, áöur Kleppsvegi 118, lést
fimmtud. 30.8. sl. Jaröarförin hefur far-
iö fram í kyrrþey aö ósk hinnar iátnu.
DV
Hundrað ára
Sigurbjörg Benediktsdóttir
húsmóðir og saumakona
Sigurbjörg Benediktsdóttir, hús-
móðir og saumakona, Norðurbrún
1, Reykjavík, er hundrað ára í dag.
Starfsferill
Sigurbjörg fæddist á Breiðabóli á
Svalbarðsströnd og ólst upp á
Breiðabóli í stórum systkinahópi,
gekk í bamaskóla á Svalbarðs-
strönd og fór eftir fermingu að
vinna fyrir sér. Sigurbjörg var m.a.
í vistum á annáluðum myndar-
heimilum.
Er Sigurbjörg giftist hófu þau
hjónin búskap á Héðinshöfða á Tjör-
'nesi en fluttu þaðan að Sellandi í
Fnjóskadal þar sem þau bjuggu í
fimm ár. Þá lést eiginmaður hennar
af slysfórum. Hún flutti þá með
börn sin á æskuslóðir og síðan til
Akureyrar.
Fjölskylda
Sigurbjörg giftist 18.12. 1926 Sig-
tryggi Friðrikssyni, f. 24.10. 1901,
sem fórst í snjóflóði í Sallandsfjalli í
Fnjóskadal 26.10. 1934, smið og
bónda frá Neðri-Vindheimum á
Þelamörk. Foreldrar Sigtryggs voru
hjónin Friðrik Daníel Bjarnason, f.
16.2. 1868, d. 1.2. 1915, bóndi frá Þor-
móðsstöðum í Sölvadal í fram-Eyja-
firði, og Sigurrós Pálsdóttir, f. 25.7.
1872, d. 1.8. 1926, húsmóðir frá
Litlutjörnum í Ljósavatnsskarði.
Þau byrjuðu búskap í Brúnagerði í
Fnjóskadal, bjuggu síðar á Gili í
Eyjafjarðarsveit, en síðast og lengst
á Neöri-Vindheimum í Þelamörk.
Böm Sigtryggs og Sigurbjargar
eru Þráinn, f. 3.6. 1927, vélfræðing-
ur, kvæntur Ásu Haraldsdóttur, f.
12.7.1928 og eiga þau þrjú böm; Sig-
rún, f. 19.9. 1928, húsmóðir í Ástral-
íu og á hún fjögur böm; Hólmfriður
Árdís, f. 8.1.1931, var gift Jóni Árna
Egilssyni rafvirkja, f. 31.8. 1927 og
eiga þau tvö börn; Sigurrós, f. 5.9.
1932, var gift Jóni Péturssyni, f. 27.1.
1929, d. 31.10. 1997, bifvélavirkja og
eignuðust þau fimm börn.
Systkini Sigurbjargar voru
fimmtán. Þau voru Jóhannes, f. 4.7.
1888, d. 20.8. 1962, skipstjóri og
bóndi; Elinrós, f. 8.2. 1890, d. 4.3.
1974, ljósmóðir; Sigrún, f. 29.10.1891,
d. 27.10. 1988, bústýra; Jón, f. 16.3.
1894, d. 18.6.1991, yfirlögregluþjónn;
Jónatan, f. 18.9. 1895, d. 3.3. 1989,
smiður; Guðflnna Sessilía, f. 14.5.
1897, d. 28.7. 1982, húsmóðir; Krist-
ján, f. 12.3. 1899, d. 8.5. 1908; Guð-
mundur, f. 23.9. 1900, d. 10.11. 1900;
Anna, f. 11.6. 1905. d. 8.5. 1908; Sig-
mar Bergvin, f. 25.10. 1903, d. 3.3.
2001, skipstjóri og vélstjóri; Guð-
mundur, f. 5.5. 1907, d. 9.2. 2001;
Anna, f. 19.7. 1909, d. 8.5. 1926: Krist-
ján, f. 23.7.1912, d. 1.8.1912 á Breiða-
bóli; Axel, f. 29.4. 1914, d. 30.5. 1966,
skólastjóri.
Foreldrar Sigurbjargar voru
Benedikt Jónsson, f. 21.6. 1864, d.
18.12. 1945, bóndi, og Sessilía Jón-
atansdóttir, f. 10.8. 1867, d.18.9. 1950,
húsfreyja.
Ætt
Benedikt var sonur Jóns, frá
Neðribæ, í Grímshúsum Jónssonar,
Jónssonar, Sveinssonar, Torfason-
ar. Móðir Jóns Jónssonar var Sig-
ríður, frá Dálkstöðum Þórðardóttir,
Þorkelssonar, Þórðarsonar. Móðir
Sigriðar var María Jónsdóttir.
