Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2001, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2001
25 '
íþróttaskólar fyrir yngstu kyn-
slóðina hafa notið sívaxandi vin-
sælda hjá íþróttafélögunum og fara
nú börn allt niður í tveggja ára ald-
ur I svona skóla til að læra undir-
stöðuatriði íþrótta og leikja.
íþróttafélag fatlaðra rekur þó skóla
sem er að því leyti frábrugðinn
slíkum skólum annars staðar að
þar koma inn krakkar sem eiga við
andlega eða líkamlega fötlun að
stríða. Fyrir þessi börn eru svona
skólar að mörgu leyti mikilvægari
en fyrir þau sem heilbrigð eru,
endar hefur fjölgað gríðarlega í
skólanum með árunum.
Júlíus Amarsson sér um æfrng-
arnar í íþróttaskólanum. „Á föstu-
dögum milli kl. 15 og 18 eru sun-
dæfmgar og meirihluti þeirra sem
stunda það eru misþroska, ofvirkir
eða vanvirkir. Þarna kennum við
undirstööuatriðin í sundíþróttinni
og kennum aðalsundgreinamar,
þ.e. bringusund, skólabaksund,
skriðsund og bakskriðsund auk
kafsunds og stungu. Þetta nám-
skeið var fyrst í stað hugað sem
þjálfun fyrir fatlaða og hreyfíhaml-
aða en svo fór aö koma inn hópur-
inn með andlega fotlun, misþroska
og ofvirka, sem hafa orðið út und-
an í skólakerfinu og þurfa því
meiri einkakennslu. Við höfum
verið með þetta sundnámskeið í
nokkur ár og höfum auk þess ver-
ið með námskeið á sumrin í mörg
ár.“
Á laugardögum frá kl. 11-13 eru
svo heföbundnir íþróttatímar þar
sem krakkar á aldrinum 5-11 ára
kynnast ýmsum íþróttum. „íþess-
um timum eru börnin í alls konar
hreyfingu enda er það aðalatriðið
fyrir þau að fá útrás í hreyfing-
unni.“
Áhaldaleikir vinsælir
Júlíus segir ýmislegt gert í þess-
um tímum. „Það hefur verið mjög
vinsælt að vera I ýmis konar
áhaldaleikjum þar sem menn geta
ýmist gengið á áhöldunum, klifrað
yfir þau eða farið undir þau. Við
höfum haft stöðvar bæði með og án
áhalda. Svo dokum við kannski viö
á stöðvunum inn á milli og t.d.
sippum í þrjár mínútur eða teknar
armbeygjur áður en farið er yfir á
næstu stöð. Við notum einnig bolta
töluvert í þessum tímum og förum
þá bæði í fótbolta, körfubolta og
innibandí."
Júlíus segir starfsemina hafa
undiö nokkuð upp á sig síðustu ár.
„Það eru nýorðin nokkur kyn-
slóðaskipti í skólanum hjá okkur.
Stór hópur á aldrinum 11-13 ára er
genginn út og nýr hópur á aldrin-
um' 5-7 ára kominn inn í staðinn.
Og fjölgunin er stöðug."
Foreldrar vakna upp viö
vondan draum
En hvað skyldu krakkarnir fá út
úr því að sprikla svona saman í
íþróttaskólanum? Júlíus segir það
skipta mestu máli að hreyfiþörf
þeirra verði fullnægt. „Þau fá
mikla og góða hreyfingu og útrás i
kjölfarið. Og það er alveg ljóst að
þessum börnum líður miklu betur
eftir að þau hafa komist í smá
hreyfíngu, að minnsta kosti í smá-
Sundtímarnir hafa notið sívaxandi
vinsælda í íþróttaskólanum og eins
og sjá má á þessum myndum er
glatt á hjalla þegar krakkarnir læra
að synda. Töluvert er um krakka í
þessum sundtímum sem eiga við
andlega fötlun að stríða en þarna
geta þau fengið hreyfiþörf sinni full-
nægt á heilbrigðan og skemmtileg-
an hátt. DV-myndir E.ÓI.
tfma. Foreldramir eiga oft í mikl-
um vandræðum með þessi elsku-
legu börn og þó að veður séu ekki
eins slæm og þau voru þá er það
neyðarúrræði að fara að hreyfa sig
þegar veðrið er slæmt. Það er orð-
ið alltof lítið um það núna að böm
séu úti að leika sér i hverfum borg-
arinnar og það gerir það að verk-
um að foreldrarnir vakna upp við
vondan draum og leita til okkar.
Sumir foreldrar reyna að vísu að
leita í aðrar tómstundir og þeir
sem eru duglegastir fara með böm-
in reglulega í gönguferðir ef þau
fást til þess,“ segir Júlíus að
lokum. -HI
Verð miðast við
settið þ.e. einn
sendi og einn
móttakara.
Z'Jdli,
tt&yij
Nú getur þú sent sjónvarpsmerkið þráðlaust í gegnum
veggi um allt hús. Þú getur horft á hvada sjónvarpsrás sem er, myndbands-
tækid eða DVD spilarann.Engu máli skiptir þó að verið sé að horfa á aðra rás i stofunni.
Þú getur líka stýrt tækjum í
stofunni úr t.d. svefnherberginu því
móttakarinn sendir merkið úr fjarstýringunni til baka!
BT Skeifunni • BT Hafnarfiröi • BT Kringlunni