Alþýðublaðið - 20.03.1969, Qupperneq 3
Alþýðu'blaðið 20. marz 1969 3
Verðyr vopnahlé
jgert í Viet-nam
bráðum?
Washington, 19. marz. (ntb-
afp) : Bandaríski öldungadeildar-
þingmaðurinn Stephen Young frá O-
liio lét svo ummælt í gærkvöldi, að
hann hefði sönnur fyrir því, að um
þessar mundir stæðu yfir leynilegar
diplómatiskar viðræður, sem leitt
gætu til vopnahlés í Vietnam, ef
Bandaríkjamenn kalla 100 þús. her-
menn aftur frá Suður-Vietnam.
Býður
sig fram 1972
MEMPHIS, Tennessee, 19. marz.
- (ntb-reuter): Hinn hægri sinnaði
franibjóðandi til forsetakjörs frá í
haust, George C. Wallace, lýsti því
j'fir í Memphis í gær, að hann
myndi hiklaust bjóða sig fram sem
forseta að nýju haustið 1972, ef
demókratar og repúblikanar breyttu
ekki stjórnmálastefnu sinni innan-
lands og utan hið allra fyrsta.
Tage 'Erlander,
í stjórn í 25 ár
STOKKHÓLMI 19.3. (ntb): Tage
Erlander, forsætisráðherra 'Sví
(þjóðar, skýrði frá því ídag, ,að
ihann hefði á prjónunum áform
um að rita bók um pólitíska
reynslu sína, eftir að hann lætur
af embætti forsætisráðherra á
hausti komanda. Kvað ráðlierr
ann þa'ð ekki mundu verða end
urminningabók í eiginlegri
merkingu, en skilgreiningu og
tilnaun til skýrgreiningar þeirr
ar stjórnmálalegu þróunar, sem
átt hefur sér stað í Svíþjóð í
stjórnartíð hans.
Erlander befur setið í sænsku
ríkisstjórninni allar götiur frá
1944, er hann var skipaður
kirkju og kennslumálaráðherra,
og býr því yfir fágætlega mikl
um fróðleik um Þau efni, er
hann hyggsit nú taka til með
ferðar í minningabók sinni.
Tage Erlander tók við embætti
forsætisráðherra Svía árið 1946,
joq 8o ‘uossuefi inqtv JíWa
ur gengt því síðan.
MORÐINGI JÓHANNS GISLASONAR DÆMDUR:
í GÆR var kveðinn upp dómur í
sakadómi Reykjavíkur í máli Gunn-
ars Viggós Fredriksen, fyrrverandi
flugstjóra, fyrir manndráp. iHlaut
Gunnar 16 ára fangelsi, að frádregnu
gæzluvarðhaldi frá 9. maí 1968.
Greiði 160 þúsund
Ákærði greiði allan kostnað sakar-
innar, þar*með talin saksóknarlaun
til ríkissjóðs, kr. 80 þús., svo og
málsvarnarlaun og réttargæzlulaun
og réttargæzlulaun skipaðs verjanda
síns, Ragnars Jónssonar, hæstaréttar-
lögmanns, kr. 80 þúsund.
Morðið
Aðfaranótt 9. maí 1968 fór Gunn-
ar V. Fredriksen til heimilis Jóhanns
heitins Gíslasonar og hafði með-
ferðis hlaðna skammbyssu. Skaut
hann á Jóhann jafnskjótt og hann
sá hann inni í íbúðinni.
Vikið úr starfi
Sumarið 1967 var Gunnar við
flugþjálfun í Bandaríkjunum, en
sætti sig ekki við það, að þjálfuninni
var ekki lokið 23. júní, er þota Flug-
félagsins hélt til Islands. Tók hann
þá það til bragðs, að fara með þot-
unni í Ieyfisleysi, en það varð til
þess, að honurn var vikið úr starfi
hjá Flugfélaginu. Taldi Gunnar að
Jóhann hafi verið valdur að því að
flugþjálfuninni lauk ekki í tæka
tíð, og síðan lagt til að honum yrði
vikið úr starfi.
Bar haturshug
til myrta
Upp frá þessu kvaðst Gunnar hafa
borið haturshug til Jóhanns, og oft
hafi hvarflað að honum að vinna á
honum, en ekki orðið af því fyrr en
aðfaranótt 9. maí síðastliðins. Hafði
Gunnar verið í kvöldverðarhófi þetta
kvöld, þar sem neytt var áfengis.
Hitti Gunnar þar mann, sem hann’
vonaðist til að gæti hjálpað honuní
til að komast aftur í flugstjórastöðu
hjá Plugfélaginu, en liann kvaðst
ekkert geta gert í þvi máli. Endaði
samtal þeirra með rifrildi. Ok Gunn.
ar síðan að heimili Jóhanns heitins,
að Tómasarhaga 25, þar sem hantt
hitti Jóhann og skaut hann, ein*
og fyrr segir. 1(
Dóminum áfrýjað
Dóminum verður áfrýjað ti!
Hæstaréttar, og liefur gæzluvarð-
hald Gunnars V. Fredriksen veriS
framlengt til þess tíma er hæstarétt-
ardómur gengur í málinu.
í HÚSI einu í Sandgerði vakn-
aði fólk upp á laugardagsnóttina
við það, að saumavél, sem skilin
hafði verið eftir í sambandi fór í
gang. Ástæða: Ökkladjúpt vatn var
á gólfinu og flaut það yfir gólfrofa
vélarinnar sem gaf samband.
Mikil tjón urðu af vatnsflóðum
í Sandgerði um helgina, er vatn
flæddi inn í kjallara margra húsa.
Leysingavatn úr Miðnesheiði olli
flóðunum, en vatnið rann í stór-
um lækjum gegnum þorpið á leið
til sjávar.
Myndirnar hér á síðunni tók
fréttaritari Alþýðublaðsins í Sand-
gerði, Ólafur Eggertsson.
EMBL LÆTUR AF FORMENNSKU:
iStefán Júlíusson kjörinn
A Fulltrúaráð Alþýðuflokksfélag
a anna í Hafnarfirði héit aðalfund
sinn í fyrrakvöld. Emii Jónsson
™ ráðherra sem verið hefur for
9 miaðtur fulltrúaráðsins í 35 ár
@ ibaðst undan endurkjöri, ten í
hans stað var Stefán Júliusson
^ rithöfundur kjörinn iformaður.
™ Aðrir í stjórn fulltrúaráðsins
9 erlu: Þórður Þórðarson, varafor
9 maður, Yngvi Rafn Baldvinsson
A ritari, Ólafu,r A. Kristjánsson
gjaldkeri, og meðstjórnendiur
™ Emil Jónsson, Haukur Helgason
9 og Sigríður Erlendsdóttir. í
9 'varastjórn eru Ingvar Viktors
A son og Sigþór Jóhannesson.
Emil Jónsson.
Tvær nýjar síma-
línur á milli
Washington og
Kremlar
WASHINGTON (ntb afp)! Tvær
inýjar ,.íbeinar línur“ bættust við
á milli Hvíta hússins og Kreml
ar í gær — til viðbótar yið hið
fræga „beina símasamband“ á
milli þessara tveggja höfuðbóla
heimskringlunnar! Önnur beina
ilínan er á milli bandariska utan
ríkisráðuneytisins í Washing
ton og sendiráðs Bandaríikjanna
í Moskvu, en liin á milli „önd
verðu pólanna“: sovézka utan
ríkisráðuneytisins í Moskvu og
sendiráðs Sovétríkjanna -í Was
hington. Allt er þegar þrennt
er, eins og þar stendur!