Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2001, Blaðsíða 32
Opel Zafira
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
1
í' OPELA © Bífheimar
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MANUDAGUR 19. NOVEMBER 2001
Baráttuandí
Margir sýndu tónlistarkennurum samstöðu í kjaradeilu þeirra'með því að mæta á baráttufund í Háskólabíói í gær og færri komust inn en vildu. Ávörp fluttu Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasam-
bands ísiands, Sigrún Grendal, formaður Félags tónlistarkennara, og Björn Th. Árnason, formaður Félags íslenskra hljómlistarmanna. Heiðursgestir voru Rögnvaldur Sigurjónsson píanðleikari og Guð-
mundur Jónsson söngvari, auí< prófessoranna Ágústs Einarssonar og Þórólfs Þórlindssonar. Mörg oggóð tónlistaratriði voru flutt milli hins talaða orðs, stórsveitir, kórar og stórsöngvarar komu fram
og í lokin sameinuðust fundargestir í fjöldasöng. Verkfall tónlistarkennara hefur nú staðiö í fjórar vikur.
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
Féll í jökul-
sprungu og lést
Tvítugur Reykvíkingur, Lárus Hjalti
Ásmundsson, lést þegar hann féll um 40
metra ofan i sprungu i Gígjökli, falljökli
úr EyjafjaUajökli, síðdegis á laugardag.
Hann var á ferð í 16 manna hópi úr
Hjálparsveit skáta í Garðabæ sem var
að æfa notkun á jöklabúnaði. Jökullinn
er brattur og erfiður yfirferðar á þeim
stað sem slysið varð. Ungi maðurinn
c ji, hrasaði og féll niður með fyrrgreindum
afleiðingum. Félagar hans óskuðu eftir
aðstoð þyrlu og sigu ofan í sprunguna.
, Þegar að var komið var maðurinn lát-
inn. Um 70 björgunarmenn frá Hellu,
Hvolsvelli og Reykjavík unnu að björg-
unaraðgerðum. Lárus Hjalti var til
heimilis að Dalhúsum 73. Hann lætur
eftir sig unnustu. -Ótt
Samfylkingin:
Kom sjálfri
sér á óvart
Stefán Jón
Hafstein.
„Samfylkingin
kom sjálfri sér á
óvart með þessum
fundi sem var ótrú-
lega sterkur,11 segir
Stefán Jón Hafstein
sem kjörinn var
formaður fram-
kvæmdastjómar
Samfylkingarinnar
á landsfundi flokks-
ins, sem lauk i gær.
Stefán Jón segir að kjör sitt þurfi
ekki að túlka á þann veg að hann stefhi
á frekari landvinninga í stjómmálum.
„Þetta er ekki hugsað þannig heldur er
ég fremstur meðal jafningja i þeirri
vösku sjálfboðaliðasveit sem stendur að
baki Samfylkingunni. Varðandi frekari
stjórnmálaafskipti er spumingin þegar
og ef, þetta er nóg í bili.“ -sbs
Sjá bls. 4.
Jón Grímsson kveöst hafa verið í Hafnarbúðinni þegar Geirfinnur Einarsson hvarf:
Hver getur þetta
veriö annar en ég?
- þekkti Geirfinn ekkert - athyglisvert, segir Magnús Leópoldsson - skýrsla óiuidirrituð
„Ég hef aldrei spáð i hvort ég sé
líkur svokölluðum Leirfinni. En
hver gat verið að spyrja til vegar í
brúnum leðurjakka, með flaksandi
belti, I Keflavik miUi klukkan 21
og 21.30 ef það var ekki ég? Ég fór
til Keflavíkur þennan dag, um
þetta leyti, og fékk að hringja úr
síma,“ sagði Jón Grímsson, 47 ára
ibúi í Seattle í Bandaríkjunum, í
samtali við DV í gærkvöld. í bók-
inni Ameríski draumurinn, eftir
Reyni Traustason, segir Jón að
hann hafi farið í Hafnarbúðina í
Keflavík einmitt á þeim tima sem
svokallaður Leirfinnur, sem lýst
var eftir í Geirfinnsmálinu svo-
kallaöa, kom þangað fyrir ná-
kvæmlega 27 árum í dag.
Magnús Leópoldsson, sem lög-
reglan reyndi að tengja við Geir-
finnsmálið á sínum tíma, segir að
athyglisvert sé að framburður
Jóns í lögregluskýrslu á sínum
tima passi ekki við það sem hann
segir í dag.
Með öðrum orðum: svo geti ver-
iö að ekki hafi verið haft rétt eftir
Jóni við skýrslugerð og lögreglan
hafi ekki vUjað beina athygli að
því að Leirfinnur gæti hafa verið
Jón Grímsson eftir aUt.
Að bjarga
mannslifi í
miðri skýrslu-
töku
Jón sagði í
samtali við DV
að þann 19. nóv-
ember 1974, dag-
inn sem Geir-
finnur hvarf,
hafi vinnuveit-
Jón Grímsson.
Leirfinnur.
andi sinn sent hann ofan úr Sig-
ölduvirkjun tU Keflavíkur tU að
sækja bíl fyrir mann sem þar hafi
einnig unnið - mann sem
nokkrum árum áður hafði reyndar
einmitt verið herbergisfélagi Geir-
finns Einarssonar í Sigöldu.
Jón sagði að hann hefði tvisvar
farið í skýrslutöku vegna þessa
máls. í fyrra skiptið hefði lögreglu-
maður sem vann i Sigöldu tekið af
honum skýrslu:
„Skýrslutakan fór fram inni í
skúr uppi í Sigöldu. í miðju viðtali
urðum við að hlaupa út vegna þess
að Júgóslavi hafði faUið ofan í
sandsUó og var að deyja þar. Ég og
lögreglumaðurinn lágum við hlið
hans og vorum að reyna að halda
manninum á Íífi. Við urðum að
grafa manninn út,“ sagði Jón. Eft-
ir þetta kom
Njörður Snæ-
hólm rannsókn-
arlögreglumaður
við annan mann,
sem Jón segist
ekki vita hver
var, til að yfir-
heyra hann á
dvalarstað hans
að Sogavegi 158.
virðist sem ég hafi
„En svo
sloppið út úr þessu Geirfinnsmáli
þegar Njörður sagði að leðurjakk-
inn minn hefði verið of dökkur.
Þeir létu mig snúa mér við í jakk-
anum og sögðu svo þetta - jakkinn
var of dökkur,"
Jón segist engu að síður telja yf-
irgnæfandi líkur á að hinn svo-
kaUaði Leirfinnur, sem lýst var
eftir, sé hann sjálfur, með hliðsjón
af því að hann kom í Hafnarbúð-
ina að kvöldi 19. nóvember 1974 til
að fá að hringja, einmitt á þeim
tíma sem afgreiðslustúlka og tvær
aðrar stúlkur sem voru í Hafnar-
búðinni sögðu að umræddur mað-
ur hefði komið. Auk þess var Jón
i raun sláandi líkur manninum
sem styttan var gerð eftir.
Skýrslan ekki undirrituð
DV bar það undir Jón að i lögreglu-
skýrslu sé eftir honum haft að hann
hafi farið á Aðalstöðina og síðan hafi
hann gengið að þeim stað þar sem
billinn var sem hann átti að sækja:
„Ég veit ekki hvort ég fór í Hafnar-
búðina eða hvort ég fór á Aðalstöðina
því ég þekkti nákvæmlega ekkert til
Kefiavíkur. En ég fór á þennan stað
þennan dag, á þessum tíma dags, fékk
að hringja úr síma og var í brúnum
leðurjakka. LeigubíUinn beið eftir
mér á meðan ég fékk að hringja, síð-
an fór ég út aftur og bUstjórinn ók
mér á þann stað sem ég sótti bUinn.“
Magnús Leópoldsson segir að það
sé athyglisvert að Jón Grímsson seg-
ist hafa farið í Hafnarbúðina til að
hringja en í lögregluskýrslunni segir
að hann hafi farið á Aðalstöðina.
„Það er ótrúleg tUvUjun að Jón
Grímsson skuli vera að sækja bíl
fyrrum herbergisfélaga Geirfinns
kvöldið sem hann hvarf,“ segir Magn-
ús Leópoldsson.
Undir lögregluskýrsluna er prent-
að á ritvél: „Þannig gjört - Haukur
Guðmundsson". Hvorki undirskrift
Hauks né Jóns Grímssonar, sem
skýrslan var tekin af, eru á skýrsl-
unni. Ótt
EG ER VIST LIKUR
HONUM...I
Kröfuhafar Gen.is láta meta ættfræöigrunn Friðriks Skúlasonar og ÍE:
Vilja hundruð milljóna í bætur
Þrotabú Genealogia Islandorum hf. er
i kyrrstöðu en búið er að lýsa kröfum i
búið sem nema hátt í 400 mUljónum
króna. Helgi Jóhannesson hrl. er bú-
stjóri. Það sem stöðvar uppgjör búsins
eru málaferli sem Genealogia höfðaði
gegn Friðriki Skúlasyni ehf. og ÍE ehf.
Ljóst er að þrotabúið væntir hárra fjár-
hæða úr hendi Friðriks og ÍE, jafhvel
hundraða miUjóna.
Málið snýst um hvort fyrirtækin hafi
stundað ritstuld, óleyfilega notkun upp-
lýsinga úr ættfræðibókum Þorsteins
Jónssonar tU að stofna sinn eiginn ætt-
fræðigrunn tU notkunar í erfðavísinda-
legum tUgangi. Þorsteinn Jónsson og
Höfuðstöövarnar á Lynghálsi.
Genealogia báðu um tvo dómkvadda
matsmenn tU að skoða ættfræðigrunn
Friðriks Skúlasonar og komast að
hvernig hann er tU orðinn. Þegar
Genealogia fór í gjaldþrot var vinnan
stöðvuð. Áfundi í þrotabúinu nýlega
ákáðu nokkrir kröfúhafar að fjármagna
áframhaldandi vinnu matsmannanna.
„Okkur þykir eðlUegt að þrotabúið setji
málskostnaðartryggingu," sagði Reynir
Karlsson hrl., lögmaður ÍE, í gærkvöld.
Slík trygging fékkst í héraðsdómi en
Ragnar Aðalsteinsson og Ólafur Garð-
arsson, lögmenn Genealogia Islandor-
um, sendu málið fyrir Hæstarétt. Rétt
fyrir helgma var staðfest málskostnað-
artrygging i Hæstarétti líka, 1,5 miUjón-
ir króna, sem kröfuhafar þurfa að
greiða. -JBP
Sjá nánar á bls. 6.
STYÐJU
jólakort
M*KRABBAMEINSFÉLAGIO f STARFI