Móðir Benedikts var Guðfinna,
frá Hofstöðum við Mývatn, Jóns-
dóttir, frá Hofstöðum, Jónssonar,
frá Grænavatni, Ingjaldssonar. Móð-
ir Jóns Jónssonar var Guðrún frá
Hofstöðum, dóttir Andrésar Eiríks-
sonar og Þórdísar Kolbeinsdóttur.
Móðir Guðfinnu var Sigurlaug, frá
Ytri-Neslöndum, Guðlaugsdóttir, frá
Þórðarstöðum, Pálssonar. Móðir
Sigurlaugar var Sigríður frá Sand-
haugum, dóttir Þorsteins Þorsteins-
sonar og Steinunnar Ólafsdóttur.
Sessilía var dóttir Jónatans, Jóns-
sonar, frá Tungu, Hallssonar, frá
Melum í Fnjóskadal, Þorkelssonar.
Móðir Jóns Hallssonar var Ingunn,
dóttir Þorgeirs Stefánssonar og Her-
dísar Þorkelsdóttur. Móðir Jón-
atans var Guðrún, dóttir Bjarna
Hálfdanarsonar og Guðlaugar Ölafs-
dóttur.
Móðir Sessilíu var Sessilía, frá
Mógili á Svalbarðsströnd, Eiríks-
dóttir, frá Végeirsstöðum, Halldórs-
sonar. Móðir Eiríks var Þorbjörg
Jónsdóttir. Móðir Sessilíu Eiríks-
dóttur var Sessilía, frá Þórisstöðum,
Hrólfsdóttir, frá Þórisstöðum, Þórð-
arsonar, og Sessilia, dóttir Þorláks
Þórarinssonar og Guðrúnar Péturs-
dóttur.
Afkomendum, vinum og vanda-
mönnum Sigurbjargar er boðið að
fagna þessum tímamótum og
þiggja kaffi með henni á milli kl.
16.00 og 19.00 þriðjudaginn 11.9. að
Norðurbrún 1.
Sextugur
Eysteinn B. Guðmundsson
verslunarmaður og eftirlitsdómari
Eysteinn Bergmann Guðmundsson
verslunarmaður, Melgerði 40, Kópa-
vogi, er sextugur í dag.
Starfsferill
Eysteinn fæddist í Skerjafirðinum
og ólst þar upp. Hann starfaöi hjá
Byggingaversluninni Húsinu í Skeif-
unni í þrjátíu og sjö ár og var þar
lengst af verslunarstjóri. Hann hóf
síðan störf hjá Vélum og verkfærum
1999 og hefur starfað þar síðan.
Eysteinn hefur verið félagi í knatt-
spymufélaginu Þrótti í Reykjavík þar
sem hann lék bæði knattspyrnu og
handbolta auk þess sem hann sat í
stjórn Þróttar í mörg ár. Hann tók
ungur dómarapróf og dæmdi knatt-
spyrnuleiki í þrjátíu ár, var alþjóða-
dómari í fimmtán ár og dæmdi fjöl-
marga leiki á erlendri grund en hætti
að dæma fyrir þrettán árum. Þá hefur
hann tekið þátt í félagsstörfum dóm-
ara og setið í ráðum og stjórnum á
þeirra vegum en hann situr nú í
nefndum dómara á vegum KSÍ og er
eftirlitsdómari.
Fjölskylda
Eysteinn kvæntist 11.9. 1965 Sól-
veigu Auði Friðþjófsdóttur, f. 21.6.
1943, starfsmanni hjá Kópavogskaup-
stað, hún er dóttir Friðþjófs Helgason-
ar, sem er látinn, bifvélavirkja og
slökkviliðsmanni, og Bergdísar Ingi-
marsdóttur húsmóðir sem einnig er
látin. Þau voru búsett í Kópavogi síð-
ustu árin
Börn Eysteins og Sólveigar eru
Friðþjófur, f. 8.7. 1965, tölvufræðingur
hjá Ríkisspitölunum, búsettur í
Reykjavík, kvæntur Lilju Baldursdótt-
ur og eiga þau þrjár dætur, Sólveigu
Auði, f. 24.5. 1990, Ingibjörgu, f. 14.6.
1995, og Bergdisi Björk, f. 16.8. 2000;
Bergdís, f. 11.1.1972, flugfreyja, búsett
í Hafnarfirði, gift Haraldi Haraldssyni
auglýsingahönnuði og eiga eina dótt-
ur, Birtu Björk, f. 28.8. 2001.
Systkini Eysteins eru Ragna Berg-
mann, f. 1933, fyrrv. formaður Verka-
kvennafélagsins Framsóknar, búsett í
Reykjavík, gift Jóhanni Ingvarssyni
leigubílstjóra og á hún sjö böm á lífi;
Hulda Bergmann, f. 1934, húsmóðir í
Reykjavík, og á hún þrjá syni; Edda
Bergmann, f. 1936, saumakona og hús-
móðir í Kópavogi, gift Kristjáni Ólafs-
syni, húsverði við Danska sendiráðið,
og eiga þau eina dóttur; Ólafla Berg-
mann, f. 1939, húsmóðir í Bandaríkj-
unum og á hún þrjá syni; Sigurður
Bergmann, f. 1944, bilstjóri í Reykja-
vík.
