Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2001, Page 24
28
ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2001
Tilvera
í f 1 Ö
V I N N U
Opnar í Eden
Myndlistarkonan Kolbrún Lilja
Antonsdóttir opnar í dag fyrstu
einkasýningu sína á vatnslita-
myndum í Eden í Hveragerði.
Kolbrún Lilja útskrifaðist frá
Myndlista- og handíðaskóla
íslands, kennaradeild árið 1972 og
úr frjálsri myndlist, grafík, 1975.
Hún stundaði nám í skúlptúr við
listaháskólann Accademia Di
Belle Arti Roma á Ítalíu og
útskrifaðist þaðan 1982. Kolbrún
hefur starfað víða við
myndlistakennslu. Sýning hennar
stendur yfir til 24. september
næstkomandi.
Tónleikar
STEFNUMOT UNDIRTONA A
GAUKNUM Hljómsveitimar Suð og
Fuga leika á tónleikum í kvöld á
Gauk á Stöng. Tónleikamir eru hluti
af Stefnumótum Undirtóna ...
DJASS í NÝLISTASAFNINU
Djassklúbburinn Ormslev stendur
fyrir tónleikum í kvöld í Nýlista-
safninu og hefjast þeir klukkan
20.30. Á tónleikunum koma fram
tónskáldiö og píanóleikarinn Sten
Sandell og Kaos Kvartett...
Sýningar
STEFNUMOT VID ISLENSKA
SAGNAHEFÐ Sýningin Stefnumót
við íslenska sagnahefð var opnuö í
Landsbókasafni íslands - Háskóla-
bókasafni 15. júní og stendur til
22. september næstkomandi.
Sýningunni er ætlaö aö varpa Ijósi á
sagnahefð íslensku þjóöarinnar,
stjórnskipun hennar, lifnaöarhætti
og menningu.
BRÚÐUR SIGRÍDAR KJARAN í
ÞJOÐARBOKHLOÐUNNI I sumar
hefur staöiö yfir í Þjóðarbókhlöðunni
á vegum Þjóðminjasafns íslands
sýning á brúðum Sigríðar Kjaran.
Þessi sýning er haldin af því tilefni
að Sigríður gefur safninu tíu brúöur
sem flestar eru unnar á síðasta ári.
Sýningunni lýkur þann 15.
september.
SÝNINGAR Í BYGGÐASAFNI
HAFNARFJARÐAR Tvær sýningar
standa nú yfir í Byggasafni
Hafnarfjarðar og kallast þær Blóðug
vígaferli og Götulíf víkinganna í
York. Annars vegar er um aö ræöa
endurgerð á götu í víkingaþorpi og
hins vegar sýningu þar sem sjá má
beinagrind og hauskúpur víkinga
sem féllu í bardögum. Báöar
sýningarnar eru opnar alla daga frá
klukkan 13 til 17 og þeim lýkur 1.
október næstkomandi.
SIGGA Á GRUND SÝNIR í
SJOMINJASAFNINU Síöastliöinn
föstudag opnaði Sigga á Grund,
sem er sjálfmenntaður listamaður,
sýningu á útskurðarverkum í tré,
horn og hvaltönn í Sjóminjasafni
íslands, Vesturgötu 8 í Hafnarfiröi.
Sýningin er opin alla daga frá
klukkan 13 til 17 fram til 1. október.
Myndlist
HALLDÓRA HELGADÖTTIR Á AK-
UREYRI Um helgina opnaöi Hall-
dóra Helgadóttir myndlistarkona
sýningu á olíumálverkum í glugga
Samlagslns í Llstagllinu á Akureyri.
Sýningin mun standa til og meö 23.
september.
BJÖRG ÖRVAR í ÁLAFOSSKVOS
Listakonan Björg Orvar sýnir ný mál-
verk í sýningarsal Álafossverslunar-
innar í Alafosskvos í Mosfellsbæ.
Sýningin er opin 9 til 18 virka daga
og 9 til 16 laugardaga til 27. októ-
ber.
Sjá nánar: Líflð eftir vinnu á Vísi.ls
Getum ekki án þráðlistar verið
- segir Helga Jóhannesdóttir fatahönnuður
Tómstundaiðja fólks
breytist með árstíðunum og
þegar haustar að og kvöldin
lengjast eykst þörfin fyrir
að fást við eitthvað skap-
andi heima fyrir. Meðal
þess sem þá kemur til
greina eru ýmiss konar
hannyrðir og saumaskapur
eða þráðlist, eins og Helga
Jóhannesdóttir, kennari og
fatahönnuður á Vogi í Ölf-
usi, kýs að kalla þá grein.
„Nú ætti einmitt að vera að
koma sá tími þegar konum-
ar kjósa að taka upp prjón-
ana sem þær lögðu frá sér í
vor, kaupa sér efni í pils
eða kíkja á bútasaums-
mynstrin,“ segir hún bros-
andi og heldur áfram: „Við
erum alltaf að nota hluti úr
þráðum og getum ekki án
þeirra verið. Við erum
mjúk og þurfum mjúka
hluti í kringum okkur.“
Réttlausir þrælar í
Asíu framleiöa fötin
Að áliti Helgu hefur þráð-
list ekki verið gefinn sá
gaumur í þjóðfélaginu sem
vert er á síðustu árum og
telur ýmsa kunnáttu á þeim
sviðum vera að fara for-
görðum. Tölvurnar hafi
fangað hugi margra og
minni tími gefíst til handa-
vinnu en áður. „Það er
alltaf að koma eitthvað nýtt
og stundum fómum við ein-
hverju án þess að taka eftir
því,“ segir hún og kv.eðst
þar eiga við ýmis hand-
brögð sem sjálfsagt þótti að
kunna fyrir nokkrum árum
og áratugum.
Sjálf er Helga menntuð í
fatahönnun og fatagerð við
virtan skóla í Óðinsvéum.
„Þama kynntist ég því hvað
fatagerð er mikilvægur og
spennandi heimur en líka
því hversu vanmetinn hann er,“
segir hún og bendir á að öll göng-
um við í fótum upp á hvem dag en
hugsum lítið um vinnuna bak við
þau. „Hagkerfi okkar Vesturlanda-
búa byggist að miklu leyti á því að
gerðaráfóngunum kenni ég
nemendum að teikna,
hanna og þróa hugmyndir
og koma þeim á blað.
Einnig að búa til snið eftir
hugmyndunum og breyta
þeim. Lita- og textílfræði
koma líka við sögu því
efnis-og litaval er
mikilvægt. Síðan fara nem-
endur til textílkennara sem
kennir þeim tæknina við
að sníða og sauma. Svo er
nýr áfangi að hefja göngu
sina á íslandi, meðal ann-
ars hjá okkur, THL (Textíl-
hönnun-listir). Hann hefur
fengið sérstaklega góðar
viðtökur og nemendur eru
áhugasamir og jákvæðir."
Helga Jóhannesdóttir þráðlistakona
„Þurfum mjúka hluti í kring um okkur“
einhverjir réttlausir þrælar í Asíu
framleiði fötin okkar,“ segir hún.
Nemendur aldrei fleiri
Helga vinnur við Fjölbrauta-
skóla Suðurlands og veitir þar for-
stöðu fata- og textíldeild. Þrettánda
starfsárið er að byrja og nemendur
hafa aldrei verið fleiri. En hvemig
skyldi kennslu við deildina vera
háttað? Því svarar Helga: „í fata-
Og svo þessa fínu
ull
Helga segir textíldeildir
við framhaldsskólana hafa
átt undir högg að sækja
þegar tölvuvæðingin hafi
hafist fyrir um tíu árum.
Þó séu slíkar deildir nú í
tíu framhaldsskólum og
alls staðar jafn vinsælar.
Kennarar við þær hafi
stofnað með sér félagið
FATEX árið 1995 og það
hafi unnið mikið
uppbyggingarstarf, m.a.
komið í veg fyrir að fleiri
textíldeildum yrði fórnað
en orðið var. Samt séu
margir furðu lostnir þegar
hún segist kenna handa-
vinnu við framhaldsskóla
og spyrji: „Er það virkilega
framhaldsskólafag?"
„Handverk þykir nefnilega
pínulítið hallærislegt hér á
íslandi," segir hún og telur
viðhorfin önnur í Dan-
dv-mynd e.ol. mörku þar sem handverk-
ið njóti jafnmikillar virð-
ingar og listin. „Þó eigum
við merkilega arfleifð hér
á Islandi sem Danir hálföf-
unda okkur af. Við eigum sérstök
mynstur, ákveðna jurtaliti og svo
þessa fínu ull,“ segir þráðlistakon-
an Helga Jóhannesdóttir.
-Gun.
Smekkur 2001 á akureyrskri myndlist:
Amí átti „besta“ verkið
- gerir mann máttlausan, mátti lesa í umsögnum
Anna María Guðmann (Amí) átti
besta verkið á samsýningu akur-
eyrskra listamanna samkvæmt
skoðanakönnun sýningargesta á
Listasafninu á Akureyri í sumar.
Verk hennar kallaðist Minningar en
næstflest atkvæði komu í hlut
Gunnars Kr. Jónassonar fyrir Stál-
blóm og í þriðja sæti var verk Mar-
grétar Jónsdóttur, Súlur í brúðar-
skarti. Alls greiddi 231 gestur Minn-
ingum atkvæði sitt eða 14,3% svar-
enda (1620 svöruðu spurningunni).
12,5% völdu Stálblóm og 9.8% Súlur
í brúðarskarti. Á heimasíðu Lista-
safnsins á Akureyri segir að það
hafi því verið frekar mjótt á munun-
um í efstu sætunum og á heildina
hafi atkvæðin dreifst á mörg verk.
í samtali við DV í gær sagði Amí
að niðurstaðan hefði komið sér á
óvart og hún væri full þakklætis.
Hún hrósaði þessu framtaki Lista-
safnsins mjög en um nýbreytni er
að ræða hjá Hannesi Sigurðssyni,
listasafnsstjóra á Akureyri. „Það er
mjög skondið að gera svona könn-
un, frumlegt og skemmtilegt," sagði
Amí.
Meðal umsagna um verðlauna-
verkið má nefna „greip mig strax
þegar ég gekk í salinn", „fangaði
strax athyglina“,„hrífandi“, „gríp-
andi“ auk þess sem litirnir höfðuðu
Hópurinn sem stóö aö sýningunni. Amí er lengst til vinstri.
greinilega til áhorfenda: Einnig er
yfir verkinu draumkennd, lokkandi
dulúð", „það er auðvelt að láta sig
fljóta með verkinu", „draumkennt",
„tælandi" og „gerir mann máttlaus-
an“ mátti lesa í niðurstöðunum.
Um 2700 manns sáu sýninguna og
var öllum gestum boðið að taka þátt
í könnuninni. Alls skiluðu 1842 gest-
ir spumingalistum, þar af 1488 ís-
lendingar og 354 útlendingar. 88%
þeirra tóku þátt á að velja besta
verkið. Könnunin var í höndum
Ragnars Friðriks Ólafssonar sem
starfar sem deildarsérfræðingur hjá
Námsmatsstofnun.
Meira verður um málið í DV á
morgun. -BÞ