Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2001, Page 25
ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2001
29
DV
Tilvera,
Bíófréttir
Vinsælustu kvikmyndirnar í Bandaríkjunum:
Skytturnar vinsælar
Helgin vestan hafs var frekar slök
hvað varðar aðsókn i bíó og var
kannski helsta ástæðan sú að engin
kvikmynd af stærri gerðinni var
frumsýnd heldur börðust þrjár með-
alstórar myndir um aðsóknina og
þurfti Mark Wahlberg í Rock Star
að lúta í lægra haldi fyrir klassík-
inni í The Musketeer, þar sem enn
eina ferðina er leitað i ævintýrasög-
ur Alexandre Dumas um D’Artagn-
an og félaga hans í riddarasveit
Frakklandskonungs. Mynd þessi er
sögð vera blanda af gamalli hefð og
nútíma slagsmálaatriðum þar sem
leitað er í smiðju þeirra sem útfært
hafa slagsmál fyrir Jackie Chan og
Jet Li þannig að myndin hefur
kannski útlit sem meira minnir á
Hong Kong-myndir en franska
klassík. í hlutverki D’Artagnan er
óþekktur leikari, Justin Chambers.
Mótleikarar hans eru Catherine
Deneuve, Mena Suvari, Tim Roth og
HELGIN 7. 9. september
ALLAR UPPHÆÐiR I ÞÚSUNDUM BANDARÍKJADOLLARA.
SÆTI FYRRI VIKA HTILL INNKOMA HELGIN: INNKOMA ALLS: FJÖLDI BÍÓSALA
O - The Musketeer - 10.312 10.312 2438
o - You Can Play That Game 7.720 7.720 1297
o 1 Jeepers Creepers 6.219 24.380 2525
o - Rock Star 6.018 6.018 2944
o 4 The Others 6.003 67.516 2737
o 2 Rush Hour 2 5.752 206.036 2546
o 3 American Pie 2 4.720 131.174 2777
o 5 Rat Race 4.459 43.278 2551
o 6 The Princess Diaries 3.369 97.026 2410
© 7 „0“ 2.731 10.830 1435
0 8 Jay and Silent Bob Strike Back 2.259 25.607 2153
© 9 Summer Catch 1.762 16.808 1905
© 10 Captain Corelli’s Mandolin 1.607 21.930 1392
© 11 Planet of the Apes 1.390 174.998 1179
© - Soul Survivors 1.140 1.140 601
© 12 Jurassic Park III 970 177.059 886
© 15 The Deep End 966 5.894 401
© 16 Legally Blonde 865 89.632 766
© © 14 The Curse of the Jade Scorpion 615 6.245 706
18 Tortilla Soup 550 2.434 193
The Musketeer
Catherine Deneuve í hlutverki
Frakklandsdrottningar.
Stephen Rea.
í Rock Star leikur Mark Wa-
hlberg þungarokksaðdáanda sem
fær stærsta draum sinn uppfylltan
þegar hann fær að syngja með upp-
áhaldshljómsveit sinni. Myndin er
lauslega byggð á söngvara númer
tvö hjá þungarokksbandinu Judas
Priest.I -HK
Vinsælustu myndböndin:
Les hugsanir kvenna
Gamanmyndin What Women
Want heldur efsta sætinu og
meira að segja sjálfur Hannibal
Lecter nær ekki að ýta henni
þaðan. Myndin fjallar um mann
sem óvænt fær aukinn skilning á
hugsunum kvenna. Kemur það
sér vel fyrir hann þar sem hann
er ókvæntur og mikið upp á
kvenhöndina.
Maðurinn er Nick Marshall
(Mel Gibson) sem verður fyrir
höfuðhöggi sem gerir það að
verkum að hann öölast hæfileik-
ann til að lesa hugsanir kvenna.
í fyrstu virðist þessi „náðargáfa“
eingöngu vera Nick til ama, enda What Women Want
hefur hann litla stjórn á því ógn- Mel Gibson himinlifandi yfir nýfengnum
arflæði upplýsinga sem berast til hæfileika.
hans úr öllmn áttum__________________________________
frá konum allt um
kring. Fljótlega áttar
hann sig þó á því að
hann getur njntt sér
þennan nýja hæfi-
leika sér til fram-
dráttar og þá sérstak-
lega í samskiptum
sínum við nýjan yfir-
mann sinn, Darcy
McGuire (Helen
Hunt). Þar kemur
þetta að góðum not-
um til að spila á hana
því í byrjun er sam-
band þeirra stirt.
Meðan á þessu stend-
ur gerir Nick ótal til-
raunir til að nýta
hæfileika sinn til að
komast að því hvað
konur vilja i raun og
veru en svarið fer
einhvem veginn
alltaf fyrir ofan garð
eða neðan.
-HK
VIKAN 3. S. september BHHS■
FYRRI VIKUR
SÆTl VIKA TITIU. (DREIFINGARAÐIU) ÁUSTA
O 1 What Woman Want (skífan) 3
O 4 Hannibal <sam myndbönd) 2
O 2 Proof of Ufe sam myndbönd) 3 ;
o _ Almost Famous (skífani i
© 3 The GÍft (HÁSKÓLABÍÓ) 3
© 5 The Wedding Planner imyndformi 4
o 8 Tomcats (myndformj 2
© 7 The Boondock Saints ibergvíki 4
o 13 Bounce iskífan) 2
© _ The Watcher (myndformj 1
0 6 Thirteen Days (sam myndböndi 2
© 9 Dude, Where’s My Car? iskífani 6
© 10 Cast Away isam myndböndi 7
© 12 Traffic (sam myndbönd) 6
© 17 Murder of Crows (bergvíki 3
© 11 State and Main (háskólabíó) 4
0 14 Remember the Titans isam myndbönd) 4
© 15 Finding Forrester (skífani 5
© 19 BÍIIy EllÍOt (SAM MYNDBÓND) 8
© •mn 20 Dungens and Dragons (skífani 4 emv&w&semm
DV-MYNDIR EINAR J,
Hilmar í sveiflu
Hilmar Jensson gítarleikari kom víöa viö á Jazzhátíö Reykjavíkur í ár. Meöal annars lék hann framúrstefnulega
raftónlist ásamt Kevin Drumm og latínskotinn djass meö Tómasi R. Einarssyni.
Jazzhátíð Reykjavíkur 2001:
Veislunni
lokið
Jazzhátíð Reykjavíkur lauk á sunnudagskvöld með
stórtónleikum Sandviken Big Band og Kristjönu Stefáns-
dóttur á Broadway. Sex daga djassveisla er á enda runn-
in en sveiflan lifir enn í hjörtum þeirra fjölmörgu gesta
sem sóttu tónleika hátíðarinnar. Eins og á fyrri djasshá-
tíðum var fjölbreytnin í fyrirrúmi í ár og eins og gjam-
an er sagt um sjónvarpsdagskrána hafa allir getaö fund-
ið eitthvað við sitt hæfi. Djass er jú ekki bara djass held-
ur blandast hann öðrum straumum og stefnum í tónlist
og verður útkoman oftar en ekki forvitnileg og framandi.
Þannig mátti til dæmis hlusta á framúrstefnulegan bræð-
ing djass og raftónlistar, þjóðlög í djassútsetningum,
barnadjassog latíndjass svo nokkuð sé nefnt. Ljósmynd-
ari DV brá sér á nokkra tónleika í vikunni og festi
stemninguna á fílmu.
Undir suður-amerískum áhrifum
Á föstudagskvöldið hljómaöi seiöandi latíndjass á
Kaffi Reykjavík úr smiöju Tómasar R. Einarssonar,
kontrabassaleikara og tónskálds.
Guömundur Ingólfsson endurfæddur?
Jazzvaka í minningu Guömundar Ingólfssonar var hald-
in á Kaffi Reykjavík á laugardagskvöldiö. Þar brá hol-
lenski píanóleikarinn Hans Kwakkernaat sér í hlutverk
meistarans.
Nefjum stungið saman
Gunnar Hrafnsson kontrabassaleikari og Guömundur
Steingrímsson trommuleikari voru meðal þeirra sem
léku á minningartónleikunum um Guömund Ingólfsson.
Útgáfutónleikar Jóels
Þrír íslenskir djassleikarar héldu útgáfutónleika á
Jazzhátíö. Þetta voru þeir Agnar Már Magnússon, Sig-
uröur Flosason og Jóel Pálsson sem þjófstartaöi hátíö-
inni á þriðjudagsvöldiö.
Brosað til Ijósmyndarans
Vinkonurnar Áslaug Vanessa, Halla Líf og Hugrún.
Börnin
færö á -
gæsluvöll
Meðan á framkvæmdum stendur
við byggingu nýs leikskóla á Hörðu-
völlum hafa börnin tuttugu og þrjú
og starfsfólk Hörðuvalla aðsetur við
hlið leikskólans Hlíðarbergs í Set-
bergshverfinu þar sem áður var
gæsluvöllur. Hefur verið komið fyr-
ir lausri kennslustofu á lóðinni sem
er tengd við eldra gæsluvallarskýli
og gerðar endurbætur á lóðinni. Þar
undu þær sér vel í blíðunni vinkon-
urnar Áslaug Vanessa, Halla Líf o'£*
Hugrún. Óvenju fátt er í leikskólan-
um af þessum sökum i vetur en gera
má ráð fyrir að pláss verði fyrir um
90 börn frá eins árs aldri í nýja leik-
skólanum, að sögn Maríu Kristjáns-
dóttur leikskólastjóra.
-DVÓ/JGR