Foreldrar Eysteins voru Guðmund-
ur Bergmann Bjömsson, f. 6.3.1909, d.
1989, umsjónarmaður hjá Flugmála-
stjórn, og k.h., Gróa Skúladóttir, f.
21.10. 1908, d. 1971, húsmóöir.
Ætt
Guðmundur var sonur Bjöms Berg-
mann, sjómanns í Gálutröð i Eyrar-
sveit og síðast í Látravík, bróður Ingi-
bjargar, móður Jóns Bergmanns
skálds. Bjöm var sonur Jóns Berg-
manns, b. í Mýrarhúsum í Eyrarsveit,
og Jódisar Jónsdóttir. Móðir Guð-
mundar var Jósefína Ragnheiður Jó-
hannesdóttir frá Krossnesi.
Gróa var dóttir Skúla, b. að Norður-
Fossi í Mýrdal, Unasonar, b. að Syðri-
Kvíhólma, Runólfssonar, b. og skálds í
Skagnesi, Sigurðssonar, pr. á Ólafs-
völlum, bróður Sæmundar, fóður
Tómasar Fjötnismanns en systir Sig-
urðar var Guðriður, langamma Þor-
steins Erlingssonar skálds og amma
Jóns, afa Erlends Einarssonar, fyrrv.
forstjóra SÍS. Sigurður var sonur Ög-
mundar, pr. að Krossi, Presta-Högna-
sonar, á Breiðabólstað, Sigurðssonar.
Móðir Sigurðar á Ólafsvöllum var Sal-
vör Sigurðardóttir, systir Jóns, afa
Jóns Sigurðssonar forseta. Móðir
Gróu var Þorbjörg, dóttir Ólafs, b. í
Berjanesi undir Eyjafjöllum, Magnús-
sonar og Elínar Ámadóttur.
Eysteinn verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Helga Egilson, Álfheimum 64,
Reykjavík, verðurjarðsungin frá
Dómkirkjunni þriöjud. 11.9. kl. 13.30.
Friðþjófur Björnsson, Heiðargerði 112,
Reykjavík, veröur jarösunginn frá
Grensáskirkju þriðjud. 11.9. kl. 15.00.
Kristín Jónsdóttir frá Flateyri, til heimilis
í Drápuhlíð 5, veröur jarösungin frá
Háteigskirkju þriðjud. 11.9. kl. 15.00.
Jóhann T. Bjarnason, Sætúni 5, Isafiröi,
veröur jarðsunginn frá ísafjarðarkirkju
miðvikud. 12.9. kl. 14.00.
Margrét Kristín Pétursdóttir,
Hraunbúðum, Vestmannaeyjum, veröur
jarösungin frá Landakirkju laugard.
15.9. kl. 10.30.
Merkir islendingar
Lárus Fjeldsted Salómonsson lögreglu-
þjónn fæddist 11. september 1905 að
Laxárbakka í Miklaholtshreppi, sonur
Salómons Sigurðssonar, bónda á Laxár-
bakka og i Drápuhlíð, og k.h., Lárusínu
Lárusdóttur Fjeldsted.
Lárus var þjóðkunnur eins og flestir
bræður hans, þeir Pétur Hoffmann í
Selsvörinni, Gunnar Úrsus aflrauna-
kappi og Haraldur, faðir Auðar Har-
alds rithöfundar. Hálfbróðir Lárusar
var Helgi Hjörvar útvarpsmaður.
Lárus var lengst af lögreglumaður í
Reykjavík en síðustu árin lögregluvarð-
stjóri á Seltjamarnesi. Hann var ramur
afli eins og bræður hans, þrisvar handhafi
Grettisbeltisins og skáldmæltur í þokkabót.
Lárus F. Salómonson
Hann var því vel liötækur í lögregluliði
Reykjavíkur á rósturtímum stríðsáranna.
Oft fór hann við annan mann og með kylf-
una eina að vopni að skakka leikinn 1
kaffibúllum í Hafnarstrætinu og
Tryggvagötu þegar drukknir sjóliðar
munduðu þar hnífa og byssustingi. Þá
var Lárus afbragðs skytta með skamm-
byssu og minkabani. Reyndar fékkst
hann einnig við að aflífa hunda eins og
Stefán Jónsson alþingismaður orti um
fræga en græskulausa vísu:
Mjög af sínum brœórum ber,
besta álits nýtur.
Lltiö yfir lcetur sér,
Lárus hunda skýtur.
Lárus lést 24. mars 1987.