Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2001, Blaðsíða 15
14
ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2001
ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2001
19
Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aóstoðarritstjórar: Jónas Haraldsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson
Fréttastjóri: Birgir Guömundsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift:
Þverholtl 11,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.netheimar.is/dv/
Fréttaþjónusta á Netinu: http://www.visir.is
Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyri: Strandgata 31, sími: 460 6100, fax: 460 6171
Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf.
Plötugerö: ísafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverö á mánuöi 2200 kr. m. vsk. Lausasöluverö 200 kr. m. vsk., Helgarblaö 300 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgialds.
DV greiöir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndþirtingar af þeim.
Allt var það satt og rétt
Magnaður hlýtur sá texti að vera, sem knýr Bandaríkin
og ísrael til að hverfa af ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna
um kynþáttamisrétti og fær ríki Evrópusambandsins til að
hóta að gera slíkt hið sama, ef ekki verði mildaður. Önnur
saga er svo af réttmæti hins magnaða texta.
Á Vesturlöndum hefur ísrael einkum verið sakað um
brot á fjölþjóðasáttmálum um framkvæmd styrjalda og
meðferð fólks á hernumdum svæðum. Slík brot eru áþreif-
anleg og nægja til að setja ísrael á aðra skör en Vesturlönd,
en tæpast lægri en ýmis þriðja heims ríki.
Ný vídd kemst í umræðuna um ísrael, er það er sakað
um nýlendustefnu, aðskilnaðarstefnu og kynþáttastefnu;
þegar ráðstefna á vegum Sameinuðu þjóðanna fer næstum
út um þúfur, af þvi að fulltrúar Vesturlanda telja ekki við
hæfi að gera ísrael að blóraböggli á þeim sviðum.
Við nánari athugun kemur þó í ljós, að efnislega er
margt réttmætt í ásökunum um nýlendustefnu, aðskilnað-
arstefnu og kynþáttastefnu ísraels. Tökum fyrst nýlendu-
stefnuna, eins og hún lýsir sér í landnámi ísraelskra borg-
ara á hernumdum svæðum í Palestínu.
Þótt þessar byggðir landnema séu einn helzti þröskuld-
urinn í vegi friðarsamninga milli ísraels og Palestínu, er
sífellt haldið áfram að stofna til þeirra, hvaða stjórnmála-
flokkar sem eru við völd í ísrael. Land er tekið frá Palest-
ínumönnum með valdi og afhent ísraelsmönnum.
Þótt slikt landnám hafi fyrr á öldum verið talið sjálfsagt
á Vesturlöndum, þegar siðferði var á lægra stigi en það er
nú, var nýlendustefna að mestu aflögð í heiminum á sið-
ustu áratugum. Nú er ísrael versta dæmið um stefnu, sem
samkvæmt fj ölþj óðasamþykktum er ólögleg.
Aðskilnaðarstefna er orð, sem áður var einkum notað
um stefnu stjórnvalda í suðurríkjum Bandaríkjanna á
fyrri hluta síðustu aldar og stjórnar hvítra manna í Suður-
Afríku á síðari hlut aldarinnar. Orðið vísar til kerfisbund-
ins aðskilnaðar og mismununar borgaranna.
Slík aðskilnaðarstefna hefur myndazt i ísrael eftir trúar-
brögðum. Svæði ríkistrúarfólks fá betri þjónustu ríkis og
sveitarfélaga en svæði hinna, sem játa önnur trúarbrögð,
einkum áhangenda íslams. ísrael er smám saman að breyt-
ast í ofsatrúarríki með aðskilnaðarstefnu.
Kynþáttastefna er mikil og vaxandi í ísrael. Þeir, sem
heimsækja landið, komast tæpast hjá að sjá, að mikill hluti
almennra ísraelsmanna litur niður á Palestínumenn sem
annars flokks og ómennskt fólk. Þessi kynþáttastefna er
studd af stefnu og aðgerðum stjórnvalda ísraels.
ísraelsmönnum finnst ekki tiltökumál, að Palestínu-
menn séu drepnir og telja það nánast eðlilega afleiðingu
þess, að nýlenduríkið fái ekki athafnafrið á hernumdum
svæðum. Sé einn ísraelsmaður hins vegar drepinn, kallar
það að mati þjóðarinnar á margfaldar hefndaraðgerðir.
Venja er að kalla þessi viðhorf kynþáttahatur, þótt erfitt
sé að skilgreina, hvað séu kynþættir, síðan fræðimenn
komust að raun um, að líkamlega er meiri munur innan
hópa en milli hópa. Skilgreining kynþáttahaturs hefur
breytzt og nær greinilega til ísraelsmanna.
ísrael er ríki, land og þjóð stríðsglæpa og glæpa gegn
fólki á hernumdum svæðum. Það er ríki nýlendustefnu,
aðskilnaðarstefnu og kynþáttahaturs, sem beinist einkum
gegn fólki utan trúarbragða ríkisins. Magnaða orðalagið
um ísrael á ráðstefnunni var efnislega satt og rétt.
Hitt er svo flóknara, hvort skynsamlegt sé að setja ísra-
el í gapastokkinn fyrir atferli, sem tíðkast víðar. Niður-
staðan varð þvi sú, að sannleikanum var kippt út.
Jónas Kristjánsson
DV
Skoðun
Eignaupptaka ríkisstjórnarinnar
Nýverið lét ríkisstjórnin
gera verulegar breytingar á
brunabótamati fasteigna í
landinu. Þessar breytingar
hafa haft ótrúlegar afleið-
ingar á fjárhag tugþúsunda
heimila í landinu. Sam-
kvæmt upplýsingum sem
Jóhanna Sigurðardóttir,
fulltrúi Samfylkingarinnar
í efnahags- og viðskipta-
nefnd Alþingis, kallaði eftir
frá Fasteignamati ríkisins
er ljóst að 35 þúsund íbúð-
areigendur verða fyrir
milljónatjóni.
Ungt fólk í átthagafjötrum
Hringlið með fasteignamatið virð-
ist bitna verst á ungu fólki, fólki sem
keypt hefur litlar íbúðir með háu
brunabótamati á lánum samkvæmt
því. Síðan þegar brunabótamatið var
lækkað eru veðskuldir orðnar hærri
en verðið á ibúðinni. Þetta gerir það
að verkum að þetta fólk getur ekki
stækkað við sig. Ríkisvaldið er búið
að hafa af því milljónir með þessum
aðgerðum og það er bundið í íbúðum
sínum og getur ekki hreyft sig. Sér-
staklega bitnar þetta á fólki
í Reykjavík.
Verður ekki liðið
Ég þekki alvarleg dæmi
þar sem sjúklingar, öryrkj-
ar og einstæðir foreidrar
eru að lenda í mjög miklum
erfiðleikum vegna þessara
aðgerða sem hafa kippt
undan þeim fótunum bæði
fjárhagslega og félagslega.
Þar er um að ræða fólk sem
leit á íbúð sína sem vissa
tryggingu í lífinu sem átti
að skila ákveðnum framfærslueyri
þegar skipt yrði í minni íbúð. Þeirri
tryggingu er kippt frá þeim með einu
pennastriki. Þetta er óþolandi aðför
að fólki sem margt er í mjög erfiðri
stöðu fyrir.
Þingílokkur Samfylkingarinnar
hefur ályktað sérstaklega vegna
þessa máls og er félagsmálaráðherra
harðlega gagnrýndur fyrir að halda
viðmiði lána frá íbúðalánasjóði
áfram við brunabótamat. Breyting-
amar á brunabótamatinu undanfar-
ið gera það ónothæft sem viðmið en
nauðsynlegt er að lánaviðmið endur-
spegli raunvirði eignarinnar. Þing-
Asta R.
Jóhannesdöttir
alþingismaöur
„Breytingarnar á brunabótamatinu undanfariö gera það ónothæft sem viömiö, en nauðsynlegt er aö lánaviðmiö endur-
spegli raunviröi eignarinnar. Viö krefjumst þess aö viömiöi húsnæöislána veröi tafarlaust breytt til aö ná því markmiöi."
flokkurinn krefst þess að viðmiði
húsnæðislána verði tafarlaust breytt
til að ná því markmiði. Það er ljóst
að þetta ástand verður ekki liðið.
Málið verður tekið upp á Alþingi í
haust og er það verulega aðkallandi í
ljósi þeirra alvarlegu upplýsinga sem
komið hafa fram um hve miklir
hagsmunir eru í húfi. Ég hvet fólk
sem verður fyrir þessari aðför ríkis-
stjórnarinnar nú að minnast þess
þegar það greiðir atkvæði í næstu al-
þingiskosningum.
Ekki trúi ég því að þeir sem ríkis-
stjórríin hlunnfer nú á þennan hátt
muni styðja hana áfram til valda á
næsta kjörtímabili.
Ásta R. Jóhannesdóttir
Borgarverkfræðingur í feluleik
Stefán Hermarmsson borgarverkfræð-
ingur skrifar kjallaragrein í Dagblaðið 28.
ágúst síðastliðinn um sjónarmið þeirra er
undirbúið hafa skipulag við Halisveg i
Grafarvogi. íbúar við Garðhús í Reykjavík
fagna allri umræöu um ofangreint málefni
en leggja áherslu á að rétt sé farið með og
að fyrirhugaðri framkvæmd sé rétt lýst.
Þar sem borgarverkfræðingur fer nokkuð
frjálslega með staðreyndir í grein sinni
þykir undirrituöum rétt aö draga fram eft-
irfarandi atriði.
Röng fullyröing
í inngangsorðum borgarverkfræðings
kemur fram að íbúar við Garðhús hafi
lengi mótmælt fyrirhugaðri framkvæmd.
Þá kemur einnig fram að íbúar hafi notið
einstakrar friðsældar og að mati borgar-
verkfræðings gefi það þeim ekki rétt til að
hindra eðlilega framkvæmd skipulagsins.
Hér vantar að mati undirritaðs mikið upp
á að borgarverkfræðingur dragi upp rétta
mynd. Þegar íbúar við Garðhús fengu út-
hlutað lóðum sínum (1988-1991) var í þeim
gögnum er þeir áttu aðgang að einungis
gert ráö fyrir 2 akreina tengigötu sem þá
hét Vetrarbraut norðan viö Garðhús.
Árið 1991 kynnti Borgarskipulag nýtt
aðalskipulag fyrir Reykjavik (1990-2016) og
var tengigötunni þá breytt í 4 akreina
stofnbraut. Þessari breytingu mótmæltu
íbúar við Garðhús, enda ljóst að ekki hafði
verið tekið frá pláss fyrir svo stóra um-
ferðaræð. Ibúar hafa viðhaldið mótmælum
sínum alla tíð síðan, eða í 10 ár, en ekki
enn fengiö viðunandi úrlausn sinna máia.
Sú fullyrðing borgarverkfræðings að íbúar
við Garðhús hindri eðlilega framkvæmd
skipulagsins er því röng og ósanngjörn.
Hávaðastig upp ffyrir mörkin
í grein sinni fjallar embættismaðurinn
nokkuð um hljóðmanir og heldur því fram
að útsýni skerðist nánast ein-
göngu á neðstu hæð húsa við
Garðhús. Hér er heldur fl-jáls-
lega farið með. Staðreyndin er
sú að til að verja íbúðarhús við
Garðhús er næst standa Hails-
veginum þarf að byggja jarð-
vegsmanir og að töluverðum
hiuta allt að 3 metra háa veggi
ofan á manimar. Þar sem verst
lætur ná þessar hljóðvamir upp
á 3. hæð húsa við fjölbýhshús
við vestanverð Garðhús.
Borgarverkfræðingur fjaUar
nokkuö um hávaðastig í grein
siirni og fer þá nokkuð um víðan völl.
Skipulagsstjóri hefur úrskurðað í fyni úr-
skurði aö framkvæmdaraðila beri að fara
eftir reglugerð um hávaða, nr. 933/1998, og
að ekki sé heimilt aö fara upp fyrir 55 dB
mörkin við opnanleg fög við Garðhús og
að leitast skuli viö að ná leiðbeiningagild-
inu sem er 45 dB. Borgarverkfræðingur
telur þau mörk nokkuð sfröng. Undirritað-
ur viU benda á að þegnum þessa lands er
ætlað að fara eftir þeim lögum og reglum
er i landinu gilda.
Þá fjaUar borgarverkfræöingur í grein
sinni um styrkveitingar til aö bæta hljóð-
einangrun í húsum við viss skilyrði. Þessi
umræða embættismannsins er fræðandi
en á ekki við varðandi fyrirhugaða lagn-
ingu Hallsvegar þar sem um nýfram-
kvæmd er að ræða. Þá upplýsir borgar-
verkfræðingur að í Reykjavík búi fólk við
yfir 71 dB hávaöa. Telja verður ámælisvert
að yfirvöld bjóði þegnum sínum upp á
slíkt.
I umræddri grein gerir borgarverkfræð-
ingur grein fyrir því að einungis sé til um-
fjöllunar tveggja akreina umferðargata er
nái frá Fjallkonuvegi að Víkurvegi en get-
ur þess jafnframt að nú sé talið líklegt að
þörf veröi á 4 akreinum. Borgarverkfræð-
ingur reynir með málflutningi sínum að
gera lítið úr framkvæmdinni.
Ef litið er á samþykkt aðal-
skipulags Reykjavíkur sést að
Hallsvegur er flokkaður með
aðalstofnbrautum borgarinnar,
svo sem Miklubraut, Kringlu-
mýrarbraut og Sundabraut. Því
er ljóst að þær tvær akreinar
sem nú er fýrirhugað að leggja
eru aðeins örlitill hluti af 4
akreina stofhbraut er hggja
mun frá fýrirhugaðri Sunda-
braut í gegnum Grafarvoginn
upp á Vesturlandsveg og áfram
upp í Hamrahlíðarlönd.
Það er ómaklegt af borgarverkfræðingi
aö taka þátt í þeim feluleik sem viðhafður
hefur verið við undirbúnirig þessa máls.
Framkvæmdaraðilar hafa í undirbúningi
sínum tekið þá stefnu að „læða inn“ 2
akreina stofnbraut í gegnum flöskuháls
leiðarinnar, vitandi það að tvöfóldun
hennar seinna meir verði þá auðveldur
leikur, eins og raun varð á þegar Strand-
vegur í Grafarvogi var tvöfaldaður.
Borgarverkfræðingur gerir grein fyrir
því í grein sinni að hann telji eðlilegt í um-
hverfismati sem þessu að miða við um-
ferðarspá úr samþykktu skipulagi. Hér
vísar hann væntanlega til umferðarspár
sveitarfélaganna frá árinu 1997. Hér er að
mati undirritaðs mikill grundvallarmis-
skilningur á ferðinni. í reglugerð um mat
á umhverfisáhrifum nr. 179/1994 segir
m.a. í 5. gr.: í mati .á umhverfisáhrifum
,skal tilgreina á viðeigandi hátt bein og
óbein, jákvæð og neikvæð, skammtíma og
langtíma, afturkailanleg og óafturkallan-
leg áhrif sem framkvæmdir og fýrirhuguð
starfsemi, sem þeim fýlgir, kunna að hafa
á menn o.s.frv. Því er ljóst að það er i anda
laganna að miða ekki við samþykkt úrelt
gögn heldur ber að líta til framtíðar og
meta umhverfisáhrif út frá nýjum raun-
hæfum áætlunum. Ámi Friðbjamarson
„Fjögurra akreina stofnbraut sem liggja mun ígegnum
Grafarvogfrá fyrirhugaðri Sundabraut upp á Vesturlands-
veg og áfram upp í framtíðarbyggingarsvœði Reykjavíkur í
Hamrahlíðarlöndum. “ - Afstaðan skeggrœdd og skoðuð.
Spurt og svarað___ Er rússneski bjöminn að fœra sig u
Tortrygginn á skjót-
fenginn gróða
„Ég er mjög tor-
trygginn á allt sem á
að gefa skjótfenginn
gróða og leyfi öðrum
að reyna við það.
Auðvitað geta spá-
kaupmenn hagnast á
skömmum tíma en þá
hefur það iðulega gerst að þeir tapa
aftur mjög hratt. Hér á landi eru tfi
mörg dæmi um það um þessar mund-
ir, sum sorgleg ... Sá hugsunarháttur
var ráðandi á markaðnum 1999 og
fram á árið 2000 að fjármálamarkaðir
væru auðveldir viðfangs. Það var allt
að hækka svo mikið. Ég var talinn
úrtölumaður af mörgum."
Margeir Pétursson
í víötali viö Morgunblaöiö.
Hreinræktuð kyntákn
„Knattspyma er í
dag vinsælasta
íþróttagrein heims.
Það er ekki af því að
knattspyrnan sé öðr-
um íþróttum fremri
og fátt er leiðinlegra
en markalaus og
vondur knattspyrnuleikur. Forráða-
menn knattspyrnunnar hafa hins veg-
ar verið snjallir í markaðssetningu
íþróttarinnar. Leikmennirnir era
hálfguðir í augum áhangenda liðanna
og auðvitað eru þeir hreinræktuð
kyntákn. Hvers vegna ættu stelpurn-
ar ekki að mega spila á þann streng
eins og strákamir? Hvaða jafnrétti er
það? Er jafnréttinu betur þjónað með
því að einu kynfyrirmyndir ungra
stúlkna séu grindhorað Ijósmynda-
módel eða brjóstastækkaðar popp-
söngkonur?"
Magnús Árni Magnússon á Kreml.is
Einar Ólafsson
herstöðvaandstœðingur
Afleiðing út-
þenslustefnu
„Atburðarásin sýnir okkur
að hið vestræna tígrisdýr er að
færa sig upp á skaftið og rúss-
neski bjöminn býr sig til vamar og ætlar ekki
að láta valta yfir sig. Mér flnnst réttara að líta á
málið með þeim hætti. Útþenslustefna NATO og
eldflaugavarnaráætlun Bandaríkjamanna er
hvorutveggja ógn við Rússa og Kínverja - og er
til þess fallið að skapa að nýju þá spennu sem
við þekkjum frá dögum kalda stríðsins. Þetta
höfum við í Samtökum herstöðvaandstæðinga
bent á alveg síðan útþenslustefna Atlantshafs-
bandalagsins til austurs hófst fyrir um áratug."
Ámi Ragnar Ámason,
þingmaður Sjálfstœðisflokks
Endurreisa „
hemaðarmatt
„Greinilega. Ég hef orðið þess var
í samræðum við rússneska þing-
menn og dregið þær ályktanir af
fréttum að í rússneska stjómkerfmu
er áhugi fýrir því að styrkja stöðu landsins í milliríkja-
samskiptum og gera þaö að því stórveldi sem Sovétrík-
in voru. Einn þáttur af þessum hugmyndum er að end-
urreisa hemaðarmátt Rússlands og skapa landinu
áhrifastöðu í Austur-Evrópu og Asíu. Einn tilgangur
þessara hugmynda er að reyna að koma í veg fyrir
stækkun NATO með aðild Austur-Evrópuríkja. Við ís-
lendingar eigum ekki að láta Rússum takast að koma í
veg fyrir að nýfijálsar þjóðir í Evrópu, s.s. Eystrasalts-
ríkin, nái þeim markmiðum sem þær sjálfar setja sér í
samskiptum við grannríkin og Vesturlönd.“
SigurðurA. Magnússon
rithófundur
Hlœgilegt
stórveldisbrölt
„Mér finnst þetta brölt
hlægilegt fremur en ógnvæn-
legt. Ber vott um sýndar-
mennsku. Rússland er komið á hvínandi kúp-
una og er efnahagslega á brauðfótum og frekar
ættu ráðamenn þar að hugsa um fólkið þar sem
er að veslast upp en standa í heræfingum sem
þessum. En veruleikinn er sá að Rússar hafa
aldrei sætt sig við að vera ekki lengur hernaðar-
legt stórveldi og þar-með mótvægi við Bandarík-
in. Þeir eru að reyna að sanna fyrir sjálfum sér
að þeir séu þetta stórveldi ennþá.“
Ólafur Helgi Kjartansson,
sýslumaður á Isafirði
Bjöminn
minnir á sig
„Rússneski björninn er að
minnsta kosti að gera sig meira
áberandi en verið hefur síðustu
árin. Ætli megi ekki líta svo á að hann sé að
minna á sig. Ég býst ekki við því að kalda stríð-
ið sé hafið aftur en hins vegar er fyllsta ástæða
til þess að fylgjast með því sem er að gerast í
Rússlandi. Þar hefur gengið á ýmsu, samanber
þegar kafbáturinn Kursk sökk í Norðurhöfum
fyrir réttu ári. Það hefur reynst íslendingum vel
að vera samstiga þjóðum Atlantshafsbandalags-
ins í því sem er að gerast í varnarsamvinnu
vestrænna þjóða og þess ættum við að vera vel
minnug nú sem fyrr.“
(Rússar ætluðu með skömmum fyrirvara að hefja heræfingar hér við land aðfaranótt mánudags en þelm var frestað í tvo sólarhrlnga.)
Kínveriar huggaðir
Hafðu ekki áhyggjur...
Það virkar í ruan ekki. l
(S> 'OI.
o\vx- TTMBONe AAewA-seaviϒ
Bikini eða
loðnar bringur?
Það er sérkennilegt hvað
margar konur bera litla
virðingu fyrir dómgreind
og sjálfsákvörðunarrétti
annarra kvenna. Þetta við-
horf hefur margoft komið
fram í tengslum við fegurð-
arsamkeppnir og nektar-
dans, þar sem kónur steypa
stömpum yflr því að aðrar
konur skuli láta markaðs-
öflin og karlaveldið
þröngva sér til slíkrar
óhæfuiðju sem sé lítillækk-
andi fyrir konur í heild og
málstað kvenna almennt.
Þessu er auðvitað hægt að halda
fram með sannfærandi rökum og þaö
er auðvelt að taka undir það sjónar-
mið að yflrborðskenndar fegurðar-
samkeppnir og innatómur lostadans
sé harla auvirðilegt athæfi, hvort
sem karlar eða konur eiga í hlut. En
á móti kemur að ef fullorðnar konur
og sjálfráðar taka þá ákvörðun að
keppa í kroppsýningum eða diUa
bossum fyrir fé, þá er það þeirra
mál. Og þetta á auðvitað einnig við
um vöðvasýningarmenn og súlu-
kalla.
Kynferðislegur undirtónn
Ein mynd af skorti á umburðar-
lyndi gagnvart skoðunum og dóm-
greind annarra kvenna voru við-
brögð framkvæmdastýru Jafnréttis-
stofu við auglýsingu íslenska
kvennalandsliðsins í knattspyrnu,
þar sem knattmeyjarnar komu fram
á bikini og létu birta af sér mynd í
Morgunblaðinu, fyrst og fremst að
sögn þeirra sjálfra, tU að vekja at-
hygli á umræddum leik með óhefð-
bundnum hætti og draga þannig fólk
á vöUinn.
Valgeröur Bjarnadóttir janfréttis-
stýra hefur unnið ötullega og víða að
jafnréttismálum lengi og hvergi látið
deigan síga. En þó hún sé ekki sjálf í
boltanum, þá skýtur hún óneitanlega
dálítið yfir markið í viðtali um mál-
ið í Mogga i vikunni. Hún segir aug-
lýsinguna vera með „kynferðislegum
undirtón" og telur sorglegt að stúlk-
urnar skuli hafa látið undan kröfum
markaðsaflanna í þessu máli. Aug-
lýsingin með íþróttastelpum á bikini
gefi ekki rétt skilaboð því stúlkunar
séu „ekki kyntákn á veUinum.“
Sá sem þetta ritar er ekki sérfræð-
ingur í kynferðislegum undirtónum
en hann sá í sjálfu sér ekkert kyn-
ferðislegt við þessa auglýsingu.
Þarna brosti hópur glað-
beittra og stæltra íþrótta-
meyja framan í lesendur
Moggans, geislandi af þrótti
og æskufjöri, þ.e. stúlkurn-
ar, ekki lesendur Moggans,
a.m.k. ekki allir. Knatt-
spyrnukonurnar voru að
vísu léttklæddari en aUa
jafnan þegar þær storma tU
landsleikja, en í fjölmörg-
um íþróttagreinum keppa
konur í engu umfangsmeiri
bleðlum án þess að menn
séu eitthvað að blanda kyn-
ferðismálum í það.
Og nota bene. Ég minnist þess
ekki að hafa nokkurntíman lesið það
i blöðum að hinar og þessar iþrótta-
konur hafi veri svo óskaplega sexí í
t.d. sjöþrauautinni og lostafuUar í
langstökkinu. Enda ratljóst að ef
karlkyns blaðamenn leyfðu sér slíkt
yrði uppi fótur og fit og Valgerður
myndi þá heldur betur blása. Hins-
vegar hafa konur sem skrifa í blöð,
og nægir þar að nefna Kolbrúnu
Bergþórs, ritað lærða pistla um
feykilegt kynferðislegt aðdráttarafl
knattspyrnumanna á vellinum og
lokið ljóðrænu lofsorði á kafloðnar
bringur og kynþokkafull læri leik-
manna. Við þessu hefur enginn am-
ast, enda greinilega ekki sama hvort
í hlut Jón eða séra Jóna i þessum
efnum.
Líkamsrétturinn
Staðreyndin er auðvitað sú að
konur sem hafa barist fyrir kven-
frelsi og jafnrétti gegn forpokuðum
afturhaldsöflum heimsins, hafa æfin-
lega lagt áherslu á skýlausan sjálfsá-
kvörðunarrétt kvenna og ekki síst
forræði þeirra yfir eigin likama.
Þetta þekkum við best úr umræð-
unni um fóstureyðingar, þar sem
réttur kvenna yfir eigin líkama er
settur ofar öUu öðru.
Þetta eru auðvitað fuUkomlega
gild rök. En þá hlýtur gfldi þeirra að
vera nokkuð víðtækt. Ef menn halda
því fram að konur eigi eigin líkama
og því beri að virða rétt þeirra til
fóstureyðinga, þá verða menn um
leið að fallast á og viðurkenna rétt
þeirra tU að nota þennan sama lík-
ama á þann hátt sem þær kjósa,
hvort sem um er að ræða nektar-
dans, þátttöku í fegurðarsamkeppn-
um eða láta birta mynd af sér á bik-
ini á besta stað í hinu móralska
Morgunblaði.
Hún segir auglýsinguna vera með „kynferðislegum
undirtón“ og telur sorglegt að stúlkurnar skuli hafa
látið undan kröfum markaðsaflanna í þessu máli. Aug-
lýsingin með íþróttastélpum á bikini gefi ekki rétt
skilaboð þvístúlkunar séu „ekki kyntákn á vellinum